Tíminn - 06.11.1974, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 6. nóvember 1974.
TÍMINN
Stundum erfitt að
líta upp til hinna
vígðu bræðra okkar
— segir sóknarnefndarformaður Hallgrímssöfnuðar
HJ-Reykjavik. Nú standa fyrir
dyrum prestskosningar i
Hallgrimsprestakalli. Dr. Jakob
Jónsson sóknarprestur hefur sagt
embætti sinu lausu og mun lik-
lega kveðja söfnuðinn fyrir ára-
mót. Embættið var auglýst laust
til umsóknar i byrjun
októbermánaðar, en umsóknar-
frestur rann út 1. nóvember s.l.
Umsækjendur um brauðið voru
þrir, séra Karl Sigurbjörnsson.
séra Kolbeinn Þorleifsson og séra
Páll Pálsson. Allmikill styrr hef-
ur staðið, nú fyrir kosningarnar,
og m.a. ásakaði einn
umsækjenda, séra Kolbeinn, út-
varpið fyrir að taka þátt i
kosningabaráttunni einum
umsækjenda til framdráttar.
Málið er þannig vaxið, að
tveimur dögum áður en
umsóknarfrestur rann út, var
lesið i útvarpinu erindi, sem hr.
Sigurbjörn Einarsson biskup
hafði flutt árið 1944, en hann var
þá sóknarprestur i Hallgrims-
prestakalli. Erindið nefnist „Vér
skulum fara til að byggja”. Nú
vill svo til, að einn umsækjenda,
séra Karl er sonur biskups og
sagði séra Kolbeinn i viðtali við
dagblaðið Visi, útvarpið ekki
gæta hlutleysis sins með þvi að
útvarpa erindi föður eins
umsækjendanna tveimur dögum
H rossa-útf lutni ng-
ur mun minni á ár
gébé Reykjavik. — Hrossa-út-
flutningur verður um helmingi
minni I ár, heldur en i fyrra. Þetta
eru án efa áhrif oliukreppunnar,
sagði Agnar Tryggvason hjá
Sambandinu. Flutningsgjöld hafa
hækkað að minnsta kosti um 30%,
bæði innanlands og utan.
Sambandið seldi hross fyrir um
sjötiu milljónir siðastliðið ár, eða
900 hross. í ár munu ekki vera
flutt nema 450 hross út, að and-
virði um þrjátiu og fimm milljón-
ir króna.
Nú virðist þó, sem áhugi og
eftirspurn sé að aukast hjá er-
lendum aðilum, þannig að búizt
er við, að þegar liður á veturinn
og fram á næsta vor, aukist út-
flutningurinn mikið frá þvi sem
hefur gerið I ár.
Það er V-Þýzkaland, sem er
stærsti kaupandinn, þá kemur
Noregur, Danmörk og Holland.
Einnig eru hrossin flutt út til Fær-
eyja, Sviþjóðar, Austurrikis,
Frakklands Sviss og Bretlands.
Flutningarnir fara nú orðið að-
100 ár frá
fæðingu Ingóifs
í Fjósatungu
1 dag eru 100 ár liðin frá
fæðingu Ingólfs Bjarnarsonar i
Fjósatungu. Ingólfur fæddist I
Haga I Gnúpverjahreppi 6. nóv.
1874. Ingólfur gengdi fjölmörgum
trúnaöarstörfum um ævina. Hann
var formaður stjórnar Sambands
Islenzkra samvinnufélaa 1913-
’36 og hann sat á þingi fyrir
Framsóknarflokkinn 1922-’33.
Hann stundaði kennslu og var
lengi bæjarfógetaskrifari á
Akureyri og var þá oft settur
bæjarfógeti og sýslumaöur.
Ingólfur lézt I Reykjavik 1936.
eins fram með flugvélum, og er
það fyrirtækið Iscargo sem þá
hafa stundað. Iscargo hraktist úr
landi meö starfsemina á sínum
tima, og hafði bækistöðvar sinar I
Ostende I Belgiu. Nú hafa hrossa-
flutningarnir komið fótum undir
fyrirtækið að nýju, þannig að
þeim er kleift að hafa bækistöðv-
ar sinar hér á landi aftur.
Ingólfur
tungu.
