Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 6
Rjúpnaveiði hefst að nýju Umhverfisráðherra hefur lagt fram frumvarp um að rjúpnaveiði hefjist að nýju í haust. Heimild er í frumvarpinu til að setja á sölubann. Það er talið koma í veg fyrir að lítill hópur veiðimanna hafi lífs- viðurværi af sölu á rjúpu. Rjúpnastofninn tvöfaldaðist milli áranna 2003 og 2004. VEIÐAR Rjúpnaveiði hefst að nýju næsta haust ef frumvarp Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfisráð- herra verður að lögum. Frumvarp- ið hefur verið kynnt í ríkisstjórn og er nú til umfjöllunar í þing- flokkum stjórnarflokkanna. Í frumvarpinu er lagt til að um- hverfisráðherra verði heimilt að takmarka rjúpnaveiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins og að hann geti við tilteknar aðstæður sett á sölubann. Sumarið 2003 ákvað Siv Frið- leifsdóttir, þáverandi umhverfis- ráðherra, að friða rjúpu til yfir- standandi árs vegna bágs ástands stofnsins. Í tilkynningu frá ráðu- neytinu segir að við talningu á rjúpu síðastliðið vor hafi komið í ljós að stofninn hafi tvöfaldast milli áranna 2003 og 2004. Þetta bendi til þess að mögulegt sé að stunda takmark- aðar veiðar. Með tillögu umhverfisráðherra er ætlunin að tryggja að rjúpnaveiðar verði sjálfbærar þegar þær hefjast á ný til þess að ekki þurfi að grípa aftur til veiðibanns. Sigmar B. Hauksson, for- maður Skot- veiðifélags Ís- lands, átti sæti í nefnd sem undirbjó frumvarpið. Hann telur það til mikilla bóta og það auðveldi veiðistjórnun. Hann segir að með frumvarpinu sé reynt að koma í veg fyrir veiðar atvinnumanna með því að opna möguleika á sölu- banni. „Það skiptir mestu að hægt sé að banna sölu til verslana og veitingahúsa. Það eru að vísu margir sem telja að salan færist þá á svartan markað en samkvæmt athugun okkar á framkvæmd sölu- banns á gæsum og villtum laxi í Bandaríkjunum og Skotlandi virð- ist sem slíkt bann geti verið árangursríkt.“ Sigmar segir um 500 veiði- menn, eða um tíu prósent skot- veiðimanna, hafi veitt um helming rjúpna sem veiddur var á landinu. „Það hlutfall gengur ekki upp. Rjúpnaveiðar eiga að vera frí- stundaveiðar en ekki atvinna. Ætlunin er að koma á sölubanni við tilteknar aðstæður, það er þeg- ar stofninn er talinn veikur en ekki er talin ástæða til þess þegar hann er sterkur. Sigmar segir þennan möguleika gera umhverfisráð- herra auðveldara að grípa inn í með verndaraðgerðum þegar þess reynist þörf. ghg@frettabladid.is 6 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR Fjárhagsstaða Ólafsfjarðar: Sársaukafullur samdráttur NIÐURSKURÐUR Vegna bágrar fjár- hagsstöðu Ólafsfjarðarbæjar er ekki gert ráð fyrir neinum fjár- munum til framkvæmda í fjár- hagsáætlun yfirstandandi árs. Að sögn Jónu Vilhelmínu Héðinsdótt- ur, formanns bæjarráðs, eru eng- ar uppsagnir áformaðar en stytt- ing á vinnutíma, hagræðing í rekstri og samdráttur í þjónustu einkennir fjárhagsáætlunina. Þrátt fyrir launahækkanir síð- ustu missera er gert ráð fyrir að launakostnaður lækki um átta milljónir króna á milli ára og verði 56,8 prósent af heildarút- gjöldum Ólafsfjarðarbæjar á yfir- standandi ári. Annar rekstrar- kostnaður lækkar úr rúmum 136 milljónum króna í fyrra í rúmar 112 milljónir króna í ár. „Hér eru lagðar til tímabundn- ar sársaukafullar aðgerðir sem munu koma við íbúa Ólafsfjarðar- bæjar, bæði starfsmenn hans og íbúa,“ segir í bókun meirihlutans í Ólafsfirði. Þar kemur einnig fram að stefnt sé á að auka þjónustuna á ný á næsta ári og veita þá fé til framkvæmda í sveitarfélaginu. - kk Kosningar: Cox á móti Hillary BANDARÍKIN, AP Edward Cox, tengdasonur Richards Nixon, fyrrverandi forseta Bandaríkj- anna, íhugar að bjóða sig fram á