Tíminn - 06.12.1974, Blaðsíða 19

Tíminn - 06.12.1974, Blaðsíða 19
Föstudagur C. desember 1974. TÍMINN 19 Pálína Skarphéðinsdóttir, Gili í Skagafirði: Framsóknarflokkurinn á að starfa til vinstri VIÐ höldum nú áfram aö birta viötöl, sem tekin voru viö unga fulltrúa á 16. flokksþingi Fram- sóknarflokksins. Viömælandi SUF-siöunnar aö þessu sinni er Pálina Skarphéöinsdóttir úr Skaröshreppi, nánar tiltekiö frá Gili f Skagafiröi. SUF-siöan spuröi hana fyrst, hver væru helzfu hagsmunamál hennar byggöarlags. — Þó aö samgöngur megi telj- ast viöunandi i Skagafiröi, ef miöaö er viö ýmis önnur svæöi á landinu, þá er mjög brýnt að þær veröi bættar. Nú er unnið aö stækkun flugvallar á Sauöár- króki, en mjög mikiö atriði er, aö flugsamgöngur séu i góðu lagi, þegar fannkynngiö er sem mest á veturna og vegir teppast. Stórauka þarf fjármagn til endurbyggingar vegakerfisins, og sérstaklega er brýnt aö hraöa endurbyggingu vegarins yfir Héraösvötnin, þvi aö hann vill gjarnan teppast vegna flóöa. Einnig þarf aö endurbæta vegi austan vatna og til Siglufjarðar. Varðandi Skaröshrepp vil ég segja þaö, aö þaö er brýnt hagsmunamál, að börn og unglingar þaðan geti sótt skóla til Sauöárkróks, i staö þess, sem hugmyndir sumra eru uppi um, aö þau sæki skóla til Varmahliðar eru um 20 kflómetrar frá hreppamörkum. Auk þessa yrði kostnaður fyrir hreppinn vegna skólahúss I Varmahliö a.m.k. 8-10 milljónir, en kostnaður við skóla á Sauöárkróki yröi aöeins rekstr- arkostnaður. ■ — Hvaö finnst þér um stjórnarmyndunina og önnur mikilvæg mál, svo sem varnarmál og landhelgismál? —Ég er persónulega andvig stjórnarsamvinnu við Sjálf- stæöisflokkinn. Ég tel Fram- sóknarflokkinn vera vinstri flokk, og aö hann eigi aö starfa sem slikur, en úr þvi sem komiö er, vona ég að takist að leysa efnahagsmálin á farsælan hátt, án þess aö skerða kjör almennings. Ég held þó aö allir geri sér þaö ljóst, að allur almenningur veröur að taka þátt i þvi aö greiöa fyrir ofneyzluna aö undanförnu, en vonandi veröur framkvæmdin þannig, að þær greiöslur verði I réttu hlutfalli við neyzlu hvers og eins. Ég varð fyrir miklum vonbrigöum með nýgerðan samning viö Bandarikin, varöandi varnarmálin, og virö- ist mér lokatakmarkiö, að losna algjörlega viö herinn, vera langt undan. Ég hef nú ekki mikiö hugleitt landhelgisdeildu okkar viö V- Þjóöverja. Ég held aö samningaleiöin veröi affara- sælust, en aö islendingar setji þaö skilyröi, aö verksmiðju- og frystiskipum verði ekki hleypt inn fyrir 50 milurnar. — Að lokum, Pálina, hvernig finnst þér þetta þing hafa gengiö, og hver eru mikilvæg- ustu málefni þess, aö þinu mati? — A svona fjölmennu þingi eru öll þingstörf þung i vöfum, þvi margir þurfa að segja álit sitt, sem oft eru endurtekningar á þvi, sem áöur hefur verið sagt. Mikilvægasta málefni þessa þings er byggöastefnan, þ.e. jöfnun aöstööu strjálbýlis og þéttbýlis meö tilliti til lifsgæöa, efnahags og menntunar, svo og félags- og tómstundastarfa. Ég er ánægð með störf þessa þings, einkum það, hve margt ungt fólk á þar sæti. Væri vel ef þaö merkti, að þátttaka þess i stjórnmálum væri að aukast. —hs— Bogi Sigurbjörnsson, Siglufirði: Flokkurinn