Tíminn - 15.06.1974, Síða 6

Tíminn - 15.06.1974, Síða 6
6 TÍMINN Allmargar ryskingasenur eru ! leikritinu, og hér sjáum viö eina sllka. Baldvin Halldórsson leikstjóri gefur góð ráö. Tfmamynd: Gunnar, LÉNHARÐUR FÓGETI í VALSHEIMILINU HP-Reykjavik. — I Valsheimilinu eru að gerast merkilegir hiutir þessa dagana. Þar er sjónvarpiö að láta gera kvikmynd eftir leik- riti Einars Kvaran, Lénharði fógeta, og verður kvikmyndin i litum. Ævar Kvaran hefur i vetur unn- ið að úmsum breytingum á leik- riti afa sins, en sjálft kvikmynda- handritið hafa gert i sameiningu þeir Baldvin Halldórsson, sem er stjórnandi, Tage Ammendrup, stjórnandi upptöku, kvikmynda- tökumaðurinn Haraldur Friðriks- son. sem einnig sér um leikmynd og búninga. Kvað Tage það hafa verið mikla lijálp og til tima- sparnaðar að hafa sv.o góðan tima til undirbúnings, og handritið væri gott. Það hefði m.a. sannazt á þvi, að nokkrar breytingatillög- ur hefðu verið reyndar, en þeir hefðu alltaf endað með að fylgja hinu upphaflega handriti. Þetta er fyrsta meginverkefnið, sem sjónvarpið gerir á eigin spýt- ur, þ.e. án mikillar utanaðkom- andi hjálpar. Innitökur fara allar fram i Valsheimilinu, en útitökur að Gullbringum i Mosfellssveit og i ölfusinu. Kvikmyndun hófst 28. mai, og bjuggust þeir við að ljúka henni núna um mánaðamótin. Frá sjónvarpinu vinna um 14 manns að verkinu, og er vist óhætt að fullyrða að allir vinni dag og nótt og verkaskipting sé þarna jöfn og almenn. Þegar við vorum þarna, skiptust menn nú reyndar aðallega á við að hella i okkur kaffi, en siðan fengum við að fylgjast með nokkrum spenn- andi senum, sem gáfu góðar vonir um verkið i heild. Baldvin Halldórsson sagði, að ■ 11 ■ 1 ÁLFNAÐ ER VERK I t ÞÁ HAFIÐ ER ■ II ■ 1 ^ SAMVINNUBANKINN alls tækju 35 leikarar þátt i kvik- myndatökunni, að aukaleikurum meðtöldum. Gunnar Eyjólfsson léki sjálfan Lénharð fógeta, Sunna Borg Guðnýju, Ævar Kvaran færi með hlutverk Torfa i Klofa og Sigurður Karlsson með hlutverk Eysteins. Valur Gisla- son, Þóra Borg, Þóra Friðriks- dóttir o.fl. færu einnig með til- þrifamikil hlutverk i leiknum. Auk leikaranna taka þátt i kvik- myndinni 20 hestar, allir sérstak- lega valdir af Bjarna Sigurðssyni á Hvoli, og sagði Baldvin, að hann hefði innt sitt verk sérlega vel af hendi. Haraldur Friðriksson hefur með höndum kvikmyndatökuna, en þetta er fyrsta stóra verkefnið, sem hann vinnur fyrir sjónvarpið, ef frá er talið leikritið Hælið, sem nýlega var sýnt i sænsku sjón- varpi. Hann kvað það ekki koma sér spánskt fyrir sjónir, að kvik- myndin væri tekin i lit, þvi hugað yrði að útflutningsmöguleikum, og svo getum við alltaf gælt við hugmyndina um litasjónvarp. Sjálf filman verður framkölluð i Noregi og hljóðsett eftir að klippingum, sem Erlendur Sveinsson sér um, er lokið. Það verk mun Marinó Ólafsson að öll- um likindum annast, — hann sér um hljóðupptöku við kvikmynd- ina. Ekki hefur verið kostað neitt sérstaklega til tækjabúnaðar vegná þessarar töku, ef frá eru talin 6 stór útiljós, sem Ingvi Hjörleifsson ljósameistari sagði, að auðvitað yrðu notuð við svipuð tækifæri i framtiðinni. Gunnar Eyjólfsson og Sunna Borg fara meö tvö aöalhlutverkanna I Lénharöi fógeta. Kvikmyndatökumaöur er Haraldur Fríöriksson, og hljóöupptöku hefur Marinó Ólafsson meö höndum. Langardalsvöllur í dag kl. 14.00 leika VALUR - ÍBA Laxveiði Tilboð óskast i Langá á Mýrum, sumarið 1975. