Tíminn - 14.08.1974, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 14. ágúst 1974
■■mym mn
II
B
Flestu er
nú hægt
að stela
I
Tveir þekktir lögfræðingar i
Alaborg I Danmörku standa nú i
störræðum. Fyrir tveimur árum
tóku þeir sumarbústað upp i
skuld, sem væri kannski ekki i
frásögur færandi, ef það hefði
ekki dregið dilk á eftir sér.
Fyrir skömmu ákváðu þeir að
selja sumarbústaðinn, sem var
hinn vandaðasti að allri gerð og
fimmtiu fermetrar að flatar-
máli. Þeir höfðu samband við
fasteignasala, sem tók að sér að
selja fyrir þá. Þeir gáfu honum
nakvæmar upplýsingar um það
hvar bústaðinn væri að finna, og
hann lagði þegar af stað til þess
að lita á hann.
Nokkrum klukkustundum
siðar hringdi hann á lögfræði-
skrifstofuna og lýsti þvi yfir, að
honum væri llfsins ómögulegt
að finna umrætt hús.
Lögfræðingarnir brostu góðlát-
lega og sögðu, að það gæti nú
varla einfaldara verið, en ef
hann væri alveg viss um að
hann fyndi það ekki, þá væri
auðvitað ekki um annað að ræða
en fara með honum á staðinn.
Og svo lögðu þeir allir þrir af
stað.
Vesalings fasteignasalinn var
hálf kindarlegur, því að á
löngum starfsferli hafði það
aldrei hent hann fyrr að finna
ekki heilthús. — Nú ökum við að
beygjunni þarna, og handan við
hana er....— Já, en ég segi
ykkur það satt, að þetta er
nákvæmlega saman leiðin og ég
fór, sagði fasteignasalinn. Og
handan við beygjuna fann eg
ekkert nema einn sökkul! Og
viti menn. Þarna stóðu sumar-
bústaðareigendur (fyrrverandi)
og trúðu ekki sinum eigin
augum. Það var búið að stela
fina sumarbústaðnum þeirra,
og eftir stóð aðeins sökkullinn.
Lögreglan hefur nú málið til
rannsóknar, en eina sporið sem
hún hefur til þess að fara eftir er
sú frásögn nágrannanna, að
kvöld nokkurt hafi þeir séð
nokkra menn önnum kafna við
að rifa niður húsið, og að þvi
loknu hafi komið vörubill og
flutt allt draslið á brott. Fólkið
hélt auðvitað að eigendurnir
’ hefðu ákveðið að reisa
bústaðinn einhvers staðar
annars staðar, og veittu þessu
þvi enga sérstaka athygli.
En málið gerist stöðugt flókn-
ara. Það hefur nefnilega aldrei
gerzt áður i Danmörku, að heilu
húsi væri stolið, og nú eiga lög-
fræðingarnir fyrrnefndu i
miklum deilum við trygginga-
félagið sitt um það, hvernig
túlka beri hin ýmsu ákvæði
tryggingalaganna. Allar likur
benda þvl til þess, að málið
lendi fyrir dómstólum, og
margir munu eflaust fylgjast
spenntir með þvi, hvernig þessu
prófmáli lyktar.
Meðfylgjandi teikningu
fundum við i dönsku blaði og
látum hana fljóta með til
•gamans. Hún þarf sannarlega
engra skýringa við.
Hún er
ekki leikkona
Franski leikstjórinn og kvenna-
gullið Roger Vadim er ef til vill
þekktastur fyrir fyrrverandi
eiginkonur sinar, þær Birgitte
Bardot, Anette Ströyberg og
Jane Fonda. Allar voru þær
ungar, fagrar og óþekktar,
þegar hann uppgötvaði þær, og
allar voru þær orðnar heims-
frægar, þegar hann skildi við
þær. Vadim trúlofaðist nýlega
tuttugu og átta ára gamalli
stúlku, Catherine Schneider að
nafni. Það sem ef til vill vekur
mesta athygli i sambandi við
þessa trúlofun er síi staðreynd,
að unnustan er ekkileikkona og
hefur alls ekki I hyggju að
ganga listabrautina. Hún er
aftur á móti einkaerfingi að
stórfyrirtækinu
Schneider-Creúsit. Kunnugir
telja, að þarna sé Vadim
loksins búinn að finna þá einu
réttu, þvi að þetta samband sé
byggt á allt öðrum og traustari
grunni en þau fyrri. Við skulum
bara vona, stúlkunnar vegna, að
sá grunnur sé ekki peningarnir
hennar.
Þetta hefur andstyggilegar
aukaverkanir.
DENNI.
DÆMALAUSI
Hef ég nokkurn tima sagt þér,
hv-ð mér þykir vænt um þig. Þú
manst aldrei neitt.