Tíminn - 06.11.1974, Qupperneq 8

Tíminn - 06.11.1974, Qupperneq 8
TÍMINN MiOvikudagur 6. nóvember 1974. Miövikudagur 6. nóvember 1974. TÍMINN ATHYGLI tsiendinga beinist nú ööru fremur aö hættumerkjum á sviöi efnahagsmála. Veröbóigan, sem lengi hefur veriö förunautur okkar, er komin á nýtt og óþekkt stig. örar kaup- og verölags- breytingar hafa ruglaö veröskyn almennings og komiö glundroöa á fjármál einstaklinga, fyrirtækja og hins opinbera. Þegar kom til stjórnarmyndunar aö loknum þingkosningunum, fór fram heildarathugun á stööu efna- hagsmála. Samkvæmt þeirri at- hugun voru horfur á, aö þjóöartekj- ur á mann aö raunverulegu verö- gildi minnkuöu beinlinis á árinu og mikill viöskiptahalli yröi viö útlönd og talsverö rýrnun gjaldeyrisstöö- unnar, þrátt fyrir miklar erlendar lántökur. Aætlanir um þróun verö- lags og kaupgjalds sýndu örar hækkanir, og var ljóst, aö óbreytt þróun stefndi langt yfir 50% verö- bólgu, ef bráöabirgöaráöstafanir fyrrverandi rikisstjórnar féllu úr gildi 1. september, án þess aö aörar ráðstafanir kæmu i staöinn. Rekstraráætlanir sjávarútvegsins leiddu i Ijós, aö viö blasti mikill hallarckstur hjá báta- og togara- flotanum, og framundan var stór- felldur taprekstur frystihúsa. Loks bentu áætlanir um fjármál hins opinbera til tæprar stööu rikis- sjóös, mikilla erfiöleika ýmissa rikisfyrirtækja og fjárvöntunar til framkvæmda og fjárfestingarlána- sjóöa. Eftir aö þessi úttekt var gerö hefur þróunin fram til haustsins enn versnaö. Efnaha gsaðgerðir rikisstjórnarinnar. Er núverandi rlkisstjórn var mynduö 28. ágúst siðastliðinn biðu hennar þvi mörg verkefni á sviði efnahagsmála, sem kröfðust tafar- lausrar úrlausnar. Að dómi rikis- stjórnarinnar var óhjákvæmilegt aö beita þegar samræmdum að- gerðum til lausnar á þeim vanda, sem við var að etja. Ljóst var, að þróun efnahagsmála hafði tekið afar hættulega stefnu og i húfi var að tryggð yrðu góð lifskjör. Forsenda þess er efnahagsjafn- vægi bæði innanlands og i utanrik- isverzlun. Við undirbúning efna- hagsráðstafananna var fyrst og fremst tvennt haft i huga, að allar aðgerðir skertu sem minnst kjör hinna lægstlaunuðu og kæmu i veg fyrir atvinnuleysi. Það lá hins vegar i augum uppi, að ekki var unnt að auka kaupmátt launa um fimmtung eða fjórðung á ári, þegar horfur eru á, að raun- verulegar þjóðartekjur á mann minnki, vegna skertra viðskipta- kjara við útlönd. Þess vegna var taliö nauðsynlegt, að rjúfa um sinn sjálfvirka vixlhækkun verðlags og launa. Sé gerð tilraun til að draga saman kaupmáttaráhrif þeirra ráðstafana, sem gripið hefur verið til, og þeirrar verðþróunar, sem nú er fyrirsjáanleg, er niðurstaðan sú, að stefnt er að svipuðum kaupmætti launa og var á árunum 1972 og 1973 fyrir launþega i heild og ivið meiri kaupmætti fyrir þá, sem lægstv ■>.fa launin. Takist okk- ur að ná þ a marki hlýtur það að teljast góbur árangur. Rikisstjórnin samþykkti 29. ágúst, tillögu Seðlabankans um gengislækkun krónunnar um 17%, en þegar 21. ágúst hafði Seðlabank- inn afnumið gengisskráningu, þar sem talið var, að aðstæður til skipulegra gjaldeyrisviðskipta væru ekki lengur fyrir hendi. Gengislækkun var við þaö miðuð, aö hún tryggði rekstrarafkomu fyrirtækja i sjávarútvegi, ef jafn- framt væru gerðar ráöstafanir til tekjujöfnunar milli sjávarútvegs- greina og ekki yrði framhald á hinum sjálfvirku vixlhækkunum verðlags og kaupgjalds, heldur yrði einungis um að ræða leiðréttingu á fiskveröi. Gengislækkuninni var einnig ætlað aö bæta viðskipta- jöfnuðinn við útlönd um 4.000-5.000 m.kr. á tólf mánuöum, þótt aðeins sé gert ráð fyrir, að gengis- breytingin hafi takmörkuð áhrif á geiðslustöðuna i ár. 1 framhaldi af gengisákvörðuninni samþykkti Al- þingi stjórnarfrumvarp til laga um ráðstafanir vegna ákvöröunar Seðlabanka Islands um breytingu á gengi krónunnar. Þá samþykkti Alþingi þrenn lög um hækkun óbeinna skatta, sölu- skatts, bensingjalds og þunga- skatts af dieselbifreiðum og verð- jöfnunargjalds af raforku, sem samtals munu gefa um 2.800 m.kr. á heilu ári i auknar tekjur. Þessi skattalækkun var nauðsynleg bæði til að styrkja stöðu rikissjóðs, sem hafði farið versnandi á árinu, m.a. vegna hinnar miklu niðurgreiðslu- aukningar, ófullnægjandi fjár- mögnunar vegasjóðs og rekstrar- halla ýmissa rikisfyrirtækja og stofnana, og til að draga úr almennri eftirspurn og þenslu. Rikisstjórnin beitti sér siðan fyrir þvi 20. september s.l., að sett voru bráðabirgðalög um ráðstaf- anir I sjávarútvegi og ráðstöfun gengishagnaðar. 