Tíminn - 01.11.1974, Page 6
6
TÍMINN
Föstudagur 1. nóvember 1974.
Byggðoáætlun Vest-
urlands
— eitt aðalmálið á fundi Samtaka
sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi
FÓLK STREYMIR
— uppselt á allar sýningar L.R. í október
ÓVENJUMIKIL aðsókn hefur
verið að leikhúsunum nú I haust. 1
Iðnó hefur verið uppselt á hverja
sýningu frá þvi leikhúsið opnaði 4.
október, og eru sýningarnar
komnar yfir tuttugu og leikhús-
gestir orðnir um 5000.
Óvenjumargir farsaleikir eru
nú i gangi i leikhúsunum, eða
tveir i hvoru. Fló á skinni hefur
verið sýnd 220 sinnum, og virðist
sizt vera lát á aðsókninni. Mikil
eftirspurn er einnig eftir miðum á
reviuna, Islendingaspjöll.
Geta má þess, að sýningum á
Kertalogi Jökuls Jakobssonar fer
að fækka. Atriði úr Kertalogi.
Leikararnir Pétur Einarsson,
Karl Guðmundsson og Guðrún
Stephensen í hlutverkum slnum.
Haraldur Sumarliðason, formaður
Meistarafélags húsasmiða:
Órökstuddar get-
sakir í garð húsa
smíðameistara
1 Timanum, eru birt viðtöl við
nokkra húsasmlðanema s.l.
sunnudag I þættinum ,,Með ungu
fólki”. t þessum viðtölum (sér-
staklega einu) kemur fram
ásökun I garð meistara, sem taka
að sér nema I húsasmlði, þar sem
þvl er haldið fram, að þess séu
dæmi, að nemar sem hafa lokið
2-3 árum af náminu hafi „aldrei
neglt nagla allan þann tlma”,
eins og það er orðað. Einnig að
þess séu dæmi, að nemar séu
látnir vinna I öðru en faginu,
jafnvel árum saman af
námstlmanum.
A undanförnum árum hefur
margt verið rætt og ritað um iðn-
fræðsluna. í þessum umræðum og
skrifum hafa iðnnemar verið
ötulir þátttakendur, og hafa þeir
oft lagt gott til þessara mála. Hitt
hefur þó verið öllu meira
áberandi, að þeir túlki þessi mál I
einhvers konar æsifréttastll, og
þvl miður hefur magn sllkra
skrifa og umræðna oft staðið I
fyrirrúmi fyrir yfirvegun og
skynsemi.
Vegna þess að námsvettvangur
iðnnema er dreiföur um vinnu-
staði, en ekki eingöngu ákveönar
menntastofnanir, er miklu
erfiðara að fá heildaryfirsýn yfir
þetta en flest annað nám, og þar
með mikið auöveldara að slá
fram allskonar órökstuddum full-
yrðingum I þessu sambandi. Af
sömu ástæðu er einnig erfitt að
afsanna sllkar fullyrðingar,
þegar ekki er getið heimilda eða
vettvangs. Engu að slður tel ég
það alvarlega ásökun á meistara,
að þeir noti nemana til að vinna
allt önnur störf en þeim ber, að
ekki sé talað um ummælin, sem
látin eru falla um Iðnskólann.
Það verður að ætlast til að blöð,
er vilja láta taka sig alvarlega,
birti ekki sllkan óhróður um
heilar stéttir og stofnanir, alger-
lega að óathuguðu máli, jafnvel
þótt einhverjir málglaðir ungl-
■ ingar hafi áhuga á að láta ljós sitt
skína.
Bent er á að hafa þurfi meira
„eftirlit með meistarakerfinu” til
að fylgjast með kennslunni. Sllkt
eftirlit mætti gjarna vera virkara
en það er, en þó held ég að það
hljóti aö vera eitthvað meira at-
hugavert.ef nemar láta halda sér
frá náminu „jafnvel árum
saman”, án þess að leita aðstoðar
iðnfræðsluráðs eða viðkomandi
meistarafélags.
AÐALFUNDUR samtaka
sveitarfélaga I Vesturlandskjör-
dæmi er haldinn i Munaöarnesi
dagána 1.-2. nóvember. Ilefst
fundurinn kiukkan tvö með
fundarsetningu og kosningu
starfsmanna. Avörp flytja
Gunnar Thoroddsen, félagsmála-
ráðherra og Páll Lindal, for-
maður Sambands ísi. sveitarfél.,
og fleiri gestir.
