Tíminn - 06.12.1974, Blaðsíða 1
HREYFILHITARAR
í VÖRUBILA OG VINNUVÉLAR
WEBffl
Lofttjakkar
Olíutjakkar
Stjórnventlar
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKULATUNI 6 - SIMI (91)19460
ÍDAG
Deilur í Al-
þýðubanda-
laginu um
málmblendi-
verksmiðju
opinberaðar
á Alþingi
— sjá bls. 10
c
244. tölublað — Föstudagur 6. desember —58. árgangur
Landvéiar hf
Skulda tugi milljóna í
lífeyrissjóð sjómanna
Auglýsingar um nauðungaruppboð á fjölda skipa
Gsal-Reykjavík — „Það má
segja, að allflest útgerðarfyrir-
tæki islenzkra togara skuldi tals-
vert I lífeyrissjóð sjómanna”,
sagði Héðinn Finnbogason, lög-
fræðingur Tryggingarstofnunar
rikisins, en I Lögbirtingarblaðinu,
sem kom út s.l. miðvikudag eru
augiýst nauðungaruppboð á
fjölda togara og skipa fyrir ógold-
in iðgjöld i lifeyrissjóð sjómanna,
og eru auglýsingarnar birtar eftir
kröfu Tryggingarstofnunarinnar.
Það dylst eflaust engum, að
hagur útgerðarinnar er bágur um
þessar mundir, og um það vitna
Könnun á veitinga-
og gistihúsarekstri
utan þéttbýlissvæða
— nefnd skipuð til að gera tillögur um úrbætur
HJ—Reykjavik. Skipuð hefur
verið nefnd til þess að athuga og
gera tillögur um úrbætur á vanda
þeirra aðilja, sem stunda veit-
inga- og gistihúsarekstur að
vetrarlagi utan mestu þéttbýlis-
svæða iandsins, en sem kunnugt
er hafa þeir átt við mikla
rekstrarörðugleika að etja.
í nefndinni eiga sæti Páll Pét-
ursson, alþingismaður sem er
formaður nefndarinnar, Kjartan
Lárusson frá Ferðaskrifstofu
rikisins, Lárus Ottesen fram-
kvæmdastjóri frá ferðamálaráði,
Sigtryggur Albertsson hótelstjóri
Húsavik og Tómas Sveinsson frá
Framkvæmdastofnuninni.
Skal nefndin m.a. taka til at-
hugunar rekstarafkomu og
rekstarfjárþörf þessara þjón-
ustuaðilja yfir vetrarmánuðina.
Einnig skal hún leita leiða til
bættrar afkomu og gera tillögur
um aðstoð hins opinbera, ef þess
er þörf. Þá skal hún og gera til-
lögur um samræmingu slikrar
aðstoðar.
Nefndin er skipuð af sam-
gönguráðherra samkvæmt þings-
ályktunartillögu, sem Alþingi
samþykkti 29. april s.l. og er mið-
að við að húnskilitillögum sinum
til Alþingis á haustþinginu.
þessar kröfur Tryggingarstofn-
unarinnar. Ógoldin iðgjöld i lif-
eyrissjóð sjómanna skipta tugum
milljóna, og sem dæmi má nefna
að fimm togarar Bæjarútgerðar
Reykjavikur eru auglýstir á
nauöungaruppboð i siðasta lög-
birgingarblaði og skuld fyrir-
tækisins er samkvæmt auglýsing-
unni rúmar 14 millj.kr. Togarar
ögurvlkur, Vigri og ögri eru
einnig auglýstir á nauðungarupp-
boð og er skuld þess fyrirtækis
tæpar átta millj.kr.
Timinn hafði tal af Marteini
Jónassyni, framkvæmdarstjóra
Bæjarútgerðar Reykjavikur
vegna þessa máls, og sagði hann,
að litið væri um þetta að segja
annað en að fyrirtækið væri að
reyna að komast fram úr þessu,
eins og hann orðaði það.
— Þetta eru erfiöleikar sem
togaraútgerðin á við að gl ima, og
þetta eru erfiðleikar i sjálfum
rekstrinum. Við erum a’C reyna að
krafsa okkur fram úr þessu núna
þessa dagana, hvernig sem farið
verður að þvi. Ég held, að útgerð-
in hafi engin töfrabrögð i poka-
horninu til að ganga frá þessu á
stundinni, en ég verð að viður-
kenna, að úr rekstrinum verða
þessir fjármunir að koma.
„Við hefðum aldrei látið birta
auglýsingu um nauðungaruppboð
á skipum okkar, ef við heföum fé
til að borga þessa skuld, sagði
einn af eigendum ögurvikur, þeg-
ar við höfðum tal af honum.
Sagðist hann vonast til þess, að
þetta væru aðeins timabundnir
erfiöleikar og úr þeim rættist
fljótlega. Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um málið.
Skyndiverk-
fall
Gsal—Rvik. — Allir starfsmenn
Togaraafgreiðslunnar lögðu nið-
ur vinnu i gærdag til áréttingar
kröfum um kjaramál sin.
Fundir voru haldnir i allan gær-
dag i húsi Togaraafgreiðslunnar
við Geirsgötu og siðar um daginn
átti framkvæmdastjóri Togaraaf-
greiðslunnar Ingi L. Magnússon
fund með fulltrúum Vinnu-
veitendasambands Islands.
Ingi L. Magnússon vildi ekkert
um málið segja i gærdag. og sagði
að upplýsingar þar að lútandi
yrðu að biða unz málið væri kom-
ið i höfn.
