Tíminn - 06.11.1974, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.11.1974, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Mifivikudagur 6. nóvember 1974. Martha talar alltaf Martha, eiginkona fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandarikj- anna, Johns Mitchells, er þekkt fyrir það, hversu mikið hún talar. Hún hefur sagt frá mörgu, sem ekki hefur verið ætlunin, að fólk fengi almennt að vita um, t.d. þegar Watergate-málið stóð sem hæst. — Einhver verður að minnsta kosti að hefja samræður, segir Martha, þegar hún er að réttlæta málæði sitt. Myndin sem hér fylgir með, er tekin af henni við komu hennar til London, en þar átti hún að koma fram í sjónvarpsþætti. í viðtali við komuna til London lét hún hafa það eftir sér, að þetta væri i fyrsta skipti, sem hún væri karlmannslaus, og það væri erfitt. Hún sagði ennfrem- ur, að i raun og veru væri hún mjög feimin, en þvi hafa liklega fæstir trúað. Verður Síbería hituð upp? Nafn Siberiu er venjulega tengt fannkyngi, freðinni jörð og höröu veðurfari. Skyldi vera hægt að hita hana upp? Leonid Monchinsky lagði spurningu þessa fyrir Igor Lomonosov, sem starfar við Jaröskorpu- rannsóknarstofnun Siberiu. Veðurfar Siberiu getur veriö haröneskjulegt — en Siberia býr einnig yfir miklum auðlindum — kolum, oliu og gasi, auk neðanjarðarhvera. Brátt munu risa borgir, þar sem hvera- vatninu verður veitt beint til verksmiðja og ibúðarhverfa. Hveravatnið verður látið hita gróðurhús og sundlaugar, og einnig verður það notað til að ylja loftið i borgunum. Það er auðugt af söltum, og þvi vel fallið til lækninga. Rannsóknar- hópar á mörgum stöðum sinna nú þvi viðfangsefni, hvernig nýta megi hitann I iðrum jarðar. Þegar hafa verið gerð likön að borgum, sem þannig eru hitaðar. 1 Kamchatka er raf- orkuver, sem nýtir hveraorku. Hverjir eru svo framtiðarmögu- leikarnir? í Vestur-Siberiu er samfellt hverasvæði, sem spannar hundraö milur, og er frá hálfri og upp i tvær milur undir yfirborði jarðar. Hiti vatnsins er frá 50 stigum og að suðumarki. Aformað er að hita upp borgina Omsk með 80 stiga heitu vatni, sem sótt er hálfa aðra milu niður i jörðina. Þessi hverasvæði eru einna mikil- vægust, þar sem árnar Lena og Jenisei renna saman, og auk þess með ánum Jana, Indigirka og Kolyma. Þar má beita hveravatninu til að leysa ýmis meiri háttar vandamál tengd námugreftri. Mestar vonir um nýtingu jarðhita i Austur- Siberiu eru bundnar við Baikal- svæðið. Væri hveravatn á þvi svæði notað til upphitunar, gæti þaö sparað 700.000 tonn af kolum á ári. A þessu svæði hefur jarðhitinn þegar verið nýttur I ylræktarstöðvum og heilsu- ræktarstofnunum. í grennd við borgina Ulan Ude i Buryatiu er verið að reisa heilsuhæli, þar sem hveravatn verður tekið i notkun. Gróðurhús hituð með hveravatni hafa verið starfrækt þar siöan 1969, og fullnægja þau grænmetisþörf borgarbúa. Sú var tiðin, að Englendingar töluðu með stolti um Diönu Dors. Hún var til dæmis oft kölluð Marilyn Monroe Eng- lands. En það er orðið talsvert langt siðan. Þegar maður litur nú á stjörnuna, sem orðin er fjörutiu og tveggja ára og all- mörgum kilóum þyngri, á maður satt að segja erfitt meö að trúa þvi, að eitt sinn hafi kvikmyndaframleiðendur slegiztum að fá hana til aö leika i myndum sinum og boðið henni gull og græna skóga. Svo að maður tali nú ekki um alla myndarlegu og forriku biölana, sem gengu á eftir henni meö grasiö i skónum. Þá var hún heldur ekki nema 56 kiló, og þau dreifðust aðdáunarlega vel um skrokkinn á henni. Nú er hún orðin hvorki meira né minna en 85. Vinir hennar segja, aö hún hafi reynt að éta sig frá áhyggjunum og leiðindunum, þegar kvikmyndatilboöunum fór að fækka. Gallin er bara sá, aö þvi meira sem hún treður i sig, þvi erfiðara reynist að fá hlutverk Kynbomban blæs út DENNI DÆMALAUSI Þetta var ágætt á bragöið, þar til þú kveiktir i.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.