Tíminn - 06.11.1974, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 6. nóvember 1974.
TÍMINN
7
IV <$■
■
j
trtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I
Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif-
stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 —
auglýsingasimi 19523.
Verð i lausasöiu kr. 35.00.
Askriftargjaid kr. 600.00 á mánuði. Blaðaprent h.f.
Hagstæðir samningar
Ólafur Jóhannesson viðskiptaráðherra gerði á
blaðamannafundi grein fyrir hinni árangursriku
ferð sinni til Sovetrikjanna,
í fyrri viðskiptasamningi við Rússa var gert ráð
fyrir litilfjörlegum yfirdrætti af hálfu íslendinga.
Skuldin við Rússa var komin langt yfir þau mörk,
og hafa Rússar sýnt mikla þolinmæði i þeim við-
skiptum. Nýir samningar tókust nú um skuldavið-
skipti, og taka þeir gildi um næstu mánaðamót.
Skuldin verður vaxtalaus fram að þeim tima. Nýju
samningarnir gera svo ráð fyrir, að greiddur verði
helmingur skuldarinnar, en vextir verða greiddir
af eftirstöðvunum. Viðskiptahallinn við Sovétrikin
nemur um 3,5 milljörðum króna, en búið er að
greiða af þvi rúman milljarð króna. Þá var sam-
þykkt að yfirdráttarheimildin verði hækkuð veru-
lega frá þvi sem áður var. Samkomulag tókst
einnig um það við hvaða upphæð skuli miða, en
það atriði hefur verið svolitið á reiki vegna gengis-
breytingarinnar á islenzku krónunni. Að dómi við-
skiptaráðherra er þetta samkomulag Islendingum
eins hagstætt og frekast var hægt að búast við.
Rætt var um að auka vörukaup Sovétrikjanna
frá íslandi til að jafna þann mikla mismun, sem
orðinn er á i viðskiptum rikjanna, en Islendingar
kaupa nær alla oliu, sem þeir nota, frá Sovét-
rikjunum. Samkomulag náðist um, að Rússar
kaupi á þessu ári 10 þúsund lestir af fiskimjöli á
þvi verði, sem gildir á heimsmarkaði. Krefjast
þeir þess, að mjölið verði i bezta gæðaflokki.
Nánari samningar þar um verða i höndum fiski-
m jölsf ramleiðenda.
Hins vegar sagði ráðherrann, að ekki hefði
fengizt framgengt, að Rússar keyptu af okkur all-
verulegt magn til viðbótar af heilfrystum fiski og
fiskflökum. Eru þeir búnir að gera ráðstafanir til
kaupa á þeim vörutegundum til áramóta. En gert
er ráð fyrir viðræðum i desember n.k. um viðskipti
næsta árs, og standa vonir til, að þá verði hægt að
semja um meiri útflutning á þessum vöruteg-
undum til Sovétrikjanna en átt hefur sér stað á
þessu ári.
Um svipað leyti og ráðherrann var i Moskvu,
var samið þar um oliukaup íslendinga á næsta ári,
og urðu þeir samningar ekki óhagstæðari en ráð
hafði verið fyrir gert.
Á blaðafundinum benti viðskiptaráðherra á, að
viðskipti okkar við Sovétrikin væru mjög mikil-
væg, og bæri íslendingum að leggja á þau áherzlu.
Minnti hann á, að þegar mörkuðum okkar i Bret-
landi, var lokað vegna landhelgisdeilunnar 1952
hafi Rússlandsviðskiptin bjargað okkur, en þá var
ekki farið að selja fisk til Ameriku, þar sem stærsti
markaður okkar er nú.
Mikill ávinningur
Það er mikilvægur ávinningur fyrir Islendinga,
að ráðherrafundur Efta, sem nýlega var haldinn i
Helsinki, skyldi lýsa yfir áhyggjum sinum yfir þvi,
að samningar íslands við Efnahagsbandalagið
skuli enn ekki komnir til fullrar framkvæmdar
vegna tilrauna Vestur-Þjóðverja til að knýja
okkur til undanhalds i landhelgismálinu. Það er
einnig mikilvægt, að Norðmenn hafa lofað að bera
þetta mál upp i viðræðum þeirra við Efnahags-
bandalagið.
Ólafur Jóhannesson viðskiptaráðherra á miklar
þakkir skildar fyrir að hafa náð þessum árangri á
Eftafundinum. þþ.
ERLENT YFIRLIT
Verða Brown og
Carey kjörnir?
Sögulegar kosningar í Kaliforníu og New York
I Gaer varmikill kosninga-
dagur i Bandarikjunum. Kosiö
var til allrar fulltrúa-
deildar Bandarikjaþings og
þriðjungs öldungadeildar-
innar. Þá fór fram kosning á
mörgum rikisstjórnum og all-
mörgum fylkisþingum. Al-
mennt er þvi spáð, að demó-
kratar muni vinna mikinn
sigur, og geti þeir þakkað það
Watergate-málinu, verð-
bólgunni og vaxandi atvinnu-
leysi, sem stjórn repúblikana
er kennt um. Þá er búizt við
þvi, að demókratar bæti við
sig rikisstjórnum, og m.a
vinni þeir rikisstjórnakosn-
ingarnar I tveimur stærstu
rikjum Bandarikjanna, Kali-
forniu og New York. Sérstök
athygli hefur þvi beinzt að
rikisstjórnaefnum þeirra þar,
þvi, að bæði geta þau komið til
greina siðar sem forsetaefni!
ef þau vinna nú og tekst vel i
rikisstjóraembættinu.
