Tíminn - 06.11.1974, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
M»vikud»gnr ». návember 1974.
Miðvikudagur 6. nóvember 1974
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Þú skalt yfirfara gömul viðfangsefni og leggja
nýjar áætlanir — en það er alltof snemmt að
hugsa til þess að reyna að koma þeim i fram-
kvæmd. Það er ekkert á móti þvi að bregða sér
úr bænum undir kvöldiö.
Fiskarnir (19. febr.—20. mai .
Þú brennur af áhuga og framkvæmdalöngun.
Þetta. er íyrirtak. Þú skalt beita forystuhæfi
leikum þinum og skipulagsgáfunni, og sannaðu
til: þetta verður ánægjulegur dagur i alla staði
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Nú verður þú að fara að athuga fjárhaginn nán-
ar og hafa auga með útgjöldunum. Þetta þýðir
ekki það, að þú eigir að neita þér um tilbreyting-
ar, en varastu að særa náinn ættingja þinn.
Nautið (20. april—20. mai)
Þú skalt ekki slá neinu föstu varðandi kaup á
hlutum i dag, þvi að þaö er aldrei aö vita, nema
þeir reynist gallaöir eöa jafnvel minna viröi en
þér hefur verið talin trú um. Haltu vel á fjármál-
unum i dag.
Tviburarnir (21. maí—20. júni)
Persónuleg vandamál hrjá þig i dag. Þau eru
samt ekki eins alvarleg og þú hyggur,ogþú skalt
stilla þig um að skamma einhvern, sem þér
finnst gera á hluta þinn. Þú sérð þetta i allt ööru
ljósi áður en langt um liður.
Krabbinn (21. júní—22. júlí)
Morguninn og fram yfir hádegið eru bezti hluti
(iagsins og þú skalt notfæra þér hann eins og bezt
þú getur. Þú skalt beita kænlegum aðferðum, ei
þér finnst þú ekki' vera metinn að veröleikum.
Ljónið (23. júlí—23. ágúst)
Mikið skelfing virðist ætla að verða litið úr
helgaráformunum hjá þér, en misstu ekki
móðinn. Þetta kann að lagast með kvöldinu.
Gættu þin að fljótfærnin skapi þér ekki erfiði.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Þú skalt búa þig undir það að fá einhverja viður-
kenningu i dag, en störfin ættir þú samt að bæta,
og endilega forðast að lenda i orðasennu við
samstarfsmenn þina. Sýndu vini þinum áhuga.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Það er eitthvað að hjá þér, og þú sérð hlutina
ekki i réttu ljósi. Ef þér aðeins tækist að lita á
málin frá annarra hlið, væri strax mikið fengiö.
Þá sérðu lika nægjar leiðir til úrbóta I ákveðnu
máli. óheppilegur timi til skemmtana.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Það er eitthvað aö brjótast um i þér. Ef þú ert
viss um að peningalegur hagnaður sé raunveru-
lega af þessu, þá skaltu ekki fresta framkvæmd-
um, en þú skalt ekki blanda geöi við aðra, og alls
ekki taka félaga með þér I þetta.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Það er eitthvert vináttusamband að myndast
hjá þér þessa dagana, en farðu samt varlega i
það. Það er hætt við þvi að þú rekir þig fljótlega
á það, að þetta varekki neitt fyrir þig. Háttatimi
snemma er hollastur.
Steingeitin (22. des.-19. jan)
Það er hætt við þvi, að þú verðir i hálfslæmu
skapi i dag. Það er eitthvað að hjá þér núna, og
þú skalt fara yfir það, sem þú hefur verið að
gera upp á siðkastið og endurskoða það i nýju
ljósi.
Flugvirkjar
Flugvirkjafélag íslands heldur almennan
félagsfund, miðvikudaginn 6. nóvember
n.k. kl. 16,30 að Siðumúla 11.
Fundarefni:
1. Næturmatur i Keflavík.
2. Atvinnumál.
3. Uppsögn samninga.
Stjórnin.
BYGGÐAÁÆTLUN
VESTURLANDS
— aðalmól nýafstaðins aðalfundar sam
toka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi
Gsal-Reykjavik — Aöalfundur
samtaka sveitarfélaga i Vestur-
landskjördæmi var haldinn um
siöustu helgi i Munaöarnesi.
Fundinn sóttu 43 kjörnir fulltrúar,
auk fjölda gesta. Fundurinn hófst
föstudaginn 1. nóv. kl. 14 meö
kosningu starfsmanna. Fundar-
stjórar voru kosnir Jón Þór
Jónasson, oddviti Hjaröarholti,
og Jón Þórisson, oddviti Reyk-
holti. Fundarritarar voru Her-
mann Hjartarson, ólafsvik og
Jónas Gestsson Hellissandi.
Ávörp fluttu Gunnar Thorodd-
sen félagsmálaráðherra og Unn-
ar Stefánsson, flutti ávarp Páls
Lindals, formanns sambands isl.
sveitarfélaga.
Auk þeirra fluttu ávörp Asgeir
Pétursson, sýslumaður Brynjólf-
ur Sveinbergsson, formaður
f jórðungssambands Norð-
lendinga, og Axel Jónsson fram-
kvæmdastjóri sveitarfélaga i
Reykjanesumdæmi.
