Tíminn - 22.08.1974, Blaðsíða 5
FimmUuUgnr 22. ágilt»t l»I4.
TÍMINN
S
Þessar myndir tók Gunnar ljósmyndari Timans á hljómlelkum Nazareth á þrihjudagskvóld.
Anægjulegir hljóm-
leikar Nasareths
— í Laugardalshöll á þriðjudagskvöld
ÞAÐ LÆTUR nærri að um 2500
manns hafi tekið sér ferð á
hendur inn í Laugardalshöll á
þriðjudagskvöld til að hlýða á
brezku rokkhljóms veitina
Nazareth. Til þess að verða
þeirrar tónlistar aðnjótandi,
þurftu menn að greiða fimmtán
hundruð krónur, en aldrei áður
hafa islenzkir poppunnendur
þurft að greiða jafnháa upphæð
til að komast inn á hljómleika
hérlendis. Aðbúnaðurinn i
Laugardalshöllinni var vægast
sagt lélegur og þurftu þúsundir
unglinga að láta sér nægja
óhreint gólfið i salnum.
Hljómleikarnir byrjuðu með
upptroðslu Hallgrims Björgólfs-
sonar, sem kom fram með
nokkrum aðstoðarhljóðfæraleik-
urum. Það þarf i sjálfu sér ekki
mörg orð til að lýsa framlagi
Hallgrims, sem var óframbæri-
legt i alla staði. I fyrsta lagi var
hávaðinn yfirgengilegur, að við
borð lá að áheyrendur fórnuðu
höndum i skelfingu — og kalla þó
islenzkir poppunnendur ekki allt
ömmu sina i þeim efnum. Það
litla sem heyrðist af tónlistinni
virtist litt áhugavekjandi, og
samspil aöstoðarmannanna var
tilviljanakennt og óöruggt.
Júdas kom næst fram, og hefur
þeirri hljómsveit bætzt nýr liös-
maður Rúnar Georgsson saxa-
fónleikari. Þáttur þeirra var
stórgóður, og hafa þeir sennilega
ekki i aðra tið verið öllu betri.
Þeir léku vandaða og auðsjáan-
lega vel æfða tónlist, sem átti svo
sannarlega upp á pallborðið hjá
áheyrendum. Yfirvegaður flutn-
ingur, ágæt lög og lifleg sviðs-
framkoma voru helztu einkenni
hljómsveitarinnar. Af sérstökum
lögum, sem hljómsveitin lék skal
nefnt lagið „Bye, bye,” sem lét
afarvel i eyrum.
Það liðu um 30 minútur frá þvi
Júdas hætti leik sinum, þangað til
Nazareth kom fram á sviðið. Þeir
byrjuðu á titillagi næst siðustu
LP-plötu sinnar, og I fyrstu varð
manni spurn, hvort hávaðinn frá
Hallgrimi Björgólfssyni ætlaði aö
endurtaka sig. Sennilega hefur
styrkurinn verið mjög svipaður,
en munurinn var einfaldlega sá,
að Nazarethmenn eru kunnáttu-
menn á sinu sviði, en það er
meira en hægt er að segja um
Hallgrim og Co. Tónlist þeirra I
Nazareth komst þvl að mestu
leyti til skila, þrátt fyrir
hávaðann, sem henni fylgdi.
Þeir léku mörg af sinum
frægustu lögum á hljómleik-
unum, en eitt lag, sem ekki hefúr
verið gefið út á plötu fékk að
fljóta með
Af einstökum mönnum innán
hljómsveitarinnar bar mest á
söngvaranum, Dan McCafferty,
og gitarleikaranum Manuel
Charlton, en hann virtist vera
mjög leikinn á sitt hljóðfæri. Þeir
voru allir mjög liflegir á sviðinu,
og ljósasýningin var mjög vel út-
færðog setti skemmtilegan svip á
hljómleikana.
1 heild má segja,að hljómleikar'
Nazareths hafi verið „pott-
þéttir”, ef nota má þetta
poppyrði. Þeir kunna sina rullu út
i æsar og vissu nákvæmlega hvað
þeir voru að gera, og hvað þeir
ætluðu að gera.
Ljósasýningin náði hámarki i
lokalagi hljómsveitarinnar, og
um stund var iþróttahöllin I
Laugardal einna likust ævintýra-
heimi.
Óánægjuraddir heyrðust viða,
enda kannski ekki óeðlilegt, þvi
hljómsveitin leikur nær eingöngu
hröð rokklög, með fáum hljóð-
færum, svo fyrir þá, sem á annaö
borð ekki kunna að meta þessa
hröðu rokktónlist, virtust lögin
hvert öðru likt, og jafnvel leiði-
gjörn þegar liða tók á hljóm-
leikana. Þá kvörtuðu margir
sáran yfir hávaðanum og einn
sagði, að eyrun á sér hefðu ekki
náð þessu sem tónlist, fyrr en
hann hefði gripið fyrir eyrun, —
enþá hefði tónlistin lika verið
ágæt.
Mér segir þó hugur um, að
flestir hafi farið ánægðir heim
—Gsal—
íRáðhorra-
°stólar tll
ráðstöfunar
strax
Nú er einstakt tækifæri til að tryggja sér hina
eftirsóttu ráðherrastóla, sem svo margir hafa
dáðst að. __
Einstök gjöf fyrir fólk
með framtíðardrauma.
JXUFMG
HUSGAGIMAVERZLUN r----------
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
Skeifan 15 Sími 82898
Minjagripir frá
Alþingishátíöinni 1930
eru verömætir
ættargripir nú.
^sili
Ef aö líkum lætur, eiga minjagripir
Þjóöhátiöarnefndar 1974
einnig eftir aö margfaldast aö verömæti
meö árunum.
Veggskildirnir sem Sigrún Guöjónsdóttir
listamaöur hannaöi og hlaut verölaun fyrir,
kosta i dag kr. 7.494.-. Þeir eru framleiddir
meö sérstakri áferö hjá Bing og Gröndahl.
Tryggiö yöur þessa kjörgripi á meöan
tækifæri er til. Þeir fást í helstu
minjagripaverslunum um land allt.
Þjóöhátíöarnefnd 1974