Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 4
4 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR Brotist var inn til formanns Félagsins Ísland-Palestína: Tölvu með mjög mikil- vægum gögnum stolið INNBROT Brotist var inn á heimili Sveins Rúnars Haukssonar, lækn- is og formanns Félagsins Ísland- Palestína, á föstudaginn. Sveinn segir að þriggja ára gamalli fartölvu af gerðinni Dell Inspirion 2500 hafi verið stolið. „Tölvan er í sjálfu sér ekki verðmæt heldur innihaldið,“ segir Sveinn Rúnar. „Í tölvunni eru mjög mikilvæg gögn sem snerta Félagið Ísland-Palestína. Þetta eru gögn sem nýtast engum nema okkur í félaginu. Í tölvunni eru greinar, skjalasafn, fundargerðir félagsins langt aftur í tímann, bréfaskipti við samtök úti í heimi og fleira sem ég vil endilega fá til baka.“ Sveinn Rúnar segist hafa til- kynnt brotið til lögreglunnar sem hafi strax komið á vettvang. Tölv- an hafi hins vegar ekki komið í leitirnar. Hann segist tilbúinn að borga hverjum þeim sem hefur tölvuna undir höndum skilagjald sem samsvarar verðmæti tölv- unnar. Viðkomandi getur haft samband í síma 895 1349. - th Stýrisblað brotnaði af Dettifossi í óveðri Flutningaskip Eimskipafélagsins varð stjórnlaust fyrir austan land í fyrrakvöld þegar stýrið brotnaði. Mikill sjór var á þessum slóðum. Varðskipið Týr hefur reynt að draga skipið að landi en dráttartaug hefur slitnað þrisvar, síðast í gærkvöld. BJÖRGUN Stýrisblað á Dettifossi, flutningaskipi Eimskipafélags- ins, brotnaði af skipinu í fyrra- kvöld austur af landinu. Varð- skipið Týr kom til aðstoðar seint í fyrrakvöld og tók Dettifoss í tog. Aðstæður voru mjög erfiðar á þessum slóðum vegna hvass- viðris og sjógangs. Dráttartaug milli skipanna slitnaði í fyrra- kvöld og aftur í gærdag. Það var um klukkan átta á föstudagskvöld þegar forsvars- menn Eimskips báðu um aðstoð Landhelgisgæslunnar þar sem Dettifoss lét ekki að stjórn. Þá var skipið statt átta sjómílur austur af Eystrahorni en skipið var á leið frá Reykjavík til Eski- fjarðar. Um tveimur tímum síð- ar mætti Týr Dettifossi þar sem skipið rak frá landi. Skipin héldu sjó um átján sjómílur austur af Papey og taug sem tókst að koma í Dettifoss slitn- aði skömmu fyrir miðnætti. Varðskipið Ægir kom einnig á staðinn um klukkan hálf ellefu í gærmorgun. Um klukkan hálf þrjú í gær- dag lagði Týr af stað með Detti- foss með stefnu á Eskifjörð eft- ir að hafa komið taug yfir í skip- ið. Síðdegis slitnaði hún vegna veðurs, en þar voru um 23 til 24 metrar á sekúndu, of vont veður til að reyna að koma línu aftur á milli skipanna. Björgunartilraunir höfðu ekki borið árangur þegar blaðið fór í prentun í gær en reyna átti að koma taug frá Tý yfir í Dettifoss. Að sögn manna um borð í Dettifossi var áhöfninni nokkuð brugðið þegar í ljós kom að skip- ið var stjórnlaust í vondu veðri. Viðmælandi blaðsins sagði líðan áhafnarinnar eftir atvikum. Baldur Guðnason, forstjóri Eimskipafélagsins, segir að skemmdir á Dettifossi verði kannaðar á Eskifirði og að því loknu verði tekin ákvörðun um hvar viðgerð fer fram. Dettifoss er ásamt Goðafossi stærsta skip íslenska kaupskipaflotans. Það var smíðað í Danmörku fyrir tíu árum. ghg@frettabladid.is Samningur leikskólakennara: 64,5 prósent sögðu já KJARAMÁL