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkur 1975:
Útsvörin
3,2
milljarðar
— voru 1,9
milljarðar 1974
BH—Reykjavik. — Frum-
varp að fjárhagsáætlun fyrir
Reykjavikurborg áriö 1975
var til fyrstu umræðu á fundi
borgarstjórnar I gærkvöldi,
og verður sagt frá umræðum
i blaðinu á morgun. Þess
skal þó getiö, borgarbúum til
glöggvunar, að niðurstöðu-
tölur frumvarpsins eru um
sex milljarðar króna I stað
3,8 milijarða áður. Ötsvars-
tekjur borgarinnar eru
áætiaðar 3.2 milljarðar, en
voru 1.9 á þessu ári. Þá er
reiknað með 10% aukaálagi
á útsvör, þannig að útsvars-
álagiö verði 11% I stað 10%,
og svona mætti lengi telja i
likum dúr.
Víðtækt tollsvikamál
í uppsiglingu
Gsal-Reykjavik — Fyrir örfáum
dögum komst upp mikið toll-
svikamál og eru jafnvel likur til,
að það sé með stærstu tollsvika-
mála, sem upp hafa komið hér á
landi um langt árabil. Varningur-
inn, sem svikinn var undan tolli,
var aðallega ýmiss konar fatnað-
ur, en ekki er enn ljóst hvað mikið
magn af fatnaði hér er um að
ræða og heldur ekki verðmæti
varningsins.
Rannsókn á þessu tollsvikamáli
er enn á frumstigi, og verður það
væntanlega sent sakadómi
Reykjavikur I dag.
Að sögn Björns Hermannsson-
ar, tol!l:stjóra, var varningur
þessi afhentur úr flugfrakt Flug-
leiða h.f., án þess að hann væri
tollafgreiddur eða greiddur I
banka.
Spurðum við Björn að þvi,
hvort það væri rétt, sem okkur
hefði borizt til eyrna, að inn i
þetta tollsvikamál blönduðust
nokkrir heildsalar og fatabúða-
eigendur.
— Eftir þvi sem ég bezt veit á
þessu stigi málsins, er einungis
um að ræða tvö fyrirtæki, og ég
vil taka það skýrt fram, að engir
tollþjónar eru viðriðnir þetta mál,
heldur einungis afgreiðslumaður
hjá vörugeymslu Flugleiða h.f.
Sagði Björn, að upp hefði kom-
izt um tollsvikin, þegar starfs-
menn tollstjóraembættisins hefðu
ætlað að sækja vöru, sem að hluta
til var orðin ársgömul, og setja
hana á uppboð. — En eins og
kunnugt er, eru vörur sem ekki
hefur verið vitjað um i eitt ár,
teknar og settar á uppboð hjá toll-
stjóraembættinu. Hefði þá komið
i ljós, að varan var ekki á sinum
stað.
— Um varninginn sjálfan get ég
aðeins sagt, að mér er kunnugt
um að þetta er mestmegnis
fatnaður, en hvers kyns hann er,
veit ég ekki, þvi ég hef ekki fengið
neitt nema flugfylgibréfanúmer,
og um vörutegundir eða verðmæti
varningsins, er mér ekki kunn-
ugt.
Ekki er nákvæmlega vitað,
hvenær varningurinn var afhent-
ur á þennan ólöglega hátt, en það
gæti verið á siðustu 10 mánuðum,
að sögn Björns, en þó er liklegt,
að afhendingin hafi átt sér stað á
siðustu mánuðum.
Liðið er u.þ.b. ár frá þvi hluti af
þessum tollsvikna varningi var
fluttur inn, og var hann geymdur i
vöruskemmu Flugleiða i Ingólfs-
stæti 3.
Rækjustríð við Húna-
flóa á nýjan leik
gébé Reykjavik — Ný staða virð-
ist vera að koma upp i sambandi
við rækjuveiði og löndun báta við
Húnaflóa. Tveir rækjubátar frá
Blönduósi, sem hafa aðeins leyfi
til að landa á Hvammstanga og
Skagaströnd, hafa nú sagt upp
viöskiptum sinum við rækjuverk-
smiðjuna á Hvammstanga.
Það voru Blönduósbátarnir
tveir, Nökkvi og Aðalbjörg, sem
komu til Hvammstanga á mið-
vikudagskvöld til löndunar. Þeir
lönduðu þó aðeins hluta af aflan-
um, en afgangurinn var settur á
bifreið, sem ók siðan til Blöndu-
óss og var aflinn settur i rækju-
verksmiðjuna þar. Það eru skipt-
ar skoðanir um, hve mikill afli
þessi var, 400 kg, sagði fréttarit-
ari blaðsins á Hvammstanga, en
Kári Snorrason, forstjóri rækju-
verksmiðjunnar á Illönduósi,
sagði að þetta hefði ekki verið svo
mikið.
Siðan skiluðu bátarnir tveir
rækjukössum þeim, sem þeir
höfðu fengið hjá rækjuverksmiðj-
unni á Hvammstanga, og sögðu
upp viðskiptum sinum við verk-
smiðjuna. Þetta staðfesti Karl
Sigurgeirsson, forstjóri verk-
smiöjunnar.
Kári Snorrason, forstjóri
rækjuverksmiðjunnar á Blöndu-
ósi, telur að ástæðan til þess, að
eigendur bátanna hafa tekið
þessa afstöðu nú sé sú, að sjó-
mennirnir séu óánægðir með að
rækjan er að mestu eða öllu leyti
flokkuð i annan verðflokk, en á
Blönduósi fari 60% rækjunnar i
fyrsta flokk. Einnig eru sjómenn
óánægðir með að fá ekki að landa
við hverja löglega vinnslustöð,
Framhald á bls. 8.