Tíminn - 22.08.1974, Síða 3
Fimmtudagur 22. ágúst 1974.
TÍMINN
3
SlökkviliAsmenn ráfta niðurlögum eidsins i gsrdag.
Fyrsti heybruninn d drinu:
Timamynd: Gunnar.
HLAÐA ÞORGEIRS I GUFU-
NESI BRANN Í GÆRDAG
gsal—Rvík — í gærdag var stór-
bruni i hlöðu Þorgeirs Jónssonar,
bónda i Gufunesi. Slökkviliðið var
kvatt út rétt fyrir klukkan 15 i
gærdag. Þegar að var komið, var
mjög.mikill eldur i hlöðunni, og
teygðu eldtungur sig upp um
þakið. Talið er liklegt, að kviknað
hafi i út frá heyblásara. Þess má
geta, að i nóvember 1972 kviknaði
i sömu hlöðu. .
Vib Timamenn hittumi Rúnar
Bjarnasori slökkviliðsstjóra á
brunastað i gær.
Hér var mjög mikill eldur,
þegar við komum, og logaði þakið
allt. Heyblásarinn var i gangi, og
kynti hann uridir-eldinn. Ég var
strax hræddur um að við yrðum
vatnslitlir, og sú varð lika raunin .
Ég gerði þvi ráðstafanir til að fá
hinga niu tonna vatnsbíl Reykja-
vikurborgar, og stóð það heima,
að þegar við urðum vatnslausir,
kom billinn.
Sagði slökkviliðsstjóri, að
vegna vatnsskortsins hefði verið
gripið til þess ráðs að dæla froðu á
eldinn, og hefði hún gert sitt gagn
og eldurinn ekki breiðzt út á
meðan.
Eftir að vatnsbill borgarinnar
var kominn, gekk slökkvistarfið
mjög greiðlega fyrir sig, og allur
yfirborðseldur var slökktur um
klukkaft 16.
— Það er nú ávallt þannig við
heybruna, að þótt við séum búnir
að slökkva eldinn, höfum við
raunverulega ekki komizt fyrir
hann, fyrr en allt heyið hefur
verið tekið i sundur.
Sagði slökkviliðsstjóri, að menn
frá slökkviliðinu yrðu áfram uppi
i Gufunesi, eitthvað fram eftir
nóttu, til aðstoðar.
— ...,en það gefur auga leið, að
við getum ekki bundið öll
slökkvitæki borgarinnar hérna,
yfir ónýtu heyi.
Hlaðan er mjög mikið skemmd
af völdum brunans, og þakið er
gjörónýtt. Hlaðan var óvátryggð.
LÚTERSKA kirkjuráðið i
Austur-Þýzkalandi hefur ákveðið,
að prestár austur-þýz'ku
kirkjunnar skuli við guðs-
, þjónustur og aðrar samkomur
fjalla um ástandið I Suður-Afríku
og biðja sérstaklega fyrir
Namibiu.
Aðalnefnd heimsráðs lútersku
kirkjunnar i Austur-Þýzkalaridi
mun fará þess á léit við báðar
kirkjúdeildir blökkumanna i
Namibiu, að þessa verði einnig
minnzt þar i .landi.
1
I
m
Vegamál Austurlands
Vilhjálmur Hjálmarsson alþingismaður skrifac nýlega grein i
Austra um vegamál á Austurlandi i tilefni af opnun hringvegarins.
Vilhjálmur segir:
„l)m siðustu áramót var byrjað að aka „þurrum hjólum” yfir
Skeiðarársand. Þann 14. júlí var hringvegurinn formlega tekinn I
notkun.
Auk alls annars fylgir það þeim atburði, að einangrun Austur-
lands,að þvi er varðar samgöngur á landi,er rofin. Hins vegar fer
þvi fjarri, að vegamál á Austurlandi séu þar meö leyst. Jafnvei
þvert á móti, þvi sú aukna umferð, sem fylgir opnuninni,kallar á
betri vegi hvarvetna þar sem hún flæðir yfir.
Fyrst má lfta á þann hluta hringvegarins, sem liggur um Austur-
land. A Breiðamerkursandi er aðeins bilaslóö meira og minna
niðurgrafin. Vegur yfir Lónsheiði er brattur og ekki til frambúðar.
Þetta eru tvær megintorfærurnar á hringleiðinni um Austurland.
En auk þcss eru enn — og verða við lok Austurlandsáætlunar um
vegagcrð 1975 — stærri og minni kaflar óuppbyggðir á leiðinni með
fjörðum og eins þá farið er um Breiðdalsheiöi.
Sömu sögu verður að segja um þá vegþsem tengja saman þéttbýlis-
staði á Austurlandi. Með lánsfjáröflun til Austurlandsáætlunar hef-
ur reynzt unnt að hraða meira en ella vegagerð frá Egilsstöðum til
Reyðarfjarðar og Eskifjaröar um Fgradal, til Neskaupstaðar um
Oddsskarð, til Seyðisfjaröar um Fjarðarheiði og til Vopnafjarðar.
