Fréttablaðið - 08.01.2005, Page 2
SPURNING DAGSINS
Auðveldlega
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar-
sambandsins, gagnrýnir Impregilo fyrir að virða
ekki starfsréttindi, ökupróf og vinnuvélaréttindi.
Sýslumaður á Seyðisfirði virðist eiga að líta fram-
hjá því. Kínverskir starfsmenn þurfi ekki í læknis-
skoðun áður en þeir hefji störf. Verkalýðsfélög hafi
ekki heimild til að sjá til þess að reglum sé fylgt.
Guðmundur, sé miðað við
starfshætti á Kárahnjúkum,
getið þið þá ekki bara verið
löggur og læknar líka?
2 8. janúar 2005 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Tíðni kransæða-
sjúkdóma hefur verið á niðurleið á
síðustu árum og einkum áratugum,
að sögn Vilmundar Guðnasonar
yfirlæknis hjá Hjartavernd.
Dánartíðni af völdum krans-
æðastíflu hefur lækkað um meira
en helming meðal karla og um
meira en þriðjung meðal kvenna,
að því er fram kemur í tímaritinu
Hjartavernd. Um er að ræða
tímabilið frá 1981 – 2001 og fólk í
aldurshópnum 25 – 74 ára.
Enn fremur kemur fram, að ný-
gengi sjúkdómsins, það er hlut-
fallslegur fjöldi þeirra sem hefur
veikst á hverju ári hefur lækkað
álíka mikið. Mest hefur þessi lækk-
un orðið í yngri aldursflokkunum.
Þannig hefur dánartíðni og ný-
gengi kransæðastíflu meðal karla
yngri en 40 ára lækkað um meira
en 70 prósent á þessu tímabili.
Ástæða þessarar þróunar er
sögð sú, að allir helstu áhættu-
þættir hjarta- og æðasjúkdóma
hafi færst mjög til betri vegar
meðal þjóðarinnar.
Vilmundur sagði, að þróunin í
lækkun á tíðni þessara sjúkdóma
hefði að líkindum verið hægari á
síðustu tveimur árum heldur en
áður. Það stafaði trúlega af því að
menn væru búnir að ná þeim
árangri sem hægt væri með þeim
aðferðum sem beitt væri í dag. - jss
Samþykkir 150
milljóna stuðning
Ákveðið var að hækka framlag Íslands vegna náttúruhamfaranna í Asíu í 150
milljónir króna. Stuðningurinn er bundinn ákveðnum verkefnum.
HAMFARIR Ríkisstjórn Íslands
ákvað á fundi sínum í gær að
hækka framlag Íslands til bág-
staddra þjóða við Indlandshaf í
150 milljónir. Inni í þeirri tölu eru
nokkur framlög sem þegar höfðu
verið ákveðin. Framlaginu er
ætlað til neyðaraðstoðar og end-
uruppbyggingar.
„Þetta er myndarleg viðbót við
það sem almenningur hefur látið
af hendi rakna“, segir Þórir
Guðmundsson, upplýsingafulltrúi
Rauða Kross Íslands. „Þetta fé
mun nýtast í hjálparstarfi ekki að-
eins á næstu vikum og mánuðum
heldur árum enda
mikið verkefni
framundan í upp-
byggingu á stóru
svæði.“
Þegar hafði
verið veitt 5 millj-
ónum króna til
Rauða Krossins
en samkvæmt
samþykktinni er 6
milljónum bætt
við. Þá er inni í
tölunni hjálpar-
flug til Taílands í
byrjun árs þar sem slasaðir Svíar
voru fluttir til síns heima sem
kostaði 35 milljónir króna. 25
milljóna króna þróunaraðstoð við
Sri Lanka sem þegar hafði verið
ákveðið að Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands hæfi á árinu.
Bætt er við 50 milljóna króna
aukaframlagi í þróunaraðstoð og
enduruppbyggingarstarf á Sri
Lanka.
Þá var samþykkt 10 milljóna
króna framlag til Matvælaáætlun-
ar Sameinuðu þjóðanna, 10 millj-
ónir króna til Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, 4 milljónir
króna til Barnaheilla á Íslandi og
5 milljónir króna til Hjálparstarfs
kirkjunnar.
