Fréttablaðið - 08.01.2005, Síða 25

Fréttablaðið - 08.01.2005, Síða 25
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 232 stk. Keypt & selt 31 stk. Þjónusta 32 stk. Heilsa 15 stk. Skólar & námskeið 4 stk. Heimilið 23 stk. Tómstundir & ferðir 4 stk. Húsnæði 35 stk. Atvinna 25 stk. Tilkynningar 7 stk. Banki allra landsmanna410 4000 | landsbanki.is 4,15%Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 67 26 12 /2 00 4 Góðan dag! Í dag er laugardagurinn 8. jan., 8. dagur ársins 2005. Reykjavík 11.09 13.35 16.01 Akureyri 11.18 13.19 15.21 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Draumabíll Skarphéðins Þráinssonar komst í hendur hans árið 1991 en þurfti þó talsverða meðhöndlun. „Pontinn hefur því varla verið sýnilegur síðustu 14 ár, en fór þó á sína fyrstu bíla- sýningu á Egilsstöðum sumarið 2003, en svo fær hann að kíkja út á bestu sólar- dögum sumarsins,“ segir Skarphéðinn um Pontiac Firebird 1970 bílinn sinn sem geng- ur undir nafninu Pontinn sem geymdur er nú í góðu skjóli úti á landi. „Ég hef alla tíð verið með króníska dellu fyrir amerískum bílum og á þeim tíma sem ég keypti Pontann var þetta klárlega komið út í trúarbrögð. Þetta var í þá daga þegar lífið snerist að stórum hluta um að rúnta, tvö skilyrði man ég að réðu ríkjum, annað hvort að vera með góðar græjur í bílnum, eða vera með mótor sem gaf frá sér almennilegt hljóð,“ segir Skarphéðinn og hlær en bílinn gerði hann svo upp, málaði á hann örn og eldtungur og er hann ótrúlega fallegur. „Við uppgerðina var leitast við að halda sem mest í upprunalega eiginleika bílsins, en þó var sett undir hann 12 bolta hásing í stað 10 bolta og drifskaft endursmíðað með sverari hjöruliðum, ásamt ýmsum smáat- riðum sem með lítilli fyrirhöfn er hægt að breyta aftur í upprunalegt horf,“ segir Skarphéðinn sem lýsir því hvernig hver einasti hluti bílsins var skrúfaður í sundur og yfirfarinn enda hafi ansi mikið verið slitið í bílnum og sem þurfti að gera við eða endurnýja. „Málningarvinnuna fékk ég góða aðstoð við, en strákarnir í Bílamálun máluðu hann. Þetta var auðvitað mikil tilraunamennska og ákveðin áhætta í kjölfarið, en ég er mjög ánægður með hann og vafalaust mesta listaverk sem komið hefur frá strákunum,“ segir Skarphéðinn og tekur fram að Árni Björnsson bílamálari hafi málað örninn sem prýðir húddið. En myndasyrpu um uppgerð bílsins má sjá á eftirfarandi slóð, www.internet.is/skarpi. „Þetta var svo sannarlega draumabíllinn minn, Amerískur sportbíll með V8 mótor! Hvaða 19 ára strák dreymir ekki um það? Ég held að þetta verði ekki síður draumur þegar ég verð kominn með gráa fiðringinn, þá er nú gott að geta skroppið á rúntinn,“ segir Skarphéðinn. ■ Alger draumabíll bilar@frettabladid.is Hyundai setti nýtt sölumet hér á landi árið 2004 með samtals 788 selda bíla eins og kemur fram á vef- síðu B&L, bl.is. Sala bílategund- arinnar hefur því aukist um tæp þrettán prósent milli ár- anna 2003 og 2004. Mest seldist af Santa Fe, eða 280 eintök, og 214 eintök af fimmdyra smábíln- um Getz. Í þriðja sæti var sjö- manna fjölskyldubíllinn Trajet sem seldist í tæplega 80 eintök- um. Toyota Yaris var söluhæsti bíll ársins 2004 þegar árið var gert upp eins og kemur fram á vef- síðu Toyota á Íslandi, toyota.is. Alls seldust 792 eintök af Yaris en næst á eftir honum kom Toyota Corolla með 769 eintök. Fimm Toyota bifreiðar eru á listanum yfir tíu söluhæstu bílana árið 2004. Alls seldust 3.199 Toyota fólksbílar á síðasta ári sem sam- svarar 26,7 prósenta markaðs- hlutdeild. Næst á eftir kom Volkswagen með 1071 bifreiðar og 8,9 prósent markaðshlut- deild og síð- an Ford með 936 bifreiðar og 7,8 pró- sent markaðshlutdeild. Volkswagen er söluhæsti vinnubíll síðasta árs en á árinu seldi Hekla alls 349 Volkswagen og Caddy Transporter bifreiðar. Hekla er nú með 22,81 prósenta markaðshlutdeild á vinnu- bílamarkaði en sala á Volkswagen vinnubílum jókst um 140 prósent frá árinu á und- an. Hekla hefur enn fremur feng- ið nýjan Caddy í sölu sem er með gíraffalúgu en hún opnar aftur- rými bílsins út frá þaki. Það auð- veldar allan flutning á alls kyns vörum. Dekkjaframleiðandinn Bridgestone er um þessar mundir að endurskoða starfsemi sína í Evrópu en Bridgestone er stærsti dekkjaframleiðandi heims. Markmið með þessari endurskoð- un er að auka framleiðnina en gert er ráð fyrir fimmtíu prósenta söluaukningu á öryggisdekkjum á þessu ári. Bridgestone rekur nú fimm verksmiðjur í Evrópu með tíu þúsund starfsmönn- um. Þrjár verksmiðjur eru á Spáni, ein í Frakklandi og ein í Póllandi en velta fyrirtækisins í Evrópu er um 12,5 prósent af heildarveltu í heiminum. Skarphéðinn Þráinsson með mynd af bílnum sínum sem hann hefur í geymslu úti á landi yfir veturinn. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU fyrir bílinn FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Í dag gengum við framhjá lokaðri kirkju. Er Guð enn í jólafríi? Nýr Passat að koma BLS. 3 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Aldrei hafa selst fleiri BMW bifreið- ar hér á landi og í fyrra eða samtals 143. Til saman- burðar má nefna að á Audi var sal- an 110 bif- reiðar, á Lex- us 98 og af Mercedes Benz seldust 23. Þá átti BMW jafnframt mestu söluaukninguna á milli ára eða 68%, og átti því einnig mestu hlutfallslegu aukninguna á milli áranna 2003 og 2004 í flokki úrvalsbíla. Á þessu sama tímabili jókst salan til að mynda á Audi um 29,5% en dróst sam- an um 34,5% á Mercedes Benz og um 2% á Lexus. Að sögn Karls Óskarssonar, sölustjóra BMW hjá B&L, var nýi X5 jeppinn söluhæstur ásamt 3 línunni með yfir 90 seld eintök. „Jafnframt seldum við vel af nýju 5 línunni og nýja X3 jeppanum eða um 40 eintök samtals. Þá fór nýja 1 línan afar vel af stað hjá okkur undir lok ársins.“ ■ Pontiac Firebird, árgerð 1970, sem Skarphéðinn Þráinsson gerði upp. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. BMW aldrei selst betur Um 68% söluaukning frá því í fyrra

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.