hefur sjaldan verið heilsteyptari BOGI Sigurbjörnsson frá Siglu- firöi var einn fulltrúa á 16. flokksþingi Framsóknar- flokksins. SUF-síöan tók hann tali, meöan þingiö stóö yfir, og spuröi hann fyrst um störf þess þings. — Mér hafa fundizt störf þessa þings mjög ánægjuleg. Hér er um geysifjölmennt þing aö ræða, auk þess sem óvenju- stór hópur ungra manna og kvenna eru nú þingfulltrúar. Mér finnst áberandi, hve mikill samhugur og eining er ríkjandi á þessu þingi, en undanfarin ár hefur oft á tiöum veriö leiöin- legt karp um tilbúinn ágreining innan flokksins. Þaö er sem sagt mitt mat, að Framsóknarflokkurinn hafi sjaldan veriö heilsteyptari og samstæðari en nú, og aö þaö uppgjör, sem fram fór innan flokksins á árinu, hafi eflt starfsgleöi og þrótt hinna raun- verulegu framsóknarmanna. — Hver telur þú, að stefnu- mörkun flokksins eigi aö vera I landsmálunum? — Engar ályktanir hafa veriö samþykktar af þingheimi ennþá, þar sem nefndir eru nú starfandi, en það er augljóst að byggöamál verða mjög á dag- skrá þessa þings, og þvi vil ég sérstaklega fanga. Ég hef áöur haldiö þvi fram, aö Framsóknarflokkurinn hafi bókstaflega bjargað lands- byggöinni frá auðn, þegar hann sem forystuflokkur vinstri- stjórnar lagði grundvöll aö endursköpun atvinnulifs dreif- býlisins. Arangurinn geta allir séö, sem það vilja, og þaö er augljóst, aö flokksþingiö telur þar aöeins um byrjun að ræða, sem fylgja beri eftir meö markaöri langtima stefnu. önnur stórmál hafa aö sjálf- sögöu veriö rædd hér, svo sem landhelgismál og utanrikismál. Varðandi landhelgismál veröur örugglega ályktaö að stækka efnahagslögsöguna I 200 mílur, og alger einhugur er um þaö, aö alls ekki veröi samiö viö V- Þjóöverja eöa nokkra aöra þjóö um veiöar frysti- eöa verk- smiöjutogara innan 50 miln- anna. Þetta er auövitaö geysi- mikilvægt mál, og jafnframt byggöamál. Varöandi utanrikismál er þingheimur á móti hersetu i landinu á friöartimum, og þaö hefur alltaf veriö stefna Framsóknarflokksins, aö varnarliö yröi ekki til frambúðar I landinu, en eitt er þó skýrt, a.m.k. af minni hálfu, aö viö viljum samstarf og samstöðu meö vestrænum þjóöum I öryggismálum. Ég vil fyrir mitt leyti fagna þeim árangri, sem náöst hefur á þess ári i þessum málum og á ég þar fyrst og fremst viö lokun Keflavikursjónvarpsins og aöskilnaö varnarliðsins frá flugstöövarrekstrinum. — Hvernig hefur starfsemi ungra Framsóknarmanna á Siglufiröi veriö? — Núverandi formaöur FUF á Siglufiröi er Sveinn Þorsteins- son húsasmiöur. Félagið hefur alltaf starfaö samkvæmt flokks- lögum, haldiö árlega aöalfundi og kosið I trúnaöarstöður og nefndir. Starfiö hefur að sjálfsögðu veriðmisjafnlega mikið, eins og gengur, en á undanförnum árum hefur félagið gengizt fyrir málfundarnámskeiðum og umræðufundum, auk þess sem félagiö hefur að sjálfsögðu unniö aö undirbúningi kosninga og fleira. 