Á sama ríkisstjórnarfundi var
samþykkt að hækka framlag
Íslands til Alþjóðaframfarastofn-
unarinnar (IDA) um 30% þannig
að framlag Íslands á árunum 2006
– 2008 verði samtals 616 milljónir
króna. IDA veitir styrki og vaxta-
laus lán til fátækustu ríkja heims
og gegnir stóru hlutverki í styrk-
veitingu og veitingu lána til ríkja
á því svæði þar sem náttúruham-
farirnar áttu sér stað.
a.snaevarr@frettabladid.is
Fuglaveiki:
Ferðamenn
veri á verði
HEILBRIGÐI Fólk sem ferðast til
Asíu er beðið um að vera á varð-
bergi gagnvart fuglaflensu.
„Aðvörun okkar hefur verið
að menn eigi að forðast að vera í
námunda við fiðurfé og þvo sér
vel um hendurnar,“ segir Har-
aldur Briem sóttvarnalæknir.
Á Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur er fólki til dæmis bent á
að vera ekki á mörkuðum þar
sem fuglum er slátrað og þeir
seldir. Í lagi sé að borða fugla-
kjöt sé það vel soðið. Ekki sé
ástæða til að hætta við ferðir
vegna fuglaveiki.
- gag
HUGH ORDE
Yfirlýsing yfirmanns lögreglunnar
hefur vakið hörð viðbrögð.
Norður-Írland:
IRA sakað
um bankarán
NORÐUR-ÍRLAND, AP Hugh Orde,
yfirmaður lögreglunnar í Norður-
Írlandi, sakar Írska lýðveldisher-
inn (IRA) um að hafa staðið á bak
við bankaránið í Belfast 20. des-
ember þegar um þremur milljörð-
um króna var stolið.
Írski lýðveldisherinn þver-
tekur fyrir þetta og forsvarsmenn
Sinn Fein, hins pólitíska arms
Írska lýðveldishersins, taka í
sama streng. Ummæli Orde hafa
vakið hörð viðbrögð og hafa sum-
ir tekið svo djúpt í árinni að segja
að þau skaði tilraunir stjórnvalda
í Bretlandi og Írlandi til að koma á
friði. Orde neitar að láta draga sig
inn í pólitíkina í kringum málið.
Hann segist hafa sterkan grun um
að IRA standi að baki ráninu.
Lögreglan hefur enn ekki
handtekið neinn vegna ránsins
þrátt fyrir ítarlega leit í Belfast. ■
Verkjalyf:
Allt að 60%
verðmunur
NEYTENDUR Verðmunur algengra
verkjalyfja í apótekum er allt að
sextíu prósent. Neytendasamtök-
in athuguðu verð á þrettán verkja-
lyfjum í níu apótekum á Akureyri
og Reykjavík á miðvikudaginn.
Verðmunur var minnstur tæp-
lega þrjátíu prósent en mestur um
sextíu prósent. Rimaapótek í
Reykjavík bauð oftast lægst verð
eða sex sinnum. Laugarnesapótek
í Reykjavík var tíu sinnum með
hæsta verð.
Væru allar þrettán vöruteg-
undirnar keyptar væri verðmun-
urinn tæplega 34 prósent milli
dýrasta og ódýrasta apóteksins.
- gag
ÁREKSTRAR Á AKUREYRI Fjórir
árekstrar urðu á Akureyri
fyrripart gærdags. Lögreglan á
Akureyri segir tjónið mismikið
en engan hafa slasast. Sumir bíl-
anna hafi verið vanbúnir í vetrar-
færðinni. Hún hvetur
bifreiðaeigendur að setja bílana á
nagladekk.
OF HRAÐUR AKSTUR Í HÁLKU
Ökumaður var tekinn við akstur á
áttatíu kílómetra hraða í fljúgandi
hálku á Dalvík. Leyfilegur há-
markshraði þar er fimmtíu. Lög-
reglan hafði nýlega hafið
vegaeftirlit þegar maðurinn náðist.
