Tíminn - 06.12.1974, Side 24

Tíminn - 06.12.1974, Side 24
Föstudagur 6. desember 1974. er peningar Auglýsid' iThnammi GEÐI fyrirgóöan mai ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Poul Hartling stendur I ströngu þessa dagana. A myndinni sést hann dsamt nokkrum ráöherrum úr dönsku stjórninni ræða við fuiltrúa launþega um tillögurnar I efnahagsmálum. Allt útlit fyrir nýjar kosningar í Danmörku Réttir Glistrup Hartling hjálparhönd á síðustu stundu? NTB/Reuter-Kaupmannahöfn. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma veröur efnt til nýrra þing- kosninga I Danmörku á næstunni. Þannig hijóðaði upphaf fréttar NTB-fréttastofunnar sfðdegis i gær. Poul Hartling forsætisrað- herra sagði i danska þinginu i gær, að allt útlit væri fyrir, að til- lögur stjórnar hans i efnahags- málum næði ekki fram að ganga. Þó bað hann um tveggja tima hlé, til að stjórnin gæti komiö saman og rætt stjórnmálastöðuna. Umræður um tillögur stjórnarinnar stóðu i samfleytt 7 klukkustundir. t lok umræðnanna kvaðst Hartling aðeins telja sig eiga visan stuðning 81 þingmanns af 179 við þá tillögu að visa málinu til þingnefndar. Þeir stjórnarandstæðingar, sem til máls tóku, höfðu allir eitt- hvað við tillögurnar að athuga. 1 ljós kom þó, að þingmenn Rót- tæka vinstri flokksins, Ihalds- flokksins, Miðdemókrata, Kristi- lega þjóðarflokksins og tveir þingmenn, sem hafa klofið sig úr Fra m f a ra flokki Mogens Glistrups, visuðu tillögunum ekki algerlega á bug. Stuðningur framangreindra þingmanna auk þingmanna Vinstri flokksins, sem að stjórninni stendur nægir ekki, til að meirihluti náist á þingi. I gær- morgun óskaði Framfara- flokkurinn þess, að fram færu viðræður milli leiðtoga hans og Vinstri flokksins. Fréttaskýrend- ur litu á þetta tilboð flokksins sem merki um, að hann gæti fallizt á tillögurnar með vissum skilyrð- um en stuðningur hans hefði nægt stjórn Hartlings. Sfðdegis f gær kom þó i ljós, að Hartling virtist ekki reiða sig á stuðning Framfaraflokksins, þótt Glistup væri á annarri skoðun. En fréttaskýrendur telja, að kostir þeir, er Framfaraflokkurinn setji fyrir stuðningi, séu óaðgengilegir — og þvi sé lausnin aðeins ein: Þingkosningar, sem væntanlega fara fram i janúar n.k. Nixon sleppur við að bera vitni í Watergate-málinu Reuter-Washington. John Sirica, dómari i Watergate-málinu svo- nefnda, neitaði i gær að gefa réttarhlé yfir jólin, svo að tfmi gæfist til að yfirheyra Richard Nixon, fyrrum Bandarikjafor- seta, á heimili hans I Kaliforniu. Sirica rökstuddi ekki úrskurð sinn, en bæði saksóknari og verjendur ákærðu höfðu farið fram á að réttarhöldunum yrði frestað, svo að tóm gæfist til að yfirheyra Nixon á heimili hans. (Hann má sem kunnugt er ekki bera vitni í réttarsal fyrr en I febrúar n.k. af heilsufars- ástæðum). Úrskurður Sirica bendir til, að réttarhöldum f Watergatemálinu ljúki fyrir jól. Nixon losnar þá við að bera vitni i málinu, en þrir læknar sem skipaður voru til að rannsaka heilsufar hans, kváðu upp þann úrskurð, að hann yrði fyrst fær til að bera vitni á heimili sinu þann 6. janúar n.k. Samskipti Frakka og Sovétmanna styrkt NTB-Reuter-Paris. Leonfd Bresjnef, aðalritari sovézka kommúnistaflokksins, og Valery Giscard d’Estaing Frakklands- forseti áttu viðræður I gær, en Bresjnef er sem stendur i opin- berri heimsókn I Frakklandi. Þeir Bresjnef og Giscard d’Estaing eru sagðir hafa náð samkomulagi um að styrkja böndin milli Sovétrfkjanna og Frakklands, bæði bein tengsl rikjanna tveggja og samstöðu I alþjóðamálum. Sagt er, að Bresjnef hafi viljað fá að vita, hvort utanrikisstefna Frakka hefði breyzt við valda- töku Giscard d’Estaings, en for- setinn er sem kunnugt er ekki gaullisti eins og fyrirrennarar hans. Sjálfstæð utanrikisstefna Frakka hefur fallið I góðan jarðveg hjá ráðamönnum i Sovét- rlkjunum. 