móti Hillary Clinton í kosningum til öldungardeildar þingsins á næsta ári. Allt eins líklegt þykir að Cox hljóti útnefningu repúblikana þar sem ólíklegt er að Rudolph Giuli- ani, fyrrverandi borgarstjóri New York, eða George Pataki ríkis- stjóri muni sækjast eftir útnefn- ingu. Stjórnmálaspekingar í Bandaríkjunum búast frekar við því að Giuliani og Pataki muni fara í forsetaframboð árið 2008. ■ Vinnumálastofnun: Ný tegund atvinnuleyfa VINNUMARKAÐURINN Verið er að kanna hvort hægt sé að gefa út óendurnýjanleg atvinnuleyfi með svipuðum hætti og óendurnýjan- leg dvalarleyfi. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að at- vinnuleyfin virki þá þannig að starfsmaðurinn ávinni sér ekki dvalarleyfi á Íslandi og leyfið tryggi honum ekki aðgengi að ís- lenskum vinnumarkaði til fram- búðar. Eins og staðan er í dag fá fyrir- tæki tímabundna heimild og er hún svo framlengd ef aðstæður leyfa. Til að útgáfa á óendurnýjanleg- um atvinnuleyfum geti hafist þarf lagabreytingu og er unnið að því. - ghs Kynningarfundur verður haldinn hjá Reykjavíkurdeild, Laugavegi 120, 4. hæð mánudaginn 31. janúar klþ. 20:00 á öllum aldri í fjölbreytt og áhugaverð verkefni. Viljum bæta við sjálfboða- liðum Sjálfboðamiðstöð Reykjavíkurdeildar Hefurðu sótt um launahækkun í vetur? SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu sátt(ur) við árangur ís- lenska landsliðsins á HM? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 79% 21% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN TIL VERNDAR RJÚPUNNI Mótmælandi vakti athygli á því að skotveiðimenn væru hávær og skipulagður þrýstihópur. VIÐ UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ Fjöldi skotveiðimanna mótmælti rjúpnaveiðibanni á sínum tíma. ÓLAFSFJÖRÐUR Ekki er gert ráð fyrir neinum fjár- munum til framkvæmda vegna bágrar fjárhagsstöðu bæjarins. REGLUGERÐIN EFTIR HELGI Reglugerðin sem félagsmálaráð- herra boðaði fyrir helgina verður ekki gefin út fyrr en eftir helgi. Reglugerðinni er meðal annars ætlað að taka á gagnrýni verka- lýðshreyfingarinnar á Impregilo. ASÍ og SA hafa sent athugasemd- ir sínar til ráðuneytisins og er verið að fara yfir málið. 200 UMSÓKNIR Meirihluti um- sókna sem bárust frá fólki á EES- svæðinu vegna auglýsinga Impregilo hjá Eures-vinnumiðl- uninni var sendur áfram til Impregilo, eða um 200, og hefur þó nokkrum þegar verið boðið starf. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 15. febrúar. ■ IMPREGILO SÖGUMINJAR Arkitektastofan Kollgáta á Akureyri hefur eign- ast gömlu kartöflugeymslurnar í Listagilinu á Akureyri. Logi Már Einarsson, eigandi Koll- gátu, segir að ætlunin sé að end- urbyggja geymslurnar og flytja starfsemi arkitektastofunnar þangað með vorinu. „Til stóð að rífa geymslurnar í tengslum við framkvæmdir við Brekkuskóla en mér var bent á að þetta gæti orðið hentugt húsnæði fyrir okkur. Nú er búið er að fjar- lægja allan jarðveg ofan af geymslunum og verið að ein- angra þær og verja fyrir vatni og vindum. Á næstunni hefjast svo framkvæmdir inni í geymsl- unum. Logi segir kostnaðinn við framkvæmdirnar svipaðan og um nýbyggingu væri að ræða en húsnæðið, sem allt verður neð- anjarðar, er 95 fermetrar að stærð. Stór gluggi mun snúa út í Listagilið og þar verður einnig inngangurinn. „Það væri vel þegið ef þeir sem eiga myndir sem tengjast geymslunum hefðu samband við okkur því við ætlum að gera sögu mannvirkisins skil á einum vegg arkitektastofunnar,“ segir Logi Már. - kk Nýting söguminja á Akureyri: Arkitektastofa flytur í kartöflugeymslur GÖMLU KARTÖFLUGEYMSLURNAR Á AKUREYRI Geymslurnar voru byggðar 1937 og notaðar sem slíkar fram yfir 1980. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.