Fréttablaðið - 22.01.2005, Qupperneq 28
[ ]
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Verð kr. 39,900.-
Ný námskeið vikulega, staðsetning Mjódd
Sími: 894-2737
www.ovs.is
Vinnuvélanámskeið
ÁG mótorsport • Klettháls 9
110 Reykjavík • s. 587 5547
Einnig á Akureyri
Bónstöðin • Njarðarnesi 1
s. 466 3900Verslun á netinu : www.ag-car.is/motorsport
T.d. silfur, rauðar eða bláar rúðuþurrkur
með vindskeið sem heldur þurrkunum þétt
við rúðuna og alvöru gúmmíi sem endist.
Við erum með fulla búð af
flottum vörum á bílinn þinn.
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Að sjá lengra en nef manns nær
Það væri mikill kostur í umferðinni að geta séð fyrir horn. Það væri líka
gott að geta séð í myrkri, sem dagur væri. Ég mundi heldur ekki fúlsa
við því að geta séð yfir alla hina bílana svo ég viti hvað er að
gerast í umferðinni í kringum mig. En ég verð víst að láta mér nægja að
horfa út um framrúðuna og sjá bara það sem er beint fyrir framan mig.
Það er því algjört lykilatriði að rúðan sé hrein og að rúðuþurrkurnar séu
starfi sínar vaxnar.
Með því að tjöruþvo bílinn reglulega getum við aukið líftíma þurrku-
blaða (og bílsins) til muna. Bæði er hægt að gera það á bílaþvottastöð-
um og með því að kaupa tjöruhreinsi, úða yfir bílinn og strjúka svo af
honum, til dæmis með svampi og volgu sápuvatni. Ennfremur má nota
tjöruhreinsi eða WD 40 og pappírsþurrkur til að þvo þurrkublöðin og
drýgja þannig nýtingu þeirra. Þá bleytum við þurrkublöðin með hreinsi-
efninu og þurrkum þau með pappír þangað til hann hættir að taka svart-
an lit af þeim. Loks er svo hægt að fá litla sápubrúsa á bensínstöðvum
til að hella í rúðupissið. Þeir geta gert kraftaverk á skítugri rúðu, en
auðvitað aðeins ef þurrkublöðin eru heilleg og hrein. ■
Tjöruhreinsi á dekkin
Í vetrarhálkunni er gott ráð að úða tjöruhreinsi á dekkin. Það dregur úr hættunni á að þau renni á
ísnum. Hafðu í huga að sumar tegundir tjöruhreinsis menga umhverfið og vertu vakandi fyrir því
að velja umhverfisvænan hreinsi.
Toyota og PSA Peugeot Citroen hafa í
samstarfi þróað nýjan smábíl fyrir
Evrópumarkað. Í raun eru bílarnir þrír og
heita Peugeot 107, Citroen C1 og Toyota
Aygo og munu verða kynntir á bílasýn-
ingunni í Genúa í mars á þessu ári. Birt-
ar hafa verið ljósmyndir af bílunum sem
verða settir í framleiðslu og sölu seinna
á þessu ári. Að mestu leyti eru bílarnir
eins, en hver og einn hefur sitt sérstaka
útlit sem auðkenna bifreiðar Peugeot,
Citroen og Toyota. Bílarnir þrír eru allir
3,4 metrar á lengd, 1,6 metrar á breidd
og koma með 1 lítra bensínvél og 1,4
lítra dísilvél. Sérstök áhersla hefur verið
lögð á öryggi og umhverfi í hönnun bíl-
anna og eru þeir afar sparneytnir. Bílarn-
ir eru búnir til fyrir Evrópumarkað þar
sem gert er ráð fyrir að eftirspurn eftir
sparneytnum smábílum muni aukast.
Smáir og knáir
Citroen, Peugeot og Toyota kynna þrjá nýja smábíla
Nýr Honda CR-V hjá Bernhard.
Í dag verður nýi Honda CR-V
borgarjeppinn frumsýndur hjá
Bernhard Vatnagörðum.
Ný hönnun að framan gefur
bílnum enn fágaðra útlit en áður og
hvert smáatriði að innan og utan er
vandlega úthugsað. Flatt gólfið,
færanleiki sætanna og hurðaopn-
uninn gera plássnýtinguna í CR-V
einstaklega góða. Öll stjórntæki
eru þægileg í notkun og innan seil-
ingar í fallega hannaðri og vand-
aðri innréttingu. Hjartað í CR-V er
þó aflmikil og sparneytin vélin, há-
þróað fjórhjóladrifið og fullkomn-
ar skiptingar sem vinna saman eins
og hugur manns. Í þessum nýja
Honda CR-V er meiri staðalbúnað-
ur en í eldri útgáfunni, til dæmis
fullkomin aksturstölva, tölvustýrð
loftkæling og geislaspilari.