1 lögum þessum er gert ráð fyrir takmörkun fisk- verösákvörðunar við 11% hækkun almenns fiskverðs frá 1. september til ársloka. Ástæður þessa voru einkum tvær: takmarkað svigrúm fiskvinnslunnar, einkum frysting- ar, til að greiða hærra fiskverð.og þörfin á þvi að tryggja samræmi i tekjuþróun stétta I milli, en rikis- stjórnin hafði þá þegar tekið ákvörðun um setningu laga um lág- launabætur i stað almennra verð- lagsbóta á laun. Meginákvæði lag- anna eru hins vegar um tekjujöfn- un milli sjávarútvegsgreina og til- færslu fjár frá þeim greinum, sem högnuðust beinlinis og með skjót- um hætti á gengislækkuninni, til annarra, þ.e. frá fiskvinnslunni til fiskveiðanna. Ennfremur eru skil- yrði verðjöfnunarsjóðs fiskiðnað- arins til verðjöfnunar rýmkuð. Eftir mjög itarleg samráð við aðila vinnumarkaðarins gaf rikis- stjórnin svo út bráðabirgðalög 24. september um launajöfnunar- bætur, bætur almannatrygginga og verðlagsmál, sem koma skyldu i staö ákvæða laganna um viðnám gegn verðbólgu. Hefðu lögin ekki komiö til stefndi að nær 36% hækk- un kaupgjalds til ársloka, ef talin er með umsamin 3% grunnkaupshækkun 1. desember n.k. Kauptaxtar höfðu þegar hækkað um 30% frá ársbyrjun, þannig að með þessu stefndi i hvorki meira né minna en 77% hækkun kauptaxta á einu ári. Hvernig sem á málið var litið, tefldi slik þróun skipulegri efna- hagsstarfsemi og atvinnuöryggi i voða, auk þess sem svo ör verð- bólga hefur ranglát áhrif á tekju- skiptinguna i þjóðfélaginu. Til þess að skapa svigrúm til varanlegra úrræða varð ekki hjá þvi komist að rjúfa um sinn sjálfvirka vixl- hækkun verðlags og launa, en hlifa þó kjörum hinna tekjulægri eftir þvi sem kostur var. Auk framangreindra laga hefur stjórnin beitt sér fyrir ýmsum að- geröum i lána- og peningamálum. Lánafyrirgreiðsla bankakerfisins við atvinnuvegina hefur verið styrkt. Unnið er að þvi að semja um greiðslu lausaskulda sveitar- félaga, rikisstofnana og fyrirtækja. Nokkuð hefur verið bætt úr fjár- skorti fjárfestingarlánasjóða, en um leið reynt að takmarka útlán þeirra. Hafa útlánsvextir lánasjóða veriö hækkaðir og verðtrygging útlána aukin, enda var að miklui leyti treyst á fjáröflun frá lifeyris- sjóðum, sem er að fullu verðtryggð. Loks hefur miklum rekstrarhalla ýmissa opinberra þjónustufyrirtækja verið mætt með verðhækkunum á vöru þeirra og þjónustu. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1975 liggur nú frammi og mun fjármálaráðherra fjalla um það I fjárlagaræðu sinni. Frumvarpiö endurspeglar"þvi miður þann geig- vænlega verðbólguvöxt sem orðið hefur siðan fjárlög yfirstandandi árs voru samþykkt. Enda þótt ekki hafi tekist að marka djúp spor i fjármálastefnu rikisins á þeim skamma tima, sem gefist hefur til að móta fjárlagafrumvarpið, fellur það engu að siður inn i heildar- ramma efnahagsaðgerða ríkis- stjórnarinnar og mun stuðla að auknu efnahagsjafnvægi. Viðnám gegn útþenslu rikisbúskaparins og aðhaldssemi i opinberum framkvæmdum mun styrkja fjár- hagsstöðu rikissjóðs. 