Tíminn - 22.08.1974, Qupperneq 7

Tíminn - 22.08.1974, Qupperneq 7
Fimmtudagur 22. ágúst X974. TÍMINN 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300—18306. Skrifstofur i Aöalstræti 7, simi 26500 — af- greiöslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I lausasölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Alþýðu- bandalagið Að sjálfsögðu eiga eftir að verða miklar um- ræður um slit viðræðnanna um myndun vinstri stjórnar. Hér i blaðinu hefur verið vitnað til ummæla þeirra Ragnars Arnalds, sem kenndi Alþýðuflokknum fyrst og fremst um, að þær slitnuðu, og ummæla Gylfa Þ. Gislasonar, sem kenndi um óvilja Alþýðubandalagsins. Hið rétta er, að þeir Ragnar og Gylfi segja hvor um sig ekki nema hálfan sannleikann, en sé frá- sögn þeirra lögð saman, kemur allur sannleik- urinn i ljós. Vinstri viðræðurnar strönduðu á sameiginlegum óvilja eða viljaleysi þessara flokka til þess að taka á sig ábyrgð á vanda- sömum ráðstöfunum á erfiðum timum. Það kom strax i ljós eftir kosningarnar, að skoðanir voru mjög skiptar um það innan Alþýðubandalagsins, hvort það skyldi heldur vera innan stjórnar eða utan. Kjósendur þess voru þvi almennt fylgjandi, að það héldi áfram þátttöku i vinstri stjórn. Foringjar þess sáu hins vegar fram á, að framundan biðu vanda- samar ráðstafanir, sem gætu orðið óvinsælar i bili. Sumir þeirra vildu þó taka á sig ábyrgð, en aðrir vildu hlaupast frá vandanum, likt og Sósialistaflokkurinn gerði, þegar búið var að eyða striðsgróðanum 1946, og Alþýðubandalag- ið gerði 1958, þegar það rauf vinstri stjórnina þá. Þessir menn réðu yfir Þjóðviljanum og þvi var hann látinn halda uppi hinum hörðustu árásum á Alþýðuflokkinn meðan á vinstri viðræðunum stóð. Slikt var beinlinis gert til að auka tortryggni Alþýðuflokksins og styrkja þann arm hans, sem var andvigur þátttöku i vinstri stjórn. Þessir menn réðu þvi einnig, að sett voru fram ýmis skilyrði, sem þeir vissu frá stjórnarmyndunarviðræðunum 1971, að Framsóknarflokkurinn myndi ekki fallast á, t.d. um þjóðnýtingu samvinnufyrirtækja. Af hálfu þessara manna var þetta bersýnilega sett fram til að torvelda viðræðurnar og jafnvel til að láta þær stranda. Þegar flokkar ætla að vinna saman af heilindum, þá reyna þeir að sneiða hjá ágreiningsefnum, en einbeita sér að hinu, sem þeir geta verið sammála um. Þetta gerði Alþýðubandalagið i stjórnarmyndunar- viðræðunum 1971. Hér voru þvi viðhöfð allt önnur vinnubrögð en þá. Af svipaðri ástæðu vék Alþýðubandalagið aldrei frá skilyrðum i varnarmálum, sem það vissi, að Alþýðuflokk- urinn myndi aldrei fallast á. Þannig mótaðist öll afstaða Alþýðubandalagsins i viðræðunum af sjónarmiðum þeirra leiðtoga þess, sem voru á móti nýrri vinstri stjórn og notuðu Þjóðvilj- ann óspart i þeim tilgangi. Það voru þessi öfl innan Alþýðubandalagsins, sem sigldu vinstri viðræðunum i strand, ekkert siður en Alþýðu- flokkurinn. Þau vildu ekki, að Alþýðubanda- lagið tæki á sig vanda og ábyrgð á erfiðum tim- um, heldur reyndi að afla sér fylgis með óábyrgri stjórnarandstööu. Framsóknarmenn harma það, að ekki tókst að halda áfram vinstri stjórninni. En þeir munu ekki láta það verða til þess að fylgja fordæmi þeirra leiðtoga Alþýðubandalagsins, sem vilja ekki taka á sig ábyrgð á erfiðum tim- um og meta meira imyndaðan flokkshag en þjóðarhag. —Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Ræðst Hassan inn í Spænska Sahara? Þar eru einu auðugustu fosfatnámur í heimi INNRÁS Tyrkja á Kýpur og upplausn portúgalska ný- lenduveldisins hafa beint auk- inni athygli að slðustu meiri- háttar nýlendu Spánverja I Afriku, Spænska Sahara. Hassan konungur i Marokkó hefur aukið mjög tilkall Marokkos til nýlendunnar sið- ustu mánuðina og ýmsir kunn- ugir gizka á, að hann kunni nú að fylgja þessu tilkalli eftir með innrás inýlenduna. Spán- verjar hafa að undanförnu styrkt varnir sinar þar og virðast reiðubúnir til að veita viðnám. Spænska Shara er rúmlega 100 þús. fermllna landsvæði á vesturströnd Afríku, sunnan