Tíminn - 22.08.1974, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.08.1974, Blaðsíða 16
GBÐI J'yrir yóúan tntU ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Ringulreið í Mósambik NTB-Lorenzo Marques — Háttsettir fulltrúar iönaðar-, verzlunar og landbúnaðar i Mósambik sendu í gær Portú- gölsku stjórninni skeyti, i bvcrju segir, að efnahags- og stjórnmálaástandið i landinu nálgist nú algjöra ringulreið. Þeir kröfðust þess jafnframt, að komið yrði á sterkri og starfssamri stjórn i landinu. Ribeiro, sem er landstjóri i Mósambik, reyndi i gær af öllum mætti að koma i veg fyrir verkfall starfsmanna miðstjórnarinnar. Sérfræð- ingar telja, að fjárhags- ástandið i landinu muni versna að mun, ef gengið verður að launakröfum embættismannanna, en þeir setja einnig fram þá kröfu, að Frelimo verði þegar i stað falin völdin i landinu og að embættism önnum, sem studdu fyrri stjórn i Portúgal, verði þegar sagt upp störfum. Vandræðin i Mósambik hafa aukizt, vegna þess að stjórnin i Lissabon hefur ekki komið á nýrri stjórn i landinu, eins og upphaflega var lofaö að yrði á mánudaginn var, en þvi var frestað án nokkurrar skýringar. Flóðin sjatna NTB—Manila — Um það bil ein milljón manna er nú heiinilislaus vegna flóða á Filippseyjum, en vatnið er nú tekið að sjatna I Manila og á flestum flóðasvæðun- um. Fram til þessa hafa 78 manns drukknaö. Flóðin valda miklu tjóni á hrisgrjónauppskerunni á Luzon-eyju, en ekki eru þar öll kurl komin til grafar ennþá. Filippinska stjórnin, alþjóða Rauði krossinn og fjöldi annarra stofnana hafa tekið saman hönd- um um aö koma matvælum, lyfjum og öðrum hjálpargögnum til fióðasvæðanna. Vatnið er einnig tekið að sjatna i héruðunum umhverfis Dacca i Bangladesh, en ástandið fer hins vegar versnandi i suðvesturhluta landsins. Ekki bætti það fyrir björgunar- aðgerðum, að skip með 700 lestir af hveiti innanborðs fórst á Bengalflóa, er það varð lekt eftir að hafa rekizt á eitthvað i sjónum, og sökk. Bensin og gúmmígjald — 38 önnur gjöld felld niður A.Þ.—Reykjavik — Fjármála- ráðherra hcfur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um fjáröflun til vegagerðar. t frum- varpinu er gert ráð fyrir þvi, að lagt verði á sérstakt innflutnings- gjald, bensingjald, sem nemur 17 krónum af hverjum bensinlitra. Er miðað við, að þetta gjald veri iniiheÍR’.t frá ng n.eð 1. september n.k. Þá er einnig gert ráö fyrir þvi, að lagt verði á sérstakt innflutningsgjald, gúmmigjald, af hjólböröum, notuöum og nýj- um, og gúmmislöngum á bifreið- ar og bifhjól. Það gjald nemur 45 krónum af hverju kg. Þetta gjald tekur einnig til hjólbarða og gúmmislangna, er fylgja bif- reiöum, sem fluttar eru til lands- ins. Af bifreiðum, sem nota annað eldsneyti en bensin, skal frá og með árinu 1975 greiða árlega þungaskatt til rikissjóös sem hér segir: a) Fyrir bifreiðir allt að 2000 kg að eigin þunga eða léttari greið- ast 45 þúsund krónur. b) Fyrir bifreiðir 2000 kg og þyngri greiðast 45 þúsund krónur, og auk þess 1550 krónur fyrir hver íull 100 kg umfram 2000 kg. I greinargerð með frumvarpinu' segir m.a.: „Með frumvarpi þessu er annars vegar aö þvi stefnt að afla fjár til vegagerðar og hins vegar að fella niður 38 gjöld, sem lögð eru á notendur bifreiða. Gerir frumvarpiö ráð fyrir, að gjöld af bensini hækki frá gildis tölu laga þessara. Þá er gert ráð fyrir, að þungaskattur disilbif- reiða hækki þann 1. janúar n.k. Frá 1. janúar 1975 falli hins vegar margvislegar álögur niöur, sem til þessa hafa veriö lagðar á bif- reiðaeigendur. Hækkun gjald- anna er að hluta ætlað að mæta tekjumissi rikissjóðs vegna fækk- unar gjaldstofna. Fyrir Alþingi munu þvi verða lögð 4 frumvörp um niðurfellingu gjalda. Lagt er til, að i stað gjalda þessara verði eitt gjald lagt á notendur bensin- knúinna ökutækja — bensingjald — og annaö á notendur disilbif- reiða — þungaskattur.” Hvað gera Akureyringar í frístundunum? SB—Reykjavik — A Akureyri er nýlega hafin könnun á félags- og fristundaiifi bæjarbúa. Þetta er liður i viðtækri rannsókn, sem gerö er i 12 Evrópulöndum á veg- um Evrópuráösins. Noröurlanda- ráö beitti sér fyrir þvi, aö Noröur- löndin yröu meö I þessu, og kostar Norræni menningarmálasjóöur- inn könnun i Tampere i Finn- landi, Stavanger I Noregi, Es- bjerg i Danmörku, örebro i Sviþjóö og Akureyri. Markmið könnunarinnar er að aöstoða