Fréttablaðið - 03.01.2005, Qupperneq 6
ARAMÓTAÁVÖRP Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra hvatti í
fyrsta ávarpi sínu til þjóðarinnar
eftir að hann varð forsætisráð-
herra til þess að sem flestir
kæmu að breytingum á stjórnar-
skránni. Búist er við að stjórnar-
skrárnefnd þingflokkanna verði
skipuð á allra næstu dögum en
Halldór boðaði að kallað yrði eftir
sjónarmiðum almennings við
samningu nýrrar stjórnarskrár:
„Þetta er sameiginlegt verkefni
okkar allra og niðurstaðan á að
endurspegla þjóðarvilja. Því er
brýnt að sjónarmið sem flestra
komist að við þessa mikilvægu
vinnu. Í alþingiskosningum 2007,
þegar kosið verður um stjórnar-
skrárbreytingarnar, eiga sem
flestir að geta sagt: Ég hef tekið
þátt í að ræða og móta stjórnar-
skrána.“
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoð-
armaður forsætisráðherra, segir
að stofnuð verði heimasíða og
tölvu- og samskiptatækni virkjuð
til að auðvelda fólki að kynna sér
starf stjórnarskrárnefndar og
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi.
Halldór Ásgrímsson skýrði
einnig frá því að hann hefði sett
af stað vinnu til að meta stöðu ís-
lensku fjölskyldunnar: „Það er
ekki að ástæðulausu því ýmis
teikn eru á lofti um að gömul og
gróin fjölskyldugildi séu á undan-
haldi með óæskilegum afleiðing-
um ... Við vitum að börn þarfnast
umhyggju foreldra sinna og tíma
fyrir leik og samræðu. Nútíma-
þjóðfélagið hefur breytt lífs-
mynstrinu og í kjölfarið hafa
samverustundir fjölskyldunnar
tekið breytingum.“
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, lagði áherslu á gildi
menntunar í nýársávarpi sínu til
íslensku þjóðarinnar og skýrði
frá því að hann hefði ákveðið að
stofna til menntaverðlauna en nú
þegar eru afhent útflutnings- og
bókmenntaverðlaun sem eru
kennd við forsetaembættið: „Það
dugir þó skammt að mæla fagurt
um gildi menntunar í hátíðaræð-
um; við verðum að sýna í verki að
þjóðin hafi einbeittan vilja í þess-
um efnum. Það má aldrei aftur
henda að fyrstu kynni barna af
skólastarfi sé iðjuleysi mánuðum
saman vegna deilna þeirra sem
ábyrgð bera. Við verðum að
skapa... þjóðarsamstöðu um úr-
valsskóla, skóla sem eru úrval
vegna gæða, aðgangsins sem er
öllum opinn, jafnréttisins sem
þar ræður ríkjum, úrvalsskóla
sem mismuna í engu vegna efna-
hags foreldranna.“
-ás
6 3. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Eldri borgarar á Ísafirði óánægðir með gjaldtöku fyrir þvott á fatnaði:
Niðurlæging fyrir gamla fólkið
HEILBRIGÐISMÁL „Það er mikil
niðurlæging fyrir gamla fólkið að
þurfa að fara með fötin sín í poka
til ættingja sinna,“ segir Jón
Fanndal Þórðarson, formaður
Félags eldri borgara á Ísafirði.
Aldraðir Ísfirðingar eru ósáttir
við ákvörðun stjórnenda Heil-
brigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar
um að taka 5.500 króna gjald af
vistmönnum öldrunardeildar
sjúkrahússins fyrir þvott á
einkafatnaði. Mun gjaldtakan
gilda frá og með áramótum, að því
er fram kemur á vef Bæjarins
besta á Ísafirði.
Þvottahúsi sjúkrahússins var
lokað í sumar og tók efnalaug þá
við þvottunum. Sjúkrahúsið hefur
greitt fyrir þvott á fatnaði vist-
mannanna, sem eru um fimmtán
talsins, þar til nú.
„Þetta er að sjálfsögðu spurn-
ing um peninga þar sem þetta fólk
á enga peninga,“ segir Jón og
bætir við að vistmenn deildarinn-
ar hafi einungis um 11.000 krónur
í vasapeninga á mánuði. „Þetta
eru litlar upphæðir sem skipta
engu máli fyrir sjúkrahúsið en
miklu máli fyrir gamla fólkið.“ ■
Starfsmenn flugfélags:
Fengu skömm
í hattinn
WASHINGTON, AFP Harðorð skilaboð
til starfsmanna bandarísks flug-
félags sem tilkynntu veikindi
yfir jólin voru spiluð bæði í út-
varpi og sjónvarpi í Bandaríkjun-
um.
