Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.01.2005, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 19.01.2005, Qupperneq 19
3MIÐVIKUDAGUR 19. janúar 2005 S Í M E N N T U N Listir og menning 2005 Innri tun fer f ram á Grensásvegi 16A, í s íma 580 1800 e›a á heimasí›unni www.mimir . is - Vesturfararnir - Madrid í máli og myndum - Marokkó, saga og menning - Sakamálasögur - Leiklistarnám - Menning Araba - Söngnámskei› - Teikning - Myndlist - Vatnslitamálun - Olíumálun - Akr‡lmálun - Leirlist - Glermótun - Myndlist fyrir börn - Leiklist fyrir börn 6-12 ára Ei n n t v ei r o g þ r ír 4 .1 21Eitthvað við allra hæfi Anne hafði dreymt um að koma til Íslands lengi og lét drauminn rætast síðasta haust. Fer í Bónus á íslensku Anne Toija er 22 ára finnsk stúlka sem nemur okkar ástkæra ylhýra við Háskóla Íslands. Það hefur verið draumur hennar lengi að heimsækja landið okkar. „Mig hefur langað að koma til Ís- lands lengi. Það hefur verið eins konar þráhyggja. Ég hef lært tals- verða sænsku og hélt að ég gæti tengt íslenskuna við það. En aðal- lega var það áhuginn sem kom mér hingað og leit ég á þetta sem skemmtilega áskorun. Ég hef alls ekki orðið fyrir vonbrigðum. Það er alls ekki ólíkt Finnlandi en ég læri samt eitthvað nýtt á hverjum degi. Til dæmis skil ég ekki af hverju fólk hendir jólatrjánum sínum út á götu,“ segir Anne og hlær dátt en bætir við að henni finnist gott að búa í miðbænum en Anne býr á gistiheimili með nem- endum af ýmsum þjóðernum. Anne er í fullu námi við Há- skólann en meðfram íslensku- náminu tekur hún einnig áfanga í ensku og sænsku. „Ég ætlaði bara að vera eina önn fyrst en síðan var ég svo hrifin af landi, þjóð og tungu að ég ákvað að vera líka vorönnina. Ég er líka ekki búin að læra málið almennilega. Ég get farið í Bónus á íslensku en það eru viss takmörk þegar maður lærir annað tungumál. Ef ég myndi þora að tala meira þá væri ég örugglega búin að læra meira, en ég dett oft í að tala ensku því það er auðveldara. Ég veit samt ekki enn hvort ég vil halda áfram í íslenskunámi eftir næsta sumar en það væri gaman að fá gráðu.“ Námið á Íslandi er aðeins öðru- vísi en í Finnlandi að sögn Anne „Hér eru miklu meiri heimaverk- efni og nemendur þurfa að vinna meira sjálfstætt. Síðan verð ég að mæta í tíma ef ég vil læra eitt- hvað því maður missir talsvert úr ef maður mætir ekki í tíma. Ein- ingakerfið er líka öðruvísi og fæ ég fleiri einingar hér en í Finn- landi. En það er ekkert líkt með íslensku og finnsku. Gjörsamlega ekki neitt,“ segir Anne en flestir tímarnir hennar eru á íslensku. „Á síðustu önn töluðu kennararn- ir sambland af íslensku og ensku. En þeir töluðu íslensku mjög hægt þannig að það var auðvelt að skilja. Stundum sat ég reyndar og skildi ekki baun og þurfti að spyrja fólk við hliðina á mér hvað var að gerast. Þessi önn virðist vera miklu erfiðari. Við þurfum að lesa heila bók á íslensku. Ég hef ekki hugmynd hvernig ég fer að því. Ég held ég velji mér bara barnabók,“ segir Anne og glottir. lilja@frettabladid.is ,,Við ætlum fjórar vinkonur saman aftur og aftur! Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“ Sumarnámskeið fyrir skapandi börn, eldri og yngri, keramik, teikning, málun - allt innifalið - litlir hópar. Aðeins 8500 kr. vikan! Skráning í Keramik fyrir alla, sími 552 2882, Laugavegi 48b. Sjá lýsingu: www.keramik.is Hvað segja börnin um námskeið í Keramik fyrir alla? Barnanámskeið Keramik fyrir alla, 6 vikna námskeið fyrir 6 -15 ára hefjast vikuna 23. - 29. jan. Teikniæfingar og eigin mynstur máluð á keramik. Námskeiðsgjald kr. 8.500. - Allt innifalið. Hagnýtt tveggja anna nám samhliða starfi Útskrift frá Fræðslumiðstöð sparisjóðanna. Sautján nemendur útskrifuðust frá Fræðslumiðstöð sparisjóð- anna á dögunum. Allir höfðu þeir lokið sérhæfðu viðskipta- námi á háskólastigi sem ætlað er stjórnendum sparisjóðanna um land allt. Um er að ræða hagnýtt tveggja anna nám sam- hliða starfi, Sparnám II, sem Fræðslumiðstöð sparisjóðanna býður í samvinnu við Háskólann í Reykjavík. Markmið námsins er að auka þekkingu og hæfni nemenda á sviði stjórnunar- fræða, fjármála og markaðs- mála. Nemendurnir sem út- skrifuðust höfðu lokið tveggja anna grunnnámi, Sparnám I, sem byggir einnig á samstarfi Fræðslumiðstöðvarinnar og Há- skólans í Reykjavík. Hér sjást útskriftarnemendurnir ásamt Gísla Jafetssyni, markaðsstjóra sparisjóðanna og Þór Clausen frá Háskólanum í Reykjavík. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.