Bjarnarson I Fjóia-
Tankvæðing
hjd mjólkur-
samlagi KEA
HJ-Reykjavik. Mjólkursamlg
KEA á Akureyri hefur nú yfirað
ráða fjórum mjólkurtankbilum.
Tankvæbingin er óðum aö ryðja
sér til rúms og i sumar var lokið
tankvæðingu i þremur deildum
félagsins, þ.e. Hrafnagilsdeild,
Saurbæjardeild og Höfð -
hverfingadeild. Auk þess var
tankvæðing þegar hafin i
Strandardeild og Öngulsstaða-
deild. Um siðustu mánaðamót
fluttu mjólkurtankbllarnir fjórir
þvi mjólk frá 137 bæjum úr þess-
um 5 félagsdeildum.
Bændur i Akureyrardeild,
Glæsibæjardeild, Hörgárdal og
Öxnadal samþykktu á fundi ný-
lega að hefja tankvæðingu hjá sér
næs.ta sumar. Verður þá væntan-
lega bætt við einum mjólkur-
tánkbil.
áður en umsóknarfrestur rann
út.
Einn umsækjendanna, séra
Páll Pálsson, dró umsókn sina til
baka og sagðii viðtali við Visi, að
óeölileg vinnubrögð hefðu verið
viðhöfð i sambandi við væntan-
legar prestskosningar, og hefði
hann ekki áhuga á að verða aðili
að þvi, sem nú væri að gerast á
Skóla vörðuholtinu.
Timinn sneri sér til Hermanns
Þorsteinssonar, formanns
sóknarnefndar Hallgrimspresta-
kalls. Hermann var fremur ófús
til að tjá sig um máliö, en kvaðst
þó undrast fjarstæðukennd
ummæli, er dagblaðið Visir hefði
eftir séra Kolbeini Þorleifssyni
og hryggjastyfir þvi, er séra Páll
Pálsson léti blaðið hafa eftir sér i
siöustu viku.
„Það er ómaklegt. — Ég hefði
betur skilið, ef séra Kolbeinn,
hefði orðið óhress yfir þvi að
frétta, er hann kom frá
Kaupmannahöfn i síðustu viku,
að séra Páll hefði látið sig hafa
það, að koma tvisvar fram i
helgistund sjónvarpsins á
sunnudagskvöldum, eftiraðhann
haföi sótt um prestsembættið hjá
Hallgrimssöfnuði. Það hefði hann
ekki átt að gera, vel þekkjandi
orðin, „það sem þér viljið að aðrir
menn gjöri yður, það skuluð þér
og þeim gjöra.”
Við leikmenn i þjónustu
kirkjunnar viljum gjarnan lita
upp til hinna vigðu bræðra okkar,
en það reynist stundum erfitt.
Ekkert er við þvi að segja, að
nokkurs glimuskjálfta gæti einnig
I sambandi við prestskosninar, en
allt kapp er bezt með forsjá og
drengskap,” sagði Hermann Þor-
steinsson að lokum.
54.500 fjár
slátrað í
haustslátrun KEA
HJ-Reykjavik. Slátrun I
sláturhúsi KEA á Akureyri hófst
11. september s.l. og skömmu
siðar I sláturhúsum félagsins á
Dalvik og Grenivfk. Sláturtlð
lauk svo þann 23. október.
I haust var alls slátraö i
sláturhúsum félagsins um 54.500
fjár. Þar af var slátrað tæplega
37.000 fjár á Akureyri u.þ.b.
12.000 á Dalvik og 5.500 á
Grenivlk.
Nú I nóvember verður svo stór-
gripaslátrun og eru horfur á
mikilli nautgripaslátrun.
a.
1
Skólamál á Austurlandi
Vilhjálmur Hjálmarsson menntamáiaráð-
herra skrifar grein I Austra 31. f.m. um
skólamál á Austurlandi. I greininni segir
m.a.: „Austfirðingar hafa nú þegar mörg
járn í eldi i skólamálum fjórðungsins og stór
verkefni eru framundan. Hér sem annars
staðar þarf aö framkvæma nýja löggjöf og er
það eitt ærið viöfangsefni.
Fræðsluskrifstofa verður sett á stofn innan
tiðar samkv. grunnskólalögunum. Þar á að
vinna hluta af þvi starfi sem nú er unnið I
ráðuneyti menntamála. Þeirri stofnun er ætl-
að að færa verk og vald heim I hérað og spara að nokkru sporin — til
Reykjavikur.