Alexander Stefánsson, for-
maður samtakanna, flytur
skýrslu stjórnar, og Guðjón Ingi
Stefánsson, framkvæmdastjóri
samtakanna skýrir reikninga og
fjárhagsáætlun.
Klukkan fjögur hefjast erindi
um byggðaáætlun fyrir Vestur-
land. Tómas Sveinsson viðskipta-
fræðingur talar almennt um
byggðaþróunaráætlun Vestur-
lands og samgöngur þar.
Sigurður Gústafsson hagfræð-
ingur flytur erindi um mann-
fjölda og mannaflaþróun, at-
vinnusamsetningu og tekju-
myndun á Vesturlandi I saman-
buröi við aðra landshluta, og
landsheild. Magnús G. Björnsson
skipulagsarkitekt flytur erindi
um húsnæðisáætlanir og
Fjárlög
lagsuppbætur. Magnaukning er
7,3 stig, þar af 2,4 stig vegna
áhrifa grunnskólalaganna og 4,9
stig vegna anriarrar magnaukn-
ingar, einkum i skólakerfinu og
vegagerð, en nokkuð af þeirri
magnaukningu er þegar komið
fram á árinu 1974. Við ákvörðun
annarra rekstrarliða hefur verið
höfð hliðsjón af þvl, að frá gerð
slðustu fjárlaga hefur verðlag að
meöaltali hækkað um 50-55%.
Tekjuáætlunin miðast I megin-
atriðum við hliðstæðar kaup- og
verðlagsforsendur og hér hafa
verið raktar. Magnbrey.tingar
helztu skattstofna óbeinna skatta
eru hins vegar miðaðar við, að
heildarútgjöld þjóðarinnar verði
ekki meiri að raunverulegu
verðgildi á næsta ári en i ár.
Þessar forsendur fela I sér, að al-
menn innlend þjóðarútgjöld
aukist um 19-20% I peningum, en
almennur vöruinnflutningur um
20%, (ef olía er frátalinen reiknað'
er með 23% hækkun á verðmæti
olluinnflutnings 1975.) Reiknað er
með, að skattvisitala veri 145 stig,
miðað við 100 stig 1974, eða hækki
til jafns við tekjur, en ennfremur
verði tekjuskattur lækkaður um
500 m.kr., sem er liður i endur-
skoðun skatta- og trygginga-
kerfisins. Þá er i tekjuáætluninni
gert ráð fyrir lækkun tolla frá 1.
janúar 1975. skv. aðildarsamningi
við EFTA og viðskiptasamningi
viö Efnahagsbandalagið og
nokkurri aðlögun annarra tolla
vegna þessara breytinga”.
njó-hjólbarðar
til sölu í flestum stærðum
góð snjó-mynstur
HAGSTÆTT VERÐ
Sólum flestar
stærðir
ÁBYRGÐ Á SÓLNINGU
Sendum í póstkröfu
SÓL.NXNX*
Nýbýlaveg 4 • Sími 4-39-88
Kópavogi
bygginga- og skipulagsmál sem
þætti I byggðaþróun. Njörður
Tryggvason flytur hugleiðingar
um orkumál á Vesturlandi, og
Jóhannes Ingibjartsson
byggingafræðingur ræðir um
heilbrigðisþjónustu.
Að loknum erindum svara
frummælendur fyrirspurnum, og
siöan verða almennar umræður.
Laugardaginn 2. nóvember
verður starfað I nefndum, eftir
hádegi skila nefndirnar áliti, og
siðan verða málin afgreidd.
Fundinum lýkur með kosningu
stjórnar endurskoðenda og kosn-
ingu fræðsluráðs fyrir Vestur-
landskjördæmi. Áformuð fundar-
slit eru kl. 17.
Trille
FRAMUNDAN
í NORRÆNA
HÚSINU
SJ-Reykjavík. — Von er á sænska
visnasöngvaranum Cornelis
Vreeswijk og dönsku visnasöng-
konunni Trille hingað til tónleika-
halds. Þau koma tvisvar fram i
Norræna húsinu, 7. og 9. nóvem-
ber. Auk þess koma þau fram
hvort i sinu lagi á vegum annarra
aðila.
