Fréttablaðið - 19.01.2005, Side 25

Fréttablaðið - 19.01.2005, Side 25
9 TIL SÖLUTILKYNNINGAR FASTEIGNIRTILKYNNINGAR TILKYNNINGAR Þorrablót Ólafsfirðingafélagsins verður haldið laugardaginn 22. janúar í Dugguvogi 12, miðar seldir fimmtudaginn frá 20.30 – 21.30 á sama stað. Stjórnin. Spennandi og skemmtilegt störf með fötluðum einstaklingum Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa og þroskaþjálfa á heimili fólks með fötlun. Um er að ræða vaktavinnu í ýmsum starfshlutföllum. Við erum að leita að starfsfólki í Dimmuhvarf í Kópavogi og Svöluás í Hafnarfirði. Jafnframt leitum við að starfsfólki á fleiri heimili í Kópavogi og Hafnarfirði sem og í Garðabæ og Mosfellsbæ. Gefandi og áhugaverð störf sem vert er að skoða nánar. Sjá má nánari upplýsingar um störfin á eftirfarandi heimasíðum: http://www.smfr.is og http://www.starfatorg.is Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2005. LANDFYLLINGAR VIÐ GUFUNES Í REYKJAVÍK Mat á umhverfisáhrifum – úrskurður Skipulagsstofnunar Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif- um. Fallist er á, með skilyrði, gerð landfyllinga við Gufunes í Reykjavík. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 16. febrúar 2005. Skipulagsstofnun Stuðningsfjölskyldur óskast Félagsþjónustan í Reykjavík er í samvinnu við marga einstaklinga, sem taka reglubundið börn til dvalar á heimili sín. Reynslan hefur sýnt að stuðn- ingsfjölskyldurnar vinna öflugt forvarnarstarf til að tryggja og viðhalda festu og öryggi í lífi þeirra barna sem til þeirra koma. Um er að ræða helgardvöl, t.d. eina helgi í mánuði eða eftir nánara samkomulagi. Æskileg búseta er Reykjavík og nágrannasveitarfélög. Greitt verður samkvæmt verktakasamningi Nánari upplýsingar gefur Harpa Rún Jóhannsdóttir, forstöðu- maður Félags-og þjónustumiðstöðvarinnar Vesturgötu 7 í síma 535-2740, netfang:harpa.run.johannsdottir@reykjavik.is Melhagi - glæsileg Vorum að fá í sölu mjög fallega og mikið standsetta 4ra herb. rishæð í einu af þessum virðulegu húsum í vesturbænum. Franskir gluggar eru í íbúðinni. Svalir til suðurs. Eftirsótt staðsetning. Verð 20,5 millj. 4689. Hagamelur Vorum að fá í sölu mjög fallega 2ja herb. íbúð á jarðhæð í fjölbýlis- húsi við Hagamel. Íbúðin skiptist í rúmgóða stofu, eldhús, herbergi, baðherbergi og hol með skápum. Úr stofu er gengið út í garð. Björt og falleg íbúð. Stór afgirtur garður. Verð 12,6 millj. 4688. Klapparstígur - með bílageymslu Vorum að fá í einkasölu mjög fallega 2ja herb. íbúð á 1. hæð í lyftu- húsi. Íbúðin snýr að mestu leyti til suðurs og er mjög björt. Búið er að leggja ljósleiðara í húsið. Gervihnattadiskur. Íbúðinni fylgir merkt stæði í bílageymslu. Verð 15,3 millj. 4644. Digranesvegur - mjög fallegt Vorum að fá í sölu mjög fallegt 226 fm parhús á tveimur hæðum auk kjallara. Húsið er byggt árið 1955 en hefur verið mikið standsett. Húsið skiptist þannig: 1. hæð: forstofa, snyrting, gangur, tvær stofur og eldhús. 2. hæð: þrjú herbergi og baðherbergi. Kjallari: forstofa, baðherbergi, tvö rúmgóð herbergi og þvottahús (gæti nýst sem eldhús). Rúmgóður bílskúr á tveimur hæðum. Á neðri hæð bílskúrs er herbergi og geymsla. Glæsilegt útsýni. Fallegur garður til suðurs. Göngufæri í þjónustu. Sjá myndir á heimasíðu Eignamiðlunar. Verð 35,7 millj. 4699. BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um nýtt deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að nýju deili- skipulagi í Reykjavík. Ellingsenreitur, reitur 1.115.3. Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit sem markast af Mýrargötu, Grandagarði og tveimur nýjum götum í norðri og austri samkvæmt tillögu að rammaskipulagi fyrir Mýrargötu og slippa- svæði. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að á þeim tveimur lóðum sem eru á svæðinu verði að mestu leyti íbúðabyggð en heimilt verði að koma þar fyrir skrifstofum, verslun og þjónustustarfsemi. Heimilt verður að fjarlægja núverandi bygg- ingar. Að Grandagarði 2 er lagt til að byggja megi allt að 7 hæðir ofan á bílageymsluhæð, en að Mýrargötu 26 er gert ráð fyrir allt að þremur hæðum ofan á núverandi hús og verða byggingar að hluta til stallaðir á báðum lóðum. Vegna nálægðar við íbúðabyggð mun ein- göngu verða leyfilegt að reka ákveðnar tegundir veitingastaða á jarðhæð sem eru nánar skilgreindir á uppdrætti. Æskilegt er að ráðstafa húsnæði sem snýr að Mýrargötu og Seljatorgi undir starfsemi sem gerir ráð fyrir tíðum heimsóknum viðskiptavina. Aðkoma að bílageymslum verður frá götu norðan lóðanna. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 – 16:15, frá 19. janúar til og með 2. mars 2005. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- fulltrúa, merkt viðkomandi svæði og undirritað með nafni, kennitölu og heimilisfangi, eigi síðar en 2. mars 2005. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 19. janúar 2005 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.