Tíminn - 15.06.1974, Blaðsíða 15
Laugardagur 15. júni 1974
TÍMINN
15
© Hátíðir
næstur á dagskrá eítir Loft Guö-
mundsson, og er Sigriður Þor-
valdsdóttir leikstjóri.
Hér færist hátiðin litillega um
set og flytur sig á sundlaugar-
svæðið. Lúðrasveitin byrjar þar
að leika undir stjórn Birgis
Sveinssonar kennara. Þá kemur
ávarp nýstúdents og flytur Helga
Jónsdóttir það. Sundkeppni er
næstu dagskrárliður, en eftir það
kemur Ketill Larsen leikari og
flytur barnagaman.
Að þessu loknu verða iþróttir,
bæði flokkaiþróttir og frjálsar.
Hátiðardagskránni lýkur svo
með dansleik i Hlégaröi um
kvöldið.
Ólafsfjörður:
Dagskrá 15-17. júni
Ólafsfirðingar minnast land-
námsins núna um helgina með
ýmsu móti. Við náðum tali af
Kristni G. Jóhannssyni, sem er
formaður þjóðhátiðarnefndar.
Sagði Kristinn, að hátiðahöldin
mundu hefjast 15. júni með ung-
lingadansleik.
— Sextánda júni hefst hátiðin
með guðsþjónustu, siðar verður
hópreið hestamanna og hesta-
mannamót. Skátabúðir verða
opnar i Skeggjabrekkudal og
miklar útiiþróttir verða um
daginn. Um kvöldið verður al-
mennur dansleikur
Hátiðahöldin 17. júni hefjast
© Rangfærslur
áður, að á þessum tima hefur
ekki legið frekar fyrir en nú,
hver endanleg fjáröflun hans
yrði.
Þarna skakkar þvi Morgun-
blaðinu vonlega i útreikn-
ingum sinum, er það nefnir, að
375 milljónir, sem rætt hefur
verið um að kæmu úr fram-
kvæmdasjóði, kæmu ekki
1 öðru lagi ber að geta þess,
að landbúnaðarráðherra
beitir sér fyrir þvi nú, að
skyndilán, sem stofnlána-
deildin fékk á s.l. ári hjá
Seðlabankanum verði breytt i
fast lán. En við það myndi
ráðstöfunarfé deildarinnar i
ár aukast sem þessu nemur.
Rétt væri Morgunblaðinu, er
það ræðir um lánamál land-
búnaðarins og fjármagn stofn-
lánadeildarinnar, að kynna
sér, hvernig þessum málum
var háttað i tið fyrrverandi
landbúnaðarráðherra.
Þá voru vinnslustöðvar
landbúnaðarins stöðugt látnar
sitja á hakanum og aldrei
gefin lánsloforð til þeirra. Árið
1971 var séð fram á verulega
fjárvöntun til stofnlána-
deildar, svo að ekki var viðlit
að svara lánsloforðum án þess
að aukið fjármagn væri
tryggt. Þáverandi land-
búnaðarráðherra skrifað þá
aðeins bréf um að þessa fjár
myndi verða aflað án þess að
nokkuð fylgdi nánar um það,
á hvern hátt þess yrði aflað,
eða frekari trygging væri
gefin.
Það kom svo i hlut nú-
verandi landbúnaðarráðherra
að afla þessa fjár eftir að hann
tók við, og þurfti þá að bæta
við bæði stofnlánadeild og
veðdeild.
Stofnlánadeildin þurfti þá
um 120 milljónir eða um helm-
ing þess fjár, sem þá var
lánað. Slik vinnubrögð ;sem
fyrrverandi landbúnaðarráð-
herra hafði i þessu máli, hefpr
núverandi ráðherra ekki
viljað við hafa, enda hefur fé
til stofnlánadeildarinnar verið
betur tryggt i hans tið.
Dráttarvélalánin.
