Fréttablaðið - 22.01.2005, Page 44
Aðstöðu verkamanna á
Kárahnjúkum er ábóta-
vant um margt þó að
hún hafi batnað mikið
frá því að fyrstu tyrk-
nesku húsunum var
hróflað þar upp fyrir
tæpum tveimur árum.
Þorpið á Kárahnjúkum er snyrti-
legt og því er vel við haldið að
utan. Húsin eru yfirleitt hvít- eða
ljósgrámáluð með bláar
gluggaumgjarðir. Þorpið er prýði-
lega skipulagt og nóg er plássið
fyrir stórar vinnuvélar, jeppa og
bíla fyrir utan.
Þegar gengið er um híbýli
verkamannanna kemur ýmislegt í
ljós. Í tyrknesku húsunum, þar
sem þorri íbúanna býr, og þá fyrst
og fremst óbreyttir starfsmenn,
eru útihurðir úr blikki sem auð-
veldlega er hægt að sveigja með
handafli. Hurðirnar eru svo óþétt-
ar að í sumum tilvikum fennir inn
í forstofuna. Á hurðunum eru
hurðarhúnar úr plasti og á einum
neyðarútganginum hefur hurðar-
húnninn brotnað að utan. Húnn er
þó á hurðinni að innan. Þetta sýn-
ir auðvitað hversu léttvægar
hurðirnar eru.
Herbergin eru hljóðbær
Rétt er að taka fram að búið er að
skipta um og þétta glugga svo að
ekki snjóar inn um þá og góður
hiti er í húsunum. Þá er búið að
setja nýtt þak ofan á það sem fyr-
ir var eftir að allt fór á flot í fyrra.
Ekki hefur borið á því síðan.
Herbergin eru hljóðbær,
veggirnir eru léttir og stundum
má sjá að herbergishurð fyllir
ekki alveg upp í hurðaropið svo að
það loftar vel að ofan og neðan.
Húsgögnin í herbergjunum eru
einföld, rúm og borð ásamt fata-
skápi. Misjafnt er hversu vel
menn hafa komið sér fyrir en íbú-
arnir ku yfirleitt vera með sitt
eigið sjónvarp inni á herbergjun-
um og margir eru líka með tölv-
urnar sínar.
Húsin eru hreinleg að innan en
sum þeirra eru ansi illa farin að
innan. Sums staðar má sjá ljóta
veggi og jafnvel stórar holur.
Í nýjustu húsunum er hreinlæt-
isaðstaða inni af herberginu en í
flestum tilfellum er það ekki, að-
eins sameiginleg aðstaða á gang-
inum.
Nýr tækjasalur vel sóttur
Ekki var gert ráð fyrir setustofu í
húsunum en úr því hefur verið
bætt að hluta og eru nú setukrók-
ar í öllum húsunum. Þessir krókar
líta ekki vel út, húsgögnin virðast
vera léleg og eru setustofurnar
lítið sem ekkert notaðar, með und-
antekningum þó.
Impregilo rekur nýjan tækja-
sal sem er til fyrirmyndar og lítur
afskaplega vel út. Hann er mikið
sóttur. Verið er að reisa íþróttahús
og eru miklar vonir bundnar við
það af hálfu starfsmanna.
Tyrknesku húsin eru ekki leng-
ur keypt að Kárahnjúkum heldur
er Impregilo farið að kaupa hefð-
bundnar norskar vinnubúðir sem
Íslendingar hafa góða reynslu af.
Ítölsku stjórnendurnir búa
ekki í tyrknesku húsunum. Skipt
hefur verið um stjórnendur að
hluta til og koma nýju stjórnend-
urnir úr starfi fyrirtækisins í öðr-
um Evrópuríkjum. Þeir hafa
reynst vel. Þetta kom fram í
skoðunarferð með yfirtrúnaðar-
manni fyrr í vikunni. ■
O ddur Friðriksson, yfirtrún-aðarmaður í Kárahnjúka-virkjun, er í hópi þeirra
sem best þekkja til Impregilo og
aðstæðna verkamanna á Kára-
hnjúkum. Hann fer daglega um
vinnusvæðið, fylgist með því
hvernig mönnunum líður, hlustar á
umkvörtunarefni þeirra og reynir
að leggja þeim lið. Hann segist
treysta því að mennirnir komi til
sín hafi þeir yfir einhverju að
kvarta en hann reyni að þrýsta
ekki á þá með óviðeigandi hætti.
