Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.01.2005, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 22.01.2005, Qupperneq 62
50 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Í gó›um málum E N N E M M / S ÍA / N M 14 6 6 4 ...fá Íslendingar fyrir að halda í gamlar hefðir og borða þorramat með bestu lyst. HRÓSIÐ Lárétt: 1drolla, 6vot, 7au, 8ek, 9akk, 10óma, 12ask, 14dró, 15tá, 16óó, 17 eir, 18spil. Lóðrétt: 1dvel, 2rok, 3ot, 4lakasti, 5 auk, 9ama, 11hróp, 13kári, 14dós, 17 el. Lárétt: 1 gaufa, 6 blaut, 7 tvíhljóði, 8 keyri, 9 hag, 10 hljóma, 12 ílát, 14 teymdi, 15 á fæti, 16 tveir eins, 17 málm- ur, 18 hljóðfæraleikur. Lóðrétt: 1 uni, 2 stormur, 3 pot, 4 aumasti, 5 til viðbótar, 9 leiðindi, 11 kall, 13 vindur, 14 ílát, 17 fæði. Lausn: Uppsafnaður glaðningur Á þessum bæ er eng- inn bóndi. Ég er hins- vegar búin að safna upp svo mörgum glaðningum undan- genginna bóndadaga að ef einhverntíma slysast bóndi á bæinn verður gríðar- lega stíft glaðningaprógram allan dag- inn. Soldið scary!? Mjólk, smjör og lamb í brúnni Ég gladdi nú hreinlega alla bændur landsins með því að kaupa soldið vel af mjólk, smjöri og osti og hafði svo lambakjöt í brúnni sósu og ís- lenskar kartöflur í kvöldmat. Svo hringdi ég líka í þrjá bændur norður í landi sem ég þekki og óskaði þeim góðs gengis við búskapinn! Daglegur glaðningur Ég hef tamið mér í gegnum tíðina að reyna að gleðja hann á hverjum einasta degi. Það er langskemmtilegast að sjá rómantík í hversdagslegum hlutum og bara augna- ráð getur glatt meira en mörg orð. Ann- ars er ég líka sjúk í óvæntar uppákomur og gærdagurinn var fullur af þeim. Snatt fyrir bónd- ann Sótti bóndann út á flugvöll og skutlaði honum á milli staða. Þúsund og ein nótt Dagurinn byrjaði ekki nógu vel. Planið var að vekja hann með æðislegum morgunverði í rúmið. En þegar ég vaknaði var hann búinn að taka til morgunverð handa mér. Ég lét samt ekki deigan síga og brá mér eftir æf- ingu út í búð og keypti í matinn – nú átti að útbúa ógleymanlegan bónda- dags dinner. Þegar heim var komið var vinkona okkar í heimsókn, hún er ekkja og sagðist ætla að bjóða okkur í mat, hún hefði nú engan bónda til að gleðja. Svo ég ákvað að gleðja hann með góðri sögu. Minntist þar konunnar í Þúsund og einni nótt. Hún giftist soldán sem lét hálshöggva allar eiginkonur sínar þær daginn eftir fyrstu nóttina – nema hana. Hún sagði honum sögur. | 5STELPUR SPURÐAR | Hvernig gladdir þú bóndann í gær? GUÐLAUG ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR EDDA BJÖRG- VINSDÓTTIR GUÐRÚN ÁSMUNDS- DÓTTIR UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR BJÖRK JAK- OBSDÓTTIR Kona sjómannsins fær góða dóma Þrátt fyrir að nýjasta plata Em- ilíönu Torrini, Fisherman's Wom- an, verði ekki gefin út fyrr en 31. janúar hafa margir gagnrýnendur gefið sitt álit á henni. Platan virðist falla vel í kramið hjá tónlistar- áhugamönnum og hún fær já- kvæða dóma hvarvetna á internet- inu. Tónlistartímaritið Q gefur plötunni þrjár stjörnur af fimm mögulegum og segir gagnrýnand- inn Dan Gennoe hana vera hina fínustu plötu frá „hinni“ íslensku tónlistarkonunni. Með því á hann sennilega við að þetta sé ekki Björk heldur „hin“ íslenska söng- konan. Hann minnist á að síðasta plata hennar, Love in the Time of Science, hafi farið framhjá mörg- um og einnig minnist hann að sjálf- sögðu á lagið Slow sem hún samdi fyrir Kylie Minogue. Fisherman's Woman þykir honum vera algjör andstæða við síðustu plötu vegna hversu órafmögnuð hún er. Honum þykir lögin bergmála af missi og einmanaleika en þó segir hann gleðina í barnalegri röddu Em- ilíönu lyfta vonleysislegum tóni plötunnar heilmikið