En stærri og minni kaflar verða þóóuppbyggðir á flestum eða öllum
leiðum við árslokin 1975.
Uppbyggingu fáfarnari vega i fjórðungnum miðar i áttina hægt og
hægt, en mikil verkefni blasa þó við á fjölmörgum stöðum. Sem ein-
stök dæmi má nefna ieiðina til Borgarfjarðar og vegi um austur-
byggð og efri hluta Jökuldaisins. En hiiðstæður er að finna viðs veg-
ar annars staðar.”
Vaxandi þörf fyrir góða vegi
Vilhjálmur Hjálmarsson segir ennfremur:
„Margir undrast, hve mikiö er ógert i vegamálum á landi hér.
Aðrir lita yfir það, sem fámenn þjóð i stóru landi hefur gert á hálfri
öld eða svo, og segja þaö sé harla gott. En mergurinn málsins er sá,
að þörfin fyrir góða vegi fer sifellt vaxandi og henni ber að sinna,
svo sem hugvit og fjármagn frekast leyfa.
Þörfin fyrir greiðar samgöngur á landi segir hvarvetna til sin. t
strjálbýlinu eru það félagsmál, mjólkurflutningar og ný skipan
Jræðslumála. Margir og dreifðir þéttbýlisstaðir þarfnast tengingar
sin á milli og við aðliggjandi sveitabyggð. Vaxandi ferðamennska
innlendra sem erlendra kallar á betra vegakerfi. Og siðast en ekki
sizt: Atvinnureksýur og öll drift þarf á góðum samgöngum að halda,
svo á styttri sem á lengri leiöum.
Austfirðingar þurfa betri vegi eins og aðrir landsmenn, á þvi er
enginn vafi. Vandinn verður aö skipta þvi fé, sem fæst hverju sinni,
þvi raunar þarf að þoka fram öllu i senn: Að Ijúka byggingu aðal-
vega,gera átak sem vfðast á hinum fáfarnari leiðum, binda götur i
þéttbýli og hefja lagningu oliumalar á fjölförnustu þjóðvegina.”
Þ.Þ.
Reykjavíkurlögreglan fær
nýjan fjarskiptabúnað
Gsal-Rvik. — i samvinnu við
Landsimann hefur lögreglan að
undanförnu unnið aö uppsetningu
á nýjum og fullkomnum fjar-
skiptatækjum, sem koma til með
að breyta mjög miklu i öllum lög-
gæzlumálum hériendis, en notkun
þessara nýju tækja hafa veriö i
undirbúningi um þriggja ára
skeið.
Þessi nýju fjarskiptatæki verða
tekin i fulla notkun innan
skamms, en lögreglumenn hafa á
siðustu vikum verið að læra á
ir
tÍIÍ?
I
Wrrt
D
I
í
’FREMUR dauft er yfir
laxveiðinni þéssa dagana,
enda er v.eiöifimabilið i flest-
úiri ám nú óðum að stýttast. í
mörgum ám lýkur þvi um
næstu mánaðamót, en i öðrpm
frá 10. til 20. september.
Grimsá.
Þórunn ráðskona i veiðihús-
inu sagði, að heldur hefði veið-
in batnað undanfariö, en nú
.eru komnir úm tólf hundruð
laxar á land. Veitt <=jr til 15.
september.
1 gærmorgun fékk Siguröur
Fjeldstedi'tuttugu. punda lax
við Svartastökk, en annars
komu um sjö laxár á land i
gærmorgun.
Þyngsti laxinn.j sem fengizt
héfur i, sum'ar, reyndist 26
púnd, en þrir 25 punda hafa
einnig fengizt.
Litið eitt hefur rignt
undanfarið, en ekki nóg til að
neitt hækkaði i ánni aö ráði.
Laxá i Aðaldal >
Helga Halldórsdóttir, ráðs-
kona i veiöihúsinu aö
Laxamýri, sagði, að veiðin
hefði rétt glæðzt undanfarna
daga, en hún hefur verið léleg
annars.
Nú munu eitthvað á ellefta
hundrað laxar komnir á land,
en I allt komu á siðasta veiði-
timabili 2522 laxar, svo veiöin
verður miklu minni heldur en i
fyrra. Veiðitimabilinu i áf
lýkur 31. ágúst.
1 gærmorgun fengust 1-2
laxar á stöng, og nú ftýlega
fengust 14 laxar á eina stöng i
fimm daga, en þaö kallast vist
ekki mikið hjá laxveiðimönn-
um.
(Jlfarsá
Ragnar Guömundsson á
Korpúlfsstöðum sagði, að
veiðin i tJlfarsá væri þó
nokkuð minni. heldur en i
fyrra, og mun áistæöan ' vera
sú sama og i svo mörgum
öörum ám: vatnsleysi, þurrk-
ar og hjti.