Varðandi lán til dráttar-
vélakaupa hefur blaðið aflað
sér þeirra upplýsinga, að ekki
hefur verið um það fjallað i
stjórn stofnlánadeildarinnar
eða gerð um það samþykkt að
stöðva lán til dráttarvéla, né
að breyta þeim reglum sem
um þau hafa gilt.
Þá er heldur ekki um fjár-
skort til þeirra lána að ræða.
Þessi lán munu þvi verða veitt
nú eins og áður, enda engin
ástæða til annars en að af-
greiða þessi lán nú eftir þeim
reglum, sem um þau gilda.
með ávarpi bæjarstjórans,
Asgrims Hartmannssonar, siðan
flytur f jallkonan ávarp sitt. Aðal-
ræðuna l'lytur Baldvin Tryggva-
son. Kórar syngja og slysa-
varnardeildir karla og kvenna
sýna þjóðdansa. Ómar Ragnars-
son skemmtir og kveðnar verða
stemmur. Þessi hátiðarhöld fara
fram við sundlaugina.
A-Skaftfellingar:
Fjölbreytt dagskrá
Austur-Skaftfellingar minnast
ellefu alda búsetu á tslandi 17.
júni. Þjóðhátiðarnefnd. sýslunnar
hefur lokið skipulagningu
hátiðarhaldanna.
Timinn hafði samband við Pál
Þorsteinsson á Hnappavöllum i
öræfasveit, en hann er formaður
þjóðhátiðanefndar.
— Hátiðin hefst um morguninn
með siglingu fánum prýddra
báta út úr höfninni og út á ósinn.
Eftir hádegi verður guðsþjónusta
og annast messugjörð báðir
prestar sýslunnar, Skarphéðinn
Pétursson og Fjalar Sigurjóns-
son. Farið verður i hópgöngu frá
kirkjunni að samkomuhúsinu,
þar sem fram fer samfelld dag-
skrá með ræðum, kórsöng, upp-
lestri og fleiru. Að þvi búnu verða
sýnar iþróttir á iþróttaleik-
vanginum, ef veður leyfir. Ein-
hvern tima dagsins verður opnuð
sýning i gagnfræðaskólanum, þar
sem munir úr byggðasafni og
málverk verða til sýnis, ásamt
öðrum listmunum. Að kvöldi
verður dansleikur i Sindrabæ.
S-t»ingeyingar:
Hátið að Laugum
— Sautjánda júni minnast
Suður-þingeyingar 1100 ára bú-
setu á tslandi með hátiðar-
dagskrá að Laugum i Reykjadal.
Á sunnudaginn verða opnaðar
þrjár sýningar á vegum þjóð-
hátiðarnefndar sýslunnar og
verða tvær þeirra i Laugaskóla en
ein i Húsmæðraskólanum.
Sýningarnar i Laugaskóla eru
bókasýning, bækur eftir þing-
eyska höfunda- og listasýning, að
mestu leyti byggð á málverkum. 1
húsmæðraskólanum verður
heimilisiðnaðarsýning. Sýningar-
nar verða opnar báða dagana frá
14-22.
Þá erráðgertað sýna þætti úr
héraðskvikmynd. sem unnið
hefur verið að i langan tima.
Sýningin hefst kl. 17 á sunnudag.
Sjálf hátiöardagskráin hefst
siðan 17. júni kl. 13.30 með þvi að
lúðrasveit leikur. Ráðgert er að
dagskráin verði haldin á iþrótta-
vellinum við Laugaskóla, ef
veður leyfir. Að öðrum kosti
verður dagskráin flutt innan
dyra.
Hátiðarhöldin 17. júni verða
sem hér segir: Ávarp formanns
þjóðhátiðarnefndarog sýlsu-
manns, Jóhanns Skaftasonar.
