Fréttablaðið - 22.01.2005, Side 20

Fréttablaðið - 22.01.2005, Side 20
Næsti Brekkusöngur Árni Johnsen boðaði til blaðamannafundar í vikunni og kynnti nýja skýrslu um göng til Eyja. Margt bendir til að nú sé hafin sókn fyrir endurkomu Árna í pólitík enda prófkjör eftir tvö ár. Hvíslað er í bakherbergjum að Árni hljóti að beisla skáldfákinn í þágu mál- staðar síns. Ekki getur Árni verið minni maður en Rúnar Júlíusson sem lét það ekki aftra sér að „Tvöföldum Reykjanesbraut“ væri ekki rímvænt. „Göng“ rímar jú við „söng“, „löng“ , „röng“ og hvers vegna ekki „töng?“ Sótt að Alfreð Fari menn í Framsókn með veggjum í skot- grafahernaði gegn Guðna Ágústssyni fara menn ekki leynt með árásir sínar á Alfreð Þorsteinsson. Guðjón Ólafur Jónsson, vara- þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir í grein á Hriflu, vef flokksins í Reykjavík að hann verði ekki var við þann mikla stuðn- ing sem Alfreð segist hafa meðal flokks- manna. Hvorki Guðlaugur Sverrisson, kosn- ingasmali Alfreðs úr síðasta prófkjöri, né Anna Kristinsdóttir, hinn borgarfulltrúi Fram- sóknar í borginni, treysti sér til að styðja hann. Segir Guðjón Ólafur að menn verði að skynja sinn vitjunartíma í pólítik og minnir á örlög Páls Péturssonar, fyrrverandi ráðherra. Ekki er laust við að kaldhæðni gæti hjá Guðjóni: „Altjent er nokkuð ólíklegt að Alfreð, sem er á sjötugsaldri, verði enn starfandi að borgarmálum eftir 35 ár, svo grátlegt sem það kann að hljóma í eyrum okkar framsókn- armanna og annarra borgarbúa. Við þá sáru staðreynd verðum við að búa hvort sem okkur líkar betur eða verr.“ Heimskra manna ráð Á málfundi Heimdallar í vikunni tókust Pétur H. Blöndal þingmaður og Atli Gíslason, lög- maður og varaþingmaður, á um einkarekstur í skólakerfinu og svokallað ávísanakerfi. Athygli vakti að Pétur sagði það algeran misskilning að fólk sem hann taldi „heimskt“, eða einstaklingar með lægri greindarvísitölu en 90, ætti ekkert erindi í há- skóla. Sagði hann að sama skapi óeðlilegt að heimska fólkið tæki þátt í að niðurgreiða lán Lána- sjóðs íslenskra námsmanna. - ás 20 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR Guðni Ágústsson blés lífi í loga ill- deilnanna um stuðning Íslands við Íraksstríðið um síðustu helgi þegar hann sagði í viðtali við Fréttablaðið og á Skjá einum að „leiðtogar þjóð- arinnar, Halldór og Davíð“ hefðu einir tekið þá ákvörðun. Hafi Halldór Ásgrímsson ætlað sér að slökkva eldinn var engu líkara en hann hefði ákveðið að gera það með bensínbrúsa með yfirlýsingu sinni á mánudag. Athyglisvert er hins vegar að deilurnar snúast ekki um Íraks- stríðið sjálft og stuðning Íslands við engilsaxnesku löndin, heldur um formsatriði. Ari Sigvaldason, frétta- maður á Ríkissjónvarpinu, dró á dögunum fram í dagsljósið viðtal við Guðna Ágústsson á morgunvakt Ríkisútvarpsins þar sem fram kom að hann hefði sagt nákvæmlega það sama við útvarpið síðastliðið sumar. „Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra (B): Þessa ákvörðun tóku þeir með þessum hætti og... Óðinn Jónsson: Tveir menn? Guðni Ágústsson: Já. Óðinn Jónsson: Er það eðlilegt? Guðni Ágústsson: Þannig stend- ur það mál. Það var auðvitað gert á einhverri örlagastundu... Óðinn Jónsson: En það var verið að breyta grundvallarstefnu Íslendinga í utanríkismálum. Er ekki eðlilegt að ræða það á þinginu og í þingflokkunum? Guðni Ágústsson: Jú, jú, það má segja það.