1 frumvarp- inu er gert ráð fyrir, að 250 m. kr. af yfirdráttarskuld rikissjóðs I Seölabankanum verði greidd á ár- inu 1975, en áætlað er að skuldin nemi 1.000 m.kr. nú um áramótin. Ennfremur er gert ráð fyrir 500 m. kr. endurgreiðslu úr rikissjóði vegna fyrstu spariskirteinanna, sem útgefin voru 1964. Þessar greiðslur létta bæði skuldabyrði rikissjóðs og spyrna öfluglega gegn efnahagsþenslunni. Þá er gert ráð fyrir 500 millj. kr. tekjuskattslækk- un eða samsvarandi hækkun fjöl- skyldubóta og ennfremur öðrum 500 millj. kr. til ráðstafana i kjara- og verðlagsmálum. Framtiðarhorfur. Árangur efnahagsaðgerðanna verður takmarkaður á þessu ári, enda langt á árið liðið. Samkvæmt nýendurskoðaðri þjóðhagsspá er enn gert ráð fyrir um 3 1/2-4% vexti þjóðarframleiðslunnar á árinu 1974. Hins vegar er búist við, að rýrnun viðskiptakjara geti numið 4-5% af þjóðarframleiðslunni, þannig að þjóðartekjur minnki um 1/2-1% frá þvi I fyrra. Siðustu spár benda til, að neyzluvöruverðlag hækki að meðaltali um 42% á árinu 1974. Fari sem horfir, er gert ráð fyrir um 12.500 m.kr. viöskiptahalla, en það er um 9 1/2% af þjóðarframleiðslu, samanborið við 2.615 m.kr. halla á s.l. ári eða um 3% af þjóðarframleiðslu. Þegar reiknað hefur verið með hinni óvenju miklu notkun erlends láns- fjár á árinu, verður heildar- greiðslujöfnuðurinn við útlönd óhagstæður um nálægt 6.500 millj. kr. miðað við núgildandi gengi. Verður þá gjaldeyriseign'in nettó1 aðeins um 2000 millj. kr. um næstu áramót, en það jafngildir hálfs mánaðar gjaldeyrisnotkun. Horfur fyrir árið 1975 eru óráðnari en oftast áður, m.a. vegna þeirrar óvissu, sem nú rikir um framvindu efnahagsmála i umheiminum. Fyrstu drög að þjóð- hagsspá fyrir árið 1975, sem jafnframt eru meginforsenda fjár- lagafrumvarps, benda til um 1 1/2 2% aukningar þjóðarframleiöslu. Jafnframt er gert ráð fyrir nokk- urri hömlun eftirspurnar vegna greiðslustöðunnar við útlönd og sem hluta heildaraðgerða gegn veröbólgu. Með þvi væri einnig dregið úr þenslu á vinnumarkaðin- um án þess að stefna fullri atvinnu i hættu. Spár um þróun verðlags gera ráð fyrir, að verðbólga muni fara minnkandi á næsta ári, þrátt fyrir heldur örari verðbreytingar á sið- asta ársf jórðungi þessa árs, m .a. af völdum gengislækkunarinnar og skattbreytinganna i september. Strax á fyrsta ársfjórðungi næsta árs er gert ráð fyrir að dragi úr verðbólgunni og samkvæmt for- sendum verðlagsspánna væri búist við minna en 15% verðbólgu á árs- grunni undir lok ársins 1975. Með efnahagsaðgerðum rlkisstjórnar- innar er þannig að þvi stefnt að ná verðbólgunni niður á stig ná- grannaþjóða okkar eftir lok næsta árs. Fyrstu spár um framvindu innflutnings og útflutnings á næsta ári, byggðar á forsendum fjárlaga- frumvarps og varkáru mati á við- skiptakjörum, benda enn til veru- legs viöskiptahalla, (9.000-9.500 m.kr.), eða sem næmi um 5% af þjóðarframleiðslu. Gætir hér ekki sizt hinnar miklu oliuverðhækkun- ar á árinu. Núverandi vitneskja um fjármagnshreyfingar á næsta ári bendir til, að þessi halli yrði að mestu jafnaður með innstreymi fjármagns, en þó gæti greiðelujöfnuður við útlönd orðið óhagstæður um 1.500-2.000 m.kr. samanborið við um 6.500 m.kr. greiösluhalla á sambærilegu gengi á þessu ári. Hér ber að athuga, að spárnar um viðskiptakjör og innflutning eru varfærnislegar og gæti jöfnuður i greiðslum við útlönd þvl náðst á næsta ári, sem má telja viðunandi bata á svo skömmum tima. Hins vegar sýna þessar tölur, að horfur um stöðu þjóðarbúsins út á viö eru enn tvisýnar, ekki sizt þegar litið er til þess óvissu- ástands, sem rikir i efnahags- málum umheimsins, veikrar gjald- eyrisstöðu þjóðarinnar og erfið- leika á erlendum lánsfjármörkuð- um. Meginmarkmið efnahagsstefn- unnar fyrir áriö 1975 er að draga verulega úr hraða verðbólgunnar og tryggja sæmilegan jöfnuð I við- skiptunum við útlönd, án þess að gripið sé til of harkalegra sam- dráttaraðgeröa, sem tefla at- vinnuöryggi og þar með lifskjörum almennings I tvisýnu. Full atvinna er meginforsenda efnahagsstefn- unnar. Til þess að ná árangri, sem eitthvað varir, er hins vegar nauðsynlegt að beita samræmdum aöhaldsaðgerðum, einkum á sviði peninga- og lánamála og á sviði rikisfjármála, markvisst og I lang- an tima. Á næstu mánuðum veröur unnið að þvi, að hrinda 'þeirri frambúðar- stefnu i framkvæmd, sem boðuð var I stefnuyfirlýsingu rikisstjórn- arinnar. Haft er samráð við samtök þeirra aöila, sem beinan hlut eiga að máli og tillögur um nýja eða breytta löggjöf verða lagðar fyrir Alþingi eins fljótt og tök eru á. Nú skal vikið nánar að helztu málaflokkum, sem þar um ræðir. Frambúðarstefnan i efnahagsmálum. Það er stefna stjórnarinnar i efnahagsmálum að treysta grundvöll islenzks atvinnulifs, skapa betra jafnvægi og meira at- vinnuöryggi, svo að unnt verði að tryggja vaxandi velmegun samfara réttlæti i tekjuskiptingu og aðstöðu manna. Þessi stefna byggist á tveimur höfuðþáttum. Annar þátturinn felst I umbótum á sjálfu efnahagskerf- inu, sem miða að meiri hagkvæmni i rekstri þess og auknu félagslegu réttlæti. Hinn þátturinn felst i þvi að hlúa að nýjum atvinnugreinum, Skipan kjaramála. 