Menntaskóli með svokölluöu fjölbrautarsniði er I mótun og svo
iðnfræðslumálin I fjórðungnum. En raunar er iönlöggjöfin sjálf I
endurskoðun og verið að hefja undirbúning að gerð nýrrar náms-
skrár fyrir iönfræðsluna.
Mjög viða er unnið að nýbyggingu skóiamannvirkja á Austurlandi
og á ófáum stöðum eru umfangsmiklar skóiabyggingar að rfsa af
grunni þar sem notast hefur verið viö „gömlu skólahúsin til þessa”.
Enn eru til sveitarfélög sem ekki eiga kennsluhúsnæði. En einnig
þar virðist úrlausn i nánd, fengin með frjálsu samstarfi fleiri aöila
eftir þvi sem viö á á hverjum stað.
1 vaxandi mælier nú að takast samstarf um skólamálin með þétt-
býliskjörnunum og byggðunum, sem að þeim liggja. Dæmigerðir
fyrir slfkt samstarf eru þeir hættir sem nú eru upp teknir á Vopna-
firði með samtengingu heimavistarskólans á Torfastöðum og skól-
ans á Tanganum. Var gert sérstakt átak I vegamálum til að auð-
velda þetta samstarf.”
Samvinna um fræðslumól
t grein menntamálaráðherra segir enn fremur: „Á seinustu árum
hafa augu manna upplokist og flestir skilja nú nauösyn þess að
hjálpa ungmennum, sem eiga bágt iskóla. Vandasamt er oft að afla
slikrar hjálpar og hún kostar fjármuni. Nýstofnað, en nokkuð öflugt
foreldrafélag, kemur nú til hjálpar við skólafólkiö á þessu sviöi.
Eykur það llkur á sæmilegum árangri.
Á fleiri sviðum fræöslumálanna, sem oft hafa orðið nokkuð útund-
an, hafa áhugahópar komið til liös viö skólana. Svo er t.d. um tón-
mennt, Hkamsrækt og verkþjálfun. En betur má ef duga skal.
Ljóst er öilum, sem eitthvað þekkja til, að Austfirðingar sitja ekki
auöum höndum aö þvf er varðar skólamái fjórðungsins og munu þó
eiga fullt I fangi að fullnægja kröfum nýs tfma og óvéfengjanlegri
þörf. Riður þvi á miklu aö sem bezt samstarf sé með skólafólkþ
sveitarstjórnum og þingmönnum, svo og stjórnvöldum öllum, sem
um þessi mál eiga að fjalla.” Þ.Þ.
Dalvík:
AAikill afli á land
— stöðug vinna í frystihúsi KEA
HJ-Reykjavik. Fyrstu átta mán-
uði þess árs tók frystihús KEA á
Dalvik á móti 3.450 smálestum af
fiski, en á sama timabili i fyrra
bárust þangað 2.260 smálestir af
fiski. 1. september i ár höfðu ver-
ið fluttir út 46.700 kassar af freö-
fiski, en I fyrra voru þeir 19.500 á
sama tima.
Stöðug vinna hefur verið i
frystihúsinu frá þvl um miðjan
febrúar og enginn virkur dagur
fallið úr. Mánuðina júni, júli og
ágúst var unnið á tveimur 8 tima
vöktum, 60-70 manns á hvorri
vakt. A Dalvik hafa lagt upp afla
sinn hinir nýju togarar Dalvik-
inga, Björgvin og Baldur, heima-
bátarnir og stöku sinnum Akur-
eyrartogararnir. Einnig hefur
fiskur verið sóttur á bilum til
Akureyrar og Húsavikur.
Frystihús KEA á Dalvik flutti
þann 17. september s.l. i fyrsta
sinn nýjan bátafisk með flugvél
frá Akureyri til Zeebrugge i
Belglu. Var þar um að ræða 12.5
smálestir af steinbit, skarkola,
smálúðu, ýsu og þorski. Onnur
slik ferð var farin 3. október s.l.
og þá flutt úr 12 smálestir af fiski.
Má búast við að fleiri slikar út-
flutningstilraunir verði geröar,
þótt þeim fylgi ýmsir örðugleik-
ar.
