Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 18
18 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR
Mikil hlýindi hafa verið hér á landi
undanfarna daga, mörgum til mikillar
gleði. Snjóinn er farinn af götum og
flestum gangstéttum og í staðinn hef-
ur hálfgert vorveður verið ríkjandi
með frekar háu hitastigi.
Á sama tíma hafa mikil kuldaköst
gengið yfir Bandaríkin og víða um
Evrópu, þar á meðal Ítalíu, Þýskaland,
Frakkland og Pólland. Þó svo að
einna mestur kuldi og snjókoma hafi
verið á austurströnd Bandaríkjanna
náði kuldinn einnig til Flórída, þar
sem frostið var á bilinu 2-7 gráður
um síðustu helgi.
Til að leita skýringa á því hvort sam-
hengi sé á milli hlýinda hér og kulda
annars staðar ræddi Fréttablaðið við
Harald Ólafsson veðurfræðing. „Það
fara stundum saman mikil hlýindi hér
og kuldar í Evrópu,“ segir Haraldur
Ólafsson. „Straumarnir í vestanvinda-
beltinu okkar taka á sig lykkju. Ef ein-
hvers staðar er óvenjuhlýtt er oftar en
ekki óvenjukalt annars staðar á norð-
urhveli á svipuðum breiddargráðum.
Þegar það er hlýtt á Íslandi á veturna
er ekki óalgengt að í Mið- og Austur-
Evrópu sé kuldatíð,“ segir hann.
Ástæðan fyrir þessum lykkjum á
straumunum er sú að yfirborð jarðar-
innar gefur mismunandi varma frá
sér. Á veturna eru meginlöndin köld
og sjórinn frekar hlýr auk þess sem
stórir fjallgarðar senda frá sér öflugar
truflanir í straumana.
Að sögn Haraldar er það fremur
óvenjulegt að svona kalt sé í Flórída.
Til að mynda sé talað um að appel-
sínurnar þar þoli ekki frost því þær
hafi svo þunnan börk. Í meginatriðum
er útlit fyrir hlýindi næstu daga hér á
landi og því ljóst að landsmenn þurfa
ekki að kvíða fyrir frosti eða snjó-
þyngslum alveg strax.
freyr@frettabladid.is
Hlýtt á Íslandi en frost í Flórída
ALLT FROSIÐ FAST Mikið
frost hefur verið í Sviss. Hér
sést hvernig frostið hefur læst
sig í bíl, símalínu og allt þar á
milli við strönd Genfarvatns
skammt frá Versoix.
AUÐ JÖRÐ Hér á landi hefur
veðurfar verið gott undanfarið
og hafa hlýindin fært mörgum
aukna gleði í hjarta.
Á KAFI Í SNJÓ Íbúi í borg-
inni Hull í Massachusetts í
Bandaríkjunum á gangi við
heimili sitt. Mikill snjór hefur
verið þar undanfarið og muna
menn vart annað eins.
FASTUR Í SKAFLI Karl og
kona reyna að losa bíl úr
skafli í borginni Chieti á Ítalíu.
Mikið hefur snjóað í landinu
undanfarið.
Á SKÍÐUM Fólk á göngu-
skíðum skíðar framhjá minn-
ismerki landgönguliða í Wash-
ington. Fólkið ákvað að nýta
tækifærið því þetta var í fyrsta
sinn í langan tíma sem svo
mikið snjóaði þar í borg.
SYNT Í KULDA Mjög kalt
hefur verið í Flórída undanfar-
ið. Sundmenn létu frostið
samt ekki á sig fá og busluðu
í lauginni eins og ekkert væri.
Vegna kuldans myndaðist
mikil gufa í lauginni.