Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 16
16 30. janúar 2005 SUNNUDAGUR 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 „Það er allt í lagi að menn ólmist í kosningabaráttu og láti gamminn geysa en það eru ákveðin mörk sem menn fara ekki yfir. Menn beita ekki ósæmilegum málflutn- ingi sem meiðir persónu fram- bjóðenda. Það gera menn almennt ekki í stjórnmálum og það eiga menn ekki heldur að gera innan okkar flokks. Þessi kosninga- barátta er mælikvarði á flokkinn. Ef hún fer úr böndunum og verð- ur með þeim hætti að hún verði okkur til vansa verður einfaldlega miklu erfiðara fyrir flokkinn að halda þeim trúverðugleika í fram- tíðinni sem við höfum náð núna,“ segir Össur Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, sem hefur boðið sig fram til áfram- haldandi formennsku í kosningum sem fram fara í vor. Mótfram- bjóðandi hans er núverandi vara- formaður flokksins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. „Ég nálgast verkefni sem for- maður flokksins af auðmýkt og þetta hefur verið eitt gjöfulasta tímabil ævi minnar. Auðvitað ber maður tilfinningar til þessarar hreyfingar og þess vegna hef ég brugðist illa við þegar óstýrilátir og kappsfullir menn hafa í þessari kosningabaráttu talað um það að flokkurinn standi illa,“ segir Öss- ur. „Ég bregst öndvert við slíku og hart, mér finnst það rangt og menn mega ekki leyfa sér að tala niður flokkinn í þessari baráttu.“ Samfylkingin á góðri leið Spurður hvað hafi valdið því að hann ákvað að bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku segir Össur að það sé mikið til vegna ut- anaðkomandi hvatningar. „Úr hópi forystumanna og óbreyttra liðsmanna í Samfylkingunni hafa mér borist mjög eindregnar hvatningar til þess að halda áfram formennsku. Mörgum finnst sem Samfylkingin sé á ákaflega góðri leið núna. Við erum hinn stóri flokkurinn í landinu, við höfum verið með 30 til 35 prósenta fylgi í skoðanakönnunum, málefnastaða flokksins er mjög góð og inn á við hefur okkur miðað afar vel áfram,“ bendir hann á. Össur segir að það hafi tekist að byggja flokkinn ákaflega vel upp. „Samfylkingin er orðin ein heildstæð hreyfing með sameigin- legu átaki mjög margra víðsvegar um landið með stofnun nýrra fé- laga og innri uppbyggingu. Það sem við erum stoltust af er að hafa tekist að eyða öllum flokka- dráttum milli karla og kvenna sem koma úr mismunandi flokk- um. Þetta er mikill árangur,“ seg- ir hann. „Flokkurinn er því á ákaflega góðri siglingu og því telja margir ekki heppilegt að rugga skipinu með því að skipta um skipstjóra. Við viljum halda áfram að byggja upp þessa samfylkingu um breiðan og öflugan flokk og auðvitað er það næsta verkefni inn á við að treysta enn frekar stefnumótun, opið starf og lýðræðisleg áhrif félaganna. Lýðræðið er af hinu góða og kosn- ingar innan flokka heyra til þess. Mér finnst sjálfum ekki ástæða til þess að skipta um karlinn í brúnni ef hann er að fiska,“ segir Össur. Hann segir að það sé auðvitað lýðræðislegur réttur að bjóða sig fram. „Okkar hreyfing er þroskuð stjórnmálahreyfing og þess vegna er ég ekki hræddur við þessi átök um forystuna. Í okkar hreyfingu á fólkið að ráða. 14 þúsund manns hafa tækifæri til þess. Allir í stjórnmálum verða einfaldlega að taka slíkum dómi, ég eins og aðr- ir.“ Össur formaður frá upphafi Samfylkingin varð til sem kosn- ingabandalag fyrir kosningarnar 1999 og var Össur kjörinn fyrsti formaður flokksins á stofnfundi hans ári síðar. „Mér fannst kosn- ingarnar ganga vel, við fengum 26,9 prósent. Það var flott upp- haf,“ segir Össur um fyrstu al- þingiskosningar Samfylkingar- innar. Spurður hvernig það hefði komið til að hann tók að sér for- mennsku flokksins fyrstur alla segir hann: „Það var Margrét Frí- mannsdóttir sem hafði forgöngu um að stilla mér upp sem for- manni sem og Sighvatur Björg- vinsson en Margrét hafði leitt okkur í gegnum frumraunina með miklum ágætum.“ Hann segir að Samfylkingin hafi farið að rísa upp úr öldudaln- um þegar flokkurinn tókst á við mjög erfiða stefnumótun varð- andi velferðarmál og Evrópumál á landsfundinum 2001. „Ég held að fólk hafi virt það við okkur, hvort sem það var með okkur eða á móti, að við tókumst á við mjög erfið vandamál og leystum þau. Við fórum nýjar leiðir, tókum til dæmis lýðræðislega ákvörðun varðandi stefnu okkar í Evrópu- málum þar sem hún var lögð fyrir kosningu allra flokksmanna. Sá landsfundur varð algjör vendi- punktur í okkar sögu. Við vorum í um 15 til 16 prósentum en fórum eftir það að klifra jafnt og þétt þangað til við komumst í 32 pró- sent þar sem við erum núna,“ seg- ir Össur. Nátengdur andstæðingnum Össur og Ingibjörg eru gift systk- inum. Spurður hvernig það sé að heyja kosningabaráttu við mann- eskju sem er jafntengd honum og raun ber vitni segir hann: „Í hreinskilni sagt þá er það mjög erfitt. Það er óneitanlega erfitt líka fyrir þá sem næst mér standa í lífinu. Svona er bara lífið. Ég hannaði ekki þetta mynstur, það gerðist bara og hvorugt okkar get- ur neitt gert í því.