Veiðin býrjaði ágætlega i
vor, en hefur verið daufleg i
sumar. Eitthvað á fjórða
hundrað laxar eru komnir á
land, en tyær stangir eru
leyfðar i ánni. Allan veiðitim-
ann i fyrra kom 581 lax á land.
Meðalþyngd fiskanna hefur
verið svipuð og áður. Það er
Aburðarverksmiðjan, sem
hefur ána á leigu, eins og und-
anfarin sumur. Veiðitimabil-
inu lýkur 20. september.
Þvera
Guðmundur Jónsson á
GÚðnabakka gat ekki gefið
okkur upp nákvæma tölu yfir
veiðina i sumar, en það munu
komriir hátt i tvö þúsund laxar
á land, og er þvi veiðin svipuö
og i fyrrasumar, en þá komu
rúmlega tvö búsund á leziíi,.
Tólt'.sta.sigir eru leyföar i
áúni, en veiðin hefur verið
n:na bezt að meðaltaliá efra
svæðinu.
í
Meöalþyngd laxanna er frá
fim'm til tiu pund, • en sá
þyngsti, sem fengizt hefur i
sumar, var 22 pund.
Vatnið er fremur litið i
Þverá, eða aðeins neðan viö
meðallag. Veiðinni lykur 5.
september.
tækin og útbúnað þeirra.
Aö sögn Arna Sigurjónssonar,
fulltrúa lögreglustjóra, sem hefur
haft umsjón með uppsetningu
tækjanna, á vegum lögreglunnar
eru þau sérstaklega hönnuð af
sérfróðum mönnum, sem hafa
eingöngu það verkefni að vinna
við gerð tækja fyrir lögregluna.
Fjórir sendar hafa verið settir
upp, tveir á Skálafelli og tveir i
Hallgrimskirkjuturni. Mögu-
leikar eru á átta bylgjum — og
hafa sex bylgjur þegar veriö
teknar i notkun.
Það hefur lengi verið vandamál
hjá lögreglunni, hversu auðvelt
hefur verið fyrir fólk að heyra til
lögreglumanna við embættis-
störf, en ástæðan er sú, að auðvelt
er að ná bylgjunum, sem
lögreglan hefur verið meö.
tJtilokað er hins vegar, með
þessum nýju fjarskiptatækjum,
að nokkrir utanaðkomandi nái
nýju bylgjunum.
Segja má, að mesta breytingin
samfara þessum nýja tækjakosti
sé sú, að fjarskipti milli lögreglu-
manna munu batna mjög veru-
lega. Þá má geta þess, að allt sem
fer i gegnum nýju tækin er tekið
inn á segulband og timasett.
— Frá sjónarmiði lögreglunnar
eru þessi tæki mjög fullkomin,
sagði Arni Sigurjónsson.
Haraldur Sigurðsson, deildar-
verkfræðingur hjá Landsim-
anum, hefur stjórnað
uppsetningu tækjanna.
Mjólkursamlag ísfirðinga:
Ónóg neyzlumjólk
4 mánuði ársins
— Við erum hér knappir meö
mjólk, að minnsta kosti fjóra
mánuði ársins, og veröum þá aö
fá neyzlumjólk úr Reykjavik —
meö bilum, þegar þeir ganga, en
annars flugvélum, sagöi Páll
Sigurösson, mjólkurbússtjóri á
tsafiröi. Þaö er um hálf önnur
milljón litra, sem viö fáum á ári.
Mjólkursamlagið fær mjólk frá
bændum innan úr Djúpi og vestur
um allt til Dýrafjarðar, og helztu
mjólkursölustaðirnir eru ísa-
fjörður, Hnifsdalur, Bolungavik,
Súðavik, Suðureyri og Flateyri,
og auk þess Núpsskóli og Reykja-
nesskóli á vetrum. Sala á neyzlu-
mjólk hefur aukizt, þvi að
mjólkin er hlutfallslega ódýr
fæðutegund.
Páll sagði, að mjólkurframleið-
endum á svæðinu hefði frekar
farið fækkandi, en bú heföu
stækkað, og þó að stundum bæri
við, að þeir, sem haft hefðu
kúabú, hættu mjólkurfram-
leiðslu, jafnaðist það nokkuð upp
annars staðar. En við gerð
'byggöaáætlana þarf að sjálf-
sögðu að taka tillit til þess, að
bæjum og sjóþorpum verði séð
fyrir nægjanlegri neyzlumjólk.
Það er eins og að likum lætur á
haustin, sem mjólkurfram-
leiðslan er ónóg, og það er ekki
fyrr en kemur fram yfir áramót,
að menn á þessu svæði eru sjálf-
birgir, þótt kleift sé að koma
mjólkinni áfallalaust til Isa-
fjarðar vegna veðurlags.