„Þeir sem kusu að misnota sér
veikindaréttindi sín hafa brugð-
ist samstarfsmönnum sínum og
viðskiptavinum okkar,“ var með-
al þess sem sagði í skilaboðunum.
Óvenju margir starfsmenn
boðuðu veikindaforföll yfir jólin,
að sögn talsmanns fyrirtækisins.
Auk þess myndaðist ringulreið
vegna slæms veðurs og hruns
tölvukerfis fyrirtækisins. ■
Aðsókn að Konukoti:
Dræmari en
búist var við
ATHVARF Aðsókn að Konukoti, at-
hvarfi fyrir heimilislausar konur í
Reykjavík, var dræmari en við
hafði verið búist yfir jólahátíðina,
að sögn Brynhildar Bárðardóttur
verkefnisstjóra hjá Reykjavíkur-
deild Rauða kross Íslands, sem
rekur athvarfið.
Hún sagði að mest hefðu dvalið
3-4 konur næturlangt í athvarfinu,
sem var opið allan sólarhringinn
yfir jólahátíðina.
Mikið hefði verið um að kon-
urnar kæmu og færu eftir að hafa
staldrað við um stund. Fimm kon-
ur hefðu verið samtímis í athvarf-
inu þegar flest var. - jss
■ MIÐ-AUSTURLÖND
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir fyrrverandi aðstoðarfor-stjóri Íslandsbanka sem rekinn var úr
starfi eftir deilur við Bjarna Ármannsson,
forstjóra bankans?
2Hversu margir heilbrigðisstarfsmennfóru með vél Flugleiða til hamfara-
svæðanna í Suðaustur-Asíu?
3Hverjir fengu stórriddarakross hinnaríslensku fálkaorðu?
Svörin eru á bls. 30
á Hótel Örk
Fjáröflunardansleikur
Zontaklúbbs Selfoss til styrktar
Geðhjálp á Suðurlandi 8. janúar 2005
Dansleikurinn hefst klukkan 19.00 með fordrykk.
Glæsilegur fimm rétta hátíðarkvöldverður.
Dansleikur með hljómsveit hússins til 03.00.
Veislustjóri: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Einsöngvari: Guðrún Ingimarsdóttir.
Undirleikur: Anna Guðný Guðmundsdóttir
Einleikur á fiðlu: Sigrún Eðvaldsdóttir
Hljómsveit:
Veislutríóið ásamt Sigrúni Eðvaldsdóttur
spilar milli 20.00 og 24.00.
Matseðill:
Humar og hörpuskelsmús með ástríðualdinsósu og
steinseljufrauði.
*
Villisveppa cappuchino.
*
Vatnsmelónu carpaccio með ávaxtatartar og mintu.
*
Andabringa gljáð með mandarínu og engifer,
framreidd með kryddsoðinni kartöflu og
seljurótarkremi ásamt aprikósupiparsósu og
ristuðum fennel.
*
Súkkalaðiturn á vanillugrunni með pistasiuhnetum.
Verð með gistingu: 10.100,- kr. á mann í tvíbýli.
Verð án gistingar: 6.800,- kr.
Pantanir í síma 483 4700, info@hotel-ork.is
BORGARSTJÓRN
Sjö nýjar nefndir voru kosnar á borgar-
stjórnarfundi fyrir jól.
Reykjavíkurborg:
Nýir
formenn
STJÓRNMÁL Borgarstjórn Reykja-
víkur kaus á fundi sínum skömmu
fyrir áramót í nýjar nefndir
Reykjavíkurborgar sem taka
munu til starfa um áramót í sam-
ræmi við stjórnkerfisbreytingar
sem nú er unnið að hjá Reykjavík-
urborg. Formenn nefndanna hafa
verið kosnir. Anna Kristinsdóttir
verður formaður framkvæmda-
ráðs og Íþrótta- og tómstunda-
ráðs; Stefán Jón Hafstein, verður
formaður menningar- og ferða-
málaráðs og menntamálanefndar;
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs; Árni Þór Sigurðs-
son formaður umhverfisráðs, og
Björk Vilhelmsdóttir formaður
velferðarráðs. - ás
DÝRALÍF Fiskar af erlendum upp-
runa, sem algengir eru í fiskabúr-
um á Íslandi, virðast lifa góðu lífi
og fjölga sér ört í baðlóninu við
Kaldbak sunnan Húsavíkur. Á
huldu er hvernig þeir komust í
lónið en getgátur eru um að ein-
hver á Húsavík hafi sleppt þeim
þar í tilraunaskyni.