Starfið á Kárahnjúkum hefur
verið annasamt frá upphafi. At-
hugasemdir voru strax gerðar og
telur Oddur líklegt að samskiptin
milli Impregilo og verkalýðshreyf-
ingarinnar hefðu þróast öðruvísi ef
strax hefði verið brugðist við gagn-
rýni. Það hefði einnig orðið ódýr-
ara fyrir Impregilo þegar upp er
staðið.
Tyrknesku húsin á Kárahnjúk-
um uppfylltu ekki íslenskar kröfur.
Það kom í ljós þegar á reyndi. Allar
nýjar tegundir af stálgrindarhús-
um eiga að fara í skoðun hjá Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins og það segir Oddur að hafi ekki
verið gert. Viðgerðir hafi farið
fram á húsunum, ný þök sett á þau,
þéttilistar í kringum glugga og
dúkar lagðir á gólf. Þá sé dyraum-
búnaðurinn pjátur.
„Við verðum auðvitað að sætta
okkur við þessi hús þó að við séum
ekki sátt við þau. Það eina sem við
getum gert er að reyna að bæta
þau,“ segir hann.
Lögregla sést varla
Oddur gagnrýnir frammistöðu og
framgang íslenska stjórn- og eft-
irlitskerfisins. Það hafi ekki virk-
að nógu vel. „Þeir hafa dregið sig
í hlé. Ágreiningsmálin eru mörg
og við höfum orðið að draga opin-
bera aðila að verkinu. Heilbrigðis-
eftirlit Austurlands hefur unnið
mjög faglega og starfsmenn
Vinnueftirlitsins hafa komið sí-
fellt öflugri til leiks. Svona var
þetta ekki í byrjun,“ segir hann.
Sögusagnir hafa verið um
eiturlyf og vændi á Kárahnjúkum
en Oddur segist ekki hafa orðið
var við það. Á Kárahnjúkum sé
gott fólk sem vilji fá að sinna sínu
starfi í friði og geri sitt besta. Íbú-
ar á Kárahnjúkum óski eftir að
njóta sama eftirlits og þjónustu og
önnur bæjarfélög. Lögregla komi
aðeins í skötulíki og iðnréttindi
séu ekki einu sinni könnuð.
Tilfinningalega sárt
Reyndir starfsmenn eru á Kára-
hnjúkum, sérstaklega eru Kín-
verjarnir og Pakistanarnir með
langa starfsreynslu af stíflufram-
kvæmdum. Þetta eru fyrst og
fremst tækjamenn sem hafa unn-
ið á tækjum víða um heim og hafa
ekki síðri reynslu en Íslending-
arnir. Þessir menn eru sáttir við
kjör sín og brosa bara og kinka
kolli þegar Oddur spyr hvort laun-
in skili sér með réttum hætti í
heimalandinu.
„Ég hef engan rétt til að skoða
bankareikningana þeirra svo að
ég verð að treysta því að þeir segi
satt,“ segir hann og rifjar upp
samtal við Bólivíumann sem hafði
þá athugasemd eina að þurfa að
borga skatt til Íslands. „Það
fannst honum tilfinningalega sárt.
Þetta var eina talan sem fór í
taugarnar á honum,“ segir Oddur.
Mönnum „skilað“
Portúgalarnir eru hins vegar
komnir undir öðrum formerkjum
til Íslands. Þeir koma í gegnum
starfsmannaleigurnar. „Þær eru
eitt stærsta vandamál á vinnu-
markaði í dag í Evrópu. Þær fara
á milli landa og nýta sér glufur í
skattakerfinu. Íslendingar hafa
fengið starfsmenn í gegnum þær í
nokkur ár en aldrei sem nú. Við
erum fyrst nú að kynnast þessu
vandamáli í miklum mæli,“ segir
Oddur.
