Tíminn - 06.11.1974, Page 13
Miðvikudagur 6. nóvember 1974.
'TÍMINN
13
O Stefnuræða
verndun fiskistoína í hafinu utan
lögsögu strandrikja og vilja að
settar verðí viðtækar og fast-
mótaðar reglur um varnir gegn
mengun sjávar.
Náist ekki heildarsamkomulag á
hafréttarráðstefnunni, er það mjög
mikilvægt fyrir okkur islendinga að
fá skjalfestan stuðning sem flestra
rikja við viðtæka lögsögu strand-
rikis. Sendinefnd Islands á ráð-
stefnunni mundi þá vinna að þvi og
á þann hátt styrkja grundvöllinn
fyrir einhliða aðgerðir, fari
ráðstefnan út um þúfur.
Stefna rikisstjórnarinnar er sú að
færa fiskveiðilögsögu íslands út i
200 milur á árinu 1975, og strax er
hafinn undirbúningur þeirrar út-
færzlu. Jafnframt verður lögð
áherzla á nauðsynlega friðun fiski-
miða og fiskistofna með skynsam-
lega nýtingu veiðisvæða fyrir
augum.
Rikisstjórnin lýsti þvi yfir I
stefnuyfirlýsingu sinni, að hún
ætlaði að fylgja fram ályktun
Alþingis frá 15. febrúar 1972 um út-
færzlu fiskveiðilögsögunnar I 50
milur. Samið hefur verið við breta.
Mikill áhugi er af islendinga hálfu á
að leysa fiskveiðideiluna við
vestur-þjóðver ja. Embættis-
mannasendinefnd hefur nú átt
viðræður við fulltrúa vestur-þýzku
rikisstjórnarinnar og eru niður-
stöður þeirra viðræðna nú til at-
hugunar hjá rikisstjórninni.
titfærsla fiskveiðilögsögunnar
að ári krefst vandlegs undir-
búnings. Til dæmis er enn óljóst um
ýmis atriði varðandi markalinur
milli landa eða eyja, sem óbyggðar
eru eins og Rockall eða litt byggðar
eins og Jan Mayen. Munu þessi mál
skýrsast á framhaldsfundi haf-
réttarráðstefnunnar i Genf, sem
hefst 17. mars n.k.
Útfærsla fiskveiðilögsögunnar I
200 sjómílur er lokamarkið I þeirri
viðleitni og stefnu Islendinga, sem
mörkuð var með landgrunnslög-
unum frá 1948 og lokasigur i barátt-
unni fyrir útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar.
Svo sem kunnugt er, er meiri
hluti rikja heims eindregið fylgj-
andi óskertri 200 milna efnahags-
lögsögu og yfirgnæfandi likur eru
fyrir að a.m.k. 2/3 rikja heims
muni samþykkja slíka lögsögu með
einhverjum fyrirvörum þó.
A hafréttarráðstefnunni i Genf i
vor munu ýmis riki sækja fast að fá
umþóttunartlma, eftir að ákveðin
hefur verið viðari lögsaga en áöur.
Þær þjóðir, sem veiðar stunda á
fjarlægum miðum, krefjast bæði
sögulegs réttar innan væntanlegrar
200 milna efnahagslögsögu og
umþóttunartima. Væntanlega
verða einnig uppi háværar kröfur
um skyldu strandrikja til að
afhenda öðrum þjóðum það fiski-
magn, er strandrikið nýtir ekki, og
um gerðadóm i deilum um slika
skyldu. Verður það eitt helzta verk-
efni Islenzku sendinefndarinnar á
hafréttarráðstefnunni að reyna að
afstýra þvi, að slikar kröfur nái
fram að ganga.
Utanríkismál
Við framkvæmd utanrikisstefnu
sinnar mun rikisstjórnin leggja
áherzlu á þátttöku íslands I starfi
Sameinuðu þjóða, samstarf
Norðurlanda, varnarsamstarf
vesirænna rikja, samstarf þjóða
Evrópu og þátttöku íslands i þeim
aögeröum, sem ætlað er að bæta
sambúð austurs og vesturs. Þá
styður rikisstjórnin eindregið alla
viðleitni til að vernda mann-
réttindi, auðlindir og umhverfi með
alþjóðlegri samstöðu.
