Tíminn - 13.12.1974, Blaðsíða 1
PRIMIIS
vélarhitarinn
í frosti og kulda
IBBB
Lofttjakkar
Olíutjakkar
Stjórnventlar
HFHORÐUR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 -SÍMI (91)19460
í DAG
Ljósvetningar
°9
Bárðdælingar
óttast línubilun
— sjá bls. 3
250. tölublað — Föstudagur 13. desember — 58. árgangur.
Hafrún talin af
Gsal—Reykjavik —
Fullvist er nú talið að
Hafrún BA-10, 15 tonna
bátur, hafi farist með
tveimur mönnum. Brak
hefur fundist, sem talið
er vera úr bátnum og
ennfremur gúmmi-
björgunarbátur og
bauja. Mennirnir tveir
Díselstöðvar fró
Bandaríkjunum?
Tómas Árnason gerði orkumál Austur•
lands að umtalsefni utan dagskrár í
sameinuðu þingi i gær
AÞ—Reykjavik — Tómas Arna-
son kvaddi sér hljóös utan dag-
skrár í sameinuðu þingi i gær og
gerði að umtalsefni þann mikla
vanda, sem við er að etja I raf-
orkumálum Austurlands. Sagði
hann, að eins og nú horfði, væri
raforkuskortur fyrirsjáanlegur.
Benti hann á, að hér væri um
mjög alvarlegt vandamál að
Bannið
ólög-
legt?
AÞ—Reykjavik — Talsverðar
umræður spunnust um rækju-
striðið á Húnaflóa á fundi sam-
einaðs þings f gær, en Jón Ar-
mann Héðinsson gerði þetta mál
að umtalsefni utan dagskrár.
Vitnaði þingmaðurinn i ræðu
sinni til umsagnar Magnúsar
Thoroddsen borgardómara um
hömlur sjávarútvegsráðuneytis-
ins á löndun rækjuafla til vinnslu i
rækjuverksmiðjunni á Blönduósi,
en í þeirri umsögn er dregið mjög
i efa, að ákvörðun ráðuneytisins
standist lögum samkvæmt, þar
sem hún byggist á röngum for-
sendum, þ.e. aö hún sé til vernd-
unar atvinnulifs á vissum stöðum
en ekki vegna verndunar rækju-
stofnsins.
ræða, þar sem starfrækslu loðnu-
verksmiðja og hraðfrystihúsa á
Austurlandi á næstu vertið væri
stefnt I hættu. t þvi sambandi gat
hann þess, að heildarverðmæti
loðnuafurða á þessu ári væru 4
milljarðar og 210 millj. króna, þar
af væri hlutur Austurlands 1365
millj. króna eða 32,4% af heildar-
verðmætum.
1 ræðu sinni benti Tómas
Árnason á tvær leiðir til að firra
frekari vandræðum. önnur væri
sú að festa kaup á færanlegum
disilstöðvum frá Bandarikjunum,
sem kosta 14 millj. króna hver.
Þá væri einnig sjálfsagt að
athuga þann möguleika að nýta
gamlar vélar úr togurum eða
stórum fiskiskipum og tengja þær
rafali til notkunar yfir vertiðina.
Gunnar Thoroddsen orkumála-
ráöherra svaraði Tómasi Arna-
syni. Gat hann þeirra tafa, sem
orðið hafa á afgreiðslu á vélum
frá Tékkóslóvakiu til Lagarfoss-
virkjunar. Sagði hann, að allt yrði
gert til þess að koma I veg fyrir
orkuskort á Austurlandi.
Fleiri tóku til máls, þ.á.m.
Halldór Asgrimsson, en hann hef-
ur lagt fram fyrirspurn um orku-
mál Austurlands og verður hún
rædd eftir helgina.
sem fórust með bátnum,
hétu, Sævar Jónsson, frá
Patreksfirði, og Einar
Birgir Hjelm frá Kefla-
vik. Þeir láta báðir eftir
sig konur og tvö börn.
