Tíminn - 01.11.1974, Blaðsíða 9
Föstudagur 1. nóvember 1974.
r
v
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Pórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur i
Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif-
stofur I Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 —
auglýsingasimi 19523.
Verö i lausasölu kr. 35.00.
Askriftargjaid kr. 600.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f.
J
Raunir Ragnars
Það sannast á Ragnari Arnalds, að menn eru
fljótir að snúa baki við þeim, sem er að missa
völdin. Ragnar er nú i þann veginn að láta af for-
mennsku Alþýðubandalagsins, enda lætur
Þjóðviljinn nú fátt ógert til þess að gera hlut hans
sem minnstan. Þetta gerir Þjóðviljinn m.a. á þann
hátt, að hann heldur þvi kappsamlega fram, að
það hafi strandað á Framsóknarflokknum, að ekki
tókst að mynda nýja vinstri stjóm. Með þessum
áróðri er Þjóðviljinn m.a. að reyna að gera
Ragnar ómerkan orða sinna, en Ragnar skýrði
skilmerkilega frá þvi i viðtali, sem Þjóðviljinn
birti við hann, þegar umræddri stjórnar-
myndunartilraun lauk, að hún hefði strandað á
Alþýðuflokknum. Eins og Þjóðviljinn ber með sér,
er nú reynt að gera veg Ragnars sem minnstan
innan Alþýðubandalagsins með þvi að ómerkja
þessa frásögn hans.
Við þessa frásögn Ragnars Arnalds er það eitt
að athuga, að hann sagði ekki nema hálfan sann-
leikann. Sama dag og Þjóðviljinn birti viðtalið við
Ragnar, birti Alþýðublaðið viðtal við Gylfa Þ.
Gislasom Þar lýsti Gylfi yfir þvi, að umrædd
stjórnarmyndunartilraun hefði strandað á
Alþýðubandalaginu. Gylfi segir hér einnig hálfan
sannleikann. Sannleikurinn kemur fyrst i ljós,
þegar frásögur þeirra Ragnars og Gylfa eru
lagðar saman. Tilraunin til að mynda nýja
vinstri stjórn strandaði á sameiginlegum óvilja og
andstöðu bæði innan Alþýðuflokksins og Alþýðu-
bandalagsins. Eini flokkurinn, sem stóð heill að
þessari tilraun, var Framsóknarflokkurinn.
Hinar dulbúnu árásir Þjóðviljans á Ragnar
Arnalds breytla ekki þessari staðreynd.
Nartið í Einar
Þjóðviljinn er nú öðru hverju að narta i Einar
Ágústsson. Ádeiluefnið er helzt það.að hann hafi
ekki komið fram þeim tillögum i varnarmálum,
sem hann bar fram á siðastl. vetri um brottför
varnarliðsins, og hafi nú samið um miklu minni
áfanga. Þetta er ekki sök Einars. Fyrri tillögur
Einars strönduðu á þvi, að andstæðingar þeirra
fengu stöðvunarvald á Alþingi i siðustu þing-
kosningum. útilokað var þvi að koma þeim fram
að sinni. Þá var ekki um annað að velja en taka
næstbezta kostinn.
Það er ekkert nýtt, að kosningaúrslit hindri það,
að stjórnmálamenn eða stjórnmálaflokkar nái
strax þvi marki, er þeir setja sér. Þá er að
reyna að ná þvi mesta fram, sem hægt er undir
breyttum kringumstæðum. Hitt væri uppgjöf, að
snúa alveg baki við málinu og láta annan taka við.
Þannig eiga stjórnmálamenn eða stjórnmála-
flokkar ekki að vinna.
Góð erindislok
Ólafur Jóhannesson viðskiptamálaráðherra og
samstarfsmenn hans hafa náð góðum málalokum i
Moskvu i samningum við rússnesk stjórnarvöld
um hina miklu skuldasöfnun vegna oliu-
verðhækkunarinnar. Þar tókst ekki aðeins að ná
samkomulagi um sæmilega greiðsluskilmála,
heldur einnig um sölu á verulegu magni á fiski-
mjöli, sem illa gengur nú að selja. Jafnframt eru
svo góðar horfur á enn auknum útflutningi til
Sovétrikjanna til greiðslu á oliunni. Þetta bætir
verulega hina erfiðu viðskiptastöðu Islands um
þessar mundir. Það ber að meta, að Rússar hafa
sýnt skilning á aðstöðu Islendinga. -Þ.Þ.
TÍMINN
9
ERLENT YFIRLIT
Konur sækja fram
í Bandaríkjunum
Þeirra gætir nú mjög í kosningabaráttunni
Efst:
Colleen O’Connor og Bob Wilson
i miöið-
Samuel L. Devine og Frances Ryan
neðst-
Margaret Costanza og Barber B. Conable jr.
t ÞINGKOSNINGUNUM og
rikisstjórakosningunum, sem
fara fram i Bandarikjunum á
þriðjudaginn kemur, er demó-
krötum spáö miklum sigri og
valda þvi einkum tvær ástæð-
ur, Watergatemálið og efna-
hagsmálin. Það er svo at-
hyglisvert i sambandi við
kosningarnar, að miklu meira
ber nú á konum I kosningabar-
áttunni en dæmi eru til um áð-
ur. Meðal annars eru nú horf-
ur á, að kona verði kjörin
rikisstjóri i fyrsta sinn vegna
eigin verðleika. Að visu hafa
þrjár konur náð rikisstjóra-
kosningu áður, en það hefur
gerzt á þann veg, að eigin-
menn þeirra hafa gegnt rikis-
stjóraembættinu, en ekki mátt
bjóða sig fram aftur, og þá
gripið til þess ráðs að bjóða
eiginkonuna fram og siðan
stjórnað i nafni hennar. Nú er
þessu ekki þannig farið. Ella
Tambussi Grasso, sem er
frambjóðandi demókrata i
Connecticut, er valin til fram-
boðs vegna eigin verðleika og
þykir einnig likleg til að verða
kjörin sökum þess álits, sem
hún hefur unnið sér. Þvi er
jafnframt almennt spáð, að
hún verði dugandi rikisstjóri.