“ Yfirlýsing Halldórs Ásgrímsson- ar lægði ekki öldurnar þótt þar kæmi heldur ekkert nýtt fram. Þar er engu svarað um hvort ákveðið hafi verið á ríkisstjórnarfundinum að Ísland gengi til liðs við bandalag þjóðanna sem studdu stríð gegn Írak án stuðnings Sameinuðu þjóð- anna. Enn síður hvort ákvörðunin hafi verið borin undir utanríkis- málanefnd. Hins vegar þjónaði til- kynningin því hlutverki að setja ofan í við Guðna Ágústsson með eftirminnilegum hætti. Athyglisvert er svo að í þessu máli snúast deilurnar um form en ekki innihald og má segja að einu megi gilda um Írak í þessu máli. En er í raun efast um að Halldór Ás- grímsson og Davíð Oddsson hafi haft pólitískan styrk til að koma þessu máli í gegnum þingflokka sína og þar með þingið? Fyrst þeir gátu látið þingflokkanna kyngja fjölmiðlafrumvarpinu hefði þetta verið lítið mál að áliti flestra stjórn- málaskýrenda. Málið virðist því snúast að veru- legu leyti um innanflokksdeilur í Framsóknarflokknum. Engum þarf að koma á óvart að Kristinn H. Gunnarsson sé andsnúinn Halldóri í þessu máli eins og flestu öðru og Jónína Bjartmarz, sem upplýsti að ekki hefði verið haft samráð við utanríkismálanefnd, hefur ekki ver- ið honum leiðitöm heldur. Að form- inu slepptu er Guðni Ágústsson ekki ósammála Halldóri að því er best verður séð: „Þetta er viðkvæmt mál en menn verða að átta sig á því að uppbygging er hafin í Írak,“ sagði hann í Fréttablaðinu. Á Skjá einum sagði hann samt sem áður að ákvörðunin hefði orkað tvímælis. Minni athygli vakti svo að Guðni sagði á Skjá einum: „Við framsókn- armenn þurfum í þessu efni eins og öðru að fara yfir okkar utanríkis- stefnu og eiga þar heilsteypta stefnu.“ Halldór Ásgrímsson hefur stýrt þessum málaflokki í nærri áratug! Mest snýst málið þegar öllu er á botninn hvolft um trúverðugleika og stefnufestu Halldórs Ásgrímssonar. Bent hefur verið á misræmi í yfir- lýsingum hans sem utanríkisráð- herra. Þannig sagði hann 27. janúar 2003, rétt rúmum mánuði fyrir stríð: „Það er alveg ljóst af okkar hálfu að við teljum algjörlega nauðsynlegt að þetta mál komi til umfjöllunar öryggisráðsins á nýjan leik, það höfum við margsagt. En ég held að allir geti verið sammála um það að ef þessi maður býr yfir gjöreyðing- arvopnum með þeim afleiðingum sem það gæti haft í för með sér, þá stendur alþjóðasamfélagið frammi fyrir mjög erfiðri stöðu. Það hlýtur að vera krafa okkar Íslendinga eins og annarra að þeir afvopnist. Það er krafa Sameinuðu þjóðanna. Hins vegar ef í ljós kemur að hann býr ekki yfir gjöreyðingarvopnum, þá er málið væntanlega leyst.