Þróun alþjóðamála I okkar
heimshluta hefur undanfarin ár
einkennst af viðleitni rikjanna i
austri og vestri til að minnka
spennuna i samskiptum sínum og
bæta sambúðina milli ólikra stjórn-
kerfa. Arangur þessarar viðleitni
er ekki kominn i ljós, þótt
andrúmsloftiö hafi breyzt.
Þvi miður blasir sú staðreynd
við, að gangur mála á öryggisráð-
stefnu Evrópu er mun hægari nú en
búist var við i upphafi. óvist er
hvenær fyrsti áfangi næst I
samningaviðræðunum um
samdrátt herafla I Mið-Evrópu,
sem hófust i fyrra. Bandarikjunum
og Sovétrikjunum hefur ekki tekist
þrátt fyrir Itrekaðar tilraunir
að finna nýjan samningsgrundvöll I
viðræðum sinum um takmörkun
gjöreyðingarvopna — SALT-við-
ræðunum svonefndu.
Við stöndum á þeim timamótum
nú, að verulega reynir á samstarfs-
vilja rikjanna I austri og vestri.
Samningaviðræðurnar hafa leitt i
ljðs hver ágreiningurinn er, en eftir
er að jafna hann.
Markmið Atlantshafsbandalags-
rikjanna i viðræðunum við rikin i
austri er skýrt. Þau vilja efla
friðinn með þvi að draga úr spenn-
unni. Leiðin að markmiðinu hefur
einnig verið mótuð. Allur
samdráttur herafla skal vera
gagnkvæmur hjá báðum aðilum.
Að öðrum kosti raskast rikjandi
jafnvægi, og það gæti leitt til hættu-
ástands.
öll hlýtur okkur að dreyma um
þá framtið, að ekki verði lengur
nauðsynlegt að tryggja friðinn með
vopnum. Sú framtiðarsýn verður
ekki að veruleika, ef við röskum
þvi friðarkerfi, sem við nú búum
við.
í stefnuyfirlýsingu sinni lýsir
rikisstjórnin yfir stuðningi við aðild
Islands að Atlantshafsbanda-
laginu. Þar segir jafnframt, að
viðræðum við bandarikjamenn um
fyrirkomulag varnarmáianna skuli
haldið áfram með það fyrir augum,
að Keflavikurstöðin geti gegnt
hlutverki sinu i samræmi við
öryggishagsmuni Islands á
hverjum tima. Framhaldsvið-
ræðurnar fóru fram i Washington
26. september siðastliðinn, og utan-
rikisráðherra náði samkomulagi
við bandarikjastjórn um ýmsar
breytingar á framkvæmd varnar-
samningsins. Þetta samkomulag
hefur nú verið formlega staðfest og
endúrskoðuninni samkvæmt 7. gr.
varnarsamningsins er þar með
lokið.
Akveðið hefur verið, að varnar-
liðsmönnum skuli fækkað um 420
menn, en þeir hafa einkum verið
bundnir við störf, sem ekki eru
hernaðarlegs eðlis. Varnarliðið
mun aðstoða við að þjálfa
Islendinga til að taka við þessum
störfum. Þá hefur einnig verið
ákveðið, að allir varnarliðsmenn
veröi búsettir á vallarsvæðinu svo
fljótt sem auðið er og munu banda-
rikjamenn byggja Ibúðarhúsnæði I
þessu skyni fyrir varnarliðsmenn á
næstu þremur árum. Aðskilja skal
almenna flugstarfsemi frá varnar-
stöðinni og munu bandarikjamenn
taka þátt i þeim kostnaði, er af þvi
hlýzt, sem og almennum endur-
bótum á Keflavikurflugvelli. Þess
verður að sjálfsögðu gætt, að fram-
kvæmdirnar leiði ekki til óæski-
legra þensluShrifa.
