Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 8. janúar 2005 ALLT Á EINUM STAÐ • HEILSÁRSDEKK • OLÍS SMURSTÖÐ • BÓN OG ÞVOTTUR • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • NAGLADEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • BREMSUKLOSSAR • PÚSTÞJÓNUSTA SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 Volkswagen hefur sent frá sér kynningu og ljósmyndir af nýjum Volkswagen Passat sem frum- sýndur verður í febrúar 2005. Bíllinn hefur verið endurhannað- ur að miklu leyti og þar á meðal útlit hans, vél og h j ó l a b ú n a ð u r. Einnig hefur verið bætt í hann ýmsum tækja- búnaði til að mæta nútíma- kröfum og má þar nefna Blu- etooth-símkerfi, hágæða hljóm- flutningskerfi, rafmagnsknúinn handhemil, sjálfvirka árekstrar- vörn og nýtt loftræstikerfi. Bílinn verður hægt að fá með bensínvél eða dísilvél. Bensínvél- arnar eru fjögurra strokka FSI vélar með einsleitri beinni inn- spýtingu og skila 115, 150 og 200 hestöflum. 3,2 lítra V6 FSI-vélin skilar 250 hestöflum og verður öflugasta Passat-vélin þegar hún verður kynnt á síðasta ársfjórð- ungi 2005. Minnsta vélin með er 102 hestöfl og er eina bensínvélin sem áður hefur sést í Passat. Þrjár TDI-dísilvélar verða nú not- aðar í Passat í fyrsta sinn. Um er að ræða vélar í stærðunum 105, 140 og 170 hestöfl. Með tím- anum verða þessar dísilvélar einnig búnar d í s i l a g n a s í u . Öflugasta TDI- vélin er búin hinni nýju og háþró- uðu Piezzo-stýrðu beinu háþrýsti innspýtingu og tveimur jafnvæg- isásum og sama máli gegnir um 140 hestafla TDI-vélina. Með 105, 140 og 170 hestafla dísilvélunum er hægt að fá sex gíra sjálfskipt- ingu og hinn háþróaði tvíkúplaði DSG-gírkassi fæst með tveimur öflugustu TDI-vélunum. Síðar koma einnig á markað gerðir búnar 4MOTION aldrifinu. ■ Nýr Volkswagen Passat kynntur Í febrúar á næsta ári mun Volkswagen frumsýna nýjan Passat Aftan á hinum nýja Passat eru LED díóðuljósin áberandi einkenni en þau vísa í gerð sinni til hins hringlaga forms ökuljósanna. Samstarf um þróun blendingsvéla Daimler Chrysler og General Motors taka upp samstarf. Bílaframleið- endurnir Daim- ler Chrysler og General Motors hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf við þróun á blendingsvélum fyrir bíla. Samstarfið mun flýta fyrir þróun þess- ara véla og verða bæði bifreiðaeigend- um og umhverfinu til góða samkvæmt upplýsingum frá Daimler Chrysler. Fyrir- tækin hyggjast þróa í sameiningu vélar, rafmótora og drifbúnað fyrir allar gerðir af þeim bílum sem báðir framleiða. Um er að ræða GM, Chrysler og Mercedes Benz bíla. Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Eyðir’ann of miklu? Til að mótor virki þarf hann eldsneyti, loft og hita (sem í bensínbílum er framkallaður með rafneistum úr kertum en í dísilbílum með þjöpp- un á lofti). Með því að sjá til þess að þessi þrjú kerfi séu í lagi má oft minnka eldsneytiseyðslu, sérstaklega í bílum sem hafa verið keyrðir í 3-4 ár eða lengur. Kíkjum á nokkur einföld og ódýr atriði sem geta gert gæfumuninn: Skiptu um loftsíu ef hún er óhrein. Því betra loftflæði, því auðveld- ari vinna fyrir vélina. Einnig er hægt að fá háflæðisíur sem auka afl- nýtingu og minnka eyðslu enn meira. Gott er að setja ísvara í eldsneytið yfir vetrarmánuðina til að koma í veg fyrir rakamyndun. Vatnsþynnt eldsneyti skilar lélegri vinnslu sem kallar á meiri inngjöf og eyðslu. Eldsneytissían getur líka safnað í sig óhreinindum og ágætt er að skipta um hana til dæmis annað hvert ár. Ný kerti geta gætt vélina nýju lífi ef gangurinn er orðinn ójafn eða grófur. Kertaþræðina ætti líka að endurnýja reglulega. Gamlir þræðir flytja illa rafmagn til kertanna og koma í veg fyrir að þau geti sinnt hlutverki sínu. Nýir þræðir verða að vera í sömu lengdum og þeir gömlu og passa þarf að hver þeirra sé settur á réttan stað á kveikjunni og í rétt kerti. Nokkur önnur atriði er rétt að nefna. Allur óþarfa farangur og annað sem eykur þyngd bílsins eða loftmótstöðu (golfsett í skottinu, toppgrind, opinn gluggi o.þ.h.) eykur eyðslu. Það sama má segja um gamla mótorolíu sem smyr illa. Þá eykst viðnám núningsflata í vél- inni og orkuþörfin eykst. Það er góð regla að athuga loftþrýsting í dekkjum í hverjum mán- uði. Yfirleitt er hægt að finna kjörloftþrýsting á dekkjunum sjálfum eða í falsi bílstjórahurðar. Það borgar sig að eiga loftmæli til að halda þrýstingnum réttum allt árið um kring. Hann minnkar nefnilega í kulda en eykst í hita. Of lin dekk auka eldsneytisþörf en of hörð dekk hafa minna veggrip og eru því stórhættuleg. Að lokum má svo minna á að hægri fóturinn getur verðlaunað þig með hálfum eða heilum tank ef þú notar hann sparlega. Sleppum glannaakstrinum og notum peningana í eitthvað annað. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.