Fréttablaðið - 22.01.2005, Síða 1

Fréttablaðið - 22.01.2005, Síða 1
BYGGIR MEÐ ÞÉR Pétur Þór Benediktsson: Mugifriend lætur í sér heyra SÍÐA 26 ▲ Edrú í rúm tvö ár eftir mikla neyslu: Úr neðstu myrkrum mannlífsins SÍÐUR 34 og 36 ▲ MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI LAUGARDAGUR HEIMSÖRYGGI – ÁBYRGÐ SMÁ- ÞJÓÐA Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, er aðalræðu- maður á málþingi um stöðu öryggismála í heiminum sem haldið verður á Grand hótel klukkan 15 í dag. Það er Framtíðar- hópur Samfylkingarinnar sem efnir til málþingsins og fundarstjóri er Þórunn Sveinbjarnardóttir. DAGURINN Í DAG 22. janúar 2005 – 20. tölublað – 5. árgangur ● kynþokkafyllsti maður landsins Vel varðveitt leyndarmál Frosti Reyr Rúnarsson: ▲ SÍÐA 50 KARLAR SÆKJA Í HORMÓNA- MEÐFERÐ Íslenskir karlar fara í síauknum mæli í kynhormóna- meðferð þegar þeir fara að kenna ein- kenna breytinga- skeiðsins. Þau eru helst þreyta, fram- taksleysi og depurð, jafnvel þunglyndi, sem og minnkandi áhugi og geta til kvenna. Sjá síðu 2 FUNDA UM TRÚNAÐ Í UTANRÍKIS- MÁLANEFND Forsætisráðherra tjáir sig ekki enn um Íraksmálið. Stjórnarsinnar efast ekki um að listi staðfastra þjóða sé seinni tíma gjörningur. Formaður utanríkismála- nefndar segir að ekki standi til að aflétta trúnaði á fundargerðum nefndarinnar. Sjá síðu 4 KÓPAVOGUR GÆTI ÞURFT AÐ GREIÐA MJÖLL FRIGG BÆTUR Eigandi Mjallar Friggjar hafði samband við skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar áður en klórverksmiðjan fluttist þangað. Hafi fyrir- tækið fengið vilyrði fyrir starfsleyfi gæti bær- inn verið skaðabótaskyldur. Sjá síðu 6 MEIRIHLUTI HYGGST KJÓSA Þrátt fyrir nær stöðugar árásir vígamanna virðist meirihluti Íraka ætla að mæta á kjörstað, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Fjórtán létust í mannskæðri árás á mosku sjía- múslima í Bagdad í gær. Sjá síðu 8 Kvikmyndir 46 Tónlist 44 Leikhús 42 Myndlist 42 Íþróttir 38 Sjónvarp 48 Ardís Ólöf Víkingsdóttir: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Langar í skvísubíl ● bílar Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 PALESTÍNA Forysta Hamas hefur í fyrsta sinn dreift skjali þar sem samtökin viðurkenna landamæri Ísraels frá árinu 1967 og tekið er undir markmið Fatah um stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis með Jerúsalem sem höfuðborg. Þá tilkynnti forysta Hamas í gær að þeir væru hættir að skjóta eldflaugum frá Gazasvæðinu. Eftir því sem fram kom í ísraelska sjónvarpinu í gær, hefur Mahmoud Abbas, forseti palest- ínsku heimastjórnarinnar einnig náð samkomulagi við herskáu samtökin Heilagt stríð Íslam um vopnahlé. Ísraelska dagblaðið Haaretz greindi frá því í gær að Hamas hefði að undanförnu unnið mikið starf til að komast að samkomu- lagi við Fatah-hreyfingu Mah- moud Abbas um stefnuna í sam- skiptum við Ísrael. Þar leggja þeir til að Hamas komi að forystusveit Palestínumanna við hlið Fatah. Í skjalinu, sem er stefnuyfirlýs- ing sem á enn eftir að staðfesta, segir annars vegar að vopnuð og pólitísk barátta Palestínumanna sé réttmæt. Hins vegar segir að bæta verði samskiptin við umheiminn, einkum við Vesturlönd, á siðferð- islegum grundvelli sem tryggi réttindi Palestínumanna og lok átaka. Forysta Hamas gekk frá stefnuskjalinu að loknum fundi með Abbas. Hann segist ætla að beita palestínskum öryggissveit- um til að koma í veg fyrir öll víga- ferli. Síðan þá hafa þrjú þúsund lögreglumenn tekið sér stöðu á norðanverðu Gaza til að koma í veg fyrir árásir á Ísraela. ■ FÍKNIEFNAMÁL Grunur leikur á að fleiri Íslendingar tengist fíkni- efnamáli sem kom upp eftir leit í Hauki ÍS 6. janúar síðastliðinn. Þá fundust þrjú og hálft kíló af kóka- íni og annað eins af hassi í klefa tveggja