Þá eru horfur á, að kona,
Mary Anne Krupsak, verði
kjörin vararikisstjóri i New
York riki, og verður hún þá
fyrsta konan, sem er kjörin til
aö gegna þar mikilvægu emb-
ætti i þágu rikisins. Krupsak
er 42 ára gömul, póslk að ætt,
lögfræðingur að menntun, gift
og barnlaus. Hún hefur tvi-
vegis náð kosningu til fulltrúa-
deildar þingsins i New York
riki, en á nú sæti i öldunga-
deild þess. Hún keppti i próf-
kjöri við frambjóðanda, sem
flokksstjórnin studdi, en bar
sigur úr býtum. Það hjálpar
þeim Krupsak og Ellu Grasso
mikið, að þær koma vel fyrir i
sjónvarpi, þótt hvorug sé
fegurðarstjarna. Báðar eru
vel máli farnar, en tala rólega
og þvi sannfærandi og virðast
þekkja vel til þeirra mála,
sem rætt er um. Þannig hefur
blaðamönnum aldrei tekizt að
finna neinn snöggan blett hjá
Ellu Grasso, þótt oft hafi þeir
spurt hana spjörunum úr.
Óþægilegum spurningum tek-
ur hún með mestu ró og svarar
þeim skýrt og skilmerkilega.
MARGAR konur taka svo
þátt i kosningunum til full-
trúadeildar Bandarikjaþings
og þykja viða sigurvænlegar.
Þannig eru þrir þingmenn
republikana, sem hafa verið
miklir áhrifamenn á þingi,
taldir i hættu, en þeir keppa
allir við konur, sem demó-
kratar tefla fram gegn þeim.
Þekktastur þeirra er Wilson i
Kaliforniu, sem keppir við
Colleen O’Connor, 29 ára
gamla fyrrv. balletdanskonu,
Ella Grasso og eiginmaöur
hennar
en núv. sögukennara. Annar
er Samuel L. Devine i Ohio,
sem keppir við frú Frances
Ryan, sem stundaði blaða-
mennsku um skeið. Sá þriðji
er Barber B. Conable i New
York riki, sem keppir við
Margaret Costanza, sem er nú
borgarstjóri i Rochester, 41
árs. Það myndu þykja mikil
tiðindi, ef allar þessar þrjár
konur næðu kosningu, þar sem
þær eiga i höggi við þekkta og
virta þingmenn, sem eiga
langan stjórnmálaferil að
baki.
Sá kvenframbjóðandi til
fulltrúadeildarinnar, sem
dregur að sér mesta athygli,
er þó sennilega Judy Petty,
sem keppir við Wilbur Mills i
Arkansas Mills hefur verið tal-
inn voldugasti maðurinn i full-
trúadeildinni, en hann hefur
lengi verið formaður fjárveit-
inganefndar öldungadeildar-
innar. Wilbur hefur verið tal-
inn svo öruggur, að illa gekk
að fá frambjóðanda gegn hon-
um að þessu sinni. Að lokum
gaf sig þó fram 31 árs gömul
kona, Judy Petty, sem hafði
verið i þjónustu Winthrops
Rockefellers, fyrrv. rikis-
stjóra I Arkansas. Hún hefur
reynzt mjög dugandi fram-
bjóðandi. Það hefur nú komið
til viöbótar, að Mills, sem er 64
ára gamall, hefur nýlega orðið
uppvis að vafasömum kunn-
ingsskap við dansmey eina.
Petty segist þó ekki vilja nota
sér það i kosningabaráttunni,
enda er hún fráskilin og hefur
ef til vill ekki að öllu leyti
hreint mjöl i pokahorninu að
þessu leyti.
FYRIR konur væri það
vafalitiö mestur árangur, ef
Ella Grassosem yfirleitt geng-
ur undir nafninu Ella, næði
kosningu sem rikisstjóri. Flest
bendir til að hún myndi reyn-
ast vel i þessari stöðu. Ella
Grasso er fædd 10. júli 1919,
einkabarn Italskra innflytj-
anda. Faðir hennar starfaði
sem bakari. Hún lagði ung inn
á námsbrautina og vann að
mestu leyti fyrir sér. Að loknu
námi i hagfræði, hóf hún af-
skipti af félagsmálum og
stjórnmálum og lét sig einkum
réttindamál kvenna miklu
skipta. Hún átti sæti i fulltrúa-
deild þingsins i Connecticut i
tvö kjörtímabil, siðarvarhún
rikisritari i Connecticut i þrjú
kjörtimabil og loks hefur hún
átt sæti i fulltrúadeild Banda-
rikjaþings i tvö kjörtimabil.
Þar hefur hún m.a. látið mál
atvinnuleysingja til sin taka
,og sagt það furðulegt, að
Bandarikjamenn gætu sent
menn til tunglsins, en gætu
ekki útrýmt atvinnuleysi. Hún
hefur fengið mikið lof fyrir ná-
ið samband við kjósendur
slna. Maður hennar, sem er
fyrrverandi skólastjóri, er
henni mjög til aðstoðar. Þau
eiga son og dóttur, sem bæði
eru uppkomin og eru kennarar
að atvinnu. Þ.Þ.