Rikisstjórnin mun hafa öryggis-
málin til Stöðugrar athugunar og
taka þær ákvarðanir innan ramma
varnarsamningsins, sem hún telur
nauðsynlegar. Að sjálfsögðu
verður haft náið samstarf við utan-
rikismálanefnd Alþingis um
þennan þátt utanrikismálanna sem
aðra. Rikisstjórnin mun fagna
öllum umræðum um utanrikis- og
varnarmál á Alþingi, þvi að aldrei
veröur nægilega oft endurtekið,
hve Islendingum er nauðsynlegt að
halda uppi stöðugri athugun á
öryggishagsmunum sinum og al-
mennri stöðu sinni i heiminum.
Hér verður ekki fjallað að öðru
leyti um óinstaka þætti utanrikis-
mála, enda gefst til þess sérstakt
tækifæri á hverju þingi. Þó vil ég
ekki láta undir höfuð leggjast að
minna á nauðsyn þess, að við
eigum greiðan aðgang að
evrópskum mörkuðum fyrir fram-
leiðsluvöru okkar, svo að við séum
ekki bundin of fáum viðskipta-
löndum. 1 þvi tilliti er brýnt, að
viðskiptasamningur okkar við
efnahagsbandalagið öðlist fullt
gildi, svo að sala sjávarafurða
strandi ekki á tollmúrum þess.
Endurskoðun
stjórnarskrárinnar
Allt frá þvi að stjórnarskrá lýð- '
veldisins tók gildi 1944 hafa verið
uppi áform um endurskoðun
hennar.Fram til þessa hafa menn
ekki orðið sammála um neinar
meginbreytingar hins vegar hefur
ákvæðunum um kjördæmaskipun
og fjölda þingmanna verið breytt
einu sinni, 1959. Sérstök nefnd
vinnur nú að heildarendurskoðun
stjórnarskrárinnar og hefur hún
leitað eftir ábendingum og tillögum
með opinberri auglýsingu. A næstu
mánuðum mun hún taka til við að
kanna þær tillögur um breytingar,
sem henni berast.
Lokaorð
Herra forseti.
Stefnuræðan hefur að þessu sinni
einkúm fjallað um fjóra megin-
málaflokka: efnahags- og kjara-
mál, eflingu atvinnulifsins i heild,
án þess að farið hafi verið orðum
um einstaka þætti þess, hafréttar-
málefni og utanrikismál með sér-
stöku tilliti til varnarmála. Verk-
efni rikisstjórnarinnar er-u að sjálf-
sögðu mun fleiri. Kemur það m.a.
fram á skrá þeirri, sem fylgir
þessari ræðu, en þar er greint frá
þeim lagafrumvörpum, sem
einstök ráðuneyti hafa i undir-
búningi og verða m.a. væntanlega
lögð fyrir þetta þing.
Ásamt traustum efnahag er
likamlegt og andlegt atgervi
þjóðarinnar forsenda allra fram-
fara.
Eigi þarf að fara mörgum orðum
um nauðsyn þess, að heilsugæzla,
hverju nafni, sem nefnist, fullnægi
kröfum timans. Sú staðreynd blasir
við, að allir ibúar landsins sitja
ekki við sama borð i þeim efnum.
Úr þvi þarf að b.æta eftir föngum.
Ljóst er, að vart verður unnt að
veita jafnmiklu fjármagni til
þessara mála og æskilegast verður
talið, og þvi þarf að nýta fjár-
veitingar sem bezt. Að þvi mun
rikisstjórnin vinna.
Sjálfstæði Islands sækir afl sitt til
islenzkrar menningar. An eigin
menningararfs og menningarlifs
væri vegur íslendinga litill i sam-
félagi þjóðanna. Visindi og
menntun eru hornsteinar nútima
þjóðfélags. Menntun hefur i senn
gildi fyrir einstaklinginn og þjóð-
félagið. Áherzla verður m.a sér-
staklega lögð á tengsl skólastarfs
og atvinnulifs, verk- og tækni-
menntun og fræðslu fullorðinna.
