Fréttablaðið - 22.01.2005, Qupperneq 1
BYGGIR MEÐ ÞÉR
Pétur Þór Benediktsson:
Mugifriend lætur
í sér heyra
SÍÐA 26
▲
Edrú í rúm tvö ár eftir mikla neyslu:
Úr neðstu myrkrum
mannlífsins
SÍÐUR 34 og 36
▲
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
HEIMSÖRYGGI – ÁBYRGÐ SMÁ-
ÞJÓÐA Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi
utanríkisráðherra Noregs, er aðalræðu-
maður á málþingi um stöðu öryggismála
í heiminum sem haldið verður á Grand
hótel klukkan 15 í dag. Það er Framtíðar-
hópur Samfylkingarinnar sem efnir til
málþingsins og fundarstjóri er Þórunn
Sveinbjarnardóttir.
DAGURINN Í DAG
22. janúar 2005 – 20. tölublað – 5. árgangur
● kynþokkafyllsti maður landsins
Vel varðveitt
leyndarmál
Frosti Reyr Rúnarsson:
▲
SÍÐA 50
KARLAR SÆKJA Í HORMÓNA-
MEÐFERÐ Íslenskir karlar fara í síauknum
mæli í kynhormóna-
meðferð þegar þeir
fara að kenna ein-
kenna breytinga-
skeiðsins. Þau eru
helst þreyta, fram-
taksleysi og depurð,
jafnvel þunglyndi, sem og minnkandi áhugi
og geta til kvenna. Sjá síðu 2
FUNDA UM TRÚNAÐ Í UTANRÍKIS-
MÁLANEFND Forsætisráðherra tjáir sig
ekki enn um Íraksmálið. Stjórnarsinnar efast
ekki um að listi staðfastra þjóða sé seinni
tíma gjörningur. Formaður utanríkismála-
nefndar segir að ekki standi til að aflétta
trúnaði á fundargerðum nefndarinnar. Sjá
síðu 4
KÓPAVOGUR GÆTI ÞURFT AÐ
GREIÐA MJÖLL FRIGG BÆTUR
Eigandi Mjallar Friggjar hafði samband við
skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar áður en
klórverksmiðjan fluttist þangað. Hafi fyrir-
tækið fengið vilyrði fyrir starfsleyfi gæti bær-
inn verið skaðabótaskyldur. Sjá síðu 6
MEIRIHLUTI HYGGST KJÓSA Þrátt
fyrir nær stöðugar árásir vígamanna virðist
meirihluti Íraka ætla að mæta á kjörstað,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Fjórtán
létust í mannskæðri árás á mosku sjía-
múslima í Bagdad í gær. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 46
Tónlist 44
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 38
Sjónvarp 48
Ardís Ólöf Víkingsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Langar í skvísubíl
● bílar
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
PALESTÍNA Forysta Hamas hefur í
fyrsta sinn dreift skjali þar sem
samtökin viðurkenna landamæri
Ísraels frá árinu 1967 og tekið er
undir markmið Fatah um stofnun
sjálfstæðs palestínsks ríkis með
Jerúsalem sem höfuðborg.
Þá tilkynnti forysta Hamas í
gær að þeir væru hættir að skjóta
eldflaugum frá Gazasvæðinu.
Eftir því sem fram kom í ísraelska
sjónvarpinu í gær, hefur
Mahmoud Abbas, forseti palest-
ínsku heimastjórnarinnar einnig
náð samkomulagi við herskáu
samtökin Heilagt stríð Íslam um
vopnahlé.
Ísraelska dagblaðið Haaretz
greindi frá því í gær að Hamas
hefði að undanförnu unnið mikið
starf til að komast að samkomu-
lagi við Fatah-hreyfingu Mah-
moud Abbas um stefnuna í sam-
skiptum við Ísrael. Þar leggja þeir
til að Hamas komi að forystusveit
Palestínumanna við hlið Fatah.
Í skjalinu, sem er stefnuyfirlýs-
ing sem á enn eftir að staðfesta,
segir annars vegar að vopnuð og
pólitísk barátta Palestínumanna sé
réttmæt. Hins vegar segir að bæta
verði samskiptin við umheiminn,
einkum við Vesturlönd, á siðferð-
islegum grundvelli sem tryggi
réttindi Palestínumanna og lok
átaka.
Forysta Hamas gekk frá
stefnuskjalinu að loknum fundi
með Abbas. Hann segist ætla að
beita palestínskum öryggissveit-
um til að koma í veg fyrir öll víga-
ferli. Síðan þá hafa þrjú þúsund
lögreglumenn tekið sér stöðu á
norðanverðu Gaza til að koma í
veg fyrir árásir á Ísraela. ■
FÍKNIEFNAMÁL Grunur leikur á að
fleiri Íslendingar tengist fíkni-
efnamáli sem kom upp eftir leit í
Hauki ÍS 6. janúar síðastliðinn. Þá
fundust þrjú og hálft kíló af kóka-
íni og annað eins af hassi í klefa
tveggja skipverjanna. Þeir sitja nú
í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi.