Fuglaáhugamaðurinn Gaukur
Hjartarson tilkynnti Náttúrustofu
Norðausturlands um fiskana
síðastliðið haust. Í ljós kom að um
var að ræða fangasiklíður, Cichla-
soma nigrofasciatum, en kjörhiti
slíkra fiska er talinn vera 24˚C.
Lengstir verða þeir 12 sentimetr-
ar en litasamsetning þeirra minn-
ir á fangabúninga fyrr á tímum.
Gaukur segir að erfitt sé að
átta sig á fjölda fiska í lóninu í
svartasta skammdeginu en í haust
hafi þeir örugglega skipt hundr-
uðum; jafnvel þúsundum. „Kæli-
vatn frá orkustöð Orkuveitu
Húsavíkur rennur í lónið og er
það um 20 gráðu heitt yfir vetrar-
mánuðina en allt að 30 gráður yfir
sumarmánuðina. Miðað við fugla-
líf á lóninu um jólin virðist enn
vera töluvert af þessum búrfisk-
um í lóninu og gæða fuglarnir sér
á þeim,“ segir Gaukur.
kk@frettabladid.is
JÓN FANNDAL ÞÓRÐARSON
Formaður Félags eldri borgara á Ísafirði er
ósáttur við fyrirhugaða gjaldtöku fyrir þvott
á fatnaði vistmanna öldrunardeildar Heil-
brigðisstofnunar Ísafjarðar.
Undarlegt fiskeldi við Húsavík:
Búrfiskar í baðlóni
FANGASIKLÍÐUR EÐA CICHLASOMA
NIGROFASCIATUM
Ekki er vitað hver sleppti þeim í baðlónið
en nokkrir Húsvíkingar liggja undir grun.
Stjórnarskrárnefnd:
Geir, Birgir
og Þorsteinn
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra, Þorsteinn Pálsson
sendiherra og Birgir Ármannsson
alþingismaður verða fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í stjórnar-
skrárnefnd sem Halldór Ásgríms-
son skipar á næstunni. Davíð
Oddsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, skýrði frá þessu í sjón-
varpsþættinum Kryddsíld á Stöð 2.
Formenn stjórnarandstöðuflokk-
anna, Össur Skarphéðinsson,
Steingrímur J. Sigfússon og Guð-
jón Arnar Kristjánsson, verða í
nefndinni. Ekki hefur verið ákveð-
ið hver verður annar fulltrúi Sam-
fylkingarinnar og forsætisráð-
herra hefur ekki skýrt frá hverjir
tveir fulltrúar flokksins verða en
annar þeirra verður formaður. ■
ABBAS HVETUR TIL STILLINGAR
Mahmoud Abbas, forsetafram-
bjóðandi í Palestínu, hvatti landa
sína til að
hætta að
skjóta
flugskeyt-
um á Ísra-
elsmenn
eftir að
ísraelskir skriðdrekar voru send-
ir á Gaza-strönd til að bregðast
við flugskeytaárásum. Kosningar
í Palestínu eiga að fara fram í
seinni hluta janúar.
■ MIÐ-AUSTURLÖND
BANDARÍKIN GAGNRÝNA SÝR-
LAND Bandaríkjamenn gagnrýna
sýrlensk stjórnvöld fyrir að gæta
landamæranna við Írak ekki
nógu vel og því eigi andspyrnu-
menn auðvelt með að komast á
milli landanna. Stjórnvöld í Sýr-
landi hafna þessum ásökunum og
segja Bandaríkjamenn ekki hafa
nein haldbær rök fyrir þeim.
Almenningur móti
nýja stjórnarskrá
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í áramótaávarpi að stjórnarskrár-
breytingar væru „verkefni okkar allra“. Forseti Íslands tilkynnti stofnun mennta-
verðlauna í nýjarsávarpi sínu og sagði kennaraverkfall ekki mega endurtaka sig.
FJÖLSKYLDA, MENNTUN OG STJÓRNARSKRÁ
Forsætisráðherra ræddi um mikilvægi fjölskyldunnar í áramótaávarpi sínu. Forsetanum
voru börnin einnig kær og talaði hann um menntun þeirra og kennaraverkfallið.
06-07 2.1.2005 20.45 Page 2