Orö eru til alls fyrst. En stefna án
viljafestu til að framkvæma hana
má sin lítils. Nauðsynlegt er, að
hver og einn leggi sitt af mörkum,
svo að góð áform nái fram að
ganga.
Við höfum lengi talað um böl
verðbólgunnar og nauðsyn þess að
bæta kjör hinna lakast settu. Nú er
sá prófsteinn fyrir okkur lagður,
hvort okkur sé alvara.
Auðvitað eru hagsmunaátök i
þjóðfélagi okkar og ágreiningur um
skiptingu þjóðartekna. En erum
við menn til þess að komast hjá þvi,
að átök verði að árekstrum?
Getum við jafnað ágreining með
friðsamlegum hætti? Höfum við
biðlund til þess að ná viðspyrnu
gegn verðbólgu?
Ef ekki, þá er sjálfgert að hætta
að tala um böl verðbólgunnar og
kjarabót til hinna lakast settu.'
Miklir erfiðleikar i efnahags-
málum steðja nú að um heim allan.
íslendingar eiga einnig við sina
erfiöleika að striða. Sameinuð þjóð
getur sigrast á slikum erfiðleikum,
en ekki sundruð þjóð. Arangur
getum ekki náðst, ef stétt stendur
gegn stétt, launþegar gegn fyrir-
tækjum, þéttbýli gegn strjálbýli,
riki gegn sveitarfélögum.
Rikisstjórnin nýtur viðtæks
stuðnings meðal þjóðarinnar og
mikils meirihluta á Alþingi. Hún
hefur ekki I huga að beita afli sinu
til sundrungar. Rikisstjórnin vill
hvetja hagsmunasamtök I þjóð-
félaginu og flokka I stjórn og
stjórnarandstöðu til samstarfs, svo
að við getum með sameinuðu átaki
sigrast á þeim vanda, sem við
okkur blasir.
Vegna timamarka samkvæmt
þingsköpum kann ræðan að styttast
i flutningi.
0 V-Þjóðverjar
og fremst af „principástæðum”
og svo hinu, að allt, sem Þjóð-
verjar eru að bjóða fram eru
hreinir smámunir miðað við þau
stóru þjóðarverðmæti sem i húfi
eru, er öryggi og nýting fiski-
stofnanna við Island eru i veði.
Þvi koma engir samningar til
greina við Þjóðverja nú og krefj-
ast verður, að þeir sem vinaþjóð
sýni skilning á stöðu íslands og
fiskistofnanna við ísland og kalli
nú þegar togara sina burt af Is-
landsmiöum.
Nýir blaða-
menn á Al-
þýðublaðinu
Nokkrir blaðamanna Alþýðu-
blaðsins létu mjög snögglega af
störfum um mánaðamótin eins og
frá hefur verið skýrt hér I blað-
inu. Nú hafa nýir menn ráðizt til
starfa við blaðið, þannig að út-
gáfa þess er tryggð hvað mann-
afla áhrærir.
o Sjólfstæði
frumvarpið, þegar það var lagt
fram I fyrra fyrir árið 1974, þá er
hækkunin 65%. Þetta fjárlaga-
frumvarp sannar betur en nokkuð
annað það sem ég hef haldið
fram, að til þess að lækka fjárlög
þarf að breyta lögum, sem
ákveða útgjöld rikisins, þvi að
mikill hluti fjárlaganna er bund-
inn af lögum, sem alþingi hefur
samþykkt.
Siðar i ræðu sinni vék Halldór
E. Sigurðsson að þingrofinu og
kosningunum s.l. vor. Hann
sagði:
■ — Framsóknarflokkurinn
stofnaði til alþingiskosninganna i
júni s.l. til þess að samstæður
meirihluti gæti myndazt á alþingi
til að leysa þánn efnahagsvanda,
sem þjóðin á við að búa, þar sem
ekki tókst um það samstaða án
kosninga. Fyrir kosningar lýsti
Framsóknarflokkurinn þvi yfir,
að hann væri fylgjandi áfram-
haldandi samstarfi með þeim
flokkum, sem hann vann þá með,
ef þeir næðu þeim þingmeiri-
hluta, sem með þyrfti og sam-
staða næðist þeirra I milli um
lausn efnahagsvandamálanna.