“ Um miðjan desember 2004 segir hann í Kastljósinu: Sigmar Guðmundsson: „Hefð- irðu vitað það sem þú veist í dag, að það voru ekki gereyðingarvopn í Írak og það voru engin tengsl við Al Kaída af hálfu Íraka, hefðirðu þá samþykkt þetta? Halldór Ásgrímsson: Ég ætla nú ekkert að segja um það. Ég býst við því að ég hefði gert það já. Vegna þess að ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það væri gífurlega mikið atriði að koma Saddam Hússein (frá)...“ Hvort Halldór hefur tekið hugmyndafræðilega kollsteypu á einni nóttu, eða Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, tekið ákvörðun um stuðning við Bandarík- in og stillt Halldóri upp við vegg skal ósagt látið. Nýleg könnun Gallups, sem Halldór vill raunar ekki að talað sé um, bendir til að 80% framsókn- armanna séu honum ósammála í málinu. Þar liggur hans stærsti vandi og Guðni Ágústsson hefur væntanlega séð möguleika með að spila á þetta í því taugastríði sem Halldór og „erfðaprins“ hans Árni Magnússon heyja nú gegn honum. Guðni á hins vegar ekkert síður við trúverðugleikavanda að stríða, hann virðist hafa snúist í marga hringi í málinu rétt eins og Halldór. a.snaevarr@frettabladid.is stjornmal@frettabladid.is Úr bakherberginu... Spurning um trúverðugleika Fáir efast um að leiðtogar stjórnarflokkanna hafi haft pólitískan styrk til að knýja í gegn stuðning við Íraksstríðið en misvísandi yfirlýsingar grafa undan trúverðugleika og hafa stórskaðað Framsóknarflokkinn. nánar á visir.is Ríkisstjórnarsamstarfið er tíu ára gamalt í ár og farið að sýna ýmis merki þess að vera orðið lúið. Fyrir utan alla þá elda sem Guðni Ágústsson kveikti um síðustu helgi sagði hann hér í Fréttablaðinu að Davíð og Halldór hefðu báðir hugsað sinn gang í síðustu kosningabaráttu. Í þeim orðum felst að Samfylkingin hafi klikkað. Undir rós segir hann að framboð Ingibjargar Sólrúnar til forsætisráðherra hafi fælt báða flokka frá því að hætta í stjórnarsamstarfinu. Ótrúlega margir stjórnarþingmenn hafa líka vakið athygli undirritaðs á því að aðeins einn úr þeirra hópi hafi mætt í fimmtugsafmæli borgarstjórans fyrrverandi, en sjálfur formaður Sjálfstæð- isflokksins hafi haldið skjallræðu í afmæli svila hennar, Össurar Skarphéð- inssonar. Ergó: Skilaboðin eru þau að andstæðingar Samfylkingarinnar vilja að Össur verði áfram formaður. Eru það rök fyrir því? Já og nei. Svend Auken, formaður danskra jafnaðarmanna, kom sínum flokki í næstum 40 prósent í kosningum 1988. En sporin hræða því í draumi sér- hvers manns er fall hans falið. Styrkur Aukens fældi samstarfsflokka í svip- uðu samsteypuflokkaumhverfi og er hérlendis frá því að ganga til liðs við hann. Varaformaðurinn Poul Nyrup Rasmussen felldi hann loks eftir langa eyðimerkurgöngu. Hins vegar hefur Össur Skarphéðinsson lítinn sem engan trúverðugleika samkvæmt könnunum Gallups. Hann minnir um margt á mentor sinn Jón Baldvin. Kunningjakona okkar Jóns heyrði eitt sinn til þar sem formaður Alþýðuflokksins hitti menn í sundlauginni. Þeir skjölluðu hann á alla enda og kanta og sögðu stjórnmál ekki svip hjá sjón eftir að hann hvarf af sjónarsviðinu. Jón Baldvin synti á brott glaður í bragði en kunningjakonan heyrði kappana horfa á eftir honum með fyrir- litningarsvip og segja: „Aldrei myndi ég kjósa þennan mann“. Svipuðu máli