Fréttablaðið - 22.01.2005, Qupperneq 8
22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Formaður Samfylking-
arinnar má ekki þiggja laun fyrir
það starf frá öðrum en flokknum
ef tillaga Birgis Dýrfjörð verður
samþykkt á komandi landsþingi
flokksins. Samkvæmt eftirlauna-
lögunum sem samþykkt voru í lok
árs 2003 fá formenn stjórnmála-
flokka á þingi um 230.000 krónur
á mánuði auk þingmannalauna.
Birgir segir óþolandi að það
séu óviðkomandi kostunaraðilar
sem greiði formönnum stjórn-
málaflokka laun. „Flokkarnir
eiga að gera það sjálfir,“ segir
Birgir. „Forseti Alþýðusambands
Íslands kallaði þetta dúsu á sín-
um tíma vegna þess að formenn
stjórnarandstöðuflokkanna sam-
þykktu eftirlaunalögin með þess-
ari viðbót. Ég kalla þessa menn
pólitískar portkonur. Þetta var
þóknun fyrir að samþykkja frum-
varpið.“
Birgir segist ekki geta ímynd-
að sér annað en að tillagan verði
samþykkt á landsfundi Samfylk-
ingarinnar og segist hafa fengið
mikinn stuðning við hana innan
flokksins. ■
Samfylkingin:
Launin komi bara frá flokknum
SAMFYLKINGIN
Fyrir liggur tillaga um að formaður flokks-
ins fái ekki greidd laun frá Alþingi fyrir for-
mannsstarfið eins og gert hefur verið sam-
kvæmt umdeildu eftirlaunafrumvarpi.
ÍRAK Yfirgnæfandi meirihluti
Íraka ætlar að mæta á kjörstað
30. janúar þrátt fyrir mannskæð-
ar árásir vígamanna undanfarið,
ef marka má skoðanakönnun
sem unnin var fyrir bandarísku
samtökin International Repu-
blican Institute. Samkvæmt
henni segja fjórir af hverjum
fimm kjósendum líklegt að þeir
kjósi.
Lítillega hefur þó dregið úr
fjölda þeirra sem segja mjög lík-
legt að þeir kjósi. Í nýju könnun-
inni, sem var gerð í desember og
janúar, segja 64 prósent mjög
líklegt að þau kjósi, sjö prósentu-
stigum minna en í nóvember.
Enn ein mannskæð sprengju-
árásin var gerð í Bagdad í gær.
Þá var bílsprengja sprengd fyrir
framan mosku sjíamúslima. Í
það minnsta fjórtán létust og 40
særðust í árásinni. Þá létust
fjórir hið minnsta þegar bíl var
keyrt inn í brúðkaupsveislu og
hann sprengdur í loft upp.
Abu Musab al-Zarqawi, leið-
togi alræmdra hryðjuverkasam-
taka, sendi frá sér upptöku þar
sem hann fordæmdi sjíamúslima
fyrir samstarf við bandaríska
hermenn. „Þeir brutust inn í at-
hvörf guðs, þeir svívirtu þau og
hengdu upp myndir af djöfli sín-
um, al-Sistani,“ sagði hann. Aya-
tollah Ali al-Sistani er helsti leið-
togi sjíamúslima. ■
Meirihluti hyggst kjósa
Þrátt fyrir nær stöðugar árásir vígamanna virðist meirihluti Íraka ætla að
mæta á kjörstað, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Átján létust í
bílsprengjuárásum á brúðkaupsveislu og mosku sjíamúslima.
SÆRT BARN FLUTT Á SJÚKRAHÚS
Íraskur karlmaður sést hér bera særðan
son sinn út úr mosku sjíamúslima eftir
sprengjuárás.
08-09 21.1.2005 19.11 Page 2