Eða að útfærsla yrði frekar á
þann væng stjórnmálanna, ef
samstaða næðist um það. Hins
vegar væri það fjarri honum, að
útiloka samstarf við nokkurn
flokk i landinu. Hann taldi það sitt
höfuðverkefni með kosningunum
aö ná þingmeirihluta, sem standa
vildi að aðgerðum i efnahags-
málunum, sem mætti að gagni
koma. 1 samræmi við þetta stóð
Framsóknarflokkurinn að tilraun
til stjórnarmyndunar með þeim
flokkum, sem telja sig vinstra
megin i stjórnmálum. Þær
strönduðu á óbrúanlegri andstöðu
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokks hvor til annars. Um það
veröur ekki deilt með rökum, þvi
að um það vitna þeirra eigin blöð,
þ.e, skrif þeirra meðan á
stjórnarsamningaviðræðum stóð
og eftir að upp úr þeim slitnaði.
Stjórnarsamvinna Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins
byggist á þvi, að þessir flokkar
komu sér saman um að freista
þess að leysa efnahagsmálin og
halda áfram byggðastefnunni i
landinu, sem Framsóknar-
flokkurinn gerði einnig að skilyrði
fyrir þátttöku sinni I ríkisstjórn.
Halldór E. Sigurðsson lauk
máli sinu þannig:
Aðgerðir þær, sem gerðar hafa
verið af hálfu núverandi rikis-
stjórnar i efnahagsmálum eru
miðaðar við þessi takmörk, og
starfsemi rlkisstjórnarinnar
framvegis mun byggjast á þvi, að
reyna að hafa hemil á efnahags-
málum þjóðarinnar, og að full at-
vinna haldist i landinu með þvi að
treysta stöðu atvinnuveganna.
Stöðu þjóðarinnar út á við verður
að bæta frá þvi sem nú er. Það
verður að gera með stóru átaki i
sölu framleiðsluvara okkar og
þjóðin verður einnig að gæta hófs
I innflutningsverzlun sinni svo að
gjaldeyrisstaðan verði traust.
í ræðu minni hér að framan hefi
ég gert grein fyrir þvi, að verri
viðskiptakjör og sölutregða á is-
lenskum framleiðsluvörum,
ásamt of mikilli kröfugerð veldur
fyrst og fremst erfiðleikum i
efnahagskerfinu.
Af hálfu Framsóknarflokksins
hefur hvorki skort aðvaranir né
tillögugerð til lausnar efnahags-
vandanum. Hans er ekki sökin þó
aðgerðir yrðu ekki gerðar þegar i
fyrra vetur, sem farsælast hefði
reynzt.
Framsóknarflokkurinn telur,
að kjósendur hans geri þær kröfur
til þingmanna sinna, að þeir láti
hagsmuni og heill þjóðarinnar
sitja I fyrirrúmi og séu ábyrgir i
afstöðu sinni til málefna. Þess
vegna halda þeir áfram þeirri
vinnu, sem hafin var i tið fyrrver-
andi rikisstjórnar undir forystu
þáverandi forsætisráðherra,
Ólafs Jóhannessonar, með full-
tingi alls þingliðs Framsóknar-
flokksins, að vinna bug á þeim
efnahagsvanda, sem nú er við að
fást. Það er langt frá þvi, að veru-
legur árangur hafi náðst i þvi
verki ennþá. Meðan vinstri
stjórnin sat að völdum naut þjóð-
in þess góðæris, sem þá var i
landinu. Það verður þá einnig að
vera hlutskipti hennar nú, að axla
byrðarnar með réttlátum hætti til
þess að tryggja það sem mestu
máli skiptir, atvinnuöryggi og
efnahagslegt sjálfstæði sitt. Enda
er hún betur undir það búin nú en
áður vegna útfærslu landhelginn-
ar og þeirra nýju atvinnutækja,
sem hún hefur aflað sér á siðustu
árum. Þjóðina á þvi hvorki að
skorta þrek né úrræði til þess að
ganga með sigur af hólmi úr
þeirri viðureign.