1. Fyrirkomulag á greiðslu visitöluuppbótar. Eitt af þvi sem magnar verösveiflur, er til landsins berast, er án efa núverandi kerfi kaup- greiðsluvisitölu. Visitölugreiðslur á kaup hafa raunar tiðkast lengi hér á landi, þótt með nokkuð mismun- andi hætti hafi verið. Það er viöurkennt, að þær veita launþegum nokkra tryggingu fyrir afkomu þeirra og mynda meiri ró á vinnumarkaði en ella hefði orðið. Á hinn bóginn hafa þær oft á tiðum átt drjúgan þátt i að magna verðbólgu og þannig grafið undan heilbrigð- um rekstri þjóðarbúsins og stefnt hagsmunum launþega sjálfra i voða. Ber hér einkum þrennt til: 1 fyrsta lagi hafa miklar hækkanir grunnkaups óhjákvæmilega leitt til verðhækkana, sem svo vegna áhrifa vlsitölukerfisins hafa leitt til nýrra launahækkana og enn frekari verðhækkana. 1 öðru lagi fela veröhækkanir á innfluttum vörum i trygginga. Að þvi mun rikisstjórnin vinna I samráði við samtök launþega og vinnuveitenda. Stefna verður að þvi, að endurbætt vísi- tölukerfi feli i sér þá tryggingu fyrir launþega, einkum þá, sem lægst eru launaðir, að kjör þeirra versni ekki á samnings timabili. Eftir þvi sem tök eru á verður að komast hjá þeim skað- legu verðbólguáhrifum, sem fylgt hafa visitölukerfinu. 1 þessu sambandi verður einnig að taka inn I myndinaathugun á verðlagningu búvöru og tengsl hennar við visitöluna. 2. Vinnuaðgerðir við gerð kjarasamninga. Kjarasamningar hér á landi hafa verið gerðir til styttri tima en oft ast tiðkast i nágrannalöndum Einníg heiur sxort mikiö á, að kjarasamningar fylgdust að i tima og mikils misræmis hefur gætt i samningum einstakra starfshópa. Allt hefur þetta leitt til óróa á vinnumarkaði, stuðlað að verðbólguþróun og valdið misrétti tekiö til athugunar, hvort unnt er að framkvæma þá breytingu strax á þessum vetri. 1 fjárl.frumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 500 m.kr. lækkun tekjuskatts vegna þessarar endur- skoðunar skatta- og trygginga- kerfis, sem kæmi til framkvæmda með þvi að hækka enn fjöl- skyldubætur, persónufrádrátt eða breyta skattstiga, eins og fram kom i viðræðum rikisstjórnarinnar við aðila vinnumarkaðarins. í kjölfar þessa verður sameining tekjuskatts og ýmissa bóta lifeyris- trygginga könnuð. Helzta vandamálið við undir- búning hins nýja samræmda skatta- og tryggingakerfis er, hvernig haga skuli endurgreiðslum til þeirra, sem hafa lægri tekjur til skatts en hækkuðum persónufrádrætti nemur. Gagnrýni hefur komið fram vegna skattaf- sláttarkerfisins, sem tekið var upp við álagningu skatta á árinu og þarf að ráða bót á þeim annmörkum. Astæðulaust er, að þeir njóti endurgreiðslna, sem hafa lágar tekjur til skatts vegna af- STEFNA FORSÆTIS RÁÐHERRA FLUTT Á 96. LÖGGJAFAR ÞINGINU 1974 efla þær, sem fyrir eru, og gera stórátak i byggðamálum. A. Efnahagslegar og félagslegar umbætur. Hagsveiflur eru tiðari og öflugri á Islandi en meöal flestra þjóða, er búa viö svipuð lifskjör. Verðbólga er einnig meiri. Okkur er þvi nauð- syn að taka upp virkari efnahags- stjórn. Rikisstjórnin mun leita nýrra hagstjórnartækja og efla þau, sem fyrir eru, auk þess, sem unnið verður að almennum umbót- um á hagkerfinu. Ymislegt hefur þegar veriö gert til aö milda áhrif ytri sveiflna á þjóðarbúið. Má þar nefna gjaldeyr- isvarasjóð, sveigjanlega gengis- skráningu, verðjöfnunarsjóð fisk- iðnaðarins og stóriðja hefur aukið fjölbreytni útflutningsgreina. Marka verður virka og aðhalds- sama stefnu i peninga- og lánamál- um með sveigjanlegri