Tíminn - 15.06.1974, Page 14

Tíminn - 15.06.1974, Page 14
14 TÍMINN-- Laugardagur 15. júni 1974 Hann stóð á fætur on gekk fram og aftur, og það sem það var honum ómögulegt að standast freistinguna, gekk hann upp á hæðina. Enda þótt enn væri ekki komin nótt, sat mávur uppi á malarhrygg að norðanverðunni og svaf með höf uð undir væng. Þegar hann heyrði til Eiríks, vaknaði hann, hristi vængina og flaug út í geiminn. Hann tók alls ekki eftir þessu. Hann stóð með kross- lagða handleggi og horfði til strandar. Augnaráðið reikaði eftir f jallahringnum, en leitaði í sífellu að sama staðnum, Skarðsstöð, sem var eins og skorin inn í f jalls- vegginn. Langa lengi stóð hann hreyf ingarlaus og dró naumast andann. Svo breiddi hann út faðminn, eins og hann vildi faðma að sér konuna og heiminn, sem hann hafði glatað. VIII. Helga Þegar Jónas kom heim frá Fulmar, hélt hann beinustu leið heim. Það var enn svo snemma morguns, að enginn var kominn á fætur. Þegar hann kom að húsinu, gekk hann inn, læsti dyrun- um og settist niður. Hugsanir hans höfðu allar verið á flökti við hina voðalegu atburði síðustu tíma, og nú var eins og færðist ró yfir hann, er hann kom að húsinu í slíku ástandi. Teppin voru horf in af báðum rúmum, olíu- eldavélin var farin og öll matföng. Hvernig átti hann að útskýra þetta fyrir Helgu, þegar hún kæmi heim klukkan sex? Hann hafði alls engin framtíðaráform varðandi Eirik . Hann óttaðist þessa stundina það eitt, að ef sann- leikurinn kæmist upp, myndu yfirvöldin krefjast þess, að Eiríkur yrði fluttur á þennan skelfilega spítala í Reykjavík. ^Hann var líka að huga um að koma Eiríki í burtu frá Fulmar og til eyðistaðar á ströndinni, þar sem hann myndi byggja kofa yf ir hann og annast um hann, þangað til yf ir lyki. Þetta myndi hann gera, enda þótt hann ætti á hættu að þurfa að eiga heima þarna hjá honum og annast um hann, með þeirri áhættu, sem það hafði í för með sér fyrir hann sjálfan. Það var eftir Jónasi að haga sér svona. Afbrýðissami Jónas, maðurinn, sem hafði glaðzt daginn sem Svala lét sem hún sæi Eirik ekki, hann var nú reiðubúinn að fórna öllu, þegar reyndi á i raun og veru. Og til að byrja með skyldi hann fórna núverandi þægindum sínum. Eiríkur hafði falið peningana, sem þeir áttu saman,undir gjóffjöl undir rúminu. Jónas flutti rúmið til, tók peningana og fór, þegar hann hafði læst dyrun- um. Nú var klukkan orðin fimm, og Skarðsstöð var að byrja að vakna til lífsins. Jón Súrsson var kominn út á stakkstæðið sitt og var að hjálpa til við að greiða úr f iskinum, sem veiðzt hafði daginn áður. Þegar hann kom auga á Jónas, gekk hann út að girðingunni og bauð góðan daginn. — Jæja, hvaðer nýttaf Eiriki? sagði hann. — Það væsir nú ekki um Eirík, svaraði Jónas. Hann er nú kominn til Reykjavíkur. — Til Reykjavíkur? En hvernig komst hann? Til Reykjavíkur? Það hefur ekki verið nein skipsferð, og Ingólfur fer ekki þangað fyrr en á morgun. — Hann fór landleiðina, sagði Jónas. — Landleiðina? Það er fimm daga ferð! — Nei, ekki nema f jögurra, þegar maður hefur hest,og hann fékk hest lánaðan inni á bæjunum. En það skiptir hann ekki máli, hvort þaðtekur f jóra eða f imm daga. Þú veizt, að þegar hann hef ur eitthvað á prjónunum, þá get- ur ekkert stanzað hann. — Hei, hann lætur ekki rokka sér,viðurkenndi Jón. En hvað skyldi hafa fengið hann til þess að fara til Reykja víkur með svo stuttum fyrirvara? — Það var eitthvað í sambandi við nýja bátinn, sem hann er að kaupa sagði Jónas. Ég fékk ekki að vita það, en hann er nú heldur ekkert fyrir að segja frá fyrir- ætlunum sínum. — Já, hann er duglegur maður, og hann