Samtök garðyrkjubænda:
Vilja söluskatt af
grænmeti afnuminn
Samband garðyrkjubænda er
eins og heitið ber með sér, banda-
lag garðyrkjubændafélaga lands-
ins, en þau eru 4 að tölu i helztu
jarðhitahéruðum landsins.
Árlegur aðalfundur Sambands-
ins var haldinn I Reykjavik þann
18. okt. sl. að viðstöddum fulltrú-
um úr öllum félögunum. Á dag-
skrá voru ýmis mál og m.a. sam-
þykktar eftirfarandi framkomnar
tillögur:
t fyrsta lagi: um að beina þeim
tilmælum til stjórnar sambands-
ins, að hún vinni ötullega að þvi,
að fá söluskatt af grænmeti af-
numinn og leita samráðs við Sölu-
félag garðyrkjumanna um málið.
t ööru lagi: að vinna að þvi, að
samtök garðyrkjubænda fái öll
réttindi I hendur til blómainn-
flutnings. Var það samróma álit
fundarins, að aðeins með þvi móti
væri unnt að koma i veg fyrir, að
blómainnflutningur hefði trufl-
andi áhrif á sölu innlendrar
blómaframleiðslu, eins og oft
hefði gerzt að undanförnu.
t þriðja lagi var samþykkt, að
óska eftir þvi að fá fulltrúa garð-
yrkjubænda til setu á fundum til-
raunaráðs landbúnaðarins. Jafn-
framt lýsti fundurinn ánægju
sinni yfir þvi, sem áunnist hefði á
sviði garðyrkjutilrauna.
í fjórða lagi var gerð eftirfar-
andi samþykkt varðandi Garð-
yrkjuskóla rikisins: „Aðal-
fundurinn leyfir sér að vekja at-
hygli á þvi, að enn er ekki lokið
uppbyggingu Garðyrkjuskólans á
Reykjum, sem hafizt var handa
um árið 1961. Slikt seinlæti, sem
hér um ræðir, er með öllu óviðun-
andi og sýnilegt er, að þegar á
næsta ári verður ekki unnt að
taka inn nemendur og framfylgja
kennslu samkvæmt gildandi
reglugerð skólans. Það er þvi ein-
dregin áskorun aðalfundar Sam-
bands garðyrkjubænda til stjórn-
valda, að garðyrkjuskólinn fái
þegar nægilegt fjármagn til þess
að geta lokið nauðsynlegum
framkvæmdum, sem þegar hefur
orðiö allt of langur dráttur á vegna
þess hversu árlegar fjárveitingar
hefa verið ófullnægjandi.”
Núverandi formaður Sambands
garðyrkjubænda er Emil Gunn-
laugsson, Laugarlandi, Hruna-
mannahreppi.
Fjarvinnsla í tölvu
— nýjung hjá KEA
HJ-Reykjavik. KEA mun á næst-
unni taka tölvutæknina i þjónustu
sina. Unnið er að þvl, að tekin
verði upp tölvuvinnsla til að færa
bókhaid og gera þær marghátt-
uðu skýrslur, sem krafizt er.
Gangi allt samkvæmt áætlun
veröur unnt aö taka hluta bók-
haldsins, þ.e viðskiptamannabók-
hald, innlánsdeild og iaunaút-
reikninga, I tölvu um eöa eftir
næstu áramót.
Hinnýja tölva SÍS veröur notuð
til úrvinnslu, en upplýsingar
sendar frá Akureyri um sima-
linu. Gagnaskráningartæki,
prentvél og sendi- og móttöku-
tæki, sem einnig má nota til
skráninga, verða staðsett á
Akureyri. Þessi tæki eru af IBM-
gerð og þess má geta, að þetta
verður fyrsta umtalsverða fjar-
vinnslan um langa vegalengd,
sem fram fer hér á landi.