Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 46
34 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR Með Fréttablaðinu alla fimmtudaga Við vinnslu greinar Kára Stefáns- sonar, Af flísum og bjálkum, sem birtist í blaðinu í gærdag, féllu nið- ur fjórar setningar á undan síðustu málsgrein en þær skipta sköpum fyrir niðurlag hennar. Lok greinar- innar verða því endurbirt hér að neðan en þar beinir greinarhöfund- ur orðum sínum að Hallgrími Helgasyni, myndlistarmanni og rit- höfundi, sem skrifaði umtalaðan áramótapistil í Fréttablaðið á gaml- ársdag: Ég ætla hins vegar ekki að halda því fram að Hallgrímur sé geðveik- ur eins og hann gerði um Davíð, fyrst og fremst vegna þess að ég held ekki að hann sé það. Ég hef því leitað skýringar á þessu vandamáli í áhrifum umhverfis á Hallgrím og hún hljómar svona: Þrátt fyrir Hita- veitu Reykjavíkur, sem Davíð Odds- son studdi dyggilega sem borgar- stjóri, verðum við fyrir töluverðum áhrifum af veðurfari hér á höfuð- borgarsvæðinu. Þeir voru svalir tveir síðustu mánuðir ársins 2004 með mörgum frostköldum dögum og þegar maður er búinn til höfuðs- ins eins og Hallgrímur Helgason er hætt við því að svona tíð skilji eftir sig kalbletti á heilaberkinum sem geta leitt til þess að menn glati allri tilfinningu fyrir því hvað er við hæfi í samfélagi siðaðra manna. En nú er ég farinn að gera grín að Hallgrími vegna þess að það vantar hár á þennan fína haus sem hann hefur á herðum sér. Haus sem starfar gjarnan hausa best þótt hann sé ekki óskeikull. Hér er ég að láta undan tilhneigingu sem ríður húsum í greininni hans Hallgríms. Ég er að reyna að vera andstyggilegur og fyndinn á kostnað annars manns og ef að líkum lætur tekst mér hið fyrra en mistekst hið síðara. Þessi grein var ekki skrifuð í reiði út í Hallgrím Helgason heldur til þess að lýsa andúð minni á mál- flutningi af þeirri gerð sem hann notar í greininni umræddu og markast af persónulegum árásum, tilraunum til þess að meiða, óbil- girni og skorti á virðingu fyrir þeim gildum sem gera íslenskt samfélag að góðum stað. En nú er nóg sagt í bili og finnst sjálfsagt mörgum að bera í bakkafullan lækinn og ætla ég að fara í Þjóðleikhúsið að sjá leikrit sem heitir Þetta er allt að koma í leikstjórn Baltasars sem er snillingur. Þeir vinna svo vel saman félagarnir. Og ég hlakka til. ■ Grein Kára Stefánssonar: Setningar féllu niður Hún býr í landinu helga. Ákvað að söðla um og gerast au pair á fram- andi slóðum síðastliðið vor. Var valin til að gæta tveggja barna Jónínu Guðrúnar Árnadóttur og ísraelsks eiginmanns hennar í Shoham, úthverfi Tel Aviv, en Jón- ína kynntist mannsefni sínu þegar bæði unnu á samyrkjubúi í Ísrael. „Þetta er ósköp venjuleg fjöl- skylda; Jónína vinnur hjá há- tæknifyrirtæki en maðurinn henn- ar hjá öryggisþjónustu. Krakkarn- ir eru fjögurra ára stelpa og átta ára strákur. Þau töluðu nánast enga íslensku þegar ég kom út en mér hefur tekist að kenna þeim nær lýtalausa íslensku,“ segir au pair-stúlkan Sigrún Sæmundsdótt- ir sem leggur stund á hebresku- nám meðfram húsmóðurstarfinu í Shoham. Sigrún segir öryggisgæslu og vopnaburð vera gífurleg í landinu; jafnvel inni á leikskólum. „Sho- ham-hverfið er læst á kvöldin og þannig eru vopnaðir verðir um alla borg. Maður skýst ekki út í búð án þess að skoðað sé í tösku manns. Ég hef lært að Ísland er paradís þótt við séum óttalegir trúleysingjar, því við þurfum ekki að hafa áhyggjur af neinu. Íslensk ungmenni eru frjáls, meðan hér þurfa bæði kynin að gegna þriggja ára herþjónustu og ganga um með þungar vélbyssur; vopnuð frá toppi til táar. Það kom þó á óvart að lífið hér er ekki eins og maður sér í sjónvarpsfréttunum heima. Átökin eru bundin við mjög af- markað svæði og engan veginn daglegt brauð meðal íbúa Ísraels.“ Sigrún segir Ísraelsmenn fal- legt fólk. Hún hefur haft í nógu að snúast síðan hún fór utan fyrir tæpum átta mánuðum. „Ég var í sjokki fyrst yfir áhuga gyðingastrákanna; ekki síst þar sem ég er dökkhærð. Ég sker mig úr hópnum og þyki sjálfstæð- ari og þroskaðri en ísraelskar jafnöldrur mínar. Ég hef farið á mörg stefnumót og þeir hafa uppi verulega hallærislegar pick-up- línur þótt þeir séu upp til hópa yndislegar manneskjur. Það er erfiðara að kynnast ísraelsku kvenfólki en þær öfundast yfir at- hyglinni sem ég fæ og spá rosa- lega í útlitið enda fer þriðja hver í brjósta- og nefaðgerð. Þær eru súper grannar; mjög fallegar, en geta verið svolitlar tíkur í sér. Annars eru Ísraelsmenn mikið tískufólk og alltaf í ræktinni. Tel Aviv er strandborg og þar er unga fólkið á línuskautum og sýnir lík- amana íklætt bikiníum og sund- skýlum.