Hnífstungumólið:
Líðan piltsins betri
gébé-Reykjavik. — Liðan piltsins,
sem varð fyrir hnifsstunguárás-
inni aðfaranótt laugardagsins á
Akranesi, var heldur betri i gær-
kvöldi. Guðjón Guðmundsson,
yfirlæknir á Akranesi, sagði þó,
að hann væri ekki úr allri h.ættu
enn, en næstu sólarhringar
myndu skera úr um hvernig færi.
Hnlfurinn, sem Sigurður
Guðjónsson var stunginn með,
snerti hjartað, og gat yfir-
læknirinn ekki sagt um hvort að
sárið kæmi til með að há piltinum
I framtiðinni, aðeins timinn gæti
skoriö úr um það.
Lögreglan á Akranesi vinnur
enn aö rannsókn I málinu, þó aö
það sé upplýst, þvi hinn nitján ára
piltur játaði fljótlega á sig
verknaðinn eftir aö hann hafði
verið tekinn fastur.
Komið hefur I ljós að Sigurði og
árásarmanninum varð sundur-
orða snemma á laugardagskvöld,
og mun það sennilega vera orsök
tilræðisins.
Mikill fjöldi af vitnum hefur
verið yfirheyrður, þvi að eins-og
áður hefur komið fram, gerðist
þetta fyrir utan hótelið á Akra- að ljúka og
nesi, um það bil sem dansleik var staðnum.
var fjöldi manns á
Höfðingleg gjöf
DANSKUR vinur og veigjörðar-
maður Skálholts, Kaj Kaae
Sörensen, forstjóri var hér á ferö
um siðustu helgi ásamt konu
sinni. Fóru þau til Skálholts sl.
sunnudag, með biskupi og nokkr-
um vinum sinum.
Við athöfn I Skálholtskirkju af-
henti Kaj Kaae Sörensen biskupi
peningagjöf tii Skálholts sem
nemur um 600 þús. isl. kr.
Það er ósk getandans, aö þessu
fé veröi varið til að styrkja útgáfu
bókar um endurreisn þá, sem
oröin er i Skálholti.
Dráttarbátur á leið með
Stolt Vista til Noregs
Gsal-Reykjavik. — Norska
flutningaskipið, Stolt Vista, sem
vélvana varð rúmlega 150
sjónilur suö-austur af Stokksnesi
fyrir nokkru, er sprenging varö i
vélarrúmi, er nú á leið til Noregs
og hefur hollenzkur dráttarbátur
flutningaskipið I togi. Tveir
skipverja á Stolt Vista liggja i
sjúkrahúsi i Færeyjum mikið
brenndir.
Varðskipið Þór var nálægt
skipinu i fyrrinótt til aðstoðar ef
með þyrfti. Um nóttina gekk
veður niður á þessum slóðum, en i
fyrradag hafði verið mjög slæmt
veður á þessum slóðum. I gær-
morgun um klukkan tiu, kom
Hvitabjörninn að flutninga-
skipinu ööru sinni og sóttu þeir
annan ' brenndan mann yfir i
Stolt Vista. Þegar maðurinn var
kominn yfir i Hvitabjörninn hélt
skipiö þegar með hann til Fær-
eyja I hendur lækna.
Þriðji maðurinn, sem brenndist
leldsvoðanum iStolt Vista, þurfti
hins vegar ekki á sjúkrahúsvist i
Færeyjum að halda og fór hann
með flutningaskipinu áleiðis til
Noregs.
Hollenzki dráttarbáturinn
Utrektkom að Stolt Vista laust
fyrir klukkan ellefu og var strax
komið taug á milli skipanna.
Stuttu siðar héldu skipin áleiðis til
Noregs, — en varðskipið islenzka
hélt áleiðis til Islands með báöa
sjúkraliðana bandarisku, sem
stukku úr Herkúles-vél,
björgunarmiðstöðvarinnar á
KeflavikurUugvelli i sjóinn, og
veittu hinum brenndu mönnum
læknishjálp.
Fyrir hádegi hringdi
björgunarmiðstöð danska flotans
i Færeyjum til SVFÍ, og greindi
frá þvl, að Hvitabjörninn væri
lagður af stað til Þórshafnar og
ennfremur tilkynntu þeir, aðþeir
hefðu móttekið skilaboö frá
skipstjóra Stolt Vista, þar sem
har.n þakkaði öllum, sem i hlut
áttu, fvrir hjálpina, bæði hvað
varöaöi skipið og skipsáhöfnina.