Þjóðsöngurinn leikinn. Guðs-
þjónusta, Sigurður Guðmundsson
frá Grenjastað. Hátiðarræða
dagsins. Jónas Kristjánsson for-
stöðumaður Árnasafns. Sam-
söngur héraðskóranna. Lúðra-
sveit Húsavikur leikur. Þjóð-
hátiðarkvæði, ort af tileíni dags-
ins. Heiðrekur Guðmundsson
skáld frá Sandi Söngur karlakórs
Reykdæla. Um kvöldið verður
stiginn dans á útipalli fram eftir
nóttu.
Landnámshátíð
Árnesinga:
Aðalhátiðin á sunnudag.
— Landnámshátið Árnesinga
verður haldinn á Selfossi dagana
14.-17. júni.
Hátiðahöldin hófust á föstudag
klukkan sextán með þvi að form-
lega var tekið i notkun nýtt hús-
næði fyrir Listasafn Árnessýslu.
Um kvöldið voru opnaðar aðrar
sýningar.
Páll Hallgrimsson sýslumaður
setti landnámshátiðina
Timinn hafði samband við Haf-
stein Þorvaldsson en hann á sæti i
landnámshátiðarnefnd
Sagði Hafsteinn, að aðal-
héraðshátiðin fyrir alla sýsluna
færi fram þann sextánda, en á
sautjándanum færu fram hátiða-
höld heima i sveitunum.
— Stórt og mikið útisvið hefur
verið reist á iþróttavellinum
sagði Hafsteinn, þar sem aðal-
hátiðahöldin fara fram. Dagskrá
landnámshátiðarinnar. sunnu-
daginn 16. júni verður sem hér
segir:
Háfiðaguðsþjónusta i Selfoss-
kirkju Predikun: sr, Eirikur J.
Eiriksson prófastur Lúðrasveit
Selfoss leikur létt lög á hátiðar-
svæðinu, stjórnandi Ásgeir
Sigurðsson Hátiðasamkoma
Kynnir: Hafsteinn Þorvaldsson
Hátiðakantata: Sigurður Ágústs-
son Texti: Guðmundur Daniels-
son Hátiðakór Árnesinga flytur,
einsöngvarar: Garðar Cortes, og
Elins Sigurvinsdóttir, Stjórnandi
Sigurður Ágústsson. Undirleik
annast Einar Markússon Hátiða-
ræða. Skólameistari Mennta-
skólans á Laugarvatni Kristinn
Kristmundsson flytur. Þjóð-
dansasýning. Glimusýning Umf.
Vikverja. Tjórnandi Kjartan
Bergmann. Hátiðaljóð eftir
Gunnar Benediktsson, rithöfund
Jón Sigurbjörnsson leikari flytur.
Lúðrasveit Selfoss leikur. Stjórn-
andi Ásgrimur Sigurðsson.
Skemmtiþáttur Ómar Ragnars-
son Hátiðakór Árnesinga syngur
lög eftir Árnesinga og fleiri.
Stjórnandi Sigurður Ágústsson
Iþróttakeppni Viðavagnshlaup og
fleira. Sýningar opnar — frá kl.
10.00 til 22.00
Sú breyting hefur oröið að
sýningarnar sem átti að halda i
barnaskólanum, hafa verið
fluttar i gagnfræðaskólann.
Garöahreppur:
Merki hreppsins notað i
fyrsta sinn
i Garðahreppi verður 1100 ára
alinælis íslandsbyggðar minnst
með margvislegum hætti.
1 Garðahreppi verður 1100 ára
afmælis tslandsb.vggðar minnsl
með margvislegum hætti.
Aðalhátiðahöldin fara fram 17.
júni og hefjast með guðsþjónustu
i Garðakirkju kl. 11.00, en á undan
verður fánahylling við kirkjuna
og Lúðrasveit Garðahrepps
leikur.
Skrúðganga hefst frá Vifils-
stöðum kl. 14.00 og verður gengið
að hátiðarsvæðinu við iþróttavöll-
inn.
Utihátið hefst við iþróttavöllinn
kl. 14.30. em þar veröur flutt
minni tslands, fjallkonan flytur
ljóð og efnt verður til iþrótta og
ieikja.
