Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 40
“Sumir stappa niður fætinum, aðrir smella fingrum og enn aðrir hreyfa sig til og frá. Ég býst við að ég geri þetta bara allt í einu.“ -Elvis Presley, 1956, um hreyf- ingar sínar á sviði. F yrir sjötíu árum í dag, þann8. janúar 1935, fæddiGladys Presley tvíburasyni á heimili sínu í Tupelo Miss- issippi. Sá fyrsti fæddist andvana en hinn spriklandi og í fullu fjöri. Gladys og maður hennar Vernon Presley höfðu ekki hugmynd um að þarna væri kominn einn áhrifa- mesti tónlistarmaður heims þó langt væri leitað. Sonurinn var nefndur Elvis Aaron Presley. Fyrsti gítarinn Elvis ólst upp í mikilli fátækt. Tónlistin var stór hluti af uppeldi hans og þá sérstaklega kirkjutón- list. Auk hennar ólst hann upp við blús svartra götuspilara sem höfðu mikil áhrif á hann. Hann var aðeins 12 ára þegar honum áskotnaðist sinn fyrsti gítar. Hann hafði þó óskað sér reiðhjóls en foreldrar hans höfðu ekki efni á slíkum lúxus. Fjölskyldan flutti til Memphis og unglingurinn Elvis varð fljótt þekktur fyrir söng sinn og gítar- spil. Að sumri til, aðeins átján ára, læddist hann feiminn inn í stúdíó í Memphis, heimili Sun-plötufyrir- tækisins og tók upp prufu af lög- unum „My Happiness“ og „That’s When Your Heartaches Begin.“ Plötuna gaf hann móður sinni í af- mælisgjöf. Starfsmaður stúdíós- ins veitti þessum unga hæfileika- manni athygli og stakk upp á því við yfirmann sinn, Sam Phillips, að fá hann til þess að taka upp fleiri lög. Heitasta stjarnan Fyrsta lagið sem Elvis tók upp var lagið „That’s All Right“ eftir Arthur Crudup. Árið 1955 tók Colonel Tom Parker að sér um- boðsstarf fyrir Elvis og þá fóru hlutirnir að gerast fyrir alvöru fyrir þennan unga sjarmör. Hálfu ári síðar skrifaði hann undir samning hjá RCA plötuútgáfunni. Elvis var nú orðinn heitasta stjarnan í tónlistarbransanum. Meðal fyrstu laga sem hann tók upp fyrir RCA var lagið „Heart- break Hotel“ og Elvis heillaði alla upp úr skónum með blúsuðum söng og gífurlegri útgeislun. Lagið fór beint á topp Billboard listans, seldist í yfir milljón ein- tökum og færði honum sína fyrstu gullplötu. Í mars árið 1956 var fyrsta platan gefin út og nefndist einfaldlega Elvis Presley. Hún fór að sjálfsögðu líka beint á toppinn og var fljót að ná gullsölu. Elvis sigrar heiminn Þó svo að það virðist skrítið núna var Elvis mjög umdeildur fyrir sviðsframkomu sem mörgum þótti allt of gróf og móðgandi. Hann hafði sérstakar hreyfingar sem höfðu ekki sést áður og hristi sig og skók með tónlistinni. Eftir að hafa komið fram nokkrum sinnum í sjónvarpi var gripið til þess ráðs í þætti Ed Sullivan að sýna Elvis aðeins frá mitti og upp. Söngvarinn greip þá einfaldlega til þess ráðs að dansa meira með höndunum og efri hluta líkamans. Í ágúst 1956 hófust upptökur á fyrstu mynd Elvis, Love Me Tend- er. Að sjálfsögðu sló myndin í gegn og gagnrýnendur voru jafn- vel ekkert svo óhrifnir af frammi- stöðu Elvis sem leikara. Á þessum tíma var varningur með nafni Elvis og myndum af honum gríð- arstór hluti af þessu heljarinnar fyrirbæri sem hann var orðinn. Hattar, bolir, strigaskór, skyrtur, blússur, belti, töskur, veski, arm- bönd, hálsmen, hanskar, styttur, varalitir, rakspírar og fleira voru meðal þeirra vara sem framleidd- ar voru með hans nafni. Enn þann dag í dag heldur markaðssetning á þessum vörum áfram því eftir- spurnin hættir aldrei. Árið 1956 var því árið sem Elvis kom sá og sigraði og breytti heiminum til frambúðar. Sendur í herinn Graceland býlið keypti Elvis árið 1957 fyrir sig og fjölskyldu sína. Húsið er heimsfrægt í dag og í því er staðsett safn þar sem túristar og aðdáendur geta upplifað hinn sanna anda Elviss. Einnig er húsið þar sem goðið fæddist, í Tupelo Mississippi, opið fyrir gestum. Líf söngvarans breyttist þegar hann var kallaður í herinn þann 24. mars 1958. Í ágúst gerðist svo sá sorglegi atburður að móðir Elvis dó. Elvis var svo fluttur til Þýskalands þar sem hann kynntist tilvonandi eiginkonu sinni, Priscillu Beaulieu. Elvis var tvö ár í hernum og fékk sömu með- ferð og hver annar hermaður. Hann óttaðist þó að þegar hann kæmi aftur myndu aðdáendur hafa gleymt honum. En hann átti enn eftir að sjá stjörnu sína skína bjartar en nokkurn tíma. Á næstu árum lék hann í ótal myndum; GI Blues, Blue Hawai, Wild In The Country, Girls Girls Girls, Follow That Dream og mörgum fleirum. Presley-bíóformúlan svokallaða virtist virka; einfalt plott, skraut- legt umhverfi, nóg af Elvis-lögum og fullt af sætum stelpum. Djammaði með Bítlunum Árið 1964 fór að heyrast meira frá Bretlandi í tónlistarbransanum þegar Bítlaæðið byrjaði. Elvis var þá orðinn þreyttur á lífinu, tónlist- inni og endalausum kvikmynda- leik. Í ágúst 1965 kíktu Bítlarnir í heimsókn til Presleys í nokkra klukkutíma þar sem þeir djömm- uðu saman. Því miður hugkvæmd- ist engum að taka djammið upp með einhverjum hætti. Ferill Elvis fór nú versnandi og myndunum hans gekk sífellt verr. Priscilla og Elvis giftust árið 1967 32 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR Af öllum vítamínum, fæðubótarefnum og bætiefnum meðan birgðir endast. Tilboðin gilda í öllum verslunum Lyfju dagana 4.-8. janúar. 20afsláttur % 25% afslátturaf blóðfitumælingu Til hamingju með afmælið elsku Elvis! Konungur rokksins hefði orðið sjötugur í dag væri hann enn á lífi. Borghildur Gunnarsdóttir rakti sögu þessa frábæra tónlistarmanns og ræddi við Björgvin Halldórsson um goðið. STELPUFÁR Fljótlega eftir að Elvis fór að syngja opinberlega áttuðu stelpurnar sig á því að þarna á ferðinni var gríðarlega heill- andi maður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.