Siðdegis á miðvikudag hófst
umfangsmikill leit að Hafrúnu,
sem þá um morguninn kl. 04
hafði farið i linuróður frá Kefla-
vik. Þegar báturinn hélt úr höfn
var vindur hægur af suðaustri, en
upp úr kl. 7 um morguninn tók
veður að versna og snerist vindur
i suður og hvessti. Sjó þyngdi þá
mjög og gekk einnig á með éljum,
og siðar snjókomu.
Þegar leið á kvöldið snerist
vindur til norðurs og norðausturs,
og hélst veðrið þannig fram eftir
degi I gær.
Þegar báturinn gaf sig ekki
fram á tilsettum tima hjá Til-
kynningaskyldu islenzkra skipa,
var strax farið að kalla bátinn
upp, og haft samband við báta
sem voru á svipuðum slóðum og
þeir beðnir að svipast um eftir
Hafrúnu. En bátarnir gátu engar
upplýsingar gefið og hann svaraði
engum köllum, og var þá undir-
búin leit.
Björgunarsveitir i Sandgerði,
Keflavik og Gerðum voru
kallaðar út og beðnar að ganga
fjörur, en varðskip stjórnaði leit-
inni á sjó.
Þegar leitin bar engan árangur
á miðvikudag, var ákveðið að
hefja skipulega leit i gær, bæði á
landi, lofti og á sjó. t birtingu i
gærmorgun um kl. 8 voru 25 bátar
frá Keflavfk og Sandgerði komnir
á leitarsvæðið og hófu leit undir
skipulagðri stjórn varðskips,
Þyrla Landhelgisgæzlunnar og
Slysavarnarfélagsins TF-Gná fór
til leitar og flaug yfir strandlengj-
unni og á grunnslóðum. Einnig
tók tveggja hreyfla flugvél þátt i
leitinni og flaug hún yfir og út af
Garðskaga.
Strax I birtingu voru ennfremur
björgunarsveitir úr Sandgerði,
Keflavik, og Gerðum komnar á
sitt leitarsvæði á strandlengjunni
og náði leitársvæðið frá Höfnum,
um Garðskaga og inn til Kefla-
vikur.
Landvélarhf
— tveir menn
voru á bátnum
Skilyrði til leitar I gærmorgun
voru hin ákjósanlegustu og
skömmu fyrir hádegi fann vélbát-
urinn Þorkell Arnason, litt upp-
blásinn gúmmibjörgunarbát, um
6 sjómflur vestur af Garðskaga.
Gúmmibjörgunarbáturinn var
sendur til Reykjavikur I gærdag,
og við athugun á honum kom i
ljós, að hann var úr Hafrúnu.
Varðskip fann um 5 sjómilur
vestur af Stakksnesi lóðabelg
merktan BA-10 og bauju með
fána, sem virtist vera frá bátn-
um, auk þriggja skilrúmsfjala.
Ennfremur fundu bátar I gær
ýmiss konar brak, sem að
órannsökuðu máli er ekki hægt að
fullyrða að sé úr Hafrúnu, en þó
er talið að megnið af brakinu
kunni að hafa tilheyrt bátnum.
Að sögn Hannesar Hafsteins,
framkv.stj. slysavarnarfélagsins
var komið með gúmmibjörgunar-
bátinn, sem Þorkell Arnason
fann, siðari hluta dags i gær, þeg-
ar báturinn kom i höfn.
— Skoðunarmenn frá Gúmmi-
bátaþjónustunni, siglinga-
málastofnun og SVFI, athuguðu
Frh. á bls. 6
Góðar fréttir af raforkumálum:
Snæfellsnes inn á orku-
veitusvæði Landsvirkjunar
SJ-Reykjavfk. — Unnið er að þvi
af fullum krafti að tengja
Snæfellsnes inn á orkuveitusvæði
Landsvirkjunar gegnum Anda-
kilsárvirkjun. Verður reynt að
ljúka þvi verki fyrir jól, að sögn
Baldurs Helgasonar rafveitu-
stjóra.