Kvöldskemmtun verður i
iþróttahúsinu kl. 20.00 en þar
leikur Lúðrasvéit, Hljómsveit
Tónlistarskólans, og fléira, en
siðan verður dansað og leikur
átján manna hljómsveit FtH íyrir
dansinum.
Sýning um byggðaþróun i
Garðahreppi verður haldin i
iþróttahúsinu i haust við vi'gslu
þess, en þar veröur m.a. greini
frá skipuiagsmálum byggðarinn-
ar og fortið og framtið.
Þjóðhátiðarblað kemur út i
sumar á vegum nefndarinnar, en
þar verða birtir þættir úr sögu
hreppsins, kynnt umhverfi
byggðakjarnanna. o.fl.
Þjóðhátiðargarður hefur verið
stofnaður með þvi að Hrepps-
nefnd Garðahrepps hefur ákveðið
verndun 40-50 ha. sérkennilegs og
fagurs landsvæðis með Hrauns-
holtslæk sunnan Flata, og helgað
það þessu afmælisári að tillögu
þjóðhátiðarnefndar.
Merki hreppsins verður notað
opinberlega i fyrsta sinn 17. júni,
en það er mosagrænt og hvitt.
Mynd þess táknar eldfjall.
hrauntraðir og vog en Búrfell i
Garðahreppi og hraunið, sem
runnið hefur út þvi Merkið
nannaöi Erna Ragnarsdóttir,
innanhússhönnuður
© Varnarmálin
um. Við erum ekki i vafa um, að
stefna flokks okkar er þjóðleg en
öfgalaus. Hún gerir ráð fyrir
öryggi án erlendra hersveita á
friðartimum. Hún tekur tillit til
nágrannaþjöðanna, án
skuldbindinga, sem þær myndu
ekki taka i mál að gangast inn á
sjálfar.
© AAinkurinn
þvi fé, sem rennur til þess að eyða
varginum.
Minkar voru fyrst fluttir hingað
til lands 1931. Þá létu ráðamenn
viðvaranir náttúfufræðinga illu
heilli sem vind um eyrun þjóta.
Siðan hefur verið háð látlaust
strið við minkinn, en þótt undan-
farin ár hafi verið felld 2000-2500
dýr árlega. er svo að sjá sem litt
miði og sennilegt er að minknum
verði aldrei útrýmt.
Smávægilegar
jarðhræringar
BH-Reykjavik. — Smávægilegar
hræringar komu fram á jarð-
skjálftamælum i Siðumúla i gær,
en fólk i Borgarlirði mun ekki
hafa orðið þeirra vart, enda ekki
það stórvægilegir.
Annars eru menn orðnir
hvekktir á jarðhræringum þar
O Ýkjusögur
pólitiskum efnahagsráðstöfunum
eftir kosningar. Það er i þessu
eins og öðru, að ef menn eiga von
á stórfelldum hækkunum, þá
kemur kippur, en nú er kominn
svolitill jöfnuður á þetta, vinnu-
laun hækka ekki meira i bili
a.m.k. og byggingarefni liklega
ekki verulega á næstunni.
Að einhver ósköp sé af ibúðum
á markaðnum er hreint þvaður.
Að visu er heldur meira núna en
meðan blaðleysið var. Salan yfir
sumarmánuðina hefur alltaf
dregizt saman, og alltaf hefur
verið frekar dræm sala i kosn-
ingamánuðum, þvi þetta er yfir-
leitt óviss timi, auk þess sem sal-
an var alveg gifurleg siðastliðinn
maimánuð.
Leiðrétting
Vegna fréttar, sem birtist i
blaðinu i gær. um jarðhita við
Kolbeinsey, viljum við taka fram,
að um verulegt brengl var að
ræða á henni, — m.a. féll nafn
Stefáns Arnþórssonar niður.