bæjaryfirvöld við að bæta skipulag nienningar- og félags- mála meö þvi að leggja þeim i hendur visindalegar upplýsingar um ástand málanna á hverjum stað. Þá er stefnt að þvi, aö hægt sé að bera saman tölurnar frá öll- um stööunum. Könnunin á Akureyri hófst 1. júli s.l., og er þess ekki að vænta, að niðurstöður verði birtar fyrr en eftir ár eöa svo. Nýiar viðræður U ■ Ankara og Nikósiu, en heir um Kýpur? NTB—Aþenu — Bretar komu I gær með nýjar tillögur, sem bein- ast að þvi að hefja að nýju i Genf samningaviðræður um Kýpur. Brezki ambassadorinn i Grikk- landi, Robin Hooper, átti i gær viðræður við Karamanlis for- sætisráðherra, i þvi skyni að kynna sér skilyrði grisku stjórn- arinnar fyrir þvi að snúa aftur að samningaborðinu. Svipaðar aðgerðir fóru fram i Ankara og Nikósiu, en heimildir segja, að aðalmáli skipti að kynnast sjónarmiðum Grikkja og Kýpur-Grikkja, áður en hægt sé að leggja tillögur fyrir Tyrki. Talið er mögulegt, að Kerides, forseti Kýpur, komi til Aþenu næstu daga til nýrra viðræðna. Ecevit, forsætisráðherra Tyrk- lands, segir, að Tyrkir vilji ekki snúa frá tillögum sinum um sér- staka stjórn fyrir Grikki og aðra fyrir Tyrki á Kýpur, en Tyrkir séu fúsir til samræðna um stærð tyrkneska svæðisins á eynni. Selassie settur af bróðlega? NTB—Addis Abeba — Haile Selassie Eþiópiukeisari, sem ekki hefur átt sjö dagana sæla undan- farið, hélt stutta ræðu i þinginu i Addis Abeba i gær. Hann hvatti þjóðina til að standa saman og kvaðst andvigur þvi, að Erítrea fengi sjálfstæði, þar sem hafnar- borgirnar Assab og Massawa væru mjög mikilvægar fyrir fjárhag landsins. Æ fleiri kunnir stjórnmála- menn eru nú handteknir, og i gær var handtekinn einn af æðstu mönnum fjármálaráðuneytisins. Tveir ráðherrar i núverandi stjórn sögðu i gær, að þingmenn þægju oftsinnis mútur, slikt væri orðið daglegt brauð og tilheyrði starfinu. Asakanir um mútur og mútuþægni eru daglegt lestrar- efni blaða i Addis Abeba, og i opinberum tilkynningum frá hernum, sem tekið hefur öll völd, er sifellt höfðað til hinnar gömlu, lélegu stjórnar keisarans. Blaðaáróðurinn gegn Selassie er trúlega liður i þeirri áætlun hersins að setja keisarann af, og er með áróðrinum verið að kanna viðbrögð almennings, áður en hafizt verður handa. Dóttur Hofnar- forstjóra rænt NTB-Haag — Mikið iögreglulið leitaði i gær að fimm ára gamalli auðmannsdóttur, sem rænt var i fyrradag. Ræningjarnir krefjast hálfrar fjórðu milljónar króna i lausnargjald, en heimtuðu upp- haflega aðeins helminginn af þvi. Telpunni var rænt, er hún var að leika sér utan viö heimili sitt i auðmannah verfi bæjarins Eindhoven. Faðir hennar er kunnur vindlaframleiðandi i Hollandi. Lögreglan kveðst leita hávaxins, dökkhærðs, ungs manns i sambandi við ránið. Nágrannar segja, aðbarnið hafi æpt, þegar þvi var ekið á brott I bláum Fiatbil. Talsmaður Hofnar-verksmiðj- anna, þar sem faðir telpunnar er forstjóri, sagði I gær, að lausnar- gjaldið væri til reiðu, og aðeins væri beöið frekari fyrirmæla frá ræningjunum. Sú staðreynd, að gjaldið var tvöfaldáð, segir lögreglan að bendi til þess, að ræningjarnir hafi ekki vitað upp- haflega, hver var faðir telpunnar. Afbrýði- semi varð sex manns að bana NTB-Saarbrucken — Þrjátiu og þriggja ára gamall V-Þjóð- verji trylltist I gær og varð fimm manneskjum að bana með keppnisbyssu, áður en hann skaut sjálfan sig. Að sögn lögreglunnar er liklegt, að afbrýðissemi hafi valdið berserksgangi mannsins. Meðal þeirra, sem hann varð að bana, voru sambýliskona hans, fyrrverandi eiginkona og sex ára gömul dóttir. HHJ—Rvik — Fornleifafræöingarnir, sem vinna aö uppgreftrinum f Reykjavik, eru um þessar mundir aö hreinsa gólf á húsi, sem þeir telja vera frá landnámsöld. Húsiö er u.þ.b. tiu metrar á iengd, en ekki er með öllu Ijóst, hver breiddin hefur veriö. A miöju gólfi er eidstæöi, sem sést glögglega á yfirlitsmyndinni. Þá eru i öðrum enda hússins flatar hellur og holt undir. Mun þar vera um iokræsi að ræða. t öðrum enda hússins fundust snældusnúðarnir tveir, sem sjást á hinni myndinni. Hinn stærri þeirra er talinn vera úr tálgusteini úr Esjunni, en hinn er úr innfluttu klébergi. Einnig hafa fundizt þarna tinnubrot, nagiar og fleira smálegt. Uppgreftrinum verður haldið áfram fram í miðjan septembermánuð. Timamyndir Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.