Vreeswijk er fæddur I Hollandi
en býr nú i Svlþjóð, þar sem hann
nýtur mikilla vinsælda. Trille og
hann komu fyrst fram saman
1970, þau koma hingað frá Fær-
eyjum. Aðgöngumiðar verða
seldir I kaffistofu Norræna húss-
ins frá 4. október.
Siðar I nóvember kemur sænski
pianóleikarinn Margot Nyström,
sem hefur hér viðdvöl á leið sinni
til hljómleikahalds i Bandarikj-
unum. Hún kemur fram einu sinni
I Norræna húsinu.
Um mánaðamót nóvember-
desember koma rithöfundarnir
Edde Klövedal Reich frá Dan-
mörku og Lars Huldén frá Finn-
landi, og hafa þeir báðir lofað að
taka þátt I hinum árvissu bók-
menntakynningum Norðurlanda-
lektoranna.
Sýning verður á verkum Alvars
Aalto I Norræna húsinu I febrúar.
I april verður ein vika helguð
kynningu á Álandseyjum.
Næsta sýning i sýningarsölum
verður sýning Karls Kvarans list-
málara, en á eftir honum kemur
„DEN NORDISKE udstilling”,
samsýning listamannahóps frá
öllum norðurlöndunum, en þeir
hafa nokkur ár haft sýningar I
Charlottenborg I Kaupmanna-
höfn. í hópnum eru 26 listamenn
frá Noregi, Sviþjóð, Finnlandi,
Danmörku, Grænlandi, Færeyj-
um og íslandi, og sýna þeir mál-
verk, graflk, höggmyndir og
keramik.
CorneSs Vreéswljk
Cornelis Vreeswijk
Endur-
/ •
ny|un
kirkjulegs
safnaðar-
starfs
háskólafyrirlestur
bandaríks
prófessors
MANUDAGINN 4. nóvember n.k.
flytur bandariskur prófessor,
Robert Benne.Ph. D„ fyrirlestur
við guðfræðideild Háskóla tslands
I boði deildarinnar. Prófessor
Benne, sem er prófessor I félags-
legri siðfræði við Lutheran School
of Theology at Chicago, mun i
fyrirlestri sinum fjalla um
endurnýjun kirkjulegs safnaðar-
starfs, einkum þann hátt, er lýtur
að endurmenntun presta og
annarra starfsmanna safnaðar-
Fyrirlesturinn verður haldinn I
V. kennslustofu háskólans og
hefst kl. 10 árdegis.
Q Kirkjuþing
Sóknargjald er nú 750 kr. I
Reykjavik. Það hefur verið
nefskattur, en þó er það nú ekki
innheimt af þeim, sem ekki
greiða útsvar.
Þá er með frumvarpinu lagt til,
að stofnaður verði Jöfnunar-
sjóður kirkjusókna og tekjur hans
verði 5% Jöfnunarsjóður kirkju-
sókna og tekjur hans verði 5% af
innheimtum sóknargjöldum þjóð-
kirkjumanna. Lagt er til, að lögin
öðlist gildi 1. jan. 1975.
Biskup sagði, að mikil vinna
yrði á þinginu vegna þessa frum-
varps, sem þó væri vel búið i
hendur kirkju þingsmanna
Annað málið á þinginu var til-
laga um söngmál safnaða, sem
biskup flutti. Eru I henni ítrekað-
ar fyrri tillögur til úrbóta á þeim
erfiðleikum, sem söfnuðir
landsins, einkum i dreifbýli, eiga
viö að etja I sambandi við
söngmál sin. Heitir þingið á
kirkjumála- og menntamálaráð-
herra að veita þessum tillögum
brautargengi. Þingið ályktar að
kjósa þriggja manna nefnd til að
vinna, ásamt söngmálastjóra
þjóðkirkjunnar, að framgangi
þessa máls.
I dag, föstudag, verða fjölmörg
mál á dagskrá kirkjuþings.
Sautján fulltrúar sitja
kirkjuþing. Biskup og kirkju-
málaráðherra eru sjálfkjörnir.
Aðrir fulltrúar eru kosnir I sjö
kjördæmum. Prestar kjördæm-
anna kjósa sjö fulltrúa úr sinum
hópi. Og sóknarnefndir kjósa sjö
leikmenn úr sinum hópi. Loks á
guðfræðideild Háskóla íslands
einn fulltrúa á þinginu.