Alexander Stefánsson, formaö-
ur samtakanna flutti skýrslu
stjórnar og Guöjón Ingvi Stefáns
son, framkvæmdarstjóri lagði
fram og skýrði reikninga samtak-
anna og fjárhagsáætlun.
1 skýrslu stjórnar kom fram, að
samtökin hafa unnið mikið starf i
þágu sveitarfélaga og framfara-
mála Vesturlands.
Aðalmál fundarins að þessu
sinni var byggðaáætlun fyrir
Vesturland. Fluttu þrir sér-
fræðingar Framkvæmdastofnun-
ar rikisins og tveir sérfræðingar
Verkfræði- og teiknistofunnar á
Akranesi erindi um hina ýmsu
þætti byggðaáætlunarinnar. Urðu
um það mál miklar umræður.
A fundinum störfuðu fimm
nefndir um hina ýmsu mála-
flokka og voru gerðar margar
samþykktir á fundinum.
Um orkumál gerði fundurinn
m.a. ályktun um að hafizt yrði
handa um virkjun Kljáfoss i
Hvitá, þar sem hún virðist mjög
hagkvæm.
Lögð var áherzla á aukna nýt-
ingu innlendra orkugjafa til upp-
hitunar húsa og að gerð yrði itar-
leg könnun á nýtanlegum jarðhita
I kjördæminu.
Fundurinn skorar á stjórnvöld
að veita tæknilega og fjárhags-
lega fyrirgreiðslu, svo fram-
kvæmdum verði hraðað um nýt-
ingu jarðhita frá Deildartungu og
Leirá.
Um varanlega gatnagerð sam-
þykkti fundurinn, að beina þvi til
þéttbýlissveitarfélaga, að þau
notfæri sér lögin um gatnagerða-
gjöld til að afla tekna fyrir
varanlega gatnagerð. Jafnframt,
að leitað verði eftir þvi, að
byggðasjóður láni til skemmri
tima verulegan hluta af þeirri
upphæð sem til þarf að fjár-
magna varanlega gatnagerð I
þéttbýli, með tilliti til mjög vax-
andi tekna byggðasjóðs.
Auk þessa voru gerðar margar
ályktanir um samgöngumál, heil-
brigðismál, dreifingu stofnana,
póst- og simamál, brunavarnir,
og um húsnæðismál og varnir
gegn eyðingu byggðar i sveitum.
Ennfremur um rannsóknir vegna
hugsanlegrar leirverksmiðju I
Búðardal.
Um staðsetningu fræðsluskrif-
stofu komu fram tvær tillögur.
Annars vegar um aðsetur hennar
i Borgarnesi og hins vegar um að-
setur á Akranesi. Samþykkt var
að visa tillögunum til stjórnar, til
athugunar og endanlegrar af-
greiðslu.
í stjórn samtaka sveitarfélaga I
Vesturlandskjördæmi voru kjörn-
ir: Alexander Stefánsson, oddviti
Ólafsvik formaður. Húnbogi Þor-
Alexander Stefánsson, oddviti
steinsson, sveitarstjóri Borgar-
nesi, ritari, Guðmundur Vésteins-
son, bæjarfulltrúi Akranesi,
gjaldkeri,, Ágúst Bjartmars, odd-
viti Stykkishólmi, Haraldur
Arnason, oddviti Búðardal,
Sigurður Sigurðsson, oddviti
Stóra-Lambhaga, og Valdimar
Indriðason bæjarfulltrúi
Akranesi.
Auglýsing
um rekstrarstyrki til
sumardvalarheimila
fyrir börn _
Eins og undanfarin ár mun menntamálaráöuneytiö
veita styrki til rekstrar sumardvalarheimila og vist-
heimila fyrir börn úr bæjum og kauptúnum á árinu
1974.
Styrkir þessir eru einkum ætlaðir félagasamtökum,
sem reka barnaheimili af framangreindu tagi.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar ráðuneytinu,
ásamt upplýsingum um tegund heimilis, tölu dvalar-
barna og aldur, dvalardaga samtals á árinu miðað við
heils dags vist, upphæð daggjalda, svo og upplýsingar
um húsnæði (stærð, búnað og aðra aðstöðu) og
upplýsingar um starfsfólk (fjölda, aldur, starfsreynslu
og menntun), ennfremur fylgi rekstrarreikningur
heimilisins fyrir árið 1974.
Sérstök umsóknareyðublöð fást i menntamálaráöu-
neytinu, Hverfisgötu 6, en umsóknir skulu hafa borizt
ráðuneytinu fyrir 1. desember, n.k.
Menntamálaráðuneytið,
1. nóvember 1974.
Ættarmót
Niðjar séra Páls ólafssonar, prófasts i
Vatnsfirði halda ættarmót i Lækjar-
hvammi, Hótel Sögu fimmtudaginn 7.
nóvember 1974 kl. 20,30.
Nefndin.
^Snjó-hjólbarðar
tll sölu í flestum stærðum
HAGSTÆTT VERD
Sólum flestar
stærðir
ÁBYRGÐ Á SÓLNINGU
Sendum í póstkröfu
8ÓUUNQ> HB
góð snjó-mynstur
Nýbýlaveg 4 • Simi 4-39-88
Kópavogi