1 sameiginlegri frétta- tilkynningu, sem gefin var út að loknum fundi þjóðarleiðtoganna, segir, að þeir hafi látið i ljós áhuga á að bæta sambúð og efla samvinnu rikjanna — bæði I sam- skiptum þeirra á milli og i afstöðu til fjölda alþjóðamála. Leonid Zamyatin, talsmaður Bresjnefs, sagði i gær á fundi með fréttamönnum, að samvinna Frakklands og Sovétrikjanna væri dæmi um, hvernig riki sem greindi á hugmyndafræðilega, gætu unnið saman að lausn deilumála. Fréttaskýrendur telja, að þá Brésjnef og Giscard d’Estaing hafi greint á um afstöðuna til öryggismálaráðstefnu Evrópu, sem standa á I Génf. Sovét- stjórnin vill, að gerður verði samningur milli austurs og vest- urs i lok ráðstefnunnar, en franska stjórnin hefur verið and- vig gerð sliks friðarsáttmála, nema dregið yrði úr þeim tak- mörkunum á ferðafrelsi sovézkra borgara sem nú eru I gildi. Þjóðarleiðtogarnir ræddu eink- um um samskipti Sovétrikjanna og Frakklands, en létu utanrikis- ráðherra rikjanna um að ræða alþjóðamál. Ráðherrarnir féllust báðir á rétt Palestinuaraba til að stofna eigið riki I Palestinu og sömuleiðis á rétt Israelsmanna til að styrkja þau landamæri Israel, sem viðurkennd væru — að sögn háttsettra embættis- manna, er fund þeirra sátu. Þeir Brésjnef og Giscard d’Estaing undirrita væntanlega I dag samning um viðskipti Sovét- manna og Frakka, sem m.a. felur I sér, að viðskiptin aukist um halming á næstu fimm árum. Blaðburðarfólk óskast: í KÓPAVOGI: Reynihvamm og Birkihvamm Upplýsingar í síma 4-20-73 í REYKJAVÍK: Laufásveg, Stigahlíð, Hraunteig, Sundlaugaveg Upplýsingar í síma 1-23-23 Á SELTJARNARNESI: Skólabraut og Melabraut - Upplýsingar í síma 1-23-23 HEIMSHORNA Á MILU Reuter—Kampala. Stjórn Uganda hefur hótað að ráðast inn I Tanzaniu til að koma I veg fyrir — að hennar áliti — yfirvofandi árás frá Tanzanfu á Uganda. Talsmaður Ugandastjórnar sagði hana hafa I höndum sannanir fyrir áformum þriggja aðila um árás á Uganda: Júlíusar Nyerere, forseta Tanzaniu, Kenneth Kaunda, forseta Zambiu, og Milton Obote, fyrrum forseta Uganda. sem hrökklaðist frá völdum i uppreisn Idi Amins, núverandi forseta landsins. Talsmaðurinn sagði, að málalið hefði verið þjálfað I Tanzanlu, að undirlagi Ny- ereres forseta,! þvi skyni að ráðast á Uganda og hefði Kaunda veitt fé til að greiða liðinu málann. Og hann bætti við: — Þeim Nyerere, Kaunda og Obote verður veitt ærleg ráðning, hvað sem hún kostar, þvi að betra er að koma i veg fyrir sjúkdóm en lækna hann. Fullyrti hann að Ugandaher legði til atlögu og réðist inn I Tanzaniu,ef nauðsyn bæri til. Reuter—Teheran. Að minnsta kosti 25 manns létu Iffið, þegar þak á aðalsal flugstöðvar- byggingarinnar á Mehrabad- flugvelli féll skyndilega saman vegna snjóþyngsla. Að sögn útvarps og sjón- varps I tran höfðu 25 lik fund- ízt sfðdegis I gær I rústum flugstöðvarbyggingarinnar, en björgunarsveitir voru þá enn að störfum I von um að finna e.t.v. einhverja á lifi I rústunum. Venjulega eru hundruð manna saman komin I stöðvarbyggingunni, en færri voru þar staddir i gær, er slys- ið varð, vegna þess að mikill hluti af innanlandsflugi lá niðri sökum stórhrlðar, er geisaði I Iran I gær. Stöðvarbyggingin hefur þjónað bæði millilanda- og innanlandsflugi. 011 flugum- ferð um flugvöllinn lá þvi niðri I gær og óvist var, hvenær hún gæti hafizt á ný. Yfirmaður flugmála i Iran sagði siðdegis I gær, að 12 lík hefðu þegar fundizt, en óttast væri að alls 50 hefðu látið lifið. I tilkynningu Iransstjórnar sem gefin var út siðar, segir, að óttast sé að milli 50 og 60 hafi látizt. Reuter—Washington. Tilkynnt var I Washington I gær, að kolanámumenn i Bandarikj- unum, sem verið hafa I verk- falli að undanförnu, hefðu fall- izt á nýgerða kjarasamninga og sneru þvl aftur til vinnu — liklega eftir helgi. Arnold Miller, forseti sam- bands bandariskra námu- manna sagði i gær, að at- kvæðagreiðsla um kjara- samninga er gerðir voru milli leiðtoga námumanna og at- vinnurekenda hefði farið svo, að 56% greiddu atkvæði með samningum en 44% á móti. Námumenn hafa verið I verkfalli I tæpan mánuð — eða frá 12. nóvember s.l. Verkfall- iö hefur einkum komið hart niður á stáliðnaði I Bandarikj- unum. NTB—London. Sovézkir raða- menn hafa skorað á Yasser Arafat, leiðtoga PLO (Sam- taka Palestinuaraba) að mynda útlagastjórn, sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um i London. Sovézkir ráðamenn fullviss- uðu Arafat um — meðan hann dvaldi I Moskvu nýlega — að Sovétrikin yrðu fyrst rlkja utan Arabarikja til að viður- kenna sllka stjórn. Fréttaskýrendur segja að Sovétstjórnin ætli sér með þessu að styrkja stöðu slna I viðræðum þeim um frið I Mið- jarðarhafslöndum, sem nú standa fyrir dyrum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.