Fréttablaðið - 22.01.2005, Side 40
28 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
27
00
4
0
1/
20
05
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald
Verð frá 36.900 kr.*
Netsmellur til USA
Bandaríkjaferðir á frábæru verði
Bókaðu á www.icelandair.is
G amaldags kallahattar, flauelsjakkaföt,prjónavesti, rós í hnappagatið, röndóttarskyrtur og áberandi litir. Það sást augljós-
lega á tískupöllunum í Mílanó að það heitasta
þessa dagana eru fín og örlítið snobbaraleg
föt og jafnvel eilítið nördaleg. Það er til orð
yfir þennan stíl á ensku og það er „dandy“
samanber „Fine and dandy“ -maður sem legg-
ur áherslu á glæsileika og fágun í fatn-
aði og framkomu, jafnvel hégómagjarn
eða snobbaður.
Uppábrot eru í buxunum, þær girtar
hátt upp og jafnvel hafðar örlítið stutt-
ar svo fínpússaðir skórnir sjáist. Tvíd-
fatnaður er heldur ekki bara fyrir
konurnar! Það er snobbaða týpan sem
er að valta yfir tískuheiminn þessa
dagana. Hún er þó aðeins rokkaðri en
í gamla daga. Blanda af rykfrakkastíl
Peter Sellers og rokkuðum stíl Mick
Jaggers.
Tískublaðið Vogue talar einnig um
þennan stíl og nefnir André 3000 úr
Outkast sem einn áhrifavaldanna. Hann
er einmitt þekktur fyrir glerfínan stíl
sinn og ást sína á gamaldags höttum.
Ekki er erfitt að nálgast fatnað af þessu
tagi á Íslandi því nóg er að skella sér í
fínar búðir sem eiga sinn trausta við-
skiptahóp í flokki eldri manna eins og
búð Guðsteins á Laugaveginum.
Þetta er týpan sem fer á kaffihús,
býður afgreiðslukonunni kurteisis-
lega góðan daginn og lyftir um leið
upp hattinum. Sest svo niður og
les menningarlegar bókmenntir
íbygginn á svip. Þetta er stíll fínu
gömlu kallanna með hattana.
Þeir eru flottir og þeirra stíll er
jafnvel enn þá flottari á glæsi-
legum ungum mönnum!
hilda@frettabladid.is
Herratískan í Mílanó haust/vetur 2005-2006:
Stíll gömlu kallanna
BURBERRY PRORSUM COSTUME NATIONAL HOMME
FRÁ VINSTRI:
BURBERRY PRORSUM
FRANKIE MORELLO
CARLO PIGNATELLI
ANTONIO MARRAS PRADA
TRUSSARDI
40-41 (28-29) Helgarefni 21.1.2005 15:24 Page 2