“ „Hugsanlegt er að við séum þrátt fyrir allt það líkum eðlis- kostum búin að við höfum laðast að sömu einkennum í fari maka okkar – þau eru mjög lík systkinin Hjörleifur og Árný. Við reynum bæði að haga okkar stjórnmálalífi þannig að blanda fjölskyldu- tengslunum sem minnst inn í það. Íslensk pólitík er hins vegar slungin saman af mjög nánum og stundum erfiðum fjölskyldu- tengslum. Þetta er ekki einsdæmi – og þarf ekkert að fara til Sturl- ungaaldar til að finna hliðstæð dæmi um tengt fólk sem etur kappi í pólitík,“ bendir Össur á. „Ingibjörg Sólrún er vinur minn hvað sem aðrir segja. Við höfum átt áratuga samfylgd í stjórnmálum, við erum saman í fjölskyldu og mín barátta verður einungis háð á málefnalegum grunni. Ég tel að Ingibjörg Sólrún sé sterk stjórnmálakona og hún hefur sótt mikla reynslu til dæm- is í kvennahreyfinguna, alveg eins og ég hef sótt mikla reynslu í starf mitt í atvinnulífinu áður en ég gerðist stjórnmálamaður. Það eiga allir sama rétt til þess að keppa um sama markmið og ég. Það er ekkert sæti frátekið, hvorki fyrir mig né Ingibjörgu Sólrúnu,“ segir hann. Össur leggur á það áherslu að ef fólkið í flokknum feli honum þetta trúnaðarstarf muni hann að sjálfsögðu reyna að fá Ingibjörgu Sólrúnu til að vera áfram í for- ystusveit og gegna trúnaðarstörf- um fyrir Samfylkinguna. „Ég tel að það sé mikið rúm fyrir hana í forystu flokksins og það er alveg ljóst að hún er manneskja sem myndi gera flokknum gagn í ráð- herrasæti. Þess vegna mun ég reyna að skapa þær aðstæður að hún fallist á að halda áfram í for- ystusveit flokksins þó svo að úr- slitin verði henni ekki í vil,“ segir hann. Spurður hvað hann muni gera fari svo að hann tapi kosningun- um segir hann: „Ég hef alltaf litið svo á að ég væri í þjónustu fólks- ins, bæði kjósenda sem og flokks- manna minna. Ef þær aðstæður koma upp mun ég hugsa það út frá hagsmunum flokksins, út frá því grundvallarsjónarmiði að fara að vilja fólksins.“ Ekki hægt að skilja Ingibjörgu eftir á berangri Það vakti mikla athygli og umtal í alþingiskosningunum 2003 að Ingibjörg Sólrún, þáverandi borg- arstjóri, var útnefnd forsætisráð- herraefni Samfylkingarinnar. Spurður hvort ekki hefði verið eðlilegra að hann sem formaður flokksins hefði verið útnefndur forsætisráðherraefni Samfylking- arinnar svarar Össur: „Það hefði verið fullkomlega eðlilegt að ég sem formaður flokks í mjög góðri stöðu hefði verið forsætisráð- herraefni. Hins vegar var um mjög flókna og erfiða atburðarás að ræða í aðdraganda kosning- anna sem leiddi til þess að Ingi- björg Sólrún varð að yfirgefa borgarstjórastólinn. Þá fannst mér sem formanni, að flokki okk- ar væri fyrir bestu að hlutverkum yrði þannig skipt með forystu- mönnum sem þá voru í eldlínunni, okkur tveimur, að hún yrði for- sætisráðherraefni en ég áfram formaður.“ „Það voru ekki allir jafnhrifnir af minni ákvörðun,“ heldur hann áfram. „En ég barðist fyrir henni og þetta varð niðurstaðan. Þegar ég skoða þetta eftir á finnst mér, Ekki heppilegt að rugga skipinu Össur Skarphéðinsson segir Samfylkinguna á góðri siglingu og því ekki heppilegt að rugga skipinu með því að skipta um skip- stjóra. Hann segir kosningabaráttuna mælikvarða á flokkinn en að sín barátta verði einungis háð á málefnalegum grunni. Mörgum finnst sem Samfylkingin sé á ákaflega góðri leið núna. Mér finnst sjálfum ekki ástæða til þess að skipta um karlinn í brúnni ef hann er að fiska. ,, SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTAVIÐTAL ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON FORMAÐUR SAMFYLKING- ARINNAR ÖSSUR HEFUR VERIÐ ATKVÆÐAMIKILL Á ÞINGI „Ég nálgast verkefni sem formaður flokksins af auðmýkt og þetta hefur verið eitt gjöfulasta tímabil ævi minnar. Auðvitað ber maður tilfinningar til þessarar hreyfingar og þess vegna hef ég brugðist illa við þegar óstýri- látir og kappsfullir menn hafa í þessari kosningabaráttu talað um það að flokkurinn standi illa.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.