Fréttablaðið - 22.01.2005, Page 40

Fréttablaðið - 22.01.2005, Page 40
28 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 27 00 4 0 1/ 20 05 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald Verð frá 36.900 kr.* Netsmellur til USA Bandaríkjaferðir á frábæru verði Bókaðu á www.icelandair.is G amaldags kallahattar, flauelsjakkaföt,prjónavesti, rós í hnappagatið, röndóttarskyrtur og áberandi litir. Það sást augljós- lega á tískupöllunum í Mílanó að það heitasta þessa dagana eru fín og örlítið snobbaraleg föt og jafnvel eilítið nördaleg. Það er til orð yfir þennan stíl á ensku og það er „dandy“ samanber „Fine and dandy“ -maður sem legg- ur áherslu á glæsileika og fágun í fatn- aði og framkomu, jafnvel hégómagjarn eða snobbaður. Uppábrot eru í buxunum, þær girtar hátt upp og jafnvel hafðar örlítið stutt- ar svo fínpússaðir skórnir sjáist. Tvíd- fatnaður er heldur ekki bara fyrir konurnar! Það er snobbaða týpan sem er að valta yfir tískuheiminn þessa dagana. Hún er þó aðeins rokkaðri en í gamla daga. Blanda af rykfrakkastíl Peter Sellers og rokkuðum stíl Mick Jaggers. Tískublaðið Vogue talar einnig um þennan stíl og nefnir André 3000 úr Outkast sem einn áhrifavaldanna. Hann er einmitt þekktur fyrir glerfínan stíl sinn og ást sína á gamaldags höttum. Ekki er erfitt að nálgast fatnað af þessu tagi á Íslandi því nóg er að skella sér í fínar búðir sem eiga sinn trausta við- skiptahóp í flokki eldri manna eins og búð Guðsteins á Laugaveginum. Þetta er týpan sem fer á kaffihús, býður afgreiðslukonunni kurteisis- lega góðan daginn og lyftir um leið upp hattinum. Sest svo niður og les menningarlegar bókmenntir íbygginn á svip. Þetta er stíll fínu gömlu kallanna með hattana. Þeir eru flottir og þeirra stíll er jafnvel enn þá flottari á glæsi- legum ungum mönnum! hilda@frettabladid.is Herratískan í Mílanó haust/vetur 2005-2006: Stíll gömlu kallanna BURBERRY PRORSUM COSTUME NATIONAL HOMME FRÁ VINSTRI: BURBERRY PRORSUM FRANKIE MORELLO CARLO PIGNATELLI ANTONIO MARRAS PRADA TRUSSARDI 40-41 (28-29) Helgarefni 21.1.2005 15:24 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.