notkun vaxta, verðtryggingar og annarra lánskjara með tilliti til aðstæðna f efnahagsmálum. Þegar verðbólga eykst er nauðsynlegt að beita vöxt- um og verðtryggingu til að örva sparnað og tryggja verðgildi almennra sjóða, jafnframt þvi, sem hamlað er gegn óhóflegri eftirspurn eftir lánsfé, sem orðin er til fyrir von um verðbólguhagnað. Auk þess er nauðsynlegt aö binda innlenda lánastarfsemi og notkun erlends lánsfjár innan ramma heildaráætlunar um fjármagns- markaðinn. Þá er æskilegt að skapa skilyrði fyrir myndun varasjóða rikis, sveitarfélaga, at- vinnugreina og einstakra fyrirtækja, sem úr yrði greitt á samdráttartimum. Fylgja þarf áfram friverzlunar- stefnu i utanrikisviðskiptum. Óhindraður aðgangur aö helztu markaðssvæðum heims er for- senda aukinnar fjölbreytni og stööugleika i útflutnings- framleiðslu bæði i heföbundnum og nýjum greinum, en efling út- flutnings og öruggra utanrikis- viðskipta erundirstaða hagsældar I landinu. sér skerðingu á raunverulegum lifskjörum þjóðarinnar og engar launahækkanir innanlands geta pvi bætt þær. í þriðja lagi er ekki unnt að vega áhrif tekjuöflunar rikis- sjóös með óbeinum sköttum upp með launahækkunum, ef sú aukning opinberrar þjónustu, framkvæmda eða félagslegrar aöstoöar,. sem stefnt er að, á að geta átt sér stað. Astæðulaust er einnig.að stjórnvöld séu knúin til að Geir Hallgrímsson forsætisráðherra afla fjár með beinum sköttum, er ganga inn I visitöluna. öll þau atriði, sem hér hafa verið nefnd, voru til staðar á árinu 1974, og af þessum ástæðum reyndist óhjákvæmilegt að taka visitölu- kerfið úr sambandi, fyrst til bráða- birgða yfir sumarmánuöina, siðan til átta mánaða, samfara greiðslu launajöfnunaruppbótar. Þennan tima skal nota til að reyna að Koma á enöuróættu kerfi visitölu- á milli launþegahópa, ekki sizt gagnvart þeim, sem lágt eru launaðir og veika aðstööu hafa á vinnumarkaðinum. Það er brýnt úrlausnarefni samtaka launþega og vinnuveitenda aö koma á starfs- háttum i þessu efni, sem eru i betra samræmi við hagsmuni þeirra sjálfra og þjóðfélagsins alls en þeir starfshættir, sem tiðkast hafa. Samstarfsnefnd Alþýöusam- bands Islands og vinnuveitenda mun þegar hafa rætt um endurbæt- ur á þessu sviði, annars vegar eink- um að þvi er varðar aðdraganda samningsgerðar, uppsagnarfresti og kröfugerðir og hins vegar vinnubrögð i tengslum viö sáttatil- raunir, stöðu og starf sátta- semjara, og mun rikisstjórnin veita að sinu leyti atbeina til nauðsynlegra breytinga. 3. Sameinað tekjujöfnunarkerfi. Rikisstjórnin hyggst vinna að nýtti skipan kjaramála með umbótum i skatta- og trygginga- málum. I fyrsta lagi er áformaö að leggja ekki tekjuskatt á almennar launatekjur. Þetta þýðir til dæmis að hjón með 2 börn á framfæri greiddu að jafnaði ekki tekjuskatt af 1100 þús. kr. brúttótekjum þessa árs eða sem svarar til 830 þús. kr. nettótekna. I öðru lagi er stefnt að sameiningu tekjuskatts og helztu bóta almannatrygginga. Meginröksemdir fyrir samhæfingu og samræmingu tekjuskatts og tryggingabóta eru tvær. í fyrsta lagi er með einu samfelldu kerfi auðveídara að ná með markvissum hætti þeim tekjujöfnunarmark miðum^sem ab er stefnt. I öðru lagi felur sameining I sér einföldun I framkvæmdbæði fyrir almenning og hið opinbera og gæti án efa leitt til samdráttar I rikisbákninu. Hið nýja tekjujöfnunarkerfi mun tryggja þjóðfélagsþegnum lág- markstekjur. Fyrsta skrefið i þessa átt verður sameining fjöl- skyldubóta og tekjuskatts. Verður skrifta og annarra hliðstæðra ástæðna. 