Marokkó. Spánverjar lögðu þetta landsvæði undir yfirráö si^ i byrjun þessarar aldar. Ei.ginn sóttist þá eftir þvi, enda er það að mestu leyti eyðimörk, eins og sést á þvi, að íbúarnir eru 50-70 þús. tals- ins og langflestir þeirra hriðingjar, sem reika fram og aftur um eyðimörkina og fara oft yfir landamærin inn I Mauretaniu. Aðalbyggðin er við höfuðborgina, E1 Aiun, sem hefur um 20 þús. ibúa. Segja má, að Spænska Sahara hafi yfirleitt ekki verið veitt athygli fyrr en eftir 1959, en þá fundust þar fosfatnámur, sem nú eru taldar einar þær auðug- ustu I heimi. Þær eru skammt sunnan landamæra Marokkó. Gizkað er á, að þar sé að finna um 1700 millj. smál. af fosfati, og geti ársframleiöslan innan skamms numið um 10 millj. smálesta, en Spánverjar hafa unnið kappsamlega að þvi sið- ustu árin að undirbúa nýting- una og notið til þess aðstoðar erlendra auðhringa. Þetta hefur orðið til þessa, að valda- menn i Marokkó hafa farið að renna hýru auga til ný- lendunnar. 1 Marokkó eru fos- fatnámur, Marokkó er stærsti fosfatútflytjandi i heiminum um þessar mundir og ræður mestu úm fosfatverðið á heimsmarkaðinum. Af þeim ástæðum óttast þeir væntan- lega samkeppni við Spán- verja, og vilja þvi ná fosfat- námunum i Spænsku Sahara undir yfirráð sin. Hassan kon- ungur mun jafnfr. telja það styrkja stöðu sina og álit heima fyrir, ef hann gæti inn- limað Spænska Sahara. Þess vegna er nú farið að tala um hugsanlega innrás Marokkó- manna I Spænska Sahara. SPÆNSKA SAHARA komst strax á dagskrá árið 1966, en þá krafðist ekki aðeins Marokkó yfirráða þar, heldur einnig Mauritania. Allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna samþykkti þá, að fara skyldi fram þjóðaratkvæðagreiðsla i nýlendunni, sem leiddi i ljós hver vilji ibúanna væri. Spán- verjar mölduðu i móinn næstu fjögur árin, en 1971 lýstu þeir yfir þvi, að þeir myndu láta þjóðaratkvæði fara fram við fyrstu hentugleika. Þeir hafa þó enn ekki komið þvi I verk, enda telja þeir þetta erfiðleik- um bundið, m.a. vegna þess, að hriðingjar frá Mauretaniu kunni að krefjast atkvæðis- réttar. Það kann þó að ráða meira, að Spánverjar hafa ekki viljað viðurkenna niður- stöður atkvæðagreiðslunnar, sem fór fram i Gibraltar og leiddi i ljós þann vilja ibú- anna, að þeir viljá óbreytt ástand. Spánverjar hafa þvi I staðinn farið inn á þá braut, að koma upp visi að heimastjórn og gefa jafnframt til kynna, að þeir stefni að þvi að veita ný- Hassan konungur. lendunni fullt sjálfstæði. Þetta telur ekki aðeins Marokkó, heldur einnig Mauretanía og Alsir fjarstæðar ráðagerðir, þvi að ibúarnir séu of fámenn- ir til að mynda sjálfstætt rlki, enda sé fyrirætlun Spánverja sú, að breyta aðeins um form. Þeir ætli að breyta nýlend- unni i leppriki, sem þeir ráði raunverulega. Þannig ætli þeir að tryggja sjálfum sér og alþjóðlegum auðhringum yfir- drottnun yfir hinum miklu fos- fatauðæfum nýlendunnar. Þjóðhöfðingjar þessara þriggja rikja, eða þeir Hassan konungur i Marokkó, Boumedienne forseti Alsir og Ould Daddah forseti Maure- taniu hafa nokkrum sinnum hitzt til að reyna að ná sam- komulagi um framtið Spænska Sahara, en það ekki tekizt, m.a. vegna þess, að bæði Marokkó og Mauretania gera tilkall til yfirráöa. Boumedienne mun hafa dreg- izt á að styðja tilkall Marokkós, en þó með þvi skil- yrði, að landamæradeila milli Marokkos og Alsirs yrði leyst þannig, að landsvæöi, þar sem eru auðugar járnnámur, falli undir Alsir. Eins og sagt var i upphafi, bendir nú margt til þess, að Hassan konungur telji orðið tilvalið tækifæri til að höggva á hnútinn og láta sig einu gilda afstöðu Alsirs og Mauretaniu. Auk áðurgreindra ástæðna ýt- ir það undir hann, að Spán- verjar hafa veikari aðstöðu en ella sökum þess, að þeir leita nú mjög stuðnings Afriku- þjóða á alþjóðlegum vettvangi i deilunni við Breta um GI- braltar. Veikindi Francos og óvissan, sem þau valda, geta lika gert Hassan djarfari en ella. Þ.Þ. Spænska Sahara,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.