“ Ísrael er fæðingarland Jesú Krists og hefur Sigrún aðeins ferðast um hans slóðir; þar sem öruggt þykir að fara. „Ég varð mjög snortin að fara til Jerúsalem og Nasaret. Þetta er svo heilagt og skrítið að fólk geti verið í stríði þarna. Ég bý hjá gyðingum og þetta er gyðingaland. Skammast mín oft fyrir að vera trúleysingi því trú gyðinga er svo falleg. Heima fer maður í kirkju, sér frelsarann blóðugan á krossinum og fer að hugsa um dauðann. Ég gæti því vel hugsað mér að skipta um trú og búa í landinu helga til frambúðar, þótt ég sé rétt að byrja að skoða heiminn og ferðast sem au pair,“ segir Sigrún glaðlega, spennt að fara utan aftur. thordis@frettabladid.is AU PAIR-STÚLKAN SIGRÚN SÆMUNDSDÓTTIR HEFUR BÚIÐ Í ÚTHVERFI TEL AVIV SÍÐAN Í FYRRA Segist hafa lært að Ísland er paradís á jörðu og að íslensk ungmenni séu frjáls eins og fuglinn, meðan ísraelsk ungmenni þurfi að gegna herþjónustu og bera þung vopn; stelpur í tvö ár en strákar í þrjú. SIGRÚN SÆMUNDSDÓTTIR: ER AU PAIR-STÚLKA Í LANDINU HELGA Trúin falleg og strákarnir líka HIN HLIÐIN HIN HLIÐIN Á ÍVARI ERNI SVERRISSYNI LEIKARA Hvernig ertu núna? Ég hef það bara voða fínt. Augnlitur: Blár. Starf: Leikari. Stjörnumerki: Vatnsberi. Hjúskaparstaða: Í sambúð. Hvaðan ertu? Ég er úr Langholtshverfinu. Helsta afrek: Að halda velli í samfélaginu og vera ekki farinn á hausinn. Helstu veikleikar: Stundum er ég of skilningsríkur. Helstu kostir: Ég er alltaf til í að leika mér. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Kallakaffi. Uppáhaldsútvarpsþáttur: Ég og sonur minn hlustum alltaf saman á rapp- þáttinn hans Bents og dönsum. Uppáhaldsmatur: Eiginlega allt sem mamma mín býr til. Uppáhaldsveitingastaður: Shalimar. Uppáhaldsborg: Ég hef komið einu sinni til New York og hún er í miklu upp- áhaldi hjá mér. Ég þyrfti að fara þangað aftur. Mestu vonbrigði lífsins: Á sínum tíma voru það mjög mikil vonbrigði þeg- ar mér tókst ekki að fá jólatréð til að standa í fætinum. Ég var 14 ára og að basla við þetta einn. Áhugamál: Flestar íþróttir, þá aðallega að taka þátt í þeim frekar en að horfa. Svo er ég mikill áhugamaður um kvikmyndir. Viltu vinna milljón? Já, ef það er í boði. Jeppi eða sportbíll?: Notaður sportbíll. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Lukku Láki. Kannski fæ ég að vera hann einhvern tímann. Hver er fyndnastur/fyndnust? Jim Carrey. Hver er kynþokkafyllst(ur)? Yfirleitt konan mín. Trúir þú á drauga?Ég trúi á þá en ég vil ekki trúa því að þeir séu til. Ég er hræddur við þá. Hvaða dýr vildirðu helst vera? Ég væri til í að vera örn. Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Breiðnefur. Það er dýr sem veit ekki hvort það er önd, rotta eða hæna. Það verpir eggjum en er samt spendýr. Aðeins of ruglingslegt fyrir minn smekk. Áttu gæludýr? Nei, því miður. Hef ekki komið því við ennþá. Besta kvikmynd í heimi: 9 1/2 eftir Fellini. Besta bók í heimi: Alkemistinn. Næst á dagskrá: Að leika betur. 7.2.1977 Ætlaði að verða Lukku Láki ...fá Sambíóin fyrir að halda stelpudaga dagana 28. janúar - 3. febrúar og rukka aðeins 300 krónur inn á gamanmyndir eins og Bridget Jones og Alfie. HRÓSIÐ MARGRÉT LÁRA ÞÓRARINSDÓTTIR Hún féll úr keppni í Idol Stjörnuleit á föstudaginn. Margrét Lára úr leik Margrét Lára Þórarinsdóttir féll úr leik í Idol Stjörnuleit á föstu- daginn. Ekki voru allir á því að þessi úrslit væru sanngjörn því margir aðrir keppendur þóttu alls ekki standa sig nógu vel. Þemað í keppninni að þessu sinni var Sálin hans Jóns míns og var Stefán Hilmarsson gesta- dómari. Dómarar höfðu orð á því eftir að hafa fylgst með keppendum að sennilega væru Sálarlögin heldur erfið því flestum kepp- endum virtist ganga frekar illa að tækla þau. Aðalheiður Ólafs- dóttir og Hildur Vala Einars- dóttir fengu þó báðar fína dóma frá dómurum og þóttu standa sig með prýði. Margrét Lára var að vonum svekkt að detta út en eins og dómararnir sögðu margoft þá á hún sennilega bet- ur heima annars staðar en í poppbransanum og á vafalaust eftir að láta að sér kveða í tón- listarheiminum. ■ HALLGRÍMUR HELGASON KÁRI STEFÁNSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.