Fréttablaðið - 22.01.2005, Page 26
22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Lynghálsi 4 • 110 Reykjavk. S: 567 3300
info@hestarogmenn.is • www.hestarogmenn.is
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Þú færð Vildarpunkta hjá
Vildarklúbbi Icelandair þegar þú
verslar í versluninni Hestar og
menn og greiðir með Vildarkorti
Visa og Icelandair.
Já, ótrúlegt en satt, ALLIR sem kaupa
nýjan Hrímnishnakk fá flugmiða
með Icelandair sem gildir fyrir
einn fram og til baka á
einhvern af áfangastöðum
í áætlunarflugi Icelandair
í Evrópu. Kynntu þér
tilboðið betur í versluninni eða
á heimasíðu okkar www.hestarogmenn.is
Verð kr. 139.900
Hestar og menn bjóða annað
ótrúlegt tilboð. Við tökum alla
hnakka sem greiðslu upp í nýjan
Top Reiter hnakk.
Gildir við kaup á: Sport 2000,
Top Reiter – Z, Comfort og
Top Reiter Reiðdýnu
Uppítökuverð er háð mati starfsmanna.
en verður þó aldrei lægra en 5.000 kr.
Frábært verð á skó-
buxum með rennilás.
Verð frá 6.900 barnastærðir
Verð frá 7.900 fyrir fullorðna
Fást bæði svartar og gráar
Og veislan heldur áfram, við bjóðum nú saltsteina á
tilboði sem erfitt er að hafna. Þú færð tvo fyrir einn.
Rauðir hestasteinar 2 kg. á 95 kr.
Hvítir 2 kg. á 185 kr.
10 kílóa saltsteinar á 590 kr.
Allir saltsteinar á 2 fyrir 1
tilboði á meðan birgðir endast.
OPI‹ ALLA
HELGINA!
Laug. 10-16
Sunn. 12-16
„Við höfum þekkst í 12 til 13 ár.
Við kynntumst í menntaskóla og
spiluðum þá báðir á kassagítar,“
segir tónlistarmaðurinn Mugison
um Pétur Þór Benediktsson.
„Við fórum að semja saman í
menntó og hittumst þá bara út af
því. Ég hlakka til að sjá nýtt efni
koma út frá honum. Hann er besti
vinur minn. Ég leyfi honum alltaf
að heyra þegar ég sem eitthvað
nýtt og hann leyfir mér líka að
heyra sitt efni. Hann er alveg geð-
veikur og ég held að það verði
sprengja með sumrinu þegar
platan hans kemur út.“ ■
Pétur Þór Benediktsson
hefur talsvert verið í
sviðsljósinu sem með-
spilari tónlistarmanns-
ins Mugison. Ljóst er að
þar er afar efnilegur
tónlistarmaður á ferð
sem á vafalítið eftir að
gera góða hluti í fram-
tíðinni. Fréttablaðið
ræddi við piltinn og for-
vitnaðist betur um kom-
andi verkefni hans.
Eftir að hafa útskrifast sem tón-
smiður úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík í vor hefur Pétur Þór
Benediktsson sett allt á fullt og er
að vinna að mörgum athyglisverð-
um verkefnum um þessar mundir.
Þar má nefna fyrstu plötu hljóm-
sveitarinnar Tristian, hans eigin
sólóplötu, starf með hinni nýju
sveit Mónakó og tónlist við leik-
ritið Draumleikur eftir August
Strindbergh.
Samstarf með Mugison
Pétur hefur einnig unnið mikið
með tónlistarmanninum Mugison
undanfarið og átti meðal annars í
tveimur lögum á hans síðustu
plötu, Mugimama is this Monkey-
music?, sem sló í gegn fyrir
síðustu jól. Pétur samdi lagið
Murr murr með Mugison, útsetti
lagið Salt, spilaði á píanó í What I
Would Say In Your Funeral og á
kassagítar í I'd Ask og 2 Birds.
Einnig hefur hann oft spilað með
Mugison á tónleikum og fer vænt-
anlega með honum í tónleikaferð
til útlanda í maí.
„Við erum gamlir félagar síðan
á menntaskólaárunum og mjög
góðir vinir,“ segir Pétur um sam-
starfið við Mugison. „Þetta er
búið að vera draumur og í raun af-
sökun fyrir því að geta verið
saman. Við erum að bara að vinna
og njóta félagsskapar hvors
annars. Hann er náttúrlega frá-
bær talent og við höfum fengið
tækifæri til að gera hluti út frá
því,“ segir hann.