1 heildina hefur starfsemi Framhald á bls. 23. Kjördæmisþing Framsóknarmanna i Reykja- neskjördæmi verður haldið í félagsheimilinu Stapa, Ytri-Njarðvík, n.k. sunnudag og hefst kl. 10 fyrir hádegi. Ávörp flytja ólafur Jóhannesson, dómsmála- og viðskiptaráðherra, sem fjallar um stjórn- málaviðhorfið, og Eggert Jóhannesson, for- maður SUF, sem ræðir málefni sambandsins. Á dagskrá verða auk þess ræða Gunnars Sveinssonar alþingismanns, skýrslur for- manns og gjaldkera, kosning stjórnar og kosning aðalmanna og varamanna i miðstjórn. Aukin áhrif.. Meðal þeirra mörgu mála, sem hið glæsilega flokksþing Framsóknarflokksins fjallaði um nú fyrir skömmu, voru breytingar á lögum Framsóknarflokksins. Fyrir flokksþinginu lágu tillögur sérstakrar laganefndar, er starf- að hafði um nokkurt skeið að endurskoðun á lögum flokksins. Tillögur nefndarinnar náðu flestar fram að ganga, og verður hér getið þeirra atriða, sem sérstaklega varða ungt fólk. Fjölgað er miðstjórnarmönnum þeim, sem kjörnir eru á flokksþingi, úr 15 i 25, og skulu 7 þeirra hið fæsta vera úr röðum ungra framsóknarmanna. Hér hefur hlutfall ungs fólks aukizt verulega. Samkvæmt þeim regl- um, er áður giltu, voru aðeins 3 af 15 úr hópi ungra manna. Má þvi búast við, að áhrifa ungs fólks fari að gæta i enn rikara mæli en verið hefur i þessari stofnun, sem fer með æðsta vald i málefnum flokksins á milli flokksþinga. óhætt er að fullyrða, að þessi breyting er árangur af jákvæðu starfi ungra framsóknar- manna um land allt i störfum flokksins á und- anförnum árum, og endurspeglar traust það, sem ungir menn njóta i Framsóknarflokknum. Við miðstjórnarkjörið á flokksþinginu kom þetta enn betur i ljós, en þá náðu kjöri 10 menn yngri en 35 ára. Mun enginn annar stjórnmála- flokkur á íslandi hafa á að skipa jafnmörgum ungum mönnum i slikum trúnaðarstöðum. Önnur breyting, sem ekki siður er athyglis- verð, er sú, að formaður Sambands ungra Framsóknarmanna á framvegis sæti á fundum þingflokks Framsóknarflokksins. Þeir háværu menn, sem áður voru i forsvari fyrir S.U.F., kvörtuðu gjarnan undan þvi,að á þá væri ekki hlustað,og þeir hefðu fá og litil tækifæri til að koma skoðunum sinum á framfæri i þeim stofnunum flokksins, sem mesta þýðingu hafa. Með þessari nýju skipan hafa ungir menn tæki- færi til að koma skoðunum sínum á framfæri við þingflokkinn, túlka þar sjónarmið sin, og reyna að hafa þau áhrif á gang mála, sem æskilegust eru. Þetta veitir einnig þingflokknum tækifæri til að leita álits ungra manna á þeim málum, sem efst eru á baugi hverju sinni. Slikt ætti að skapa þau tengsl milli þingflokksins og stjórnar S.U.F., sem báðum aðilum verður styrkur að, og útiloka á þann hátt óþarfa mis- skilning, sem stundum gerði vart við sig milli þessara aðila. ....ánægjulegur áfangi Þessir áfangar, sem náðst hafa, eru ungum Framsóknarmönnum að sjálfsögðu ánægju- efni. Ekki sizt fyrir þá sök, að þetta hefur náð fram að ganga með einarðlegri og málefnalegri baráttu, sem mætt hefur auknum og vaxandi skilningi i flokknum. En þessi árangur leggur lika ungum mönnum auknar skyldur á herðar. Þeir verða að beita áhrifum sinum á jákvæðan hátt, kappkosta að láta málefni ráða ferðinni, en láta með öllu lokið þeim baráttuaðferðum og persónulega valdatafli, sem svo mjög einkenndi orðið i lokin athafnir þeirra ungu manna, sem sögðu skilið við Framsóknarflokkinn við síðustu alþingiskosningar. I.B.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.