Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 20
8. janúar 2005 LAUGARDAGUR20 Mesta þarfleysan Stöð 2 var með frétt um að ekkert hefði enn- þá orðið af því að skaffa landsbyggðarþing- mönnum aðstoðarmenn eins og samþykkt var við síðustu kjördæmabreytingu. Það var aldeilis þörf á að rifja þetta þjóðþrifamál upp. Um leið kom reyndar fram að eitthvað af peningunum sem áttu að fara í þetta eru þegar komnir í umferð hjá flokkunum – eða það skildist mér á viðtali við Einar Kr. Guð- finnsson. Annars er þetta einhver mesta þarfleysa í sögu Alþingis – og er þó af nógu að taka. Þingmenn eru meira eða minna í fríi allt árið, flestir þeirra eru mjög verklitlir – það er verið að búa til vinnu fyrir þá með því að senda þá út og suður í alþjóðlegt sam- starf. Þegar þeir eru heima eru þeir svo að kokka upp mál eins og að setja fánann í þingsal, breyta þjóðsöngnum og banna aug- lýsingar á óhollum mat. Það þarf enga að- stoðarmenn í þessháttar. Egill Helgason á visir.is Ríkisstjórnin að springa? Hvenær byrjuðu menn fyrst að spá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins myndi springa? Þetta er þriðja ríkisstjórn flokkanna í röð og ég held að ég hafi alveg örugglega heyrt svona spádóma fyrst áður en fyrsta kjörtímabilið var á enda, 1999. Síðan heyrist þetta reglulega og spá- dómarnir tóku kipp eftir stólaskiptin í haust. Nú geta menn haft sínar skoðanir á þessari ríkisstjórn en ég hef aldrei skilið þessar pæl- ingar um stjórnarslit. Þeim fylgja frasar eins og „valdþreyta“, sem raunar er líka notaður í annarri merkingu og fær þá heldur meira vægi, og að „þreyta og pirringur“ sé „á stjórnarheimilinu.“ – Mér er þetta algjörlega óskiljanlegt. Öll þessi ár hefur aldrei neitt gerst sem bent hefur til yfirvofandi stjórnar- slita, ekki minnsti vottur af hættu um slíkt hefur nokkurn tíma legið í loftinu. Ágúst Borgþór Sverrisson á agust- borgthor.blogspot.com Það kom mörgum á óvart þegar Þorsteinn Pálsson, sendiherra í Kaupmannahöfn, var skipaður í stjórnar- skrárnefnd, eini nefndarmaðurinn sem er embættis- maður en ekki starfandi stjórnmálamaður. Þessi skip- an hefur ýtt undir sögusagnir um að Þorsteinn muni senn snúa heim til Íslands og til nýrra starfa. Fyrir skömmu var eiginkona hans, Ingibjörg Rafnar, ráðin umboðsmaður barna. Vinirþeirra hjóna segja þau einkar samrýnd og telja afar ólíklegt að Þorsteinn vilji búa áfram í Danmörku, aðskilinn frá konu sinni. Þorsteinn er fæddur árið 1947 á Selfossi og lauk lög- fræðiprófi frá Háskóla Ís- lands árið 1974. Um nær tíu ára skeið starfaði hann sem blaðamaður, fyrst á Morgunblaðinu og síðan sem ritstjóri Vísis. Hann varð framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands árið 1979. Margir hrifust af framgöngu hans í því starfi, hann þótti rökfastur og flytja mál sitt vel og af yfirvegun. Hann kvaddi Vinnuveitendasam- bandið árið 1983 til að ger- ast þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og formaður flokksins. Hann varð fjár- málaráðherra árið 1985 og síðan ráðherra Hagstofu Íslands og iðn- aðarráðherra. Formennska hans í Sjálfstæðis- flokknum var enginn dans á rósum. Albert Guðmundsson gekk úr flokknum, stofnaði Borgaraflokk- inn og vann glæsilegan sigur í þing- kosningum árið 1987. Fylgistap Sjálfstæðisflokks var mikið en þrátt fyrir það var mynduð ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsókn- arflokks og Alþýðuflokks. Þorsteinn Pálsson var orðinn forsætisráðherra, einungis fertugur að aldri. Ári seinna, 1988, var ríkisstjórn hans sprengd í beinni útsendingu í sjónvarpi, eins og frægt er orðið, þegar Jón Baldvin Hannibalsson og Stein- grímur Hermannsson sögðu að ekki væri hægt að halda stjórnarsamstarfinu áfram og kenndu um sam- starfserfiðleikum við Þorstein. Davíð Oddsson hirti síðan af honum formannssætið í Sjálfstæðisflokknum í hörðum kosningum á landsfundi