4. Lifeyrissjóðir. I samræðum við aðila vinnumarkaðarins hafa málefni lif eryissjóöa og lifeyrisþega verið öf arlega á þagskrá) Flestum er ljóst að mikið misræmi er á milli stöðu lifeyrisþega, eftir þvi hvort sjóðir þeirra eru verðtryggðir eða ekki, og nauðsynlegt er að leiðrétta þetta misræmi að þvi marki sem unnt er svo og að samræma og tryggja kjör aldraöra og öryrkja. Aöur hefur verið til umræðu einn lifeyrissjóður fyrir alla landsmenn, en sú leið fæli i sér samsteypu núverandi ellitrygginga og' meira en 100 lifeyrissjóða. Nú mun talið, að sjálfstjórn lifeyrissjóðanna og óskir lifeyrisþega um bein tengsl við sjóðí sína valdi þvi, að þessi leið sé ekki æskileg. Þá ber þess og að gæta, að sjóðir þessir eru stofnaðir með gagnkvæmum samningum hlutaðeigandi aöila og þvi eign þeirra. En nauðsynlegt er að setja rammalöggjöf um starfshætti lif- eyrissjóöanna einkum hvernig haga skuli ávöxtum og verðtryggingu lifeyris og útlána. Jafnframt kemur til greina aö beita almennu tekjuöflunarkerfi og lágmarkstekjutryggingu elli- og örorkulifeyrisþega til jöfnunar á stöðu þeirra. 5. Húsnæðismál. I stefnuyfirlýsingu rikisstjórnar- innar er áherzla lögð á, að jöfnun húsnæðiskostnaðar og aðstöðu við öflun húsnæðis verði þáttur i kjara- málum. Húsnæðiskostnaður fjölskyldna skiptir oft mestu máli um afkomu þeirra. Af þessum ástæðum er öll viöleitni til að jafna þennan kostnað jafnframt skref til raunhæfra kjarabóta. A verðbólgutimum standa þær fjölskyldur höllum fæti, sem eiga eftir að koma þaki yfir höfuð sér. Og hinir, sem nýfluttir eru inn i eigiö húsnæði eiga yfirleitt i mikl- um erfiðleikum með að afla lánsfjár til að brúa síðasta bilið. Þótt verðbólgan sé talin auðvelda mörgum afborganir lána, þá tor- veldar hún fleirum að hefjast handa. Auk öflugs almenns lánakerfis til ibúöarbygginga hljóta riki og sveit- arfélög einnig að stuðla sér- staklega að þvi að byggðar verði ibúðir til sölu til ungs fólks og tekjulágs með hagstæðum kjörum. Jafnframt verður starfsemi byggingarfélaga verkamanna studd. Og loks má minnast þess, að nokkur sveitarfélög, þar sem hús- næðisskortur rikir, hafa byrjað byggingu leiguibúða i samræmi við fyrirheit rikisins um fjármöghun framkvæmdanna. 6. Föst skipan á samráð ríkisstjórnarinnar við aðila vinnumarkaðarins. Rikisstjórnin hefur átt margar viðræður við flest stærstu hags- munasamtökin sem talin eru til svonefndra aðila vinnu- markaðarins og haft við þá náið samráð. Erfitt verður að finna sliku samráöi fast form, sem ekki verður of þungt i vöfum, en ljóst er, að t.d. samstarfsnefnd Alþýðusam- bands íslands og vinnuveitenda er eölilegur samráðsaðili. Ennfremur er athugandi, hvort sameiginlegir fundir með formönnum helstu hagsmunasamtaka og ráðherrum gætu ekki tryggt upplýsingamiðlun og nauösynleg skoðanaskipti, er siðan gæfu tilefni til samráðs um úrlausn afmarkaðra vandamála. Þannig hefur samráð hafist um stefnumótun i mörgum þeim málum, sem fjallað er um i þessari ræöu og verður áhersla lögð á að halda sliku samráði áfram við fulltrúa launþega og vinnu- veitenda og þau hagsmunasamtök, sem hlut eiga að máli hverju sinni. Aðhald i ríkisfjármálum og umsvifum hins opinbera Otgjöldum rikisins og annarra opinberra aðila er varið til marg- vislegrar þjónustu og félagslegrar aðstoðar við almenning. Vaxandi geta þjóðarbúsins og auknar þjóðartekjur hafa i för með sér sifellt meiri kröfur til slikrar þjónustu og aðstoðar, og útgjöldin fara þar af leiðandi vaxandi. A hinn bóginn verður al- menningur sjálfur að sjálfsögðu að greiða fyrir þá þjónustu og aðstoð, sem látin er i té, með sköttum og gjöldum af tekjum sinum. Af þessum sökum er mikillar aðgátar þörf við allar ákvarðanir um opin- ber útgjöld. Ætið verður að hafa i huga að útgjöld opinberra aðila komi almenningi að sama gagni og heföi hann sjálfur, eða þau fyrir- tæki, sem sjá um rekstur atvinnu- vega þjóðarinnar, ráðið yfir þessum fjármunum. Jafnframt veröur að gæta þess, að opinber út- gjöld, i hversu gagnlegum tilgangi, sem þeim er varið, skili sem beztum árangri. Rikisstjórnin hefur áhyggjur af vexti rikisbáknsins og áformar að hafa öfluga stjórn á hvers konar opinberri starfsemi. Það sjónarmið mun sitja i fyrirrúmi, að rikisút- gjöld vaxi að jafnaði ekki hraðar en þjóðartekjur. Hafa verður þó hugfast, að stjórnvöld munu beita rikisfjármálum i sveiflujöfnunar- skyni, og geta þvi rikisútgjöld aukist hraðar en þjóðartekjur, þegar illa árar, en hægar þegar árferði er gott. Leitast verður við að bæta áætlanir rikisstofnana og rikisfyrirtækja og herða aðhald og auka