Fréttablaðið - 19.01.2005, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 19. janúar 2005 13
Þokkaleg loðnuvertíð fram að þessu:
Biðu í sólarhring eftir að fá að landa
SJÁVARÚTVEGUR Háberg GK, skip
Samherja, landaði 1.150 tonnum
af loðnu í Grindavík í gærmorgun.
Loðnan er sú fyrsta sem landað
er í Grindavík á árinu, samkvæmt
vef Samherja. Þar segir að hún sé
stór og góð og fari öll í bræðslu.
Þorsteinn Símonarson, skip-
stjóri Hábergs, segir loðnuna hafa
veiðst á flottroll á Seyðisfjarðar-
dýpi. Um 34 tíma hafi tekið að
sigla til Grindavíkur frá miðun-
um.
Samherji hefur keypt skipið
Högaberg sem einnig er á loðnu-
veiðum, og leigt Seley ÞH sem á
að flytja hráefni frá vinnsluskip-
unum.
- gag
HORST KOEHLER
Þetta verður í annað sinn sem ísraelska
þingið verður ávarpað á þýsku.
Ísraelskir þingmenn:
Vilja ekki
heyra þýsku
JERÚSALEM, AP Nokkrir ísraelskir
þingmenn eru uggandi yfir vænt-
anlegri ræðu sem Horst Koehler,
forseti Þýskalands, ætlar að flytja
á þýsku í ísraelska þinginu 2.
febrúar. Þeir segja að það gæti ýft
upp sár þeirra sem lifðu af helför-
ina. Koehler mun ávarpa þingið í
tilefni þess að 40 ár eru liðin síðan
formleg tengsl mynduðust milli
ríkjanna.
Nokkrir þingmenn hafa hótað
að sniðganga athöfnina og segja
hana móðgun við fórnarlömb
helfararinnar og að það sé ekki
tímabært að þýska fái að heyrast
innan veggja þingsins. Þetta verð-
ur þó ekki í fyrsta sinn sem forseti
Þýskalands ávarpar þingið því
hann gerði það líka árið 2000. ■
AUGLÝSINGUM KOMIÐ UPP
Stuðningsmenn allra frambjóðenda í kosn-
ingunum í Írak vinna nú hörðum höndum
að því að koma kosningaáróðrinum áleiðis.
Danski herinn:
Heim eftir
rúmt ár
JYLLANDS-POSTEN, DANMÖRK Verk-
efnum dönsku herdeildarinnar
verður líklega lokið á næsta eina
og hálfa ári. Þetta hefur Jyllands-
Posten eftir yfirmanni deildarinn-
ar, ofurstanum John Dalby. Hann
segir það sitt að íraska stjórnin
muni ekki fara þess á leit við
dönsk stjórnvöld að herdeildin
verði áfram í landinu þegar hún
hafi lokið verkefnum sínum.
Þá vísar hann því á bug að
ringulreið muni ríkja í Írak í
kringum kosningarnar 30. janúar.
Þær aðgerðir sem fréttist af þessa
dagana séu aðgerðir öfgamanna
sem eru á örvæntingafullan hátt
að reyna að koma í veg fyrir
framkvæmd kosninganna, sem
muni færa Írak nær lýðræði og
myndun ríkisstjórnar.
Danmörk er á lista hinna stað-
föstu þjóða. ■
SJÁVARÚTVEGUR Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Síldar-
vinnslunnar, segir að loðnuver-
tíðin hafi verið þokkaleg hingað
til en ekki sé mikill kraftur í
henni þessar tvær vikur sem af
er.
Hákon frá Grenivík er ný-
kominn úr túr í gær og var að
gera klárt fyrir frystingu á síð-
ustu 200 tonnunum af loðnu
fyrir Rússlandsmarkað. Áður
hafði hann verið einn sólarhring
úti á firðinum að frysta og bíða
eftir að komast að bryggju.
„Það er ekkert of mikið pláss
hérna í höfninni. Hún er orðin
alltof lítil. Hún var dýpkuð að-
eins en það er ekki nóg,“ sagði
Oddgeir Jóhannsson skipstjóri.
Um borð í Hákoni var búið að
frysta hátt í 1.400 tonn í tveimur
túrum. Oddgeir sagði að um 700
tonn hefðu farið í frystilestina
og svo hefði eitthvað farið í gú-
anó. Tækin hefðu verið biluð og
frystingin því gengið erfiðlega.
„Þetta hefur verið ágætt. Við
höfum bara veitt eins og tækin
leyfa,“ sagði hann.
- ghs
SKIPSTJÓRINN Á HÁKONI
Oddgeir Jóhannsson segir höfn-
ina í Neskaupstað alltof litla.
LANDAÐ ÚR HÁBERGI GK
Vel gengur á loðnuveiðum hjá skipum
Samherja. Fyrirtækið keypti skip í Færeyj-
um í síðustu viku sem þegar hefur hafið
veiðar. Það leigði einnig skip í Grindavík
sem flytja á afla af miðunum.
Landað í Grindavík:
Stór og góð loðna á land