Tíminn - 06.12.1974, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Föstudagur 6. desember 1974.
Bifreiða-
eigendur
í RAFKERFID
Alternatorar
Dínamóar
Startarar
Anker
Spólur
Straumlokur
Segulrofar
Fóðringar
Kol & m.fl.
i 6, 12 & 24 volta kerfi
BÍLARAF HF.
Borgartúni 19
Simi 24-700
Flóamarkaður og
hornabldstur
Eiginkonur blásara i Lúörasveit
Reykjavikur halda flóamarkað
og kökubasar i Hljómskálanum
við Tjörnina laugardaginn 7. des.
n.k. kl. 2 e.h. Agóða verður varið
til styrktar Lúðrasveitinni og
starfsemi hennar. Eiginmennirn-
ir munu ekki heldur liggja á liði
sinu, þvi kl. 13.30 á fjáröflunar-
daginn munu þeir leika við
Hljómskálann.
0 Höfnin
beiöni Jónasar Árnasonar og
bauðst til þess að segja mönnum,
hverja reynslu Mývetningar
hefðu af stóriðju. Sagði Sigurður
að ungmennafélag sveitarinnar
væri klofið og karlakórinn hættur
störfum.
Einn fundarmanna leitaði
frekari upplýsinga hjá Sigurði,
enda var vandráðið af máli hans,
að Klsiliðjan ætti hlut að þessari
raunasögu, en fékk dræm svör.
Þetta var e.t.v. skiljanlegt, þegar
haft er í huga, að hann hefur áður
á fundi í Mývatnssveit lýst Kisil-
iðjunni sem hinu mesta þarfa-
fyrirtæki.
Ýmsir utanhéraðsmenn aðrir
töluðu á fundinum, svo sem Starri
I Garði, Einar Valur Ingimundar-
son, séra Rögnvaldur Finnboga-
son, Haukar Hafstað, starfsmað-
ur Landverndar, og Stefán Jóns
son alþingismaður.
Fór mikill timi i mál þeirra,
þannig að e.t.v. hafa færri heima-
menn en vildu, getað komið
fyrirspurnum sinum á framfæri.
Það kom fundarmönnum nokk-
uð á óvart, hversu hart sum-
ir samflokksmanna Magnúsar
Kjartanssonar fyrrverandi
iðnaðarráðherra, deildu á hann.
Kvað svo rammt að þessu, að
pólitiskir andstæðingar hans urðu
að bera blak af honum, svo að
hann nyti sannmælis vegna af-
skipta sinna af skipan viðræðu-
nefndar um orkufrekan iðnað og
aðild aö samningum við Union
Carbide.
I ræðum ráðherra kom fram, að
mikill munur er á hugsanlegum
samningum við U.C. og Kisiliðj-
una, svo að dæmi sé nefnt. Þannig
mun U.C. sjá um sölu framleiðslu
verksmiðjunnar, ef i þetta verður
ráðist, en hins vegar mun U.C.
ekki ráða verðinu. Þá kom og
fram, að U.C. var I upphafi mjög
andsnúið þvi, að íslendingar ættu
meiri hluta i fyrirtækinu, en
breytti afstöðu sinni, þegar ljóst
var að fyrrverandi rikisstjórn
myndi ekki ljá máls á öðru. Verði
samiö við U.C. munu þeir samn-
ingar verða þeir fyrstu i sögu
fyrirtækisins, þar sem fallizt er á
slíka skiptingu eignarhluta, og
sömuleiðis mun þetta verða i
fyrsta sinn, sem U.C. semur við
riki þvi að fyrri samningar hafa
verið við einstök fyrirtæki.
Fundurinn að Leirá var
fjölsóttur og fór vel fram.
Fundarstjórar voru þeir Ásgeir
Pétursson sýslumaður og Sigurð-
ur Sigurðsson, oddviti, Skil-
mannahrepps.
Aformin um hugsanlega málm-
blendiverksmiðju er nú til at-
hugunar hjá þingflokkunum, að
þvi er fram kom á Leirárfundin
um. Rikisstjórnin hefur ekki enn
tekið endanlega afstöðu til máls-
ins, en fari svo, að afstaða hennar
verði jákvæð, verður málið lagt
fyrir Alþingi til umræðu, og
ákvörðunar.
© Rannsókn
samband við rannsóknarlög-
regluna i Kefiavik I sima 92-3333.
Að sögn Hauks Guðmundssonar
hefur ekkert nýtt komið fram I
'málinu siðustu daga. Er mikið
verk enn óunnið við úrvinnslu
gagna, sem borizt hafa og
rannsókn á æviferli Geirfinns er
ólokið.
Sagði Haukur við Tlmann I
gær, að ástæðan fyrir þvi hversu
seint þeir lýsa eftir manninum,
sem átti' tal við Geirfinn i
Klúbbnum, væri sú, að margir
sem þekktu Geirfinn, hefðu haft
samband við rannsóknarlög-
regluna og einnig þeir, sem töluðu
við hann stuttu fyrir hvarfið, og
þvi hefði ekki verið talin ástæða
til að lýsa eftir manninum, enda
þyrftu engin tengsl að vera milli
hans og hvarfs Geirfinns. Þá
hefði lika verið talin ástæða til að
gefa manninum tima til að gefa
sig sjálfur fram.
Maðurinn, sem lýst er eftir, og
sást á smurstöð á Akureyri,
hefur ekki gefið sig fram, en
sjónarvottar sögðu hann likjast
myndinni af styttunni, sem gerð
var af manninum sem fékk að
hringja i Hafnarbúðinni.