eftirlit með útgjaldaáformum og útgjaldaþróun þeirra. Aformað er að efla fjármálastjórn rikisins og tryggja yfirsýn yfir útgjöld og tekjur hins opinbera i heild. Loks verður kannað, hvort verölagning opinberrar þjónustu er raunhæf og hvaða leiðir séu vænlegastar til að tryggja öllum slika þjónustu sem á henni þurfa að halda, um leið og þess er gætt að verðmæti fari ekki i súginn. Umbætur á tekjuöflun rikisins Aformaðar eru ýmsar endur- bætur á tekjuöflun rikisins. Hér verður ekki rætt itarlega um fyrir- hugaðar skattkerfisbreytingar, en um þær mun fjármálaráðherra fjalla I fjárlagaræðu. Eins og áður er getið verður stefnt að einfaldari og ódýrari skattheimtu og fækkun tekjustofna og afsláttarliða. Stefnt veröur að staðgreiðslukerfi skatta og við það miðað að skattgreiðslur fari fram, sem næst þeirri stundu, sem teknanna er aflað. Oft er þetta til hagræðingar bæði fyrir greiðanda og móttakanda, en einnig er um réttlætismál að ræða, þar sem með þessum móti næðist til skattgreiðenda, sem ella slyppu aö einhverju eða öllu leyti við greiðslur.Loks er þess að geta, að áformað er að taka sem fyrst upp virðisaukaskatt i stað söluskatts. Skipan lánamála Rikisstjórnin hefur i hyggju að endurskipuleggja lánastarfsemina i landinu. Stefnt verður að þvi, að þróun lánsfjármarkaðarins verði stjórnað i rikari mæli en hingað til með sveigjanlegri notkun vaxta- og verðtryggingar. Áformað er, að fyrir árslok verði gerð áætlun um heildarskipan útlána fjárfestingar- sjóða og fjármagnsöflun. Jafn- framt stendur nú yfir enn frekari endurskoðun á útlánakjörum en þegar hefur verið gerð. Mikilvægt er að draga skýrari linu en hingað til milli almennrar lánastarfsemi annars vegar, þar sem eðlilegast er að láta lánskjörin mótast af markaðsaðstæðúm, og félagslegrar lánastarfsemi hins vegar, þar sem lánskjör yrðu opin- skátt bætt með skatttekjum. Verðlagsmál Siðastliðin þrjátiu og fimm ár hefur verið hér á landi verðlags- eftirlit, sem falið hefur i sér bein afskipti af verðlagningu i verzlun, iðnaði og þjónustu. Slikt eftirlit tíðkaðist i flestum löndum á styrjaldarárunum, en var alls staðar afnumið á árunum eftir styrjöldina nema hér á landi, þar sem þvi hefur verið haldið áfram i litt breyttri mynd fram á þennan dag. Þetta verðlagseftirlit hefur alls ekki megnað að halda verð- bólgunni i skefjum, sem þó átti að heita höfuðmarkmið þess. Kerfið hefur þvi ekki þjónað þeim tilgangi; sem til var ætlast. Það er þvi jafnmikið hagsmuna- mál launþega, neytenda, iðnaðar og verzlunar að frá þessu kerfi sé horfið. I stað þess verður að koma ný löggjöf um verðmyndun, við- skiptahætti og verðgæzlu I likingu við þá, sem tiðkast I öðrum löndum, og stefnir til almenns eftirlits neytenda með viðskipta- háttum, örvunar heilbrigðrar sam- keppni og eðlilegrar verð- myndunar. Slik löggjöf verður nú undirbúin I samráði við samtök launþega og neytenda, annars vegar, og samtök verzlunar og iðnaðar hins vegar. B. Efling atvinnuvega og byggðamál Auk framangreindra umbóta i félags- og efnahagsmálum mun rikisstjórnin vinna kappsamlega að eflingu jafnt nýrra sem hefð- bundinna atvinnuvega, og stórátak er fyrirhugað i byggðamálum. Byggðastefna Þótt við islendingar séum fáir og búum i viðáttumiklu landi viljum við byggja og nýta landið allt. Efling byggðasjóðs er nauðsynleg forsenda þess að stórátak verði unnið i málefnum strjálbýlisins. 1 fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1975 er gert ráð fyrir, að 2% af út- gjöldum samkvæmt þvi, eða samtais 877 m. kr. renni I byggða- sjóð. Auk þess hefur sjóðurinn svo yfir eigin fé að ráða. Miklu varðar, að með stóreflingu byggðasjóðs verði unnt að fjár- magna framkvæmdir, er sérstak- lega bæta samgöngur og stuðla að umbótum i félags-, heilbrigðis-, mennta- og atvinnumálum strjál- býlisins. L á n a s t a r f s e m i byggðasjóðs hlýtur i verulegu mæli aö beinast til eflingar atvinnu- reksturs en á ekki að fjármagna taprekstur heldur búa svo i haginn strax i upphafi, að atvinnurekstur- inn úti á landsbyggðinni standi