gegnir um öflugan opinberan stuðning andstæðinga Samfylkingarinnar við Össur Skarphéðinsson. Samfylkingin er samsteypa krata og allaballa, sem höfðu samanlagt 46% atkvæða 1978 og nærri meirihluta ef öll atkvæði vinstrimanna þá eru talin. Hún hefur hins vegar ekki farið mikið yfir 30% og á því mikið inni. Hvað er til ráða? Svarið er ekki endilega Ingibörg Sólrún. En hræðslu- viðbrögð annarra, ekki síst leiðarahöfundar Morgunblaðsins, eru vatn á hennar myllu, ekki Össurar. Sveiflur hans í stjórnmálum og stóryrði um hvert málið á fætur öðru eru líka andstæðingunum að skapi. Eitt sinn var sögð sagan um unga ritstjórann og gamla ritstjórann. Sá ungi sýndi þeim gamla hróðugur fyrirsögn um stóratburð en sá gamli lét sér fátt um finnast og spurði: „Og hvað ætlarðu að gera þegar Jesús Krist- ur snýr aftur til jarðar?“ Þessi hugsun var þó til á gamla Þjóðviljanum sem Ásmundur „svarti“ Sigurjónsson, fyrrverandi ritstjóri erlendra frétta, tjáði mér eitt sinn. Blaðið var sem sagt við öllu búið í lok síðari heimsstyrjaldar þegar Rauði herinn hafði náð allri Austur-Evrópu á sitt vald. Hitler var á síðustu metrunum og nú þurfti að taka frá stærsta letrið í fyrirsögnina: Evrópustríðinu lokið. En Ási svarti vildi samt hafa vaðið fyrir neðan sig og pantaði í leiðinni enn stærra letur á fyrirsögnina: Heimsbylting í Evrópu!. Engin slík hugsun er til hjá vinstri mönnum á Íslandi. Á Alþingi eru spör- fuglar skotnir með fallbyssum. Hvunndags. Ráðist er á lög um refaveiðar og stjórnvöld vænd um stjórnarskrárbrot. Líka lög á kennara þótt innst inni hafi þingmenn Samfylkingar vitað að þeir hefðu gert það sama. Og ef villtustu draumar Samfylkingar yrðu að veruleika gæti Davíð Oddsson, forseti framtíðarinnar í krafti fjörutíu prósenta genetískra kjós- enda, gert vinstri stjórn hvors svilfólksins sem er óstarfhæfa, með því að hóta þjóðaratkvæðagreiðslum. Maður þarf nefnilega að vita hvað maður ætlar að gera þegar Jesús Kristur kemur til jarðar. VIKA Í PÓLITÍK ÁRNI SNÆVARR SKRIFAR VIÐ ÖLLU BÚNIR Sagt var að á Þjóðviljanum hefðu menn látið hanna sérstaklega stórt letur fyrir lok heimsstyrjaldarinnar en þó haft vaðið fyrir neðan sig og haft enn stærra fyrir heimsbyltinguna. Og hvað ætlarðu að gera þegar Jesús Kristur snýr aftur? UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, „Allt orkar tvímælis þá gert er“ Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins 18. janúar. „En þegar þar að kemur að hann dregur ályktanir af stað- hæfingum sínum og brýnir þá sem ábyrgðina bera að berja í brestina skýtur því miður engri frumlegri hugsun í kollinn á mér en þeirri, að þeir sletta enn skyrinu sem eiga það.“ Þorsteinn Pálsson svarar Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 18. janúar. VINSTRA MEGIN GUÐNI Útspil hans staðfesta að hann skiptir máli en auka ekki trú- verðugleika hans. HÆGRA MEGIN HALLDÓR Gengur til flokksþings eftir mánuð flæktur í vef misvísandi yfirlýsinga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IA LL I 20-21 Stjórnmál 21.1.2005 18.12 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.