Leikskólakennarar hafa samþykkt nýjan kjarasamning til tveggja ára. Forsvarsmenn Fé- lags leikskólakennara og Launa- nefndar sveitarfélaga undirrituðu samninginn 22. desember síðast- liðinn. Atkvæði voru talin í gærmorg- un og var samningurinn sam- þykktur með 64,5 prósentum at- kvæða gegn 32,5 prósentum. Þrjú prósent atkvæðaseðlanna voru auðir og ógildir. Alls voru 1.491 á kjörskrá og greiddu 1.365 félags- manna, eða 91,5 prósent, atkvæði. - th Tekinn með dóp á Akranesi: Reyndi að stinga af LÖGREGLA Lögreglumenn á Akra- nesi höfðu afskipti af grunsam- legum manni á föstudagskvöld. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglumenn- ina en þeir náðu þó að hlaupa hann uppi og handsama. Við handtöku náði hann að kasta frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda 4 grömm af amfetamíni og 11 grömm af sveppum. Við ítarlegri leit á manninum fundust 1,5 grömm af am- fetamíni og í framhaldi var farið í húsleit á heimili hans. Þar fund- ust 25 grömm af hassi, 1,7 grömm af amfetamíni og 2,2 af sveppum. Maðurinn var yfir- heyrður og sleppt að því loknu. Málið er enn í rannsókn. - bg Pantanir í síma 5116030 www.hotelcabin.is, booking@hotelcabin.is ÞORRABLÓT 20 - 80 manna hópar Tökum að okkur Þorrablót fyrirtækja, félagasamtaka, vinahópa, átthagasamtaka o.s.frv. Súðin á 6. hæð Hótel Cabin er einstaklega huggulegur veislusalur þar sem hópar njóta næðis en þó er stutt í ys og þys miðborgarinnar. Hótel Cabin, Borgartúni 32 Setti staðsetningartæki undir bíl fyrrverandi: Dæmdur í fangelsi BANDARÍKIN, AP Maður var dæmd- ur í sextán mánaða fangelsi í Kaliforníu fyrir að ofsækja fyrrverandi kærustu sína. Maðurinn var sár og svekkt- ur eftir að konan sleit samband- inu við hann. Reyndi hann hvað hann gat til að vinna aftur ástir konunnar en lítið gekk. Maður- inn gekk hins vegar of langt þegar hann festi farsíma með gervihnattastaðsetningartæki undir bíl hennar. Staðsetningar- tækið fór í gang í hvert sinn sem bíllinn hreyfðist og sendi merki í gegnum gervihnött og í tölvu mannsins. Konan upp- götvaði tækið þegar hún kom að manninum liggjandi undir bíln- um að skipta um rafhlöðu í sím- anum. ■ SVEINN RÚNAR HAUKSSON Formaður Félagsins Ísland-Palestína er reiðubúinn að borga skilagjald fyrir tölvuna. HÖFN ESKIFJÖRÐUR Reyðarfjörður Eystrahorn 28. janúar kl. 20.25: Dettifoss um 8 sjómílur undan Eystrahorni. Óskar eftir aðstoð varðskips. 28. janúar kl. 22.07: Varðskip kemur að Dettifossi. 28. janúar kl. 23.37: Varðskip vinnur að því að koma taug í Dettifoss sem síðar slitnar. 29. janúar kl. 13.55: Haldið áleiðis til Reyðarfjarðar. Fram að þessu höfðu skipin rekið undan sjó og veðri. Áætluð leið skipanna til Reyðar- fjarðar. Vegalengd um 26 sjó- mílur í mynni Reyðarfjarðar. BJÖRGUNARLEIÐANGURINN Á kortinu sjást ferðir Dettifoss frá því að stýri skipsins brotnaði af um klukkan átta í fyrra- kvöld. SKUTUR DETTIFOSS Mynd tekin frá Ægi klukkan eitt í gærdag. Hluti stýrisblaðsins er brotinn af. KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 61,99 62,29 117,02 117,58 80,88 81,34 10,88 10,93 9,81 9,86 8,90 8,95 0,60 0,60 94,30 94,86 GENGI GJALDMIÐLA 28.1.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 111,25-0,22%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.