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhannes Guðmundsson, Ána- brekku, simi um Borgarnes. Laugardagur 15. júnl 1974 Ingólfur Davíðsson: Vorið °g blómin Einmuna hlýtt vor, hretlaust að kalla. Vetrargosinn hviti byrjaði að blómgast sunnan undir húsum i febrúarlok. Páskaliljan gula lýsti i görðun- um um páskaleytið og menn fóru að gróðursetja fyrstu sumarblómin I miðjum mai, eða jafnvel fyrr. Á hvita- sunnu stóð heggurinn við Tjörn- ina í Reykjavik hvitur af bióm- um. Já, „sig færir heggur i fannhvitt skraut, nú fagna blóm i haga. Vel búnast þröstum I birkilaut, þeir blessun syngja alla daga”. Gullhnapparnir glóðu llka I byrjun júni, engja- blóma, balasóma kallar Jón Ólafsson þá i „Kátum pilti”. Margar fjölærar skrautjurtir voru komnar i blóm i mailok og allt var gult af fiflum og sóleyj- um, og bláhvitt af hrafna- klukku. Fyrstu viku i júni færð- ist óðum blómalitur á holtin og melana, lambagrasið lýsti eins og ljós og allt varð hvitblettótt af holtasóley og músareyra. Jafnvel fifan byrjaði að sýna hið hvita hár sitt viku af júni, en það er óvenju snemmt. Þá voru reyniviður og silfurreynir orðn- ir hvitir af blómum og bæði seljareynir og alparósir tóku að bera sina fögru blómskúfa. Já, hið gula blómahár tók að „hrynja um herðar” gullregns- ins á horni Miklubrautar og Rauðarárstigs. Skordýrin vökn- uðu lika til lifsins, randaflugur fóru að suða viö blómin og skógarmaðkur að skriða úr hiði og naga lauf trjáa og runna, jafnvel seint I mai en færðust mjög I aukana i júni. Var sums staðar tekið að úða með lyfjum gegn möðkunum i maílok. Slik úðun er ill nauðsyn og sýna verður hina mestu nákvæmni og varfærni. Er úðunin mikið trúnaðarstarf og aðeins á færi æfðra manna ef sterk lyf eru notuð'Garðurinn er eitraöurum hálfan mánuð á eftir. Kröftug úðun með vatni getur dregið nokkuð úr skemmdum af völd- um skógarmaðka og blaðlúsa, ef I tima er byrjað. Ribsrunnar hafa borið mjög mikið af blóm- um, svo von ætti að vera góðrar berjasprettu. Viða um land er gróðurinn um mánuði fyrr á ferðinni en i meðalári. 5-8. júni var byrjað að slá tún á stöku bæjum i Eyjafirði og undir Eyjafjöllum. Kal mun vera litið og er útlit fyrir ágætt grasár. Viku fyrir hvitasunnu gerði talsvert næturfrost. Þá skemmdust viðkvæmar jurtir I görðum nyrðra, t.d. á Akureyri. Einnig sá sums staðar á blá- berjalyngi, sem þá stóð i blómi. Hér syðra varð frostsins eink- um vart i lægðum t.d. i Laugar- dalnum i Reykjavik og við Korpu. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ ■ Full nýting vinnuafls í öllum ■ byggðum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.