Tíminn - 22.08.1974, Síða 1
Þessi snilldarvel geröu stól-
ar eru unnir af Rfkaröi Jóns-
syni og prýöa heimili hans.
Frásögn og myndir af heim-
sókn á heimili og I vinnustof-
ur Ríkarös eru í opnu blaös-
ins i dag, á 8. og 9. siöu.
Sjálfskaparvíti borgaryfirvalda í Reykjavík:
33,7 ha. holt í Kópavogi
á 53 milljónir
— tugmilljónahækkun vegna heimildar-
lausrar skipulagningar og framkvæmda
á einkaeign í öðru byggðarlagi
NU ER AÐ SANNAST á óþægi-
legasta hátt, hversu dýrt spaug
það getur veriö fyrir bæjarfélag,
þegar forráðamenn þess villast út
fyrir bæjarmörkin, skipuleggja
þar nýja byggð og hefjast handa
um framkvæmdir á landi, seiri
þeir eiga enga heimild á. Þess
konar misgáningur borgaryfir-
valda í Reykjavik hefur leitt til
þess, aö holt eitt i landi Fífu-
hvamms i Kópavogi, á stærð viö
meðaltún i sveit, hefur verið
metið á 53 milljónir króna, og eru
ekki horfur á öðru en þessum
aurum verði borgarsjóður að
snara út, cf skipulagið á ekki að
fara úr böndunum og undir-
búningsvinnu á svæðinu að vera
kastað á glæ.
Þessi spilda úr landi Fifu-
hvamms og innan bæjarmarka
Kópavogs, sem borgaryfirvöldin i
Reykjavik höfðu i ógáti helgað
sér á svona slysalegan hátt, er
33,7 hektarar að flatarmáli, og
höfðu 22 hektarár verði skipu-
lagðir sem byggingarsvæði.
Meira að segja var þar byrjað á
holræsagerð og vegarlagningu i
fullu heimildarleysi, án þess að
minnzt væri á kaup á landinu
Borgin hleypti
sjálf upp verðinu
Það er einmitt þetta, sem
hleypt hefur matinu svo upp sem
raun ber vitni, þvi að þessir 22
hektarar eru metnir á fimmtiu
milljónir króna, langdrægt hálfa
þriðju milljón króna hektarinn.
Hinn hlutinn, sem ekki hefur
verið áformað að byggja á 11,7
hektarar, er virtur á þrjár
milljónir samtals — það er að
segja ekki nema 256 þúsund
krónur hektarinn. Þannig er
meginverðið sjálfskaparviti,
fram kallað af borgaryfirvöldum
Reykjavikur sjálfum.
Samningsaðstaða rokin
út i veður og vind
Það.var fyrst i fyrra, er menn
með vinnuvélar höfðu verið
sendir inn á spilduna til holræsa-
gerðar og gatnagerðar, að
borgaryfirvöldin vöknuðu við
vondan draum Eigendur lands
ins mótmæltu eðlilega þessum
aðförum. og áttu borgaryfir-
völdin i Reykjavik ærið óhægt um
vik, þar sem þau höfðu gleymt að
leita samninga um heimild á
landinu. Allri samningsaðstöðu til
kaupa á þvi á viðhlitandi verði
höfðu þau gloprað út úr höndum
sér og var ei annars úrkostar
en fallast á, að mat færi fram.
Voru þá skipaðir matsmenn þeir
Halldór Þorbjörnsson saka-
dómari og ólafur St. Sigurðsson,
fulltrúi i Kópavogi. Niðurstaða
mats þeirra er sú, sem hér hefur
verið frá greint.
Mörg dæmi um
viðlika trassaskap
Við afgreiðslu borgarreikn-
inganna fyrr i sumar gerði
Kristján Benediktsson borgar
Frh. á bls. 15
STOÐUGIR FUNDIR UM
STJÓRNARMYNDUNAR-
TILRAUNIRNAR
FLOKKSRAD Sjálfstæöis-
flokksins, sem skipað er 160
fulltrúum viðs vegar að af
landinu, kom saman til fundar
I Reykjavik i gær.
