Tíminn - 14.08.1974, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 14. ágúst 1974
TÍMINN
13
Leikrit um
Papa og
norræna
landnema
BÓKAÚTGAFAN FAGRAHLIÐ
hefur gefið út nýtt leikrit eftir
ungan Akureyring, sem nefnir sig
Eystein unga, en heitir raunar
Steinþór Helgason. Þetta leikrit
heitir Saga, og er tileinkað fyrstu
ibúum landsins, Pöpunum. Eftir
Eystein unga hefur áður komið
eitt leikrit, Bæiidur, er prentað
var I mjög iitlu uppiagi og óvfða
getið.
Petta seinna leikrit Eysteins
unga er prýtt ljómandi fallegum
teikningum eftir Halldór Péturs-
son listmálara. Á bókarkápu er
svolátandi kynning á þvi:
„A þvi herrans ári 1974 halda
íslendingar miklar þjóðhátiðir
um allt land og eina aðalhátið á
Þingvöllum við öxará til að
minnast ellefu alda búsetu I landi
sinu. Að litlu er þá getið þeirra
manna, sem öldum saman bjuggu
á landi hér fyrir svokölluðu
landsnámstlð — Papanna, sem
lifðu fyrir trúna á almáttugan guð
og þá hugsjón, að hér mætti
þrifast vopnlaust þjóðfélag”.
Þessi bók er gefin út I litlu
upplagi, og mun ekki vera til sölu
nema I fáum búðum, hér I
Reykjavlk i bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
HOLDANAUTASTÖÐ-
INNI ÞOKAR ÁLEIÐIS
GB—Reykjavik. — Reytingsafli
hefur verið að undanförnu, og er
vinna nokkurn veginn stöðug hér I
Hrisey, sagði Sigurður Finnboga-
son I viðtali við blaðið i gær. Ekk-
ert hefur verið byggt i sumar af
Ibúðarhúsum, en hreppurinn
áætlar byggingu þriggja Ibúða og
ætlar slðan að leigja þær út.
Framkvæmdir byrja senniiega i
haust.
Bygging holdanautastöðvar-
innar gengur samkvæmt áætlun,
en á henni var byrjað I júni.
Stefnt er að þvi að koma fjósinu
og geymsluhúsinu undir þak fyrir
haustið, og mun slðan verða unnið
að innréttingum i vetur. Fóður-
geymsla verður svo byggð næsta
sumar. Það má búast við, að
fyrstu gripirnir verði settir I húsið
á næsta vori.
Mikið hefur verið um ferða-
menn I Hrlsey I sumar, og eru það
þá yfirleitt dagsferðir, sem fólk
fer I, leigir sér bát, eða fer með
ferjunni á morgnana og svo til
baka á kvöldin.
Lasleiki hefur verið mikill i
börnum I Hrisey i sumar, og eru
það ýmsar umgangspestir og
„flensur”, sem leggja þau i rúm-
ið. Þetta hefur veriö áberandi.
Hljómsveit Ingimars Eydal: Bjarki, Ingimar, Finnur, Arni, fyrir framan eru: Helena og Grimur.
INGIMAR í SÓL OG SUMARYL
BH-Reykjavlk. — Það er ekki nóg
með, að hljómsveit Ingimars Ey-
dal syngi fagurlega um sól og
sumaryl, nú skal haldiö I dýrðina
— og það meira að segja alla leiö
til Spánar, þar sem hljómsveitin
mun skemmta næstu vikuna á
hinum nafntogaða skemmtistaö
Jack E1 Negro I Palma á
Mallorca.
Feröaskrifstofan Sunna hefur
allan veg og vanda af för hljóm-
sveitarinnar, en þaö er orðinn ár-
legur viðburður, aö Ingimar
skreppi þangað suður á vegum
Sunnu til að skemmta sólargest-
um á þessum ágæta stað.
Við náðum sem snöggvast tali
af Ingimar, er hann var á ferð i
borginni, og spurðum hann, hvort
miklar breytingar hefðu orðiö á
hljómsveitinni.
— Nei, blessaður vertu, þaö er
brandari hjá okkur I hljómsveit-
inni, að þegar kemur einhver nýr,
þá sé hann að ráða sig upp á
meðal-rikisstjórnartiö. Nema
bara, — hvaö hljómsveitin viröist
heldur stabilli en stjórnin!
— Hvernig er hljómsveitin
skipuð núna?
— Helena Eyjólfsdóttir er söng-
konan, Finnur Evdal. klarinett oe
saxófónn, Bjarki Tryggvason,
söngvari og bassi, Grimur
Sigurðsson á gitar og trompett og
Arni Friðriksson á trommur, auk
min.
— Hvenær var sjónvarps-
þátturinn, sem sýndur var á
kosninganóttina siöustu, tekinn?
— Fyrir ári. 1 Sjálfstæðishúsinu
á Akureyri, sá eini, sem hefur
verið filmaður þar. Atti að gefa
hina einu, sönnu Sjalla—
stemningu.
— Ætlið þið að slappa af, þegar
þið komið frá Spáni?
— Ekki aldeilis. Við komum við
i leiðinni hjá sjónvarpinu, og svo
förum viö eitthvað út á land. Þvi
miður getum við bara veriö á svo
fáum stöðum núna, áður en við
byrjum aftur i Sjallanum.
— Hvað ertu búinn að vera þar i
mörg ár?
— Hvaö segirðu, maður? Mörg
ár? Ja, biddu nú. Þau eru þó ekki
orðin tíu. Jú, þetta verður ellefta
árið. Ja, timinn liður.
Og með það var Ingimar
rokinn....
Sólartrí
Áður flaug hugurinn og farfuglarnir. Nú fljúgum við
X sól og hvíld. Þangað sem hugurinn leitar
suður
skammdeginu. Fíeiri og fleiri átta sig á hve einstök
tækífæri bjóðast rtú til að njóta sumarblíðu, hressingar
og skemmtunar meðan veturinn ríkir'hérfnorðri,
■ Eftir sex tíma þotuflug í hásuður erum við komin til
Kanaríeyja úti fyrir Afríkuströndum.__________________
■ Við höfum íslenska fararstjóra á Gran Canaria og sjö
mismunahdi gististaðHirað velja um í 15 eða 22 daga.
M Flognar verða ferðir frá októberlokum til miðs
- maí.
HJÁ SKRIFSTQFITM FLUGFÉLAGANNA
OG UMBÖÐSMÖNNUM