Fréttablaðið - 22.01.2005, Síða 39
LAUGARDAGUR 22. janúar 2005 27
GASVERKSMIÐJU MÓTMÆLT Green-
peace-samtökin í Mexíkó mótmæltu fyrir-
hugaðri byggingu gasverksmiðju á
Corondo-eyju, rétt utan við Tijuana, með
því að klæða sig upp sem kaktus, fugl og
egg. Samtökin telja að verksmiðjan stofni
dýralífi á eyjunni í hættu.
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON Danskir
bókmenntagagnrýnendur eru yfir sig hrifnir
af ljóðasafni hans.
Einari Má
hælt í
Danmörku
Ljóðasafni Einars Más Guð-
mundssonar, Ræk mig nord-
lysene, er hælt í hvítvetna í
dönskum fjölmiðlum en safnið
kom út í Danmörku fyrir stuttu í
þýðingu Erik Skyum Nielsen.
Gagnrýnandi Politiken, Kim
Skotte, lýkur dómi sínum á að
kalla ljóðasafnið „dýrðlega og
kröftuga lesningu“. Í dómnum
segir Skotte að Einar Már sé vel
kunnur í Danmörku fyrir Engla
alheimsins, Riddara hringstigans,
Vængjaslátt í þakrennum og
Eftirmála regndropanna, og að
það sé vel þess virði að kynnast
ljóðskáldinu Einari Má. Hann
segir það eins og að finna „ferska
íslenska vinda streyma inn“ að
lesa ljóð Einars.
Erik Svendsen, gagnrýnandi
Jyllands Posten, dáist að afkasta-
getu íslensku þjóðarinnar. Hann
minnist meðal annars á að Íslend-
ingar eigi orðið Magasin og að
Björk hafi haft mikil áhrif á nú-
tíma tónlist.
Liselotte Wiemer í Weekenda-
visen segir Einar Má færa Dönum
sjálf norðurljósin í ljóðum sínum
og heldur vart vatni yfir ljóða-
safninu hans.
Í tilefni af útkomu ljóðasafns-
ins var samkoma haldin í Svarta
Demantinum, byggingu Konung-
lega Bókasafnsins í Kaupmanna-
höfn, þar sem Einar Már las úr
bókinni ásamt danska höfundin-
um Johannesi Møllehave. ■
Naktar stjörnur
Stórstjörnur sýna meira hold nú
en áður þegar þær mæta á frum-
sýningu kvikmynda, samkvæmt
nýrri könnun sem birt var fyrir
skömmu. Samkvæmt könnun-
inni sýna kvikmyndastjörnurnar
meira en helming af líkamanum
þegar þær ganga eftir rauða
dreglinum.
Rannsakendur voru viðstaddir
frumsýningar kvikmynda og
skráðu samviskusamlega hjá sér
hvernig klæðaburður stjarnanna
var og samkvæmt niðurstöðunum
sýna þær um 59% af holdinu.
Þróunin hefur verið ansi hröð
síðustu ár. Sem dæmi vakti Liz
Hurley mikla athygli þegar hún
mætti í efnislitlum kjól frá
Versace á frumsýningu bresku
gamanmyndarinnar Four Wedd-
ings and a Funeral árið 1994. Það
ár sýndu stjörnurnar aðeins um
39% af holdi. Það er þó mun meira
en árið 1950 þegar stjörnurnar
sýndu aðeins um 7% af líkaman-
um.
Rannsakendur telja að haldi
þessi þróun áfram megi búast við
því að stjörnurnar sýni um tvo
þriðju hluta af líkama sínum árið
2010 þegar þær mæta á frumsýn-
ingar.
„Klæðaburður 21. aldarinnar
er afar ólíkur því sem gerðist á
sjötta áratug síðustu aldar,“ sagði
Chris Hilton, stjórnandi rannsókn-
arinnar. „Nú er klæðaburðurinn
miklu tilraunakenndari og stjörn-
urnar taka mun meiri áhættu.“ ■
BERAR HENDUR Leikkonan Portia de
Rossi mætti í heldur efnislitlum kjól þegar
hún mætti á frumsýningu myndarinnar
Blood Work árið 2002.
EFNISLÍTILL KLÆÐNAÐUR Leikkonan
og módelið Nadia var meðal gesta á frum-
sýningu Oceans Twelve í desember á síð-
asta ári.
BERT BAK Jennifer Lopez er að vanda
mjög glæsileg þegar hún mætir á rauða
dregilinn og lætur iðulega glitta í bert
hold.
26-39 (26-27) Helgarefni 21.1.2005 15:33 Page 3