Athyglisvert er að evrópsk
fyrirtæki nýta sér starfsmanna-
leigur í auknum mæli og víkja sér
þar með undan ábyrgð gagnvart
lögum, reglugerðum og starfs-
mönnunum sjálfum en talsvert er
um að mönnum sé skilað ef þeir
þykja ekki standa sig. „Þegar
starfsmenn eru látnir fara segjast
stjórnendurnir ekki vera að reka
þá heldur skila þeim,“ segir
Oddur.
Íslensk stjórnvöld hafa aldrei
kynnst starfsmannaleigunum að
ráði fyrr en nú og því er kerfið
hérna götótt. Oddur telur að setja
þurfi skýrar reglur. Til greina
komi að skylda leigustarfsmenn-
ina til heimilisfestu hér á landi en
ekki sé hægt að verja mennina
32 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
ANNAR HLUTI
AÐBÚNAÐUR
Á KÁRAHNJÚKUM
BLIKKHURÐIR? Blikkhurðir eru á tyrknesku húsunum og í mörgum tilfellum er plasthurðar-
húnn. Oddur Friðriksson yfirtrúnaðarmaður beygir hurðina til að sýna hve fánýt hún er.
SETUSTOFA ÍSLENSKU KVENNANNA Eins og sjá má hafa þær komið sér vel fyrir,
enda er þetta ein allra besta setustofan. Húsin eru hreinleg og vel þrifin.
Á GÖNGU UM ÞORPIÐ Það er kalt í þorpinu, enda byggt upp á hálendi. Í tyrknesku
húsunum eru sumar útihurðir það óþéttar að það fennir inn. Farið er að kaupa
hefðbundnar norskar vinnubúðir í stað þeirra tyrknesku.
SNYRTILEG OG FALLEG SETUSTOFA
Þessi húsgögn eru dæmigerð fyrir það
sem er í setustofunum. Þessi húsgögn
hafa verið gagnrýnd, þau þykja hvorki
þægileg né falleg.
Ég treysti því að þeir segi satt
Oddur Friðriksson er launaður yfirtrúnaðarmaður við Kárahnjúkavirkjun. Hann fer á milli vinnusvæða
og fylgist með, hlustar á umkvörtunarefni og reynir að fá bætt úr.
Hljóðbært en heldur hita
EFTIRLIT OG ÖRYGGI Á KÁRAHNJÚKUM Leó Sigurðsson, öryggis- og kynningarfulltrúi
Impregilo, Þorvaldur Hjarðar, umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins á Austurlandi, og Einar M.
Magnússon, öryggisfulltrúi hjá Impregilo, á svæðinu við távegginn á Kárahnjúkum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VAVinnutíminn á Kárahnjúkum
Erlendir starfsmenn Impregilo vinna á
11 tíma vöktum nema í göngunum,
þar eru átta tíma vaktir. Þeir eru ráðn-
ir í fimm og hálfan mánuð og fá svo
frí. Portúgalarnir fá frí í hálfan mánuð
og ókeypis ferð heim. Kínverjarnir og
Pakistanarnir fá 20 daga frí og ókeyp-
is ferð heim.
Vinnuvikan er sex dagar og frí á
sunnudögum. Vinnudagurinn er
þannig að verkamennirnir vakna
klukkan sex og eru komnir út á
vinnusvæði klukkan sjö. Kaffiskúrar
eru á vinnusvæðunum og kaffiað-
staða inni í göngunum. Þar er stand-
andi kaffi og Selecta sér til þess að
heitt kaffi sé alltaf á könnunni.
Íslendingarnir vinna í 28 daga og fara
svo heim í vikufrí. Þetta þykir langt
úthald og er talið eitt af því sem komi
í veg fyrir áhuga Íslendinga á starfi
hjá Impregilo. Hjá íslensku verktaka-
fyrirtækjunum í nágrenninu vinna
menn ýmist í tíu daga og fá fjögurra
daga frí eða tólf daga og fá sex daga
frí. Sjálfur vinnur Oddur í tíu daga og
er á vakt allan sólarhringinn. Hann
fær svo fjögurra daga frí.
44-45 (32-33) Kárahnjúkar 21.1.2005 21:04 Page 2