Sólóplata í vinnslu
Pétur stefnir að því að klára nokk-
ur verkefni fyrir sumarið, þar á
meðal að gefa út sólóplötuna sína
og fyrstu plötu Tristian. „Við
erum að taka upp núna og erum
með fyrirhugaðan útgáfudag í
maí. Þessi hljómsveit er búin að
vera heillengi starfandi en bara
með hléum. Stundum hefur þetta
verið hálfgerður saumaklúbbur.
En núna eftir að ég kláraði námið
mitt í vor ákváðum við að gera
eina plötu og sjá hvað gerist,“
segir hann og lýsir tónlist sveitar-
innar sem framsækinni rokktón-
list sem þó sé farin að færast út í
þjóðlagapælingar. Hvað varðar
sólóplötuna segir Pétur að hún
hafi verið leyndarmál fram að
þessu. „Ég er með alveg fullt af
lögum sem ég á eftir að taka upp.
Ég er reyndar búinn að taka upp
eitt til tvö lög en ætla að klára
hana þegar ég hef tíma. Fyrst
ætla ég að einbeita mér að Tristi-
an og leikhúsinu.“
Tónlist við Draumleik
Pétur er afar spenntur fyrir tón-
listinni við Draumleik, en leikritið
verður frumsýnt þann ellefta
mars á stóra sviðinu í Borgarleik-
húsinu. „Ég hef áður gert dans-
leikhúsverk. Það var í sumarleik-
húsi fyrir fjórum árum en það var
aðeins öðruvísi því þar var músík
allan tímann. Þá var ég að vinna
með hópi fólks sem tók sig saman
og sótti um styrk til að gera eitt-
hvað skemmtilegt. Þarna voru
meðal annars Daníel Bjarnason,
María Huld, Ólafur Egill, Álfrún
Örnólfsdóttir og Tommi úr Nóa
Albínóa,“ segir hann.
Í Draumleik munu leikarar
úr útskriftarhópi Listaháskóla
Íslands fara með helstu hlutverk,
auk leikara úr Borgarleikhúsinu.
Pétur er hvergi smeykur við verk-
efnið og veit að hann hefur margt
gott fram að færa. „Ég hef samið
stærri verk í skólanum og gert út-
setningar fyrir hinar og þessar
hljómsveitir en ég hef ekki feng-
ist við svona áður. Þetta verður
mjög spennandi.“
Í nýju Stuðmannamyndinni
Áður en Pétur hóf námið var hann
einnig í hinum ýmsu verkefnum.
Auk þess að vera meðlimur Tristi-
an starfaði hann með Ragnhildi
Gísladóttur þegar sólóverkefni
hennar, Ragga and the Jack Magic
Orchestra, var endurvakið í
London. Fyrir nokkru síðan bað
Ragnhildur hann síðan um að
koma fram í nýjustu Stuðmanna-
myndinni, Í takt við tímann, þá
sem gítarleikari hljómsveitar-
innar Mónakó. „Hljómsveitin tók
fyrstu æfinguna sína daginn fyrir
sjónvarpsútsendinguna Neyðar-
hjálp úr norðri. Áður hafði hún að-
eins komið saman í hljóðveri til að
taka upp lagið og í myndinni
sjálfri. Það var mikið ævintýri að
taka þátt í þessari mynd og ég
kynntist mörgu góðu fólki.“ Þrátt
fyrir að margir hafi spurst fyrir
um Mónakó hefur sveitin þó ekki
verið formlega stofnuð enn sem
komið er.
Pétur lítur björtum augum á
framtíðina og á von á skemmti-
legu ári. Eftir að hafa lokað sig
töluvert frá umheiminum í tón-
listarskólanum virðist sem hann
sé að springa út um þessar
mundir og það verður gaman að
fylgjast með komandi verkefnum
hans.
freyr@frettabladid.is
Sprengja
í sumar
MUGISON Tónlistarmaðurinn Mugison hefur þekkt Pétur Þór Benediktsson í fjölmörg ár.
Mugifriend lætur
í sér heyra
PÉTUR ÞÓR BENEDIKTSSON Pétur er með mörg járn í eldinum um þessar mundir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
26-39 (26-27) Helgarefni 21.1.2005 15:32 Page 2