Flokksráðið samþykkti
einróma aö fallast á að sett
yrði á laggirnar stjórn
Fram sók nar f lokksins og
Sjálfstæöisflokksins, að þvi
tilskildu, að samstaöa næðist
um málcfnasamning og verk-
efnaskiptingu, sem væri þess
eðlis, að þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins gæti við unaö.
Þingflokkur Sjálfstæðismanna
var siðan kallaður saman til
fundar i gærkvöldi.
Þingflokkur Framsóknar-
flokksins hélt einnig fund i
gær, og i dag munu viðræðu-
nefndir flokkanna hefja
viðræður árdegis, og er búizt
við, að þær standi i allan dag.
Gengisskráning
felld niður
25% álag á nauðsynlegar yfirfærslur
SEÐLABANKI tslands sendi i
gær út svolátandi fréttatil-
kynningu þess efnis, að gengis-
skráning hefði verið felld niður
fyrst um sinn frá lokun banka
þann dag:
„Seðlabankinn hefur, að höfðu
samráði við gjaldeyrisviðskipta-
bankana, ákveðið að gengis-
b
hjónagarðurinn af
remur fokheldur í haust
þar verða 57 íbúðir — kostnaður 170 milljónir
SJ-Reykjavik. — i haust verður
væntanlega fokheldur hjóna-
garöur stúdenta með 57 íbúðum.
Hús þetta stendur austan Suður-
götu og sunnan Aragötu og Odda-
götu. Þar hefur Háskólaráð út-
hlutað 2,3 hektara svæði fyrir
hjónagarða, og hlaut Hrafnkell
Thorlacíus arkitekt verðlaun
fyrir tillögu um gerð þeirra, sem
lögð er til grundvatlar viö fram-
kvæmdirnar.
Itillögum Hrafnkels Thorlacius
er gert ráð fyrir þrem 3ja hæða
húsum með 57-60 ibúðum i hverju,
auk þess dagheimili fyrir 60 börn
og gæzluvelli. Nú er búið að
steypa megnið af fyrsta húsinu,
og er ætlunin að reyna að gera
það fokhelt fyrir veturinn, að
sögn Ragnars Ingimarssonar
prófessors, formanns byggingar-
nefndar.
Ekki befur verið tekin
ákvörðun um framkvæmdir við
siðari áfanga, enda eru þær um
Frh. á bls. 15
skráning verði felld niður frá kl.
4. e.h. 21. ágúst 1974.
Ráðstöfun þessi er talin nauð-
synleg vegna þess óvissuástands,
sem skapazt hefur undanfarna
daga og leitt hefur til þess, að
skipuleg gjaldeyrisviðskipti geta
ekki lengur farið fram.
A meðan þetta ástand varir
munu gjaldeyrisviðskipta-
bankarnir, þegar brýn nauðsyn
krefur, selja gjaldeyri með þvi
skilyrði að viðskipti, sem þannig
fara fram, verði endanlega gerð
upp á fyrsta opinbera gengi, sem
skráð verður eftir að regluleg
gjaldeyrisviðskipti hafa verið
tekin upp á ný. Munu gjaldeyris-
viðskiptabankarnir taka vegna
slikra viðskipta 25% tryggingarfé
umfram siðasta gengi, sem skráð
var”.
Langt er komið að stevpa upp fyrsta áfanga hjónagarðanna þriggja, sem verða f útjaðri háskólahverfisins. Tfmamynd: Róbert.
SLONGUR
BARKAR
TENGI
Landvélarhf
153. tölublað — Fimmtudagur22, ágúst — 58. árgangur
Dömur!
Nýjung!
DRESSFORM fatnaður loks á
tslandi
Pantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval, Kópavogi.