Hjá Honda er allur öryggis-
búnaður í hávegum hafður. Honda
CR-V er með ABS-hemlalæsivörn,
EBD-hemlaátaksdreifingu og BA-
hjálparhemlun til að minnka heml-
unarvegalengd og hjálpa ökumanni
að hafa stjórn á bílnum við nauð-
hemlun. Í bílnum eru tveir tveggja
þrepa SRS-loftpúðar í mælaborði
og tveir hliðarloftpúðar til að
vernda ökumann og farþega. Spól-
og skrikvörn og loftpúðagardínur í
þaki eru val um staðalbúnað.
Rýmið inni í bílnum er mikið og
nýtt til fullnustu. Aftursætin eru á
sleðum og hægt að stilla sætisbök-
in þannig að allir farþegar geta
komið sér vel fyrir. Vel hugsuð opn-
un hurða og hæð sæta gerir afar
þægilegt að stíga inn og út úr CR-V.
Umboðsaðilar Bernhard Honda
á Íslandi eru Bílavík í Reyjanesbæ,
Bílver á Akranesi, Höldur á Akur-
eyri og Bragginn í Vestmanneyj-
um. ■
Vinsæll borgarjeppi
í nýrri útfærslu
Skoda Octavia 4x4 hefur unnið til
fjölda alþjóðlegra viðurkenninga.
Sýning á fjórhjóla-
drifnum bílum
Stórsýning 4x4 hjá Heklu um helgina.
Hekla hf. efnir til stórsýningar um
helgina á 4x4 bílum frá Mitsubishi,
Volkswagen og Skoda. Frá Mitsubishi
Motors má finna Mitsubishi Pajero –
sigurvegarann í Dakar 2005 rallinu,
erfiðustu rallkeppni heims – Pajero
Sport, L-200 og Outlander. Frá
Volkswagen koma Touareg og Golf
Variant og frá Skoda-verksmiðjunum
Skoda Octaiva, sem hefur unnið til
fjölda alþjóðlegra viðurkenninga.
Opið verður í dag, laugardag, og á
morgun, sunnudag, kl. 11-16. Þess
má einnig geta að sölumenn í jeppa-
deild Bílaþings verða í sérstöku
samningastuði og ýmis tilboð verða á
borðinu.
HONDA CR-V ER TIL Í NOKKRUM ÚTFÆRSLUM:
LS útgáfan er 5 dyra með 2,0 l 150 hö vél og stálfelgum.
ES útgáfan er 5 dyra með 2,0 l 150 hö vél en er einnig fáanlegur með 2,2 l – CDTi
dísilvél.
Álfelgur eru staðalbúnaður í ES-útgáfunni, sem og skipt leðuráklæði á sætum.
Excecutive er með 2,0 l vél og beinni innspýtingu með leðuráklæðum, sóllúgu, og
álfelgum. Bensínbílarnir eru fáanlegir bæði sjálf- og beinskiptir og dísilbílarnir
beinskiptir.
Bílaleiga B&L tekin
til starfa
Leigt í tveimur verðflokkum.
Bílaumboðið B&L hefur sett á fót nýja
bílaleigu. Að sögn Bjarna Benedikts-
sonar gæðastjóra er markmiðið með
stofnun hennar fyrst og fremst að
auka þjónustu gagnvart viðskipta-
vinum. „Bílaleigan er hugsuð sem
þægileg og hagkvæm leið fyrir þá
sem vantar bíl tímabundið vegna
þess að viðkomandi er með bílinn
sinn í þjónustu hjá okkur eða af
öðrum orsökum. Jafnframt leigjum
við út atvinnubíla af öllum stærðum.“
Aðeins tveir verðflokkar eru hjá Bíla-
leigu B&L, fyrir smærri og meðalstóra
bíla og atvinnubíla annars vegar og
jepplinga, jeppa og stærri atvinnubíla
hins vegar. „Fyrir smærri flokkinn er
sólarhringsleigan kr. 2.500 og þann
stærri kr. 3.000. Þar sem við hugsum
þetta sem aukna þjónustu við við-
skiptavini okkar er verðinu stillt veru-
lega í hóf, eins og sjá má. Það er þó
ekkert skilyrði að fólk hafi verið í við-
skiptum hjá okkur til að njóta þjón-
ustu bílaleigunnar, en í þeim tilvikum
bætist 20% álag á verðið,“ segir
Bjarni.
Bílaleiga B&L er í B&L versluninni og
er forstöðumaður hennar Þorvaldur
Heiðarsson.
28-29 (02-03) Allt bílar 21.1.2005 15:27 Page 2