skipverjanna. Þeir sitja nú í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi. Beiðni um hjálp íslensku lögregl- unnar við rannsókn málsins hefur verið send. Tveir Íslendingar, 51 árs og 38 ára, hafa verið í haldi lögreglunnar í Þýskalandi síðan leitin í skipinu var gerð. Þeir voru úrskurðaðir í sex mánaða gæsluvarðhald. Robert Dütsch, talsmaður toll- gæslunnar í Hamborg, segist hvorki geta sagt til um hvenær rannsókn málsins ljúki, né hvenær málið fari fyrir þarlenda dómstóla. Rannsaka þurfi málið bæði í Þýskalandi og á Íslandi. Hann seg- ir grun leika á að fleiri menn en þeir sem nú eru í haldi hafi komið að smygltilrauninni eða fjármögn- un fíkniefnanna. Efnin séu dýr en söluverðmæti þeirra á Íslandi er margfalt meira en í Þýskalandi. Aðrir en Íslendingarnir tveir hafa ekki verið handteknir. Þær upplýsingar fengust frá dómsmálaráðuneytinu hér á landi að beiðni um hjálp íslenskra lög- regluyfirvalda hefðu ekki borist ráðuneytinu. Robert Dütsch segir beiðnina fara frá þýsku lögregl- unni til saksóknarans og þaðan í viðkomandi ráðuneyti sem sendir beiðnina til Íslands. Réttarbeiðnir, þar sem erlend ríki óska aðstoðar íslenska ríkisins við rannsókn mála, fara í gegnum dómsmála- ráðuneytið. Með réttarbeiðni hefst lögreglurannsókn. Fram til þessa hefur þýska lögreglan verið í óformlegu sambandi við fíkniefna- deildina í Reykjavík. - hrs Grunur um aðild fleiri Íslendinga Þýska lögreglan hefur beðið um hjálp íslensku lögreglunnar við rann- sókn á fíkniefnamáli tengdu Hauki ÍS. Grunur leikur á að fleiri Íslend- ingar tengist fjármögnun og innflutningi fíkniefnanna. Innrás í Íran: Dregið hefur úr líkunum STJÓRNMÁL Magnús Þorkell Bern- harðsson, sérfræðingur í málefn- um Mið-Austurlanda, telur minni líkur nú á að Bandaríkjamenn ráðist inn í Íran en fyrir nokkrum misserum þrátt fyrir orðróm um hið gagnstæða. Ófremdarástand í Írak er aðal- ástæða þess. Magnús býst við að sjíar muni vinna yfirburðasigur í kosning- unum í Írak um næstu helgi. Hann segir mjög áríðandi að súnníar einangrist ekki í þjóð- félaginu því þá muni ólga magn- ast enn frekar í landinu. Saga stjórnmála og trúar- bragða í Íran og Írak er við- fangsefni Magnúsar í nýrri bók hans sem er nýkomin út. Sjá bls. 30 Stöðvarfjörður: Hætti landvinnslu ATVINNA Hugsanlegt er að Sam- herji hætti landvinnslu á Stöðv- arfirði innan skamms. Gestur G e i r s s o n , f r a m - k v æ m d a - stjóri land- v i n n s l u S a m h e r j a , t i l k y n n t i starfsmönn- um félags- ins þetta á fundi á fimmtudag. Þar kom fram að rekstrarumhverfi fisk- vinnslu hefði versnað á Íslandi undanfarið og ljóst væri að það þyrfti að ná aukinni hagræðingu í landvinnslu með því að sameina vinnslur. Hugmyndin er að beina land- vinnslu sem mest til Dalvíkur. Á heimasíðu Samherja kemur fram að á næstu vikum verði rætt við alla hlutaðeigendur um hugsan- lega valkosti. ■ ÖRYGGIS GÆTT VIÐ TÁVEGGINN Leó Sigurðsson er öryggis- og kynningarfulltrúi Impregilo. Fulltrúar ítalskra verkalýðsfélaga og al- þjóðasambands byggingaverkamanna hafa gert athugasemdir við öryggisaðbúnað verkamanna við Kárahnjúka. Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo hefur lofað að bæta þar úr. Í dag fjallar Fréttablaðið um aðbúnað á Kárahnjúkum. Sjá síðu 32 Hamas-liðar koma til móts við Abbas um samninga við Ísrael: Viðurkenna landamæri Ísraels Karlar 20-40 ára Me›allestur dagblaða Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004 MorgunblaðiðFréttablaðið 61% 33% VEÐRIÐ Í DAG DREGUR ÚR FROSTI Stöku él norðvestan og vestan til, annars bjart með köflum. Frostlaust við suðurströndina, annars vægt frost. Sjá síðu 4 ÞORSTEINN BALDVINSSON Forstjóri Samherja. 01 Forsíða 21.1.2005 21.32 Page 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.