Viljum við hér með biðja hlut-
aðeigandi velvirðingar á þessum
mistökum.
O Læknar
lag Reykjavikur skipuleggur á
göngudeild Landspitalans milli
kl. 20.00 og 21.00 á mánudögum til
föstudags og laugardaga kl. 9.00
til 12.00 f.h. og 16.00 til 17.00, helzt
óbreytt.
t neyðartilfellum verður fólk að
reyna að ná i hvaða lækni sem tii-
tækur er, þvi að að sjálfsögðu
munu allir laiknar reyna að
greiða úr vandamálum fólks eftir
beztu getu.”
— Hér er i rauninni aðeins um
að ræða spursmálið um lramboð
og eftirspurn, sagði Jón Sigurðs-
son, borgarlæknir, er blaðið
hringdi til hans. — Læknunum
finnst næturvaktirnar illa launað-
ar. Sjúkrahúslæknar gegna þeim
ekki, og heimilislæknar hafa orö-
ið að sjá um þetta i tvo og hálfan
mónuð, — og þeir eru vissulega of
fáir hérna i bænum, þannig að
þeir voru búnir að fá alveg nóg af
þessu. Hitt er annað mál, að ef
Sjúkrasamlagið fengist til að
greiða þeim betur, þá fengjust
fleiri til þessa starfs, og þá er
málið leyst.
— Það er sem sagt Sjúkrasam-
lagið, sem er samningsaðilinn við
lækna um þetta mál:
— Já, það er Sjúkrasamlagið,
sem ber að sjá samlagsmönnum
sinum fyrir þessari þjónustu. Það
eru samningar þess við heimilis-
læknana, sem þarna ber á milli.
Samningar við lækna á sjúkra-
húsum eru þessu máli alls óskyld-
ir.
Við spurðum borgarlækni um
álit hans á þvi, að heimilislæknar
væru of fáir, og hvort hann teldi
brögð að þvi, að almenningur not-
færði sér næturlæknaþjónustuna,
i stað heimilislækna.
Það er augljóst, þegar heim-
ilisla'knarnir eru of fáir til að geta
annað þessu, aö einhver brögö
hljóta að vera að þvi. En lausnin
liggur i þvi, að sjúkrasamlagið
nái samkomulagi við læknana, og
það verður ekki á annan hátt en
greiða hærra fyrir næturvaktirn-
ar. að minu áliti.
efra, og lauslegir munir eru ekki
lengur hafðir i hillum, svo að
dæmi séu nefnd.
Björgvin
híustar á
BH-Reykjavik. — 1 borgarráði sl.
þriðjudag var skýrt frá þvi, að
Björgvin Guðmundsson yrði á-
heyrnarfulltrúi Alþýðuflokksins á
fundum borgarráðs.
SUIUIHR-
STARF
fyrir börn
oo unglinsa
107*1
STANGAVEIÐIKLÚBBUR
UNGLINGA.
Vikulegar veiöiferöir.
S I G L I N G A R I
NAUTHÓLSVí K.
Yngri deild
(fædd ,60, '61, '62 og '63)
Eldri deild
(fædd ,58, '59 og '60)
SALTVIK.
Reiðskóli.
Næsfa námskeið
18. júní.
Aldur þátttakenda:
8—14 ára.
Lengd námskeiðs: 2 vik-
ur.
Æskulýðsráð Reykja-
víkur,
Fríkirkjuvegi 11.
Skrifstofan er opin kl
8.20—16.15.
Veitir upplýsingar um alla
starfsþætti ráðsins. — Simi
15937.
Mjólkurfræðingar
Vinsamlegast athugið
Lagt verður af stað i allar ferðir frá Austurvelli kl. 1:30
e.h.
Nauðsynlegt er að panta far i siðasta lagi daginn fyrir
hverja ferð.
Þátttaka tilkvnnist og upplýsingar veittar i sima 18800 ki,
9:00 til kl. 12:00 f.h.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.