upp. Gagnrýnandi breska dagblaðs- ins Guardian gefur plötunni fjór- ar stjörnur af fimm og fer fögrum orðum um hana. Hann líkir plöt- unni við rómantískan kvöldverð og hrá gítar- og píanóhljóð minna hann á fjarlægt glamur í postu- línsdiskum. Röddin þykir honum kristaltær og lögin sorglega falleg og í þeim undirtónn einmanaleika og þunglyndis. Í bestu lögunum að hans mati, Lifesavers og Next Time Around, segir hann Em- ilíönu hafa tekist að ná þeim áhrif- um sem fáum öðrum en Nick Dra- ke og Leonard Cohen hafi tekist. Í lokin segir hann að í lögunum leynist miklar skapsveiflur en ýjar að því að fáir muni standast fegurð þessarar plötu. ■ FROSTI REYR RÚNARSSON: KYNÞOKKAFYLLSTI MAÐUR LANDSINS Vel geymt leyndarmál Frosti Reyr Rúnarsson verðbréfa- miðlari var í gær valinn kyn- þokkafyllsti maður landsins af hlustendum Rásar 2. Skammt á eftir Frosta kom Júlíus Jónasson, fyrrverandi handboltakappi og núverandi þjálfari ÍR, og í þriðja sæti Valdimar Hafsteinsson, for- stjóri Kjöríss. „Þetta er alveg magnað,“ voru svör Frosta þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans rétt eftir að úr- slitin höfðu verið kunngjörð. Þá sat hann á kaffihúsi með vinnu- félögum sínum en neitaði því þó að vera að fagna kjörinu. „Við hittumst nú yfirleitt hér á föstu- dögum eftir vinnu og fáum okkur einn kaldann.“ Frosti sagðist ekki hafa fundið fyrir aukinni kvenhylli, svona nokkrum mínútum eftir kjörið. „Ég get ekki sagt að ég hafi fund- ið fyrir því. En það á eftir að koma í ljós. Það er samt magnað að taka vinnufélagann og sjarmatröllið Júlla í nefið. Það stendur upp úr eftir þetta,“ sagði Frosti en þeir Júlíus Jónasson starfa saman hjá KB banka. Frosti segir að tilnefn- ingarnar hafi byrjað sem létt vinnugrín sem hafi svo spurst út. „Mér skilst nú að þetta hafi farið langt út fyrir vinnustaðinn. Með miðlum eins og netinu er auðvelt að safna atkvæðum og mér hefn- ist fyrir það að þekkja nokkra.“ Frosti segist ekki vera þekktur kvennabósi og lýsir sér frekar sem hefðbundnum íslenskum stráki. Hann á unnustu sem heitir Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir en hún starfar hjá Landsbankanum og spilar handbolta með Víkingi. Frosti hafði rétt náð að láta Guð- mundu vita af kjörinu áður en hann hljóp til að taka við titlinum. „Hún var nú bara ánægð með karlinn. Sagðist hafa vitað þetta allan tímann. Ætli ég sé ekki bara vel geymt leyndarmál,“ segir kyn- þokkafyllsti maður landsins hlæj- andi. ■ Leiðrétting Tónlistarmaðurinn Mugison er ekki orðinn faðir. Biðin eftir því að Mugibaby komi í heiminn verð- ur því aðeins lengri en Fréttablað- ið vildi meina í blaðinu í gær. EMILÍANA TORRINI Nýja platan hennar er ekki enn komin út en hefur nú þegar fengið fjölda góðra dóma. FROSTI REYR RÚNARSSON Kynþokkafyllsti maður landsins vissi ekki hvort unnusta hans væri búin að skipuleggja eitthvað um kvöldið, á sjálfum bóndadeginum. „Ég er bú- inn að vera í vinnunni í allan dag og nú tekur bara eitthvað skemmtilegt við svona eins og alla aðra daga,“ sagði hið 31 árs gamla kyntröll. TÍU KYNÞOKKAFYLLSTU MENN LANDSINS: 1. Frosti Reyr Rúnarsson verðbréfamiðlari 2. Júlíus Jónasson handboltaþjálfari 3. Valdimar Hafsteinsson, forstjóri Kjöríss 4. Guðmundur Jóhannsson, fulltrúi Símans 5. Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri 6. Mugison (Örn Elías Guðmundsson) tónlistarmaður 7. Jónsi, söngvari Í svörtum fötum 8. Ólafur Páll Gunnarsson útvarps- maður 9. Magnús Jónasson hjá Sparisjóði Siglufjarðar 10. Óli Jón Kristinsson, málari og knattspyrnumaður með Haukum í Hafnarfirði 62-63 (50-51) Fólk aftasta 21.1.2005 19.28 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.