traustum fótum fjárhagslega og skili þjóðarbúinu fljótt arði. Nú eru starfandi nefndir, sem kanna ýmsar hliðar byggðastefn- unnar. Skila þær liklega áliti I vetur. Eftir athugun á niðurstööum nefndanna mun ríkisstjórnin gera ráðstafanir og leggja fram tillögur til úrbóta á ýmsum sviðum byggðamála. Nauösynlegt er að skapa skilyrði fyrir þjónustustöövar i byggða- kjörnum og flytja ákvarðanir af- greiðslu og úrlausnir mála út á landsbyggðina, i eins rikum mæli og unnt er. Fljótvirkasta aðferðin til þess er, að sveitarfélögin fái aukin verkefni, sem rikisvaldiö hefur nti með höndum, og ákveða réttarstöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga með það I huga. Um leið og sveitarfélögum eru falin aukin verkefni, verður að endur- skoða fjárhagslegan grundvöll þeirra til þess að tryggja sjálfstæði sveitarfélaga og framkvæmdagetu Framkvæmdastofnun rikisins Hafin er endurskoðun löggjafar um Framkvæmdastofnun rikisins, og verður þar með mðtuð heildar- löggjöf um málefni byggðasjóðs og um almenna áætlanagerð. Slik áætlanagerð er nauðsynleg til að öðlast yfirsýn yfir liklega og æski- lega þróun atvinnuveganna, þannig að fullt samræmi sé milli öflunar atvinnutækja og möguleika á nýtingu vinnuafls og landsgæða. Almenn áætlanagerð er ekki vald- bundin framkvæmdaáætlun, heldur til viðmiöunar og leið- beiningar fyrir einstaklinga, sam- tök þeirra, fyrirtæki og atvinnu- vegi. Þá er ekki sist nauðsynlegt, að hið opinbera sýni gott fordæmi og geri vandaðar áætlanir um opin- berar framkvæmdir og um byggðaþróun I samráöi við sveitar- félög. Orkumál: Stórbrotin, en viðkvæm náttúra Islands er einn dýrmætasti fjár- sjóður landsmanna. Beita þarf visindalegum vinnubrögðum til að varöveita þessa eign, jafnframt þvi, sem náttúruauðlindir landsins verði nýttar i þágu þjóðarinnar allrar. Þær miklu sviptingar, sem orðið hafa á alþjóðlegum orkumarkaði undanfarið, hafa sýnt enn betur en áður hvilik verðmæti felast i óbeizluðu vatnsafli og jarðhita hér á landi. Þessi ðdýri orkugjafi er ásamt dugmiklu og menntuðu starfsfólki og gróðurmoldinni og auðugum fiskimiðum mikil- vægasta auðlind islenzks efnahags- lifs. Breytt samkeppnisstaða Islenzkra orkugjafa kallar á endur- mat á framtiðarstöðu okkar i þessum efnum. Er það raunar gert nú þegar i þeim viðræðum, sem fara fram um býggingu og rekstur málmblendiverksmiðju. Rikisstjórnin leggur áherzlu á aukin hraða i virkjun islenzkra orkugjafa, bæði til iðnvæðingar og i þvi skyni að gera islendinga óháöari en ella innfluttri orku.* Framkvæmdir til nýtingar inn- lendra orkulinda hljóta að hafa al- geran forgang. Viðræður við orku- öflunaraðila um að hraða stór- virkjunum og áætlanagerð um virkjun vatns- og varmaorku landsins eru nú á byrjunarstigi. Ýmsar framkvæmdir eru strax hafnar eða i undirbúningi sem tryggja munu landshlutum, er eiga við orkuskort að búa, næga raforku. Aformað er að koma upp hita- veitum þar sem aðstæður leyfa, en tryggja annars staðar sem fyrst raforku tii húshitunar. í þessu sambandi er hafinn undirbúningur að stofnun og rekstri hitaveitu fyrir alla þéttbýliskjarna á Reykjanesi. Skipulag, stjórn og eignaraðild orkuöflunar- og dreifingarfyrir- tækja er nú i endurskoðun, og er stefnt að auknum áhrifum strjál- í býlisins og sveitarfélaga á stjórn ' slikra fyrirtækja. Hafréttarmál — 200 milurnar Hafréttarmálefni verða ofarlega á baugi á þessum vetri. Hafréttar- ráðstefna Sameinuðu þjóðanna heldur áfram, þar sem unnið er að þvi að ná alþjóðlegri samstöðu um 200 milna efnahagslögsögu og önnur óleyst og viðkvæm ágreiningsefni. Stefna rikis- stjórnarinnar á hafréttarráðstefn- unni er skýr. Meginatriði hennar felast i stuðningi við 12 milna land- helgi og 200 milna efnahagslög- sögu. íslendingar eru fylgjandi þvi, að alþjóðahafsbotnssvæðið lúti sterkri stjórn og millivegur verði farinn varðandi yfirráð strandrikja yfir hafsbotninum utan 200 milna efnahagslögsögu. Þá eru islend- ingar fylgjandi samvinnu um Framhald á bls. 13

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.