■ AFRÍKA
,, Þetta fé
mun nýtast
í hjálpar-
starfi ekki
aðeins á
næstu vik-
um og
mánuðum
heldur
árumELDUR Í RUSLATUNNUM SKÓLA
Tvisvar á tveimur dögum hefur
verið kveikt í rusli í sorpgám-
um við skóla í Keflavík. Í gær
var slökkvilið kallað að leik-
skólanum Garðaseli. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn. Á
fimmtudagskvöld logaði í sorp-
gámi við Holtaskóla í Keflavík.
Lögreglan í Keflavík telur að
fjórir til sex piltar hafi verið
þar að verki. Þeir hafi sést á
hlaupum á þeim tíma sem elds-
ins varð vart.
Skattamál:
100 milljóna
álagning
SKATTAR Börn Pálma heitins í Hag-
kaup og ekkja hans hafa
fengið endurálagningu skatta upp
á um 15-20 milljónir á mann vegna
samruna Hagkaupa og Bónuss á
sínum tíma. Þetta gera samtals
tæpar 100 milljónir króna.
Endurálagningin er til komin
vegna ágreinings ríkisskattstjóra
og endurskoðenda Hofsfjölskyld-
unnar um aðferðir við endurskoð-
un. Lilja Pálmadóttir býst við að
álagningunni verði áfrýjað fyrir
hennar hönd.
„Okkar endurskoðendur unnu
þetta á sínum tíma í góðri trú.
Svona endurálagning er rútína hjá
ríkisskattstjóra. Það eina sem er
fréttnæmt er að upphæðirnar eru
kannski hærri en gengur og
gerist. Yfirskattanefnd leysir
ágreining af þessu tagi.“ - ghs
14 stöðvar
■ LÖGRELGUFRÉTTIR
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Grunur um skipulagða glæpastarfsemi:
Eþíópíumenn
áfram í haldi
GÆSLUVARÐHALD Gæsluvarðhaldi
yfir þremur Eþíópíumönnum var
framlengt um viku í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Einn þeirra er
sænskur ríkisborgari en hinir
voru með sænsk vegabréf, sem
voru í eigu annarra, þegar þeir
komu til landsins rétt fyrir ára-
mót.
Sænski ríkisborgarinn er grun-
aður um að standa að skipulagðri
glæpastarfsemi með því að að-
stoða útlendinga við að komast á
milli landa.
Fólkið var á leið til Baltimore í
Bandaríkjunum þegar það var
handtekið í Leifsstöð. Vegabréf
tveggja þeirra reyndust ekki vera
í eigu þeirra. Flugfar fólksins var
bókað af sama manninum og
greitt var fyrir þau með sama
greiðslukortinu. Sá sem er grun-
aður um glæpinn hefur áður farið
til Baltimore í gegnum Ísland með
öðrum manni. Sá mætti hins veg-
ar ekki í flug sem hann átti bókað
til baka og virðist því hafa orðið
eftir einhvers staðar í Bandaríkj-
unum.
Upplýsingar frá landamæra-
lögreglu í Svíþjóð staðfesta að
maðurinn hefur á síðastliðnum
fimm mánuðum fengið útgefin að
minnsta kosti þrjú vegabréf og í
júlí var manni er bar vegabréf
hans vísað frá Þýskalandi af
þarlendum yfirvöldum.
- hrs
ÚTIVIST
Hreyfing og útivist eru mikilvæg vopn í
baráttunni gegn hjarta- og kransæðasjúk-
dómum
Þróun tíðni kransæðastíflu á 20 ára tímabili:
Ört lækkandi dánartíðni
UNGUR DRENGUR BAÐAÐUR Á SRI LANKA
Ríkisstjórn Íslands stórjók framlög ríkisins til bágstaddra á fundi sínum í gær.
MISNOTUÐU KONUR OG STÚLKUR
Friðargæsluliðar Sameinuðu
þjóðanna misnotuðu konur og
stúlkur kynferðislega í Kongó
samkvæmt nýrri skýrslu Sam-
einuðu þjóðanna sem gerð var
opinber í gær. Friðargæslu-
liðarnir þvinguðu konur og
stúlkur til kynmaka í skiptum
fyrir mat eða peninga.