■V
XÆ,
Sælgætis- Kerta-
Gjafavöru-
MARKAÐUR
Op/ð til kl. 22 í kvöld og
laugardag til kl. 18
Vörumarkaðurinn hf
r
Armúla la,
Matvörudeild
Húsgagna- og heimilistækjadeild
Vefnaðarvörudeild
Skrifstofa
Simi 86111
— 86112
— 86113
— 86114
Til umboðsmanna Tímans
Vinsamlegast sendið uppgjör til nóvemberfoka
eins fljótt og hægt er.
Ennfremur er þess óskað að lokauppgjör fyrir órið 1974
berist til skrifstofunnar um 20. janúar
GJALDKERI
0 Rækjustríð
sem þeir vilja, en séu skikkaðir til
að landa á vissum stöðum. ,,Það
þætti ýmsum skritið, ef þeir væru
skyldugir til að verzla aðeins I
einni ákveðinni verzlun”, sagði
Kári.
Karl Sigurgeirsson á Hvamms-
tanga sagði aftur á móti, að i
rauninni hefði það verið á móti
vilja þeirra þar að taka á móti
þessum Blönduósbátum, Nökkva
og Aðalbjörgu, og vinnslu-
stöðvarnar á Drangsnesi, Hólma-
vik, Hvammstanga og Skaga-
strönd fðu gert með sér sam-
komulag um skiptingu á rækju-
aflanum. Samkomulag þetta hef-
ur þó ekki verið viðurkennt af
yfirvöldunum. Hefðu menn al-
mennt ekki trú á þvi að rækju-
verksmiðjan væri til frambúðar.
Við Húnaflóa er bannað að
veiða smærri rækju en 300 stk. i
kflóinu. Sagði Karl, að trúnaðar-
maður sjávarútvegsmálaráðu-
neytisins, sem jafnframt er
starfsmaður stöðvarinnar á
Hvammstanga, telji rækjuna og
meti þannig i hvaða flokk hún fer.
Þessi talnihg er yfirleitt látin
gilda, á flestum rækjuvinnslu-
stöðvum.
Einnig sagðist Karl halda, að
Afhenti
trúnaðarbréf
Hennes Jónsson afhenti hinn 4.
desember 1974 Pal Losonczi for-
seta rikisráðs Alþýðulýðveldisins
Ungverjalands trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra íslands i Ung-
verjalandi með aðsetri I Moskvu.
sjómennirnir sjálfir væru ekki
mikið við mál þetta riðnir, heldur
væru það eigendurnir á Blönduósi
og jafnvel fleiri aðilar, sem héldu
málinu til streitu. Þá sagðist Karl
benda á það, að á annan
Blönduós-bátinn sem er 29 tonna,
er skráður skipstjóri, sem aðeins
er 17 ára gamall, en staðfestingu
á þessu gátum við þvi miður ekki
fengið i gærkvöldi.
Hjá sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu fengum við þær upp-
lýsingar hjá Þórði Ásgeirssyni,
skrifstofustjóra, að mál þetta
væri þegar til meðferðar hjá
þeim, og yrði sennilega tekin
ákvörðun i dag, föstudag, um það
hvort bátarnir tveir skyldu svipt-
ir veiðileyfi sinu eða ekki. „Málið
er f athugun og er ekki fullkannað
enn” sagði Þórður.
ÚTBOЮ
Tilboð óskast i loka af ýmsum stærðum og gerðum fyrir
Hitaveitu Reykjavikur.
tJtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 9.
janúar 1975. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
ÉSKÚLI
THORODDSEN
Eftir Jón Guðnason
t fyrra bindi þessa mikla rits umæviSkúla
Thoroddsens, sem kom út 1968, er fjallað
um æsku og námsár Skúla heima og er-
lendis og svo um feril hans sem embættis-
manns. Miklum hluta þess bindis er varið
i að lýsa ,,Skúlamálinu” svokallaða, sem
endaði að sönnu með þvi að Skúli
Thoroddsen var sýknaður en eigi að siður
hrakinn frá embætti. Er sú frásögn öll hin
fróðlegasta lýsing á purkunarlitlu valda-
spili og krókaleiðum réttarfarsins.
I siðara bindinu er rakinn i heild stjórn-
málaferill Skúla Thoroddsens og alþingis-
saga hans. Gerð er glögg grein fyrir
stjórnmála- og félagsmálaskoðunum hans
og stefnu hans i sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar. öll þessi mál eru skýrð i samhengi
við almennt þjóðfélagsástand kringum
aldamótin, með pólitiská sögu islendinga
á 19. öld i baksýn, og sýnd tengslin við
stjórnmálastrauma umheimsins, sér i lagi
evrópskar frjálslyndishræringar 19. ald-
ar.
Bókin i heild veitir ómetanlega innsýn i is-
lenska stjómmálasögu fyrir aldamótin og
fyrstu tvo áratugi þessarar aldar. Hún
leiðir glöggt i ljós hvernig þjóðmálastarf
og frelsisbarátta 19. aldar breytist á þess-
um áratugum i nútimapólitik; má þar sjá
eins og frumdrætti að þeirri pólitisku
hernaðarfræði, leikreglum, brögðum og
viðbrögðum, sem siðan hafa sett mark sitt
á islenska þjóðmálastarfsemi.
VERÐ SÍÐARA BINDIS KR. 3200 +
SÖLUSK.
BÆÐI BINDIN KR. 4.500 + SÖLUSK.
HEIMSKRINGLA