Verið er að ljúka við linu frá
Andakil að Vegamötum. Þetta er
66.000 volta stofnllna. Um
fullnaðartengingu verður ekki að
ræða fyrr en i marz i vor, þegar
lina frá Vegamótum til Stykkis-
hólms verður væntanlega tilbúin.
Strax við fyrri tenginguna léttir
mjög á álaginu á Snæfellsnesi
sunnanverður, en á nesinu öllu
hefur ástandið verið mjög tæpt I
raforkumálum. Allar rafvélar I
Ólafsvik og Stykkishólmi eru
nýttar til hins Itrasta, og eins mun
vera annars staðar. Meðvorinu
batnar væntanlega
einnig norðan jökuls.
ástandið
Orkuskortur
á Hólmavík?
— Aðeins eins metra djúpt vatn eftir i
lóninu við Þverárvirkjun.
Ekki komið dropi úr lofti síðan í júlílok
SJ-Reykjavik. — Varla hefur
komið dropi úr lofti á Hólmavik
siðan i júlilok i sumar, og er mjög
slæmt ástand i raforkumálum þar
um slóðir af þeim völdum. Hólm-
vikingar fá raforku frá Þverár-
virkjun, en við hana er mikið lón,
sem dugað hefur vel. Nú er þó svo
komið, að aðeins eins metra djúpt
vatn er eftir I lóninu.
Varavélar hafa verið notaðar á
svæöinu, en nú bilaði sú helzta
þeirra, 300 kw vél i Saurbæ I
Dölum. Varð þá að gripa til þess
ráös að tengja þetta svæöi við
samtengisvæðið á Noröurlandi
vestra.
Orkustofnun fær um jólin nýja
diselvél frá Bandarikjunum,
420kw, og kemur til greina að
nota hana til að hlaupa undir
bagga á þessu svæði, að sögn
Baldurs Helgasonar, rafveitu-
stjóra á Norðurlandi vestra.
Nú er verið að setja upp 2000 kw
vél i Laxárvatnsvirkjun, og
verður þvi lokið innan fárra daga.
Verður þá gastúrbina, sem notuð
hefur verið þar, e.t.v. flutt til
Hólmavikur. Orkumagn Laxár-
vatnsvirkjunar verður meö
tilkomu þessarar nýju vélar
samtals 4000 kw
Astandið i raforkumálum I
Skagafirði og við Húnaflóa hefur
verið mjög tæpt að undanförnu,
en þó hefur allt gengið áfalla-
laust. Norðurland vestra er tengt
Laxárvirkjun, og hefur það létt á,
þótt raunar hafi orkuveitusvæði
Laxárvirkjunar ekki verið
aflögufært siðustu vikuna.
Bjarnabrunnur
og Guðríðarlind
JH-Reykjavik. — Ráðamenn
hjá oliufélögunum amerisku
hafa þrautlesið fornar bók-
menntir, og landkönnuðir
fornaldar hafa sýnilega orkað
á hug þeirra.
Oliuleitarfélag, sem kallast
Eastcan i daglegu tali, hefur i
framhaldi af þessum bóklestri
látið skira oliu- og gaslindir,
sem fundizt hafa um 570 milur
norður af fiskimannabænum
St. Johns á Nýfundnalandi,
Bjarnabrunn, og er nafnið sótt
til Bjarna Herjólfssonar.
Aðra gasuppsprettu, sem
þetta sama félag hefur fundið
á hafsbotni nokkru sunnar
hefur sama félag nefnt
Guðriðarlind.
1
A.
* A \
* >1
* tP
LABRADOR SEA
Bjarni oil well
k • Gudrid gas well
Quebec
Newfoandland
L
Nwr*"
/L____f
U.S.A.
r/\ 1
/ K ^
V
A T L A
Halifax ^Sable Island
Boston
Bjarnabrunnur og Guðriðarlind sjást á þessu korti.