AF þessum tveimur rikis-
stjórnaefnum hefur rikis-
stjóraefnið i Kaliforniu
Edmund G. Brown vakið
meiri athygli. Ástæðan er m.a.
sú, að Brown virðist mörgum
ráðgáta, og spádómarnir um
hann eru þvi harla misjafnir.
Hann er sonur og alnafni
Edmunds G. Brown, sem var
rikisstjóri i Kaliforniu 1959-’66
og vann það frægðarverk að
fella Nixon rikisstjórakosn-
ingunni 1962, en að henni
lokinni lýsti Nixon yfir þvi, að
hann væri hættur afskiptum af
stjórnmálum, og mun hann nú
iðrast þess að hafa ekki staðið
við það. Til aðgreiningar er
Brown eldri venjulega kall-
aður Pat, en sá yngri Jerry.
Brown eldri féll i rikisstjóra-
kosningunni 1966 fyrir Ronald
Reagan, sem var endurkosinn
1970, en býður sig ekki fram
nú. Brown yngri, sem er 36
ára, var mjög hlédrægur og
feiminn i uppvexti, og þótti þá
ekki liklegt, að hann fetaði I
fótspor föður sins, Þetta þótti
enn óliklegra 1956, þegar hann
gekk i munkaskóla og hugðist
gerast munkur, eftir að hafa
stundað háskólanám i eitt ár. 1
munkaskólanum var hann i
fjögur ár. Fyrstu tvö árin þar
gerði hann litið annað en að
lesa bibliuna og ganga ein-
samall um I klaustur-
garðinum. Árið 1960 hætti
hann við að gerast munkur,
hóf nám i grisku og latinu, og
lauk siðan lagaprófi við Yale-
háskólann 1964. Siðan hóf hann
lögfræðistörf i Kaliforniu og
studdi ýmis róttæk samtök,
eins og mótmælagöngur gegn
Vietnamstriðinu. ÞS gerðist
hann stuðningsmaður land-
búnaðarverkamanna frá
Mexikó. Árið 1970 ákvað hann
að hefja þátttöku i stjórn-
málum og bauð sig fram sem
rikisritara. Hann náði kosn-
ingu. Þetta þykir ekki valda-
mikið starf, þótt það sé talið
virðulegt, en þvi fylgir m.a.
ýmiss konar skrásetning og
skjalavarzla. Brown hélt hins
vegar þannig á málum að
hann vakti á sér mikla athygli.
M.a. lét hann hefja mál gegn
ýmsum oliuhringum fyrir við-
leitni til að fara i kringum
lögin. Einkum varð Exxon-
hringurinn fyrir barðinu á
honum. Brown fékk þvi það
orð á sig, að hann væri and-
snúinn spillingu. Þetta tryggði
honum sigur i prófkjörinu hjá
demokrötum og virðist ætla að
tryggja honum sigur i rikis-
stjórakosningunni. Um
margt þykir hann minna á
Robert Kennedy. Hann er ekki
sérstakur ræðumaður, og
hann er enn hlédrægur og oft
feimnislegur. Framkoma
hans vekur samt traust og
vonir. Hann er ógiftur, en
býður oft þekktum konum til
kvöldverðar, eins og Liv
Uhlman og Nathalie Wood.
Faðir hans hefur sagt um
hann, að hann sé mesti gáfu-
maðurinn i Sacramento
(höfuðborg Kaliforniu), en hitt
sé ekki vist, að mesti gáfu-
maðurinn verði bezti rfkis-
stjórninn.
HUGH L. CAREY, sem er
rikisstjóraefni demókrata I
New York, er miklu hversdags
legri maður en Brown. Hann
er af irskum ættum kominn,
og unnu báðir foreldrar hans
að kaupsýslu og gátu sér þar
gott orð. Faöir hans var meö-
eigandi i allstóru oliufélagi.
Carey fæddist 11. apríl 1919 og
var nýlega býrjaður i laga-
námi, þegar heimsstyrjöldin
hófst. Hann gat sér frægðar-
orð i hernum. Hann lauk laga-
námi og lokinni styrjöldinni,
og hóf siðan þátttöku i flokks-
starfi demókrata I Brooklyn,
jafnhiða þvi, sem hann var
sölumaður fyrir oliufyrirtæki
ættarinnar. Árið 1960 náði
hann kosningu til fulltrúa-
deildar Bandarikjaþings, og
hefur átt þar sæti siðan. Hann
hefur getið sér gott orð. 1 fyrra
ákvað hann að gefa kost á sé
sem rikisstjóraefni i New
York, en hlaut mikinn mót-
gang . Hann náði ekki útnefn-
ingu flokksstjórnar, og i marz-
mánuði siðast liðnum missti
hann konu sina frá 12 börnum
þeirra, sem eru á aldrinum 8-
28 ára. Hann ákvað samt að
taka þátt i prófkjöri, og hlaut
fjárhagslegan stuðning bróður
sins, sem hefur grætt á oliu-
verzlun. Hann sigraði i próf-
kjörinu, þótt við rikan og vel
metinn Gyðing væri að eiga.
Þvi ei nú almennt spáð, að
Carey verði kjörinn rikis-
stjóri. Nelson Rockefeller var
kjörinn rikisstjóri i New York
1958, og endurkjörinn siöan.
Hann lét af embættinu fyrir
nokkrum mánuðum, lét vara
rikisstjórann Wilson taka við,
og hugðist þannig tryggja
honum kosningu. 1 þetta sinn
virðist Nelson ætla að
bregðast bogalistinn.
Þ.Þ.
Carey og börnin hans tólf. Eitt peirra er á bak við bflhurðina.