eyðir ekki tímanum til ónýtis. Jónas hló kumrandi. Einhver annar hefði tekið eftir f lóttalegu augnaráði hans og geðshræringu, en Jón Súrs- son tók ekki eftir neinu. — Jæja, þegar ég er búinn að breiða fiskinn og fá mér matarbita, var ég að hugsa um að leggja í hann. Kemurðu með? — Nei, sagði Jónas, hvorki í dag né á morgun, og það var einmitt það, sem ég vildi tala um við þig. Nú verður þú að sjá um alla hluti hér, því að ég er að fara með Ingólfi til Reykjavíkur. — Þú líka? — Já, Eiríkur bað mig að hitta sig þar. — Þá skilur maður, að hann haf i eitthvað mikið í hyggju, úr því að það á að f ara svona leynt. — Leynt, f lýtti Jónas sér að seqja. Það er ekki um neina Við skulum ná honum fyrir þig foringi! yf' Náið i geimfara. búninginn mibh aldrei Hvernig i ósköpunum tókst honum þetta? Strax Þú fórst i náttfötin. r Ég ætla að sofa á maganum Farðu að ' , hátta. — mmm i LAUGARDAGUR 15. júni 7.00 Morgunútvarp. Veður- 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. 14.00 Vikan, sem var Páll Heiðar Jónsson sér um þátt með ýmsu efni. 15.00 Miödegistónleikar a. 15.45 Á ferðinni ökumaður Árni Þór Eymundsson. (Fréttir kl. 16.00. Veður- fregnir kl. 16.15) 16.30 Horft um öxl og fram á við Gisli Helgason fjallar um útvarpsdagskrá siðustu viku og hinnar komandi. 17.30 „Þegar fellibylurinn skall á” eftir Ivan Southall 11. þáttur sögulok. Þýðandi og leikstjóri: Stefán Bald- ursson Persónur og leikend- ur: Palli/Þórhallur Sig- urðsson, Addi/Randver Þorláksson, Fanney/Þór- unn Sigurðardóttir, Hann- es/Þórður Jón Þórðarson, Krissi/Sigurður Skúlason, Maja/Helga Jónsdóttir, Gurri/Sólveig Hauksdóttir, Fröken Friða/Anna Guð- mundsdótttir, Benedikt for- stjóri/Steindór Hjörleifs- son, Herra Gisli/Bessi Bjarnason, Georg/Guð- mundur Magnússon, Al- freð/Harald G. Haraldsson, Sögumaður/Jón Júliusson. 18. Söngvar i léttum dúr. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. ' 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Portúgalskt kvöid a. Helgi P. Briem fyrrum sendiherra flytur erindi um land og þjóð. b. Portúgölsk þjóðlög, sungin og leikin. c. Lesin smásaga eftir portú- galskan höfund. 21.00 Frá listahátið Finnski bassasöngvarinn Martti Talvela syngur i Háskólabi- ói, Vladimir Asjkenazý leik- ur á pianó. Fyrri hluta tón- leikanna útvarpað beint: a. Fjögur lög eftir Franz Schubert: 1: ,,An schwager Kronos”. 2: ,,Im Abend- rot”. 3: „Totengrabers Heimveh”. 4: ,,Der Schiff- er”. b. Fjórir alvarlegir söngvar (Vier ernste Ge- sange) eftir Johannes Brahms við texta úr bibli- unni. 21.45 Frá Bretlandi Ágúst Guðmundsson flytur. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. lHBBiil LAUGARDAGUR 15. júnl 1974 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Læknir á lausum kili. Breskur gamanmynda- flokkur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.50 Alvar Aalto, finnsk heimildarmynd um hinn fræga arkitekt. Þýðandi og þulur: Öskar Ingimarsson. 22.00 Mærin frá Orleans. (Joan of Arc). Bandarisk biómynd frá árinu 1948, byggð á leikritinu eftir Maxwell Anderson. Aðal- hlutverk Ingrid Bergman, Jose Ferrer og Ward Bond. Þýðandi Dóra Hafsteins- dóttir. Myndin lýsir þátt- töku frönsku sveitastúlk- unnar Jeanne d’Arc i striði Frakka gegn Englendingum á þriðja tug 15. aldar. Je- anne, eða heilög Jóhanna, eins og hún hefur verið nefnd, taldi sig fyigja boði æðri máttarvalda. Hún náði trúnaði hins veikgeðja kon- ungs og leiddi her hans til sigurs yfir Englendingum, en var siðar tekin til fanga af óvinunum og brennd á báli sem galdranorn. 23.40 Dagskrárlok

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.