Beiðni um hjálp íslensku lögregl-
unnar við rannsókn málsins hefur
verið send.
Tveir Íslendingar, 51 árs og 38
ára, hafa verið í haldi lögreglunnar
í Þýskalandi síðan leitin í skipinu
var gerð. Þeir voru úrskurðaðir í
sex mánaða gæsluvarðhald.
Robert Dütsch, talsmaður toll-
gæslunnar í Hamborg, segist
hvorki geta sagt til um hvenær
rannsókn málsins ljúki, né hvenær
málið fari fyrir þarlenda dómstóla.
Rannsaka þurfi málið bæði í
Þýskalandi og á Íslandi. Hann seg-
ir grun leika á að fleiri menn en
þeir sem nú eru í haldi hafi komið
að smygltilrauninni eða fjármögn-
un fíkniefnanna. Efnin séu dýr en
söluverðmæti þeirra á Íslandi er
margfalt meira en í Þýskalandi.
Aðrir en Íslendingarnir tveir hafa
ekki verið handteknir.
Þær upplýsingar fengust frá
dómsmálaráðuneytinu hér á landi
að beiðni um hjálp íslenskra lög-
regluyfirvalda hefðu ekki borist
ráðuneytinu. Robert Dütsch segir
beiðnina fara frá þýsku lögregl-
unni til saksóknarans og þaðan í
viðkomandi ráðuneyti sem sendir
beiðnina til Íslands. Réttarbeiðnir,
þar sem erlend ríki óska aðstoðar
íslenska ríkisins við rannsókn
mála, fara í gegnum dómsmála-
ráðuneytið. Með réttarbeiðni hefst
lögreglurannsókn. Fram til þessa
hefur þýska lögreglan verið í
óformlegu sambandi við fíkniefna-
deildina í Reykjavík. - hrs
Grunur um aðild
fleiri Íslendinga
Þýska lögreglan hefur beðið um hjálp íslensku lögreglunnar við rann-
sókn á fíkniefnamáli tengdu Hauki ÍS. Grunur leikur á að fleiri Íslend-
ingar tengist fjármögnun og innflutningi fíkniefnanna.
Innrás í Íran:
Dregið hefur
úr líkunum
STJÓRNMÁL Magnús Þorkell Bern-
harðsson, sérfræðingur í málefn-
um Mið-Austurlanda, telur minni
líkur nú á að Bandaríkjamenn
ráðist inn í Íran en fyrir
nokkrum misserum þrátt fyrir
orðróm um hið gagnstæða.
Ófremdarástand í Írak er aðal-
ástæða þess.
Magnús býst við að sjíar muni
vinna yfirburðasigur í kosning-
unum í Írak um næstu helgi.
Hann segir mjög áríðandi að
súnníar einangrist ekki í þjóð-
félaginu því þá muni ólga magn-
ast enn frekar í landinu.
Saga stjórnmála og trúar-
bragða í Íran og Írak er við-
fangsefni Magnúsar í nýrri bók
hans sem er nýkomin út.
Sjá bls. 30
Stöðvarfjörður:
Hætti
landvinnslu
ATVINNA Hugsanlegt er að Sam-
herji hætti landvinnslu á Stöðv-
arfirði innan skamms. Gestur
G e i r s s o n ,
f r a m -
k v æ m d a -
stjóri land-
v i n n s l u
S a m h e r j a ,
t i l k y n n t i
starfsmönn-
um félags-
ins þetta á
fundi á
fimmtudag.
Þar kom
fram að rekstrarumhverfi fisk-
vinnslu hefði versnað á Íslandi
undanfarið og ljóst væri að það
þyrfti að ná aukinni hagræðingu
í landvinnslu með því að sameina
vinnslur.
Hugmyndin er að beina land-
vinnslu sem mest til Dalvíkur. Á
heimasíðu Samherja kemur fram
að á næstu vikum verði rætt við
alla hlutaðeigendur um hugsan-
lega valkosti. ■
ÖRYGGIS GÆTT VIÐ TÁVEGGINN Leó Sigurðsson er öryggis- og kynningarfulltrúi Impregilo. Fulltrúar ítalskra verkalýðsfélaga og al-
þjóðasambands byggingaverkamanna hafa gert athugasemdir við öryggisaðbúnað verkamanna við Kárahnjúka. Ítalska verktakafyrirtækið
Impregilo hefur lofað að bæta þar úr. Í dag fjallar Fréttablaðið um aðbúnað á Kárahnjúkum. Sjá síðu 32
Hamas-liðar koma til móts við Abbas um samninga við Ísrael:
Viðurkenna landamæri Ísraels
Karlar 20-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
61%
33%
VEÐRIÐ Í DAG
DREGUR ÚR FROSTI Stöku él
norðvestan og vestan til, annars bjart með
köflum. Frostlaust við suðurströndina,
annars vægt frost. Sjá síðu 4
ÞORSTEINN
BALDVINSSON
Forstjóri Samherja.
01 Forsíða 21.1.2005 21.32 Page 1