árið 1991. Stuðn- ingsmenn Þorsteins sögðu mótframboð Davíðs ódrengilegt en stuðningsmenn Davíðs sögðu að frammistaða Þorsteins í formannsembætti hefði borið með sér að hann hefði ekki nægan pólitískan kraft til að gegna því. Kannski var Þorsteinn of ungur og reynslulaus þegar hann varð formaður og forsætisráðherra, allavega virðist sem hann hafi ekki haft til að bera næg pólitísk klókindi. Þorsteinn varð síðan sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra í ríkisstjórn Davíðs. Hann lét af ráðherraembætti árið 1999 til að verða sendiherra í London og síðan í Kaup- mannahöfn. Jón Baldvin Hannibalsson kvartaði undan því á sínum tíma að Þorsteinn væri lít- ill gleðimaður sem vildi fremur vera heima en skemmta sér með hin- um strákunum í ríkis- stjórninni. Þorsteinn er sagður dulur maður og einrænn. Sumir kvarta und- an því að hann hafi ekki næga út- geislun, virki þurr á manninn og jafnvel leið- inlegur. Þeir sem þekkja Þor- stein segja þetta rangt mat, Þor- steinn hafi kannski ekki áberandi mikla útgeislun á opinber- um vettvangi en hann hafi ákaflega hlýja og góða nærveru, eins og þeir kynnist sem um- gangist hann reglu- lega. Þorsteinn er hæverskur og hið mesta prúðmenni. Rót- tæk blómaskreytingar- kona í blómabúð hafði ekki miklar mætur á þessum ráðherra íhalds- ins en öðlaðist algjörlega nýja sýn á hann þegar hann gekk inn í búðina. Þar mætti hún kurteisum og háttvísum manni sem hún minnist enn, mörgum árum seinna, sem hins fullkomna viðskiptavinar. „Hann er seigur og lipur, orðinn yfirvegaður með árunum og lagafróður,“ segir fyrrum andstæðingur Þorsteins í pólitík, sem fagnar setu hans í stjórnar- skrárnefnd. Þorsteinn hefur staðið sig vel í sendi- herraembætti en nú er veðjað á heimkomu hans. Kunnugir telja nær útilokað að hann snúi aftur í póli- tík. Blaðamennskan kann hins vegar að heilla hann. Einhverjir eru þegar farnir að veðja á hann sem rit- stjóra Morgunblaðsins. Tíminn mun leiða í ljós hvort sú spá rætist. ■ MAÐUR VIKUNNAR Seigur og lipur ÞORSTEINN PÁLSSON SENDIHERRA TE IK N : H EL G I S IG . W W W .H U G VE R K A. IS Það er ekki að ástæðulausu að menn hafa skiptar skoðanir á vali íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins. Íslendingar fylgjast mikið með sínum íþróttamönnum, hvort sem þeir leika með einhverju neðstu deildar liði eða eru í fremstu röð í heiminum. Það þurfti ekki að koma neinum á óvart sem hefur fylgst með þessari karla- og fótboltaklíku, sem sá félagsskapur er, hver varð fyrir valinu. En mér finnst mörgum gleymast að það er himinn og jörð á milli þess að vera áhugamaður á Íslandi eða leika í enskri úrvalsdeild með 6 milljónir í laun á viku. Ég talaði um karla- og fót- boltaklíkuna sem valdi þennan frægasta Íslandsson sem íþrótta- mann ársins. Þetta eiga að heita „fréttamenn“; mér dettur í hug hvort þeir séu svo blindaðir af boltanum að þeir hafi ekki heyrt um frammistöðu Kristínar Rósar Hákonardóttur á Ólympíuleikum fatlaðra, ekki heyrt talað um þá viðurkenningu sem Sjónvarpsstöð- in Eurosport, í samstarfi við Al- þjóðaólympíuhreyfinguna (IOC), hefur frá árinu 2000 veitt til þeirra íþróttamanna í Evrópu sem skarað hafa fram úr í hinum ýmsu íþrótta- greinum. Í ár tilnefndu 28 alþjóða- sambönd alls 54 íþróttamenn vegna framúrskarandi árangurs á árinu og veittu þessir einstakling- ar viðurkenningum sínum viðtöku í hófi sem haldið var þeim til heið- urs hinn 18. október sl. í höfuð- stöðvum IOC í Lausanne í Sviss. Meðal þeirra íþróttamanna sem viðurkenningu hlutu var Kristín Rós Hákonardóttir sem var til- nefnd til þessara verðlauna af hálfu Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC) ásamt knapanum Lee Pearson frá Bretlandi en þetta var í fyrsta sinn sem fatlaðir íþróttamenn voru meðal þeirra sem viðurkenningar hljóta. Og Kristín Rós hefur ekki 6 milljónir á viku til að stunda sína íþrótt. Kristín Rós er meistari á heims- vísu, en Eiður Smári er launaður félagsmaður, sem mér vitandi hefur ekki unnið til meistaratitils í sinni grein. Formaður þessara samtaka varði þetta val af mikilli hörku á Rás 2 fyrir nokkrum dögum. Raus- aði upp úr sér tölum um hvað hefðu verið margir ófatlaðir í Aþenu og síðan hvað fáir fatlaðir. Honum láðist að geta hve margir ófatlaðir afreksmenn í íþróttunum eru í heiminum, ef það er þá til nokkur tala um það, og hvað marg- ir af þeim komast á Ólympíuleik- ana! Ég hef það á tilfinningunni að þegar öll kurl koma til grafar þá sé hlutfallið fötluðum ekki í óhag. Þeirra sigrar hafa verið, að margra mati, margfaldir á við sigra ófatlaðra, sem eiga þó allt gott skilið. En þekking og hlutleysi „karla- og fótboltaklíkunnar“ sem ég hef áður leyft mér að kalla svo er nátt- úrlega miklu meiri og vísari en samherjar þeirra sem velja fyrir hönd Alþjóðaólympíuhreyfinguna (IOC) og Alþjóðaólympíuhreyfing- ar fatlaðra (IPC) Það skal tekið fram svo ekki gæti misskilnings að Eiður Smári er afbragðs íþróttamaður og ör- ugglega drengur góður og þessar línur eru ekki skrifaðar honum til hnjóðs, en það hefði átt að velja hann á öðrum vettvangi. ■ Íþróttafréttamenn ekki traustsins verðir Endurskoðun stjórnarskrárinnar Nálgun forsætisráðherra í þessu máli, þ.e. að binda endurskoðunina [á stjórnar- skránni] einkum við þá kafla hennar sem fjalla um forseta Íslands, ríkisstjórn og dómsvaldið er nokkuð athyglisverð. Sérstak- lega er hún athyglisverð í ljósi umræðunnar á undanförnum misserum. Í þeirri umræðu hefur mikið verið rætt þjóðaratkvæða- greiðslur, þ.e. hvort fella eigi út svonefndan málskotsrétt forseta og setja inn ákvæði þar sem tiltekinn hluti kosningabærra manna getur krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvörp sem Alþingi hefur samþykkt. Afar líklegt er að ákvæði þess efnis að ákveðinn hluti kosningabærra manna, eða ákveðinn hluti þingmanna, geti krafist þjóð- aratkvæðagreiðslu, muni ekki verða í I., II. eða V. kafla stjórnarskrárinnar. Slík ákvæði eiga heima í III. kafla stjórnarskrárinnar þar sem fjallað er um kosningar til Alþingis, eða þá IV. kafla hennar þar sem fjallað er al- mennt um Alþingi, þ.e. starfskipan o.fl. Í dönsku stjórnarskránni er að finna ákvæði um að þriðjungur þingmanna geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um samþykkt laga- frumvörp. Þetta á reyndar ekki við um öll frumvörp, t.d. ekki um fjárlög, skattalög o.fl. Ákvæði þetta er í þeim kafla dönsku stjórn- arskrárinnar sem fjallar um þingið, þ.e. sem samsvarar IV. kafla í íslensku stjórnar- skránni. Af ofangreindu má líklega ráða að ef einlægur vilji stendur til þess að setja í ís- lensku stjórnarskrána ákvæði um heimildir borgaranna, eða minnihluta þingmanna, til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um ein- stök samþykkt lagafrumvörp þá geti endur- skoðun á henni ekki aðeins miðast við I., II. og V. kafla hennar. Hugsanleg ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu eiga nefnilega heima í III. eða IV. kafla hennar. Arnar Þór Stefánsson á deiglan.com Allt að verða uppselt Seltjarnarnesið er ... landminnsta sveitarfé- lagið á Íslandi, aðeins um 2 ferkílómetrar að flatarmáli og fyrsta sveitarfélagið sem kemst í þá nýstárlegu og merkilegu stöðu að allt er að verða „uppselt“, þ.e. reitir sem eru eftir til að byggja á eru að verða fullnýttir. Þessi ný- stárlega staða krefst þess því enn frekar en ella að bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi nái sátt við íbúana um síðustu möguleikana á uppbyggingu og að afar vel takist til. Að því verki verða forystumenn í bæjarstjórninni að koma með opnum huga. Siv Friðleifsdóttir á siv.is AF NETINU AF NETINU ELMA GUÐMUNDSDÓTTIR NESKAUPSTAÐ SKRIFAR UM VAL Á ÍÞRÓTTAMANNI ÁRSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.