Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.01.2005, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 22.01.2005, Qupperneq 12
Í gær birtist yfirlýsing í bandaríska stórblaðinu New York Times undir yfirskriftinni „Innrásin í Írak – ekki í okkar nafni“. Þessi yfirlýsing er birt í nafni „Þjóðarhreyfingarinnar – með lýðræði“ og þeirra þúsunda Íslendinga sem brugðust við ákalli hennar um að gera heiminum það kunnugt, að einungis tveir menn hefðu tekið um það ákvörðun að skipa Íslandi á lista meðal stuðn- ingsþjóða innrásar Bandaríkjanna og Bretlands í Írak, sem framin var án þess að hafa til þess samþykki Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt öllum skoðanakönnun- um meðal íslensku þjóðarinnar hefðu fjórir af hverjum fimm Íslendingum verið andsnúnir þessu gerræði tvímenninganna frá byrjun árs 2003 og allar götur síðan.Yfir- lýsing tvímenninganna væri rof á allri íslenskri lýðræðishefð, sem er sú að allar meiriháttar breytingar á utanríkisstefnu þjóðarinnar hafa alltaf verið afgreiddar með form- legum hætti á Alþingi. Þannig hefði Alþingi synjað því boði að gerast stofnaðili að Sameinuðu þjóðunum, þegar það var bundið því skilyrði að segja Þýskalandi og Japan stríð á hendur. Við inngöngu í NATO hefðum við einnig fengið viður- kennda sérstöðu Íslendinga sem vopnlausrar þjóðar, sem vildi ekki koma sér upp eigin her né segja nokkru ríki stríð á hendur. Við þessa afgreiðslu tvímenning- anna á afstöðu til innrásar í Írak hefði hins vegar ekki verið skeytt um að fá samþykki neins stjórn- sýslustigs lýðveldisins. Ákvörðunin hefði hvorki verið borin undir ríkis- stjórn né þingflokka stjórnarmeiri- hlutans. Heldur ekki undir utanrík- ismálanefnd Alþingis svo sem þó er skylt samkvæmt lögum um allar meiriháttar breytingar á utanríkis- stefnunni, hvað þá undir Alþingi sjálft, sem þó hefur þótt sjálfsagt allan lýðveldistímann að hefði síðasta orðið í hörðum innbyrðis deilum um utanríkismál. Þjóðarhreyfingin – með lýðræði gerði um þetta harðorða ályktun þann 13. október síðastliðinn. Sú ályktun var grafin í smáfréttum fjölmiðla. Innan Þjóðarhreyfingar- innar þóttumst við þó viss um að almenn andstaða væri gegn þessu gerræði tvímenninganna og að við yrðum að leitast við að finna þessari andstöðu farveg. Miklar umræður urðu um það á fundum okkar hvernig málstaðnum yrði komið á framfæri svo eftir yrði tekið og um- ræður vaktar um málið. Athygli var vakin á því hvernig hópar valin- kunnra manna um allan heim hefðu komið sér saman um yfirlýsingar, sem síðan voru birtar í heimspress- unni. Frá því í byrjun nóvember var það svo rætt innan hreyfingarinnar hvernig slík yfirlýsing ætti að hljóða, drög gengu manna á milli, rædd, deilt um efni og orðalag, slípuð, fínpússuð uns yfirlýsingin var tilbúin í lok nóvember og kynnt með blaðamannafundi á Hótel Borg þann 1. desember. Þjóðarhreyfingin hefur engan fjárhagslegan bakhjarl. Hún er grasrótarhreyfing, sem ekki heldur félagaskrá eða innheimtir félags- gjöld. Henni er ætlað að mynda breytilega skipaða sérfræðinga- hópa, sem gefi stuttar og hnitmiðað- ar umsagnir um brýn álitaefni í þjóðfélagsumræðunni hverju sinni. Þessum hópum er ætlað að miðla til almennings hugmyndum um lýð- ræði og frelsisréttindi og bregðast jafnframt við öndverðum hugmynd- um með röksemdum, byggðum á mismunandi sérþekkingu og reynslu þeirra, sem að áliti standa hverju sinni. Vinnan er unnin í sjálf- boðaliðsstarfi án þess að nokkur greiðsla komi fyrir. Við töldum okkur skynja sterka undiröldu með þjóðinni um að „svona gerir maður ekki“. Annað mál var svo það að klæða málið í þennan búning og æskja fjárfram- laga til stuðnings við málstaðinn í jólamánuðinum. Við renndum blint í sjóinn með undirtektir, máttum vita að harður áróður yrði rekinn gegn okkur, og þó einkum beitt rógi og baknagi, sem erfitt er að festa hendur á og svara. En traust okkar á því að nægur fjöldi af þeim 84 %, sem Gallupskoðun hefur nýlega leitt í ljós að eru andvígir ákvörðun tvíhöfðans, væri tilbúinn til að fylgja því eftir með fjárframlagi, hefur reynst á rökum reist. Vel á fimmta þúsund manns hefur látið peninga af hendi rakna. Oftar en ekki hefur það verið eyrir ekkj- unnar, goldinn af litlum efnum en heitri sannfæringu. Þökk sé þeim að nú veit heimurinn hið sanna um friðarvilja 84% Íslendinga og stað- festu við þann málstað sem for- ingjar lýðveldisins mörkuðu því í upphafi á vígvelli kalda stríðsins. Það hefur verið ánægjulegt að standa í þessari baráttu. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa stöðvað mig á götu, talað við mig í síma, sent mér bréf og tölvuskeyti, jafnvel SMS, hvatt mig og upp- örvað í miðri orrahríðinni. Þjóðar- hreyfingin hefur eflst við þetta átak. Ég held að staða Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu (foringjaræðinu) hafi eflst. Ein- staka þingmenn eru farnir að tala frá eigin brjósti (þótt stundum séu þeir lamdir niður jafnharðan). Nú þarf að fylgja þessu eftir með því að gera Þjóðarhreyfinguna – með lýðræði – að farvegi fyrir óskir fólksins við endurskoðun stjórnar- skrárinnar. Látum ekki stjórnmála- mennina eina um að setja sjálfum sér reglur um fyrirkomulag stjórn- skipanarinnar. Kominn er tími til að þjóðin setji þeim þær reglur, sem hún getur unað við. ■ A ð líkindum hefur enginn Bandaríkjaforseta fyrr og síðarorðið jafn umdeildur og George W. Bush, sem á fimmtu-daginn hóf seinna kjörtímabil sitt í embætti. Það er ekki aðeins á heimaslóðum sem persóna forsetans, hugmyndir, stefna og verk vekja sterk viðbrögð. Heimsbyggðin hefur aldrei fyrr haft jafn afdráttarlausa skoðun á leiðtoga Bandaríkjanna og síðustu fjögur ár – og sú skoðun virðist í yfirgnæfandi mæli neikvæð í garð hans og verka hans. Öllu öðru fremur er það Íraksstríðið sem þessu veldur. En framhjá hinu verður ekki horft að í kosningunum vestanhafs í nóvember vann forsetinn sannfærandi sigur og sama er að segja um bandamenn hans í Repúblikanaflokknum í báðum deildum Bandaríkjaþings. Hafi efi ríkt um lýðræðislegt umboð hans á fyrra kjörtímabilinu eru engar slíkar vangaveltur uppi nú. Það er ljóst að Bush er maður sem meirihluti bandarísku þjóðarinnar treystir til að stýra málum sínum. Líklegt er að ræðu Bush við embættistökuna hafi ekki verið beðið með minni eftirvæntingu utan Bandaríkjanna en innan þeirra. Svo virðist sem forsetinn hafi gert sér grein fyrir þessu og að sumu leyti virðist sem ræða hans hafi ekkert síður beinst að hlustendum úti í heimi en eigin þjóð. Um heim allan spurðu menn sig hvaða boðskap Bush mundi flytja, og hvaða tón hann mundi slá. Ræðan svaraði því ekki í einstökum atriðum en öll var áhersla forsetans á frelsið og þýðingu þess fyrir þjóðirnar. „Frelsið sem við njótum í okkar eigin landi veltur æ meira á því hvort frelsið nái fram að ganga í öðrum löndum,“ sagði hann og bætti við: „Allir þeir sem búa við harðstjórn og vonleysi geta treyst því að Bandaríkin munu ekki horfa framhjá kúguninni eða afsaka harðstjórana. Þegar fólk krefst frelsis stöndum við með því.“ Þetta eru fögur orð en því miður vitum við ekki hvað þau merkja í raun. Felst í þeim að Bandaríkin séu tilbúin í fleiri ævin- týri í stíl við innrásina í Írak, svo sem innrás í Íran eins og get- sakir hafa verið um að undanförnu? Eða hafa bandarísk stjórnvöld lært af mistökum undanfarinna ára og munu fara fram af meiri varkárni á alþjóðavettvangi næstu árin? Munu þau reyna að vinna að framgangi lýðræðis og frelsis eftir leiðum friðsamlegrar sam- vinnu, viðskipta og efnahagsaðstoðar fremur en að beita hernaðar- mættinum? Þessum spurningum mun reynslan ein svara. En það er góðs viti að í ræðunni virtist Bush leggja áherslu á áframhald- andi sterkt samband við gamlar bandalagsþjóðir í Evrópu sem ekki hafa verið samstíga honum í Íraksmálinu. Sama er að segja um orð sem Condoleezza Rice, hinn nýi utanríkisráðherra, lét falla fyrir þingnefnd fyrr í vikunni, að hún vildi bæta samskiptin við bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og auka samráð við þá. Bush forseti á ekki kost á endurkosningu að loknu því kjörtíma- bili sem nú er hafið. Eðli málsins samkvæmt mun mjög fara að draga úr áhrifum hans og raunverulegum völdum á þriðja ári tímabilsins, þegar undirbúningur næstu forsetakosninga hefst. Það er því í rauninni skammur tími sem hann hefur til stefnu vilji hann láta að sér kveða svo um muni. Vinir Bandaríkjanna um allan heim vona að hann hafi lært af dýrkeyptum mistökum fyrra tímabilsins og vilja treysta því að seinni hlutinn taki hinum fyrri fram á allan hátt. ■ 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Óljóst er hvað raunverulega felst í áherslu Bandaríkja- forseta á frelsið. Hefur Bush lært af mistökunum? FRÁ DEGI TIL DAGS Kaflaskil í Íraksmálinu Á sólarströnd. Þingmenn hafa undanfarna daga verið að reyna afsanna þá kenningu að þeir séu í iðjuleysi og afslöppun í fjörutíu daga starfshléi Alþingis. Hafa stjórnmála- flokkarnir blásið til funda víða í kjör- dæmum og jafnt óbeyttir þingmenn sem ráðherrar þeyst landshorna á milli til að hitta kjósendur. Verðskuldar þetta fram- tak að sjálfsögðu hið mesta hrós. Ekki eru þó allir í svona stússi eins og ljós kom á fimmtudaginn þegar Valgerður Sverrisdóttir birti óvænt pistil á heima- síðu sinni á netinu og reyndist hann rit- aður á sólarströnd í Flórída. „Hugmyndin var að taka frí frá stjórnmálum í nokkra daga og safna kröftum fyrir komandi þing. En ég verð að segja að mér er ekki skemmt eftir að heyra fréttirnar af póli- tískri umræðu á Íslandi þessa dagana og er með hugann talsvert við það,“ skrifar Valgerður. Og svo bætir hún við eins og hún hafi samviskubit: „Það kann að vera að einhverjum finnist það athyglisvert að ég skuli vera í fríi í stað þess að sinna kjördæminu í jólaleyfi Alþingis en á því er skýring. Hún er sú að við erum fjórir þingmenn Framsóknarflokksins í NA- kjördæmi. Samstarfið er til fyrirmyndar, það ríkir trúnaður og vinátta í hópnum. Á meðan ég dvel hér og safna kröftum fyrir vorþingið ferðast þau hin um kjör- dæmið og funda og heimsækja vinnu- staði. Þannig stöndum við saman og léttum undir hvert með öðru.“ Framtíðin hagnýtt. Baráttan um formannsembættið í Sam- fylkingunni er komin á fullt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stýrir framtíðar- hópi flokksins, þar sem fjölbreytt mál- efnavinna fer fram, og blasir við að sá póstur muni nýtast henni vel í aðdrag- anda kosninganna. Í dag efnir hópurinn til málþings um heimsöryggi á Grand Hóteli og þar hefur Ingibjörg fengið sem ræðumann Thorvald Stoltenberg fyrrver- andi utanríkisráðherra Noregs sem um árabil var einn helsti leiðtogi norskra krata. Meðal annarra ræðumanna er Magnús Þ. Bernharðsson sem í gær sendi frá sér nýja bók um málefni Mið-Austurlanda. Sjálf ætlar Ingibjörg Sólrún að setja ráðstefnuna og draga saman þræðina í fyrirlestrum og um- ræðum í lokin. ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja- vík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf sími 585 8330 Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS Vel á fimmta þús- und manns hefur látið peninga af hendi rakna. Oftar en ekki hefur það verið eyrir ekkjunnar, goldinn af litlum efnum en heitri sannfæringu ,, i03240903_rafrant_05.jpg gm@frettabladid.is Í DAG AUGLÝSINGIN Í NYT ÓLAFUR HANNIBALSSON 12-13 Leiðari 21.1.2005 18.04 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.