Fréttablaðið - 08.01.2005, Side 1

Fréttablaðið - 08.01.2005, Side 1
DAGAR EFTIR AF JANÚARTILBOÐI TOYOTA 24 RAV4 Tilboðsverð 2.590.000 kr. Elvis Presley: Afmæli rokkkóngsins SÍÐUR 32 OG 33 ▲ Skopteiknarinn Sigmúnd: Á útkikki eftir því skoplega í 40 ár SÍÐUR 30 OG 31 ▲ MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI LAUGARDAGUR FYRIR NÁTTHRAFNA Þeir sem hafa gaman af því að dansa geta hrist sig fram á morgun á skemmtistaðnum Sólon í Bankastræti. Dj Svali og dj Þröstur verða við græjurnar laugardagskvöldið sem endranær og spila bestu danstónlistina frá 23.30 til morguns. DAGURINN Í DAG 8. janúar 2005 – 6. tölublað – 5. árgangur MILLJÓNA STUÐNINGUR RÍKIS- INS Ákveðið var að hækka framlag Íslands vegna náttúruhamfaranna í Asíu í 150 millj- ónir króna. Stuðningurinn er bundinn ákveðnum verkefnum. Sjá síðu 2 ÖRT LÆKKANDI DÁNARTÍÐNI Tíðni kransæðasjúkdóma hefur verið á nið- urleið á síðustu árum og einkum áratugum, að sögn Vilmundar Guðnasonar yfirlæknis hjá Hjartavernd. Sjá síðu 2 ALLIR KOMNIR HEIM Hættuástandi var aflétt í Bolungarvík í hádeginu í gær. Margrét Gunnarsdóttir, íbúi við Dísarland, var alsæl með að komast heim. Hún er ósátt við að hafa ekki fengið ásættanlegt verðtilboð í húsið frá bænum. Sjá síðu 4 KVENFANGAR Í VERRI STÖÐU Konur í fangelsum á Íslandi eru verr staddar en karlar samkvæmt niðurstöðum rannsókna. Margrét Sæmundsdóttir hjá Fangelsismála- stofnun segir að kynjamisrétti sé á vistunar- möguleikum sem verði að bæta úr. Sjá síðu 8 Kvikmyndir 42 Tónlist 40 Leikhús 40 Myndlist 40 Íþróttir 36 Sjónvarp 44 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 RANNSÓKN Bogi Nilsson ríkissak- sóknari segir að ekki verði frekar aðhafst vegna aðgerðaleysis lög- reglumanns þegar kynferðisbrot var framið á sautján ára pilti. Bogi segir embættið alltaf líta á rann- sóknir og komi með ábendingar ef eitthvað má betur fara. Hann segir skýringa hafa verið leitað vegna þessa máls og lögreglustjórinn í Reykjavík hafi farið yfir málið með lögreglumanninum sem átti í hlut og þeim þætti málsins sé þar með lokið. Maðurinn sem framdi kynferðis- brotið var dæmdur í eins árs fang- elsi fyrir að hafa fengið piltinn, sem er þroskaheftur, til að hafa við sig endaþarmsmök og munnmök á gistiheimili í Reykjavík. Upp komst um málið vegna rannsóknar lög- reglu á manninum sem hafði verið í óeðlilegu sms-sambandi við annan dreng. Lögreglan kom á skilaboða- sambandi við manninn og þóttist vera einhver piltur sem vildi hitta manninn og veitti honum eftirför. Lögreglumaðurinn beindi mannin- um á Hlemm þar sem hann varð vitni að því þegar maðurinn hitti þroskahefta piltinn, fylgdi þeim eftir og beið fyrir utan gistiheimilið á meðan brotið var gegn piltinum. - hrs SAMKEPPNISMÁL Munnlegur mál- flutningur hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála vegna olíumáls- ins fer fram á Hótel Sögu á mánu- dagsmorgun klukkan 9. Bæði for- svarsmenn olíufélaganna og Sam- keppnisstofnunar munu koma fyrir nefndina að sögn Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors og formanns áfrýjunarnefndarinnar. Þinghaldið verður lokað. Þann 28. október ákvarðaði samkeppnisráð að olíufélögunum Essó, Skeljungi og Olís bæri að greiða samanlagt 2,6 milljarða króna í sektir vegna langvarandi og skipulags samráðs um verð- lagningu, gerð tilboða og skiptingu markaða. Olíufélögin kærðu öll ákvörðun samkeppnisráðs til áfrýjunarnefndar samkeppnis- mála þann 26. nóvember. Samkvæmt lögum hefur áfrýj- unarnefndin sex vikur til að úr- skurða í málinu en nú er ljóst að það mun dragast. Stefán Már segir að málið sé það umfangsmikið að nefndin þurfi lengri tíma til að fjalla um það. Hann segist samt vænta þess að úrskurðað verði í málinu í þessum mánuði. Úrskurð- arnefndin getur fellt úr gildi eða staðfest ákvörðun samkeppnis- ráðs. Hún getur einnig breytt ákvörðun samkeppnisráðs eða vís- að kærunni frá. Ef olíufélögin una ekki úrskurði áfrýjunarnefndarinnar geta þau höfðað mál til ógildingar hans fyrir dómstólum. Olíufélögin hafa þá sex mánaða frest til þess. Sam- kvæmt samkeppnislögum mun slík málshöfðun ekki fresta gildistöku úrskurðar nefndarinnar eða heim- ild Samkeppnisstofnunar til að byrja að innheimta sektirnar. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er víst að ef áfrýjunarnefndin staðfestir ákvörðun samkeppnis- ráðs mun Samkeppnisstofnun strax byrja að innheimta sektirnar. Það yrði gert þar sem líklegt er að málið gæti tekið mjög langan tíma fyrir dómstólum, til dæmis ef því yrði síðan áfrýjað alla leið til Hæstaréttar. trausti@frettabladid.is Samráðssektir verða innheimtar strax Forsvarsmenn olíufélaganna og Samkeppnisstofnunar mæta fyrir áfrýjun- arnefnd samkeppnismála á mánudaginn. Ef nefndin staðfestir ákvörðun samkeppnisráðs verða sektir upp á 2,6 milljarða innheimtar strax. Met í lóðaverði: Sjö milljónir á íbúðina LÓÐAVERÐ Rúmlega 200 milljónir króna voru boðnar í byggingar- rétt á þrjátíu íbúðum í tveimur blokkum í Bjarkarási í Garðabæ í gær. Það þýðir tæplega 6,7 millj- ónir á íbúð. Hæsta tilboð átti Fasteigna- félagið Hlíð, sem er í eigu Frjálsa fjárfestingarbankans. Bankinn átti einnig næsthæsta tilboðið upp á rúmar 175 milljónir króna. 49 tilboð bárust í lóðirnar. Það lægsta tæpar 72 milljónir. Um miðjan desember vakti hátt verð í lóðir á Norðurbakka í Hafnarfirði athygli. Eykt bauð þá 261 milljón í 79 íbúðir, sem er um 3,3 milljónir á íbúð, um helmingi lægra en í lóðirnar nú. Um mitt ár í fyrra hljóðaði til- boð í blokkaríbúðir í Norðlinga- holti í Reykjavík upp á hátt á þriðju milljón króna á íbúð. - gag BJÖRGUNARSTARF Talið er að fimmtíu manns hafi slasast. Bologna á Ítalíu: Átján létust í lestarslysi ÍTALÍA, AP Átján manns létust í lest- arslysi skammt frá borginni Bologna á Ítalíu í gær. Mikil þoka var á svæðinu þegar farþegalest lenti í árekstri við flutningalest með fyrrgreindum afleiðingum. Talið er að skyggni hafi verið minna en fimmtíu metrar. Um tvö hundruð björgunarmenn komu á svæðið fljótlega eftir að slysið varð og var aðkoman mjög slæm. Auk hinna átján sem látnir eru slösuðust um fimmtíu manns þar af fimm mjög alvarlega. ■ SKAUTAÐ Á TJÖRNINNI Kuldinn sem verið hefur á landinu hefur sína kosti. Tjörnin í miðbæ Reykjavíkur er frosin. Salbjörg Óskarsdóttir nýtti sér það og fór með dætrum sínum Arnheiði og Kristrúnu á skauta. Í fjögurra stiga frosti þeystust þær mæðgur um ísinn í miðborginni. Skarphéðinn Þráinsson: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Á Pontiac Firebird 1970 ● bílar Þórarinn Kristjánsson: ▲ SÍÐA 37 Skrifaði undir hjá Aberdeen ● spilar fyrsta leikinn gegn celtic ▲ SÍÐA 34 Kristján Jóhannsson: ▲ SÍÐA 46 Hrapandi plötusala Kristjáns ● tvö þúsund plötur seldar fyrir jól Lögregla sá kynferðisafbrotamann fara með pilti: Ekki verður aðhafst frekar FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Me›allestur dagblaða Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004 MorgunblaðiðFréttablaðið 69% 49% Sigurbjörn Bernharðsson: Hefur náð langt á fiðlunni ● Í músíkölsku sambandi VEÐRIÐ Í DAG SNJÓKOMA EÐA ÉL FYRIR NORÐAN EN BJART MEÐ